{"id":5422,"date":"2023-09-04T08:00:51","date_gmt":"2023-09-04T08:00:51","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5422"},"modified":"2023-09-03T22:42:17","modified_gmt":"2023-09-03T22:42:17","slug":"fyrir-bakvid-hus","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/09\/04\/fyrir-bakvid-hus\/","title":{"rendered":"Fyrir bakvi\u00f0 h\u00fas"},"content":{"rendered":"<p>Fyrir tveimur og h\u00e1lfu \u00e1ri skrifa\u00f0i \u00e9g h\u00e9r <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2021\/02\/04\/fyrir-bak-vid\/\">pistil<\/a> um samsettu forsetninguna <em>fyrir bakvi\u00f0<\/em> (e\u00f0a <em>fyrir bak vi\u00f0<\/em>) sem \u00e9g haf\u00f0i \u00fe\u00e1 n\u00fdlega fengi\u00f0 spurnir af en vissi l\u00edti\u00f0 um og haf\u00f0i ekki m\u00f6rg d\u00e6mi um. En \u00feegar <a href=\"https:\/\/malheildir.arnastofnun.is\/\">n\u00fd \u00fatg\u00e1fa<\/a> <em>Risam\u00e1lheildarinnar<\/em> kom me\u00f0 efni af samf\u00e9lagsmi\u00f0lum b\u00e6ttist vi\u00f0 fj\u00f6ldi d\u00e6ma og n\u00fa er h\u00e6gt a\u00f0 sko\u00f0a \u00feessa forsetningu n\u00e1nar. H\u00fan vir\u00f0ist vera einhvers konar samsteypa \u00far (<em>\u00e1<\/em>) <em>bak vi\u00f0 <\/em>og <em>fyrir aftan<\/em> og oft er h\u00e6gt a\u00f0 segja hvort sambandi\u00f0 sem er \u00ed sta\u00f0inn, t.d. \u00ed d\u00e6mi af <em>Huga.is<\/em> 2004: \u201e\u00c1n \u00feess a\u00f0 hann s\u00fdni minnstu vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 fl\u00fdgur \u00f6r \u00ed tr\u00e9vegginn fyrir bakvi\u00f0 hann.\u201c \u00dearna v\u00e6ri b\u00e6\u00f0i h\u00e6gt a\u00f0 segja <em>tr\u00e9vegginn <\/em>(<em>\u00e1<\/em>)<em> bak vi\u00f0 hann<\/em> og <em>tr\u00e9vegginn fyrir aftan hann<\/em> \u00ed s\u00f6mu merkingu. En ekki er alltaf h\u00e6gt a\u00f0 skipta \u00e1 (<em>\u00e1<\/em>) <em>bak vi\u00f0 <\/em>og <em>fyrir aftan<\/em>.<\/p>\n<p>M\u00e9r s\u00fdnist a\u00f0 \u00ed sta\u00f0 <em>fyrir bakvi\u00f0<\/em> s\u00e9 \u00e6vinlega h\u00e6gt a\u00f0 setja <em>bak vi\u00f0<\/em>, en ekki n\u00e6rri alltaf <em>fyrir aftan<\/em>. \u00dea\u00f0 eru m.a. d\u00e6mi um <em>fyrir bak vi\u00f0 tj\u00f6ldin<\/em>, <em>fyrir bak vi\u00f0 eyra\u00f0<\/em>, <em>fyrir bak vi\u00f0 t\u00f6lvuna<\/em>, <em>fyrir bakvi\u00f0 luktar dyr <\/em>o.fl. \u00fear sem ekki gengur a\u00f0 segja <em>fyrir aftan<\/em>. Sama gildir um yfirf\u00e6r\u00f0a merkingu eins og <em>fara fyrir bakvi\u00f0 foreldra s\u00edna<\/em>, <em>\u00f6nnur meining fyrir bakvi\u00f0 \u00feetta<\/em>, <em>ma\u00f0urinn fyrir bakvi\u00f0 sigurinn<\/em> o.fl. \u2013 \u00fear gengur <em>fyrir aftan<\/em> ekki heldur. \u00c9g hef hins vegar ekki fundi\u00f0 nein d\u00e6mi um a\u00f0 <em>fyrir bakvi\u00f0 <\/em>s\u00e9 nota\u00f0 \u00ed st\u00f6\u00f0u \u00fear sem a\u00f0eins er h\u00e6gt a\u00f0 nota <em>fyrir aftan <\/em>en ekki <em>bak vi\u00f0<\/em>, \u00ed d\u00e6mum eins og <em>n\u00e6st fyrir aftan mig<\/em> e\u00f0a eitthva\u00f0 sl\u00edkt. Merkingarlega s\u00e9\u00f0 er <em>fyrir bak vi\u00f0 <\/em>\u00fev\u00ed afbrig\u00f0i af (<em>\u00e1<\/em>) <em>bak vi\u00f0<\/em> \u00fe\u00f3tt formi\u00f0 hafi or\u00f0i\u00f0 fyrir \u00e1hrifum fr\u00e1 <em>fyrir aftan<\/em>.