{"id":5619,"date":"2023-10-29T08:00:20","date_gmt":"2023-10-29T08:00:20","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5619"},"modified":"2023-10-26T17:30:43","modified_gmt":"2023-10-26T17:30:43","slug":"nidurstadan-byggir-a-thessu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/10\/29\/nidurstadan-byggir-a-thessu\/","title":{"rendered":"Ni\u00f0ursta\u00f0an byggir \u00e1 \u00feessu"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd <em>M\u00e1lfarsbankanum <\/em><a href=\"https:\/\/malfar.arnastofnun.is\/grein\/72169\">segir<\/a>: \u201eR\u00e9tt er a\u00f0 gera greinarmun \u00e1 notkun sagnarinnar <strong>byggja<\/strong> og mi\u00f0mynd hennar <strong>byggjast<\/strong>. D\u00e6mi: <em>\u00deetta mat er byggt \u00e1 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ri ranns\u00f3kn. Hann byggir \u00feetta mat \u00e1 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ri ranns\u00f3kn. \u00deetta mat byggist \u00e1 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ri ranns\u00f3kn.<\/em> S\u00ed\u00f0ur: \u201e\u00feetta mat byggir \u00e1 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ri ranns\u00f3kn\u201c.\u201c \u00cd <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>er \u201ee-\u00f0 byggir \u00e1 e-u\u201c merkt \u201e!?\u201c sem \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 \u00fea\u00f0 teljist ekki gott m\u00e1l og v\u00edsa\u00f0 \u00e1 \u201ee-\u00f0 byggist \u00e1 e-u\u201c. G\u00edsli J\u00f3nsson <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1918899?iabr=on#page\/n57\/mode\/1up\">sag\u00f0i<\/a> \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1998: \u201eSamningarnir <strong>byggjast<\/strong> \u00e1 gagnkv\u00e6mu trausti. \u00deeir byggja ekki neitt, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir kunna \u00fea\u00f0 ekki.\u201c Hann nefnir hli\u00f0st\u00e6tt d\u00e6mi: \u201eEnginn segir: Samningurinn \u201egrundvallar\u201c \u00e1 gagnkv\u00e6mu trausti, heldur <strong>grundvallast<\/strong>. [\u2026] Mi\u00f0mynd er \u00fearna h\u00f6f\u00f0 \u00ed \u00feolmyndarmerkingu.\u201c<\/p>\n<p>\u00deetta er \u00fat af fyrir sig r\u00e9tt, svo langt sem \u00fea\u00f0 n\u00e6r. En \u00fearna er ekki teki\u00f0 tillit til gamallar og r\u00edkrar m\u00e1lvenju. \u00dea\u00f0 hefur nefnilega veri\u00f0 algengt a.m.k. s\u00ed\u00f0an fyrir mi\u00f0ja 19. \u00f6ld, og er enn, a\u00f0 nota sambandi\u00f0 <em>byggja \u00e1<\/em> \u00e1 \u00feann h\u00e1tt sem \u00fearna er vara\u00f0 vi\u00f0. \u00cd <em>N\u00fdjum f\u00e9lagsritum <\/em>1841 segir: \u201e\u00datsk\u00edr\u00edngu gamla testamentisins nema menn \u00fe\u00e1 ekki, en h\u00fan er \u00fe\u00f3 \u00f6ld\u00fangis \u00f3missandi til \u00feess a\u00f0 geta r\u00e9tt skili\u00f0 hi\u00f0 n\u00fda, sem opt byggir \u00e1 hinu gamla.\u201c \u00cd <em>T\u00ed\u00f0indum fr\u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0fundi \u00cdslendinga 1851<\/em> segir: \u201e\u00dea\u00f0 er og eitt athugavert vi\u00f0 \u00feetta frumvarp, a\u00f0 \u00fea\u00f0 byggir \u00e1 \u00f3komnum l\u00f6gum, e\u00f0a \u00e1 \u00f6\u00f0rum l\u00f6gum en \u00feeim, sem \u00fear standa.\u201c \u00cd <em>\u00dej\u00f3\u00f0\u00f3lfi <\/em>1869 segir: \u201e\u00dea\u00f0 var einkennilegt vi\u00f0 \u00feetta frumvarp, a\u00f0 \u00fea\u00f0 byggir \u00e1 \u00fev\u00ed, a\u00f0 \u00cdsland hafi veri\u00f0 innlima\u00f0 \u00ed Danm\u00f6rk 1662.\u201c<\/p>\n<p>Hli\u00f0st\u00e6\u00f0 d\u00e6mi fr\u00e1 19. \u00f6ld, \u00fear sem <em>byggja \u00e1<\/em> tekur ekki me\u00f0 s\u00e9r geranda, eru fj\u00f6lm\u00f6rg, og \u00feessi notkun sambandsins hefur veri\u00f0 mj\u00f6g algeng alla t\u00ed\u00f0 s\u00ed\u00f0an. Af <em>Risam\u00e1lheildinni <\/em>m\u00e1 r\u00e1\u00f0a a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 algengari \u00ed n\u00fat\u00edmam\u00e1li en <em>byggjast \u00e1<\/em>, en \u00fea\u00f0 er lj\u00f3st a\u00f0 samb\u00f6ndin eru oft notu\u00f0 j\u00f6fnum h\u00f6ndum \u00ed s\u00f6mu merkingu, jafnvel innan s\u00f6mu m\u00e1lsgreinar. \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2001 segir: \u201e\u00de\u00e6r skiptast aftur \u00ed tvennt: \u00fe\u00e6r sem byggja \u00e1 a\u00f0 kaupa til a\u00f0 selja aftur og hinar sem byggjast \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 kaupa til a\u00f0 eiga.\u201c \u00cd <em>DV <\/em>2016 segir: \u201eA\u00f0sto\u00f0 vi\u00f0 fl\u00f3ttamenn \u00e1 ekki a\u00f0 byggja \u00e1 \u00fev\u00ed hverrar tr\u00faar \u00feeir eru heldur \u00e1 a\u00f0 byggjast \u00e1 mann\u00fa\u00f0.\u201c \u00cd <em>Kjarnanum <\/em>2017 segir: \u201eEkki st\u00f6\u00f0ugleika sem byggir \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 festa rangl\u00e6ti \u00ed sess heldur st\u00f6\u00f0ugleika sem byggist \u00e1 samf\u00e9lagslegri s\u00e1tt.\u201c<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 m\u00e1 vissulega halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 \u00feessi notkun <em>byggja \u00e1<\/em> s\u00e9 \u201e\u00f3r\u00f6kr\u00e9tt\u201c vegna \u00feess a\u00f0 <em>byggja <\/em>krefjist geranda eins og fram kemur \u00ed or\u00f0um G\u00edsla J\u00f3nssonar h\u00e9r a\u00f0 framan. En eins og \u00e9g hef i\u00f0ulega skrifa\u00f0 um er ekki h\u00e6gt a\u00f0 hafna r\u00f3tgr\u00f3inni m\u00e1lvenju \u00e1 \u00feeirri forsendu a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 \u201e\u00f3r\u00f6kr\u00e9tt\u201c \u2013 \u00fe\u00e1 fengi ansi margt a\u00f0 fj\u00faka. Og reyndar \u00fearf ekki heldur a\u00f0 l\u00edta svo \u00e1 a\u00f0 eitthva\u00f0 s\u00e9 \u201e\u00f3r\u00f6kr\u00e9tt\u201c vi\u00f0 \u00feessa notkun. \u00dea\u00f0 m\u00e1 nefnilega ekki einbl\u00edna \u00e1 s\u00f6gnina <em>byggja <\/em>\u2013 samband sagnar og forsetningar\/atviksor\u00f0s f\u00e6r oft s\u00e9rstaka merkingu sem v\u00edkur fr\u00e1 grunnmerkingu sagnarinnar og \u00fