{"id":5415,"date":"2023-09-01T13:58:26","date_gmt":"2023-09-01T13:58:26","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5415"},"modified":"2023-09-01T13:58:26","modified_gmt":"2023-09-01T13:58:26","slug":"er-audveldara-ad-tala-um-tilfinningar-a-ensku-en-islensku","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/09\/01\/er-audveldara-ad-tala-um-tilfinningar-a-ensku-en-islensku\/","title":{"rendered":"Er au\u00f0veldara a\u00f0 tala um tilfinningar \u00e1 ensku en \u00edslensku?"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r f\u00f3r \u00e9g \u00ed langt <a href=\"https:\/\/l.facebook.com\/l.php?u=https%3A%2F%2Fwww.youtube.com%2Fwatch%3Fv%3D0vGpBVc1Y_E%26fbclid%3DIwAR21kvCA2UNfs7JzJDxP_oM-LPbRjAAqmkYgW_ssSQo21JskOTZ6-k6MVN8&amp;h=AT0ZFJhhDrAVWBvS8IF0Lz0MAEjPR83prPj0UTwv4pkGrcTa_pMNSFMEmeIWo-5BSB3Yb1P5VpwuvoGzAj1DULywi3AXNgD5-Wnc4Gup599l6Y6gwcayoCN1RvdcFbus4g&amp;__tn__=-UK-R&amp;c%5b0%5d=AT0UCJ7Yqp93-yIxRCsPgDiv02QfRojUnY8PvTVcu667h_3sPGGCnH_mT_NQL26G7MwEXL9ljFDvyszokzrflXlTsC-kymEpxB6ESwNQq6Nfu8brq0aHdZrJQoCjgvs-q8BhTLebR0RGElC2wZi9bxyZaj4dtgKK4tBol7oOUuAO04RJenWGxAQIS1Xq_QBPExvEbY9v-_9T7o0U\">vi\u00f0tal<\/a> hj\u00e1 Gunnari Sm\u00e1ra Egilssyni \u00e1 <em>Samst\u00f6\u00f0inni<\/em> \u00fear sem vi\u00f0 r\u00e6ddum um \u00edslensku fr\u00e1 \u00fdmsum hli\u00f0um \u2013 kynhlutlaust m\u00e1l, \u00edslensku sem anna\u00f0 m\u00e1l, \u00edslenskukennslu innflytjenda, \u00edslensku \u00ed fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustunni, \u00edslenska m\u00e1lstefnu, \u00edslenskan m\u00e1lsta\u00f0al, st\u00f6\u00f0u \u00edslensku hj\u00e1 unglingum, framt\u00ed\u00f0arhorfur \u00edslenskunnar og fleira. Allt eru \u00feetta efni sem \u00e9g hef margsinnis skrifa\u00f0 um og endurtek ekki h\u00e9r, en eitt atri\u00f0i kom \u00fe\u00f3 upp sem \u00e9g hef ekki hugsa\u00f0 um \u00e1\u00f0ur. \u00dea\u00f0 hefur oft veri\u00f0 nefnt a\u00f0 \u00edslensk b\u00f6rn og unglingar tali stundum saman \u00e1 ensku. \u00dea\u00f0 hefur oftast veri\u00f0 tali\u00f0 a\u00f0 \u00feetta gerist helst \u00feegar b\u00f6rnin og unglingarnir eru a\u00f0 setja sig \u00ed s\u00e9rstakar stellingar og tengt vi\u00f0 leiki, ekki s\u00edst t\u00f6lvuleiki. En kannski hangir fleira \u00e1 sp\u00fdtunni.<\/p>\n<p>Gunnar Sm\u00e1ri nefndi a\u00f0 hann hef\u00f0i or\u00f0i\u00f0 var vi\u00f0 a\u00f0 \u00feegar unglingar \u00feyrftu a\u00f0 segja eitthva\u00f0 mikilv\u00e6gt \u2013 eitthva\u00f0 sem v\u00e6ri \u00edgrunda\u00f0, sem tengdist tilfinningum \u00feeirra \u2013 skiptu \u00feau i\u00f0ulega yfir \u00ed ensku. \u00deegar \u00e9g fer a\u00f0 hugsa um \u00fea\u00f0 finnst m\u00e9r \u00fea\u00f0 ekkert \u00f3tr\u00falegt. Kannski h\u00f6fum vi\u00f0 nefnilega vanr\u00e6kt a\u00f0 kenna unglingunum a\u00f0 tala um s\u00edn hjartans m\u00e1l \u00e1 \u00edslensku. Kannski h\u00f6fum vi\u00f0 vanr\u00e6kt \u00fea\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 kunnum \u00fea\u00f0 ekki sj\u00e1lf. Til skamms t\u00edma voru \u00fdmis m\u00e1l sem tengjast tilfinningum hreinlega ekki r\u00e6dd \u00e1 \u00cdslandi. \u00deau eru hins vegar i\u00f0ulega r\u00e6dd \u00ed erlendum b\u00ed\u00f3myndum e\u00f0a \u00f6\u00f0ru efni sem unglingarnir horfa \u00e1 og \u00feess vegna finnst \u00feeim e\u00f0lilegt og \u00fe\u00e6gilegt a\u00f0 gr\u00edpa til enskunnar \u2013 \u00fear finna \u00feau fyrirmyndir sem \u00feau geta nota\u00f0.<\/p>\n<p>\u00cd n\u00fdlegum ranns\u00f3knum hefur komi\u00f0 fram a\u00f0 framhaldssk\u00f3lanemar tengja \u00edslensku gjarna vi\u00f0 skyldu, lei\u00f0r\u00e9ttingar, or\u00f0flokkagreiningu o.