<\/p>\n<p>Sambandi\u00f0 <em>fyrir bak vi\u00f0<\/em> er a.m.k. 20 \u00e1ra gamalt. Elsta d\u00e6mi sem \u00e9g finn um \u00fea\u00f0 er \u00e1 <em>Huga.is<\/em> 2002: \u201evinur minn s\u00e1 hva\u00f0 allt ger\u00f0ist, \u00feetta ger\u00f0ist fyrir bakvi\u00f0 hann.\u201c \u00c1 <em>Bland.is<\/em> 2004 segir: \u201e\u00c9g held a\u00f0 \u00fea\u00f0 b\u00fai n\u00fa eitthva\u00f0 meira a\u00f0 baki \u2013 \u00fe\u00e6r eru allavega ekki sj\u00e1lfar fyrir bakvi\u00f0 linsuna.\u201c Fr\u00e1 \u00e1rinu 2005 eru allm\u00f6rg d\u00e6mi af samf\u00e9lagsmi\u00f0lum \u00fear sem f\u00f3lk er a\u00f0 gera athugasemdir vi\u00f0 \u00feetta samband \u2013 \u201eHaha, minn segir alltaf fyrir bakvi\u00f0 \u00feig\u201c\u00a0 og \u201e\u00c9g er b\u00fain a\u00f0 vera a\u00f0 p\u00e6la \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 d\u00e6tur m\u00ednar tala b\u00e1\u00f0ar um fyrir bakvi\u00f0!\u201c segir t.d. \u00e1 <em>Bland.is<\/em> \u00feetta \u00e1r. Svipu\u00f0um athugasemdum f\u00f3r f\u00e6kkandi eftir \u00feetta en breg\u00f0ur fyrir enn \u2013 \u201e\u00c9g er enn a\u00f0 vinna \u00ed a\u00f0 s\u00e6tta mig vi\u00f0 \u00feegar k\u00e6r\u00f3 segir \u201efyrir bakvi\u00f0\u201c segir t.d. \u00e1 <em>Twitter<\/em> 2020.<\/p>\n<p>\u00c9g hef a\u00f0eins fundi\u00f0 tv\u00f6 d\u00e6mi um sambandi\u00f0 \u00ed prentmi\u00f0lum, \u00fea\u00f0 eldra \u00far <em>Fjar\u00f0arp\u00f3stinum <\/em>2013: \u201e\u00fev\u00ed undir ni\u00f0ri eru a\u00f0 gerast magna\u00f0ir hlutir sem f\u00e6stir skilja nema \u00feeir sem hafa fengi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 hva\u00f0 er fyrir bakvi\u00f0 gr\u00edmuna.\u201c Anna\u00f0 d\u00e6mi er \u00ed <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2020: \u201eFallegur gar\u00f0ur er fyrir bakvi\u00f0 h\u00fas.\u201c Fimm d\u00e6mi finnast \u00e1 vefmi\u00f0lum, \u00fea\u00f0 elsta \u00ed <em>V\u00edsi<\/em> 2014: \u201eH\u00e9r beint fyrir bakvi\u00f0 mig er handboltaleikur \u00ed gangi.\u201c \u00cd <em>DV <\/em>2019 segir: \u201eOle Gunnar Solskj\u00e6r er tekinn vi\u00f0 li\u00f0inu og vill hann hrista vel upp \u00ed mannskapnum og einnig fyrir bakvi\u00f0 tj\u00f6ldin.\u201c Langflest d\u00e6min \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni <\/em>eru af samf\u00e9lagsmi\u00f0lum, alls r\u00fam 120, \u00feannig a\u00f0 lj\u00f3st er a\u00f0 \u00fea\u00f0 t\u00ed\u00f0kast nokku\u00f0 \u00ed \u00f3formlegu m\u00e1lsni\u00f0i og g\u00e6ti vitanlega fari\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1st meira \u00ed formlegu m\u00e1li.