{"id":5578,"date":"2023-10-12T12:06:11","date_gmt":"2023-10-12T12:06:11","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5578"},"modified":"2023-10-13T08:31:08","modified_gmt":"2023-10-13T08:31:08","slug":"thad-er-ekkert-til-sem-heitir-thagufallssyki","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/10\/12\/thad-er-ekkert-til-sem-heitir-thagufallssyki\/","title":{"rendered":"\u00dea\u00f0 er ekkert til sem heitir \u201e\u00fe\u00e1gufallss\u00fdki\u201c"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd M\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum var \u00ed fyrradag <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/groups\/1395992847329077\/posts\/3441025669492441\/\">bent \u00e1<\/a> <a href=\"https:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2023\/10\/10\/bjarni_segir_af_ser_embaetti_fjarmalaradherra\/\">myndatexta<\/a> \u00e1 <em>mbl.is <\/em>\u00fear sem sag\u00f0i: \u201eBjarni Benediktsson segir af s\u00e9r sem fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra eftir \u00e1lit umbo\u00f0smanns Al\u00feingis um a\u00f0 honum hafi brosti\u00f0 h\u00e6fi vi\u00f0 s\u00f6luna \u00e1 hlut r\u00edkisins.\u201c \u00cd s\u00f6mu fr\u00e9tt sag\u00f0i einnig a\u00f0 Bjarni v\u00e6ri \u201emi\u00f0ur s\u00edn a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 \u00fe\u00e1 ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 s\u00e9r hafi brosti\u00f0 h\u00e6fi \u00ed s\u00f6luferlinu.\u201c \u00cd umr\u00e6\u00f0um um \u00feetta sag\u00f0i einn \u00fe\u00e1tttakenda: \u201eS\u00fa var t\u00ed\u00f0in a\u00f0 \u201ehonum brast h\u00e6fi\u201c h\u00e9t \u00fe\u00e1gufallss\u00fdki, en n\u00fa er \u00f6ldin \u00f6nnur, heitir v\u00edst \u00fer\u00f3un.\u201c \u00deetta er alveg r\u00e9tt \u2013 or\u00f0i\u00f0 \u201e\u00fe\u00e1gufallss\u00fdki\u201c hefur lengi veri\u00f0 nota\u00f0 um \u00fea\u00f0 a\u00f0 hafa frumlag me\u00f0 tilteknum s\u00f6gnum \u00ed \u00fe\u00e1gufalli. En \u00fea\u00f0 var ekki nota\u00f0 sem hlutlaust fr\u00e6\u00f0ior\u00f0, heldur til a\u00f0 gera l\u00edti\u00f0 \u00far f\u00f3lki, ni\u00f0url\u00e6gja \u00fea\u00f0 og h\u00e6\u00f0ast a\u00f0 \u00fev\u00ed vegna m\u00e1lnotkunar sinnar.<\/p>\n<p>Alvarlegust er s\u00fa sj\u00fakd\u00f3msv\u00e6\u00f0ing sem felst \u00ed heitinu. \u00cd <em>Samt\u00ed\u00f0inni <\/em>1943 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/5059763?iabr=on#page\/n21\/mode\/1up\/\">sag\u00f0i<\/a> Bj\u00f6rn Sigf\u00fasson: \u201e\u00de\u00e1gufallss\u00fdki er g\u00f6mul \u00e1 \u00cdslandi [\u2026] En landfars\u00f3tt hefir h\u00fan aldrei veri\u00f0 nema \u00e1 okkar d\u00f6gum\u201c og \u00ed <em>Austurlandi <\/em>1952 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/5373520?iabr=on#page\/n2\/mode\/1up\/\">sag\u00f0i<\/a> hann: \u201e\u00de\u00e1gufallss\u00fdki er alvarlegur kvilli og smitar \u00f6rt.