\u00fe.h. en enska tengist aftur \u00e1 m\u00f3ti fremur af\u00fereyingu, fer\u00f0al\u00f6gum og skemmtun \u00ed huga \u00feeirra. Kannski hefur afsta\u00f0a samf\u00e9lagsins og sk\u00f3lakerfisins til \u00edslenskunnar \u00fev\u00ed \u00feau \u00e1hrif \u00e1 unglinga a\u00f0 \u00feeim finnst h\u00fan fjarl\u00e6g og vandme\u00f0farin \u2013 \u00feeim finnst \u00feau ekki eiga hlut \u00ed henni og eiga \u00feess vegna erfitt me\u00f0 a\u00f0 nota hana til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a um eitthva\u00f0 sem stendur \u00feeim sj\u00e1lfum n\u00e6rri. En svo getur l\u00edka veri\u00f0 a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0an s\u00e9 \u00fever\u00f6fug \u2013 a\u00f0 unglingarnir noti ensku til a\u00f0 hleypa \u00f6\u00f0rum ekki of n\u00e1l\u00e6gt s\u00e9r. Er sagt <em>I love you<\/em> frekar en <em>\u00e9g elska \u00feig<\/em> vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 tj\u00e1i tilfinninguna betur, e\u00f0a vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00e1byrg\u00f0arlausara?<\/p>\n<p>Hver sem \u00e1st\u00e6\u00f0an er finnst m\u00e9r \u00fea\u00f0 mj\u00f6g athyglisvert ef unglingar tala oft um tilfinningar og \u00f6nnur vi\u00f0kv\u00e6m m\u00e1l \u00e1 ensku. Forsendan fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00edslenskan eigi s\u00e9r framt\u00ed\u00f0 er a\u00f0 unga kynsl\u00f3\u00f0in noti hana \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um samf\u00e9lagsins, ekki s\u00edst \u00ed umr\u00e6\u00f0u af \u00feessu tagi. Ef unglingum finnst \u00feau ekki geta nota\u00f0 \u00edslenskuna til n\u00e1inna og alvarlegra samr\u00e6\u00f0na um vi\u00f0kv\u00e6m pers\u00f3nuleg m\u00e1l bendir \u00fea\u00f0 til \u00feess a\u00f0 \u00feau kunni ekki n\u00e6gilega vel \u00e1 hana e\u00f0a tengi sig ekki n\u00e6gilega vi\u00f0 hana, og \u00fe\u00e1 er h\u00e6tt vi\u00f0 a\u00f0 \u00feau missi tr\u00fa \u00e1 m\u00e1linu til annarra nota l\u00edka. Au\u00f0vita\u00f0 veit \u00e9g ekki hvort \u00fea\u00f0 \u00e1stand sem Gunnar Sm\u00e1ri l\u00fdsti er algengt, en m\u00e9r finnst \u00feetta allavega umhugsunarefni. \u00dej\u00e1lfum b\u00f6rnin okkar \u00ed a\u00f0 tala um tilfinningar s\u00ednar \u2013 \u00e1 \u00edslensku.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r f\u00f3r \u00e9g \u00ed langt vi\u00f0tal hj\u00e1 Gunnari Sm\u00e1ra Egilssyni \u00e1 Samst\u00f6\u00f0inni \u00fear sem vi\u00f0 r\u00e6ddum um \u00edslensku fr\u00e1 \u00fdmsum hli\u00f0um \u2013 kynhlutlaust m\u00e1l, \u00edslensku sem anna\u00f0 m\u00e1l, \u00edslenskukennslu innflytjenda, \u00edslensku \u00ed fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustunni, \u00edslenska m\u00e1lstefnu, \u00edslenskan m\u00e1lsta\u00f0al, st\u00f6\u00f0u \u00edslensku hj\u00e1 unglingum, framt\u00ed\u00f0arhorfur \u00edslenskunnar og fleira. Allt eru \u00feetta efni sem \u00e9g hef margsinnis skrifa\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5415","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5415","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5415"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5415\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5416,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5415\/revisions\/5416"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5415"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5415"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5415"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}