<\/p>\n<p>Sambandi\u00f0 <em>fyrir bak vi\u00f0 <\/em>er t\u00e6past or\u00f0i\u00f0 svo \u00fatbreitt enn a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0a s\u00e9 til a\u00f0 telja \u00fea\u00f0 r\u00e9tt m\u00e1l. \u00de\u00f3 m\u00e1 hafa \u00ed huga a\u00f0 sambandi\u00f0 (<em>\u00e1<\/em>)<em> bak vi\u00f0<\/em> kemur ekki fyrir \u00ed fornu m\u00e1li, heldur var \u00fear nota\u00f0ur forsetningarli\u00f0urinn <em>\u00e1 bak<\/em> me\u00f0 \u00fe\u00e1gufalli \u2013 \u201e\u00deorkell r\u00ed\u00f0ur n\u00fa \u00e1 brott og sn\u00fdr svo lei\u00f0 sinni a\u00f0 hann kemur \u00e1 bak \u00feeim Berki\u201c segir \u00ed <em>G\u00edsla s\u00f6gu S\u00farssonar<\/em>. \u201e\u00cd or\u00f0asambandinu <em>\u00e1 bak vi\u00f0 e-\u00f0<\/em> hefur stofnor\u00f0i\u00f0 <em>bak<\/em> misst eigin merkingu og fengi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem kalla m\u00e1 hlutverksmerkingu. \u00deetta m\u00e1 m.a. sj\u00e1 af \u00fev\u00ed a\u00f0 fs<em>. \u00e1<\/em> er oft felld brott og \u00fe\u00e1 stendur einungis <em>bak vi\u00f0 e-\u00f0<\/em> eftir\u201c <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/4151441?iabr=on#page\/n27\/mode\/1up\/\">segir<\/a> J\u00f3n G. Fri\u00f0j\u00f3nsson. Forsetningin <em>\u00e1<\/em> hefur \u00fev\u00ed enga merkingu \u00fearna \u2013 er \u00fe\u00e1 ekki eins h\u00e6gt a\u00f0 nota <em>fyrir<\/em>, eins og \u00ed <em>fyrir aftan<\/em>? \u00c9g er ekki a\u00f0 m\u00e6la me\u00f0 \u00fev\u00ed, en s\u00e9 ekki a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ru mikil m\u00e1lspj\u00f6ll.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrir tveimur og h\u00e1lfu \u00e1ri skrifa\u00f0i \u00e9g h\u00e9r pistil um samsettu forsetninguna fyrir bakvi\u00f0 (e\u00f0a fyrir bak vi\u00f0) sem \u00e9g haf\u00f0i \u00fe\u00e1 n\u00fdlega fengi\u00f0 spurnir af en vissi l\u00edti\u00f0 um og haf\u00f0i ekki m\u00f6rg d\u00e6mi um. En \u00feegar n\u00fd \u00fatg\u00e1fa Risam\u00e1lheildarinnar kom me\u00f0 efni af samf\u00e9lagsmi\u00f0lum b\u00e6ttist vi\u00f0 fj\u00f6ldi d\u00e6ma og n\u00fa er h\u00e6gt a\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5422","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5422","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5422"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5422\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5423,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5422\/revisions\/5423"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5422"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5422"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5422"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}