\u201c G\u00edsli J\u00f3nsson <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1704480?iabr=on#page\/n9\/mode\/1up\/\">sag\u00f0i<\/a> eitt sinn a\u00f0 \u201e\u00fe\u00e1gufalls\u00fdki\u201c minnti \u201ereyndar lei\u00f0inlega \u00e1 limafallss\u00fdki og ni\u00f0urfallss\u00fdki\u201c og Bubbi Morthens <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/7067820?iabr=on#page\/n21\/mode\/1up\">sag\u00f0i<\/a> \u00ed <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2019: \u201eOr\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e1gufallss\u00fdki er \u00fer\u00fati\u00f0 af hroka enda hafa menn gegnum t\u00ed\u00f0ina nota\u00f0 tungum\u00e1li\u00f0 n\u00e1nast sem valdat\u00e6ki \u00feeirra sem t\u00f6lu\u00f0u r\u00e9tt m\u00e1l og skrifu\u00f0u r\u00e9tt og beitt \u00fev\u00ed gegn \u00feeim sem notu\u00f0u \u00fea\u00f0 ekki r\u00e9tt e\u00f0a g\u00e1tu ekki skrifa\u00f0 r\u00e9tt. \u00deeir voru settir \u00e1 l\u00faserab\u00e1sinn og ur\u00f0u ni\u00f0ursetningar \u00edslenskrar tungu.\u201c<\/p>\n<p>Um \u00feetta m\u00e1 nefna \u00f3tal d\u00e6mi. \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1952 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1287206?iabr=on#page\/n7\/mode\/1up\/\">segir<\/a>: \u201eKona, sem haf\u00f0i laglega r\u00f6dd ger\u00f0i sig seka um mikla yfirsj\u00f3n \u00ed kvennat\u00edma \u00fatvarpsins \u00ed fyrrakv\u00f6ld. Tunga hennar var heltekin sl\u00e6mum sj\u00fakd\u00f3mi, \u00fe\u00e1gufallss\u00fdkinni illr\u00e6mdu. [\u2026] \u00dea\u00f0 var \u00f3skaplegt a\u00f0 hlusta \u00e1 \u00feetta. Ung kona me\u00f0 fallega r\u00f6dd m\u00e1 ekki segja svona vitleysur. Hvorki ungir n\u00e9 gamlir mega syndga svona gegn frumreglum \u00edslenzkrar tungu, s\u00edzt af \u00f6llu \u00ed \u00fatvarpinu.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1954 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1294546?iabr=on#page\/n7\/mode\/1up\/\">segir<\/a>: \u201eFyrir utan allt anna\u00f0 \u00fej\u00e1\u00f0ist flutningsma\u00f0ur af magna\u00f0ri \u00fe\u00e1gufallss\u00fdki. Svona manni \u00e6tti r\u00edkis\u00fatvarpi\u00f0 ekki a\u00f0 hleypa a\u00f0, \u00fea\u00f0 er bl\u00e1tt \u00e1fram ska\u00f0legt m\u00e1li og mennt. \u00dea\u00f0 er krafa okkar \u00fatvarpsnotenda, a\u00f0 \u00fatvarpi\u00f0 hafi g\u00e1t \u00e1, hverjum \u00fea\u00f0 hleypir a\u00f0 hlj\u00f3\u00f0nemanum.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd <em>V\u00edsi <\/em>1956 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1186258?iabr=on#page\/n3\/mode\/1up\/\">segir<\/a>: \u201eEitt var \u00fe\u00f3 tilfinnanlegt \u00ed or\u00f0r\u00e6\u00f0um hennar, og \u00fea\u00f0 var, a\u00f0 \u00feessi pr\u00fa\u00f0a unga st\u00falka, sem n\u00fa stundar n\u00e1m \u00ed \u00feri\u00f0ja bekk Menntask\u00f3lans, var haldin sl\u00edkri \u00fe\u00e1gufallss\u00fdki, a\u00f0 h\u00fan gat ekki beygt \u00feri\u00f0ju pers\u00f3nufornafn \u00ed eint\u00f6lu r\u00e9tt. Sag\u00f0i or\u00f0r\u00e9tt: \u201eHonum langar a\u00f0 tala vi\u00f0 \u00feig\u201c \u00ed sta\u00f0 \u201eHann langar a\u00f0 tala vi\u00f0 \u00feig.\u201c Vonandi r\u00e6kir bl\u00f3mar\u00f3sin sk\u00f3lan\u00e1m sitt svo samvizkusamlega, a\u00f0 henni takist a\u00f0 vinna bug \u00e1 \u00feessari hvimlei\u00f0u s\u00fdki, sem vir\u00f0ist vera meira en l\u00edti\u00f0 \u00fatbreidd h\u00e9r \u00ed h\u00f6fu\u00f0sta\u00f0num.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1965 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1367576?iabr=on#page\/n5\/mode\/1up\/\">segir<\/a>: \u201eSennilega hefur allt veri\u00f0 gott og r\u00e9tt, er \u00feessir menn s\u00f6g\u00f0u, en einn \u00feeirra var svo hlj\u00f3\u00f0villtur, og \u00fear a\u00f0 auki \u00fe\u00e1gufallssj\u00fakur, a\u00f0 hann \u00e1tti sannarlega ekkert erindi a\u00f0 hlj\u00f3\u00f0nemanum.\u201c<\/p>\n<p>En umm\u00e6li af \u00feessu tagi birtust ekki bara \u00ed lesendabr\u00e9fum \u00ed dagbl\u00f6\u00f0um. Sj\u00e1lft N\u00f3belssk\u00e1ldi\u00f0 Halld\u00f3r Laxness <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/2785085?iabr=on#page\/n7\/mode\/1up\/\">skrifa\u00f0i<\/a> \u00ed <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum <\/em>1959: \u201eEn skr\u00edlmenn\u00edngin hefndi s\u00edn \u00feegar fl\u00e1m\u00e6linu var \u00fatr\u00fdmt: \u00fe\u00e1gufallss\u00fdkin, krakkam\u00e1l \u00far Reykjav\u00edk, \u00f3hugsandi fyrirbrig\u00f0i hj\u00e1 fullor\u00f0nu f\u00f3lki fyrir tveim-\u00ferem \u00e1ratugum, hefur risi\u00f0 einsog pestarbylgja \u00far g\u00f6tur\u00e6sum h\u00f6fu\u00f0sta\u00f0arins og ekki a\u00f0eins s\u00fdkt heimilin, \u00feannig a\u00f0 fullor\u00f0na f\u00f3lki\u00f0 hefur teki\u00f0 \u00fe\u00e1gufallsamb\u00f6gurnar eftir m\u00e1lviltum b\u00f6rnum s\u00ednum, heldur broti\u00f0 veggi sk\u00f3lanna, svo sj\u00e1lfir barnakennararnir hafa \u00ed m\u00f6rgu falli lyppast ni\u00f0ur fyrir t\u00fangutaki \u00f3bur\u00f0ugustu skj\u00f3lst\u00e6\u00f0\u00ednga sinna; \u00fe\u00e1gufallssj\u00fakir menn eru \u00fatskrifa\u00f0ir \u00far H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.\u201c H\u00e9r eru st\u00f3ryr\u00f0in sannarlega ekki sp\u00f6ru\u00f0.<\/p>\n<p>Og Halld\u00f3r Halld\u00f3rsson pr\u00f3fessor <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1480739?iabr=on#page\/n20\/mode\/1up\/\">segir<\/a> \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1976: \u201e\u00c1 fundinum barst tali\u00f0 a\u00f0 svo nefndri \u00fe\u00e1gufallss\u00fdki. Sag\u00f0i n\u00e1mstj\u00f3rinn, a\u00f0 hann hef\u00f0i sj\u00e1lfur gefizt upp vi\u00f0 a\u00f0 venja b\u00f6rn s\u00edn af henni. \u00c1hrif g\u00f6tunnar v\u00e6ru svo mikil, a\u00f0 hann teldi \u00fea\u00f0 tilgangslaust og r\u00e1\u00f0lag\u00f0i kennurunum a\u00f0 fara a\u00f0 d\u00e6mi s\u00ednu og l\u00e1ta afskiptalaust, hvort nemendurnir v\u00e6ru \u00fe\u00e1gufallssj\u00fakir e\u00f0a ekki. [\u2026] \u00c9g l\u00edt ekki svo \u00e1, a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 hlutverk sk\u00f3la a\u00f0 gefast upp fyrir \u00e1hrifum g\u00f6tunnar n\u00e9 stu\u00f0la a\u00f0 \u00fev\u00ed, a\u00f0 \u00fat \u00far \u00feeim komi linjumenni. \u00deessi stefna vir\u00f0ist \u00fe\u00f3 eiga nokkru fylgi a\u00f0 fagna n\u00fa. Samkv\u00e6mt m\u00ednum skilningi er \u00fea\u00f0 hlutverk sk\u00f3la a\u00f0 vinna \u00e1 m\u00f3ti \u00e1hrifum g\u00f6tunnar, me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um a\u00f0 leitast vi\u00f0 a\u00f0 gera menn a\u00f0 menntam\u00f6nnum, en ekki g\u00f6tustr\u00e1kum.\u201c<\/p>\n<p>\u201e\u00de\u00e1gufallss\u00fdkin\u201c var \u00a0oft tengd vi\u00f0 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0i\u00f0 en talin l\u00edtt \u00e1berandi \u00e1 Nor\u00f0urlandi. \u00deetta kemur vel fram \u00ed <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1024504?iabr=on#page\/n6\/mode\/1up\/\">lesendabr\u00e9fi<\/a> \u00ed <em>T\u00edmanum <\/em>1955 \u00fear sem sagt er a\u00f0 \u201ehlakkar mig n\u00fa til\u201c hafi veri\u00f0 haft eftir nafngreindri konu \u00ed <em>V\u00edsi<\/em>, en konan s\u00e9 \u201eg\u00f3\u00f0ur Nor\u00f0lendingur, og \u00feess vegna \u00fatiloka\u00f0, a\u00f0 h\u00fan hafi sagt \u00feessa amb\u00f6gu\u201c sem \u201es\u00e6rir [\u2026] eyru hreinna Nor\u00f0lendinga\u201c. \u00cd <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum <\/em><a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/2799943?iabr=on#page\/n9\/mode\/1up\/\">1963<\/a> segir um n\u00fdtt leikrit: \u201e\u201eElektr\u00f3n\u00edskum\u201c \u00e1hrifum er beitt \u00ed leiknum og \u00fea\u00f0 \u00f3spart, en af hinum sm\u00e6rri st\u00edlbr\u00f6g\u00f0um m\u00e1 nefna \u00fe\u00e1gufallssj\u00fakan Su\u00f0ur-\u00deingeying.\u201c Auglj\u00f3slega \u00fe\u00f3tti fr\u00e1leitt a\u00f0 \u00deingeyingur v\u00e6ri \u00fe\u00e1gufallssj\u00fakur. \u00cd <em>Nor\u00f0urlandi <\/em>1978 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/5283957?iabr=on#page\/n4\/mode\/1up\/\">segir<\/a> \u00deingeyingur um heimasveit s\u00edna: \u201e\u00de\u00e1gufallss\u00fdki br\u00e1 fyrir \u00e1 einum \u00feremur b\u00e6jum, og var nokku\u00f0 skopast a\u00f0.\u201c<\/p>\n<p>\u00c1 seinni \u00e1rum er vissulega minna um \u00fea\u00f0 \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum en \u00e1\u00f0ur a\u00f0 gert s\u00e9 l\u00edti\u00f0 \u00far f\u00f3lki vegna \u201e\u00fe\u00e1gufallss\u00fdki\u201c og annarra tilbrig\u00f0a \u00ed m\u00e1li. \u00de\u00f3 breg\u00f0ur \u00fev\u00ed fyrir enn \u2013 \u00ed <em>V\u00edsbendingu <\/em>2004 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/3144269?iabr=on#page\/n3\/mode\/1up\/\">segir<\/a>: \u201e\u00de\u00e1gufallssj\u00fakur fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur vekur samstundis efasemdir um f\u00e6rni \u00e1 s\u00ednu s\u00e9rsvi\u00f0i.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2017 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/6960790?iabr=on#page\/n22\/mode\/1up\/\">segir<\/a> \u00ed grein eftir (fyrrverandi) al\u00feingismann, undir millifyrirs\u00f6gninni \u201e\u00de\u00e1gufallssj\u00fakur l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur\u201c: \u201eN\u00e6stur til a\u00f0 fr\u00e6\u00f0ast af s\u00fdslumanni og l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingum hans var l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur sem sag\u00f0i \u201em\u00e9r langar a\u00f0 spyrja\u201c. A\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti voru spurningarnar \u00f3skiljanlegar.\u201c \u00dearna er auglj\u00f3slega veri\u00f0 a\u00f0 nota m\u00e1lfar til a\u00f0 \u00f3merkja m\u00e1lflutning m\u00e6landa (reyndar <a href=\"https:\/\/heimildin.is\/grein\/5788\/\">kom \u00ed lj\u00f3s<\/a> a\u00f0 um misheyrn var a\u00f0 r\u00e6\u00f0a og engin \u201e\u00fe\u00e1gufallss\u00fdki\u201c \u00e1 fer\u00f0um).<\/p>\n<p>En \u00fe\u00f3tt ni\u00f0randi umm\u00e6li af \u00feessu tagi s\u00e9u sem betur fer or\u00f0in sjaldg\u00e6f \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum va\u00f0a \u00feau enn uppi \u00ed athugasemdad\u00e1lkum vefmi\u00f0la og \u00e1 <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/groups\/1395992847329077\/search\/?q=%C3%BE%C3%A1gufallss%C3%BDki\">samf\u00e9lagsmi\u00f0lum<\/a>. Enn m\u00e1 eiga von \u00e1 a\u00f0 rekast \u00e1 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/7090264?iabr=on#page\/n1\/mode\/1up\/\">ford\u00f3mafull umm\u00e6li<\/a> eins og \u00ed <em>B\u00e6jarbla\u00f0inu <\/em>1957: \u201eHins vegar stafar \u00fe\u00e1gufallss\u00fdkin b\u00e6\u00f0i af van\u00feekkingu og trassaskap. \u00dea\u00f0 er hreint og beint vi\u00f0bj\u00f3\u00f0slegt a\u00f0 heyra f\u00f3lk segja: \u201eM\u00e9r langar \u00e1 b\u00ed\u00f3\u201c, e\u00f0a \u201eHenni hlakkar til j\u00f3lanna\u201c.\u201c \u00deetta er lj\u00f3tt \u2013 \u00feetta er mannfjandsamlegt. Og \u00fea\u00f0 er einnig og ekki s\u00ed\u00f0ur fjandsamlegt \u00edslenskunni. Gu\u00f0bergur Bergsson <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/5736198?iabr=on#page\/n26\/mode\/1up\/\">sag\u00f0i<\/a> \u00ed vi\u00f0tali \u00ed <em>bla\u00f0inu <\/em>2006: \u201e\u00c9g kunni ekki a\u00f0 skammast m\u00edn fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 heima var \u00fe\u00e1gufallssj\u00fakt og fl\u00e1m\u00e6lt.\u201c Vi\u00f0 eigum ekki a\u00f0 skammast okkar fyrir \u00fea\u00f0 m\u00e1l sem vi\u00f0 erum alin upp vi\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd M\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum var \u00ed fyrradag bent \u00e1 myndatexta \u00e1 mbl.is \u00fear sem sag\u00f0i: \u201eBjarni Benediktsson segir af s\u00e9r sem fj\u00e1rm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra eftir \u00e1lit umbo\u00f0smanns Al\u00feingis um a\u00f0 honum hafi brosti\u00f0 h\u00e6fi vi\u00f0 s\u00f6luna \u00e1 hlut r\u00edkisins.\u201c \u00cd s\u00f6mu fr\u00e9tt sag\u00f0i einnig a\u00f0 Bjarni v\u00e6ri \u201emi\u00f0ur s\u00edn a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 \u00fe\u00e1 ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 s\u00e9r hafi brosti\u00f0 h\u00e6fi [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5578","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5578","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5578"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5578\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5581,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5578\/revisions\/5581"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5578"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5578"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5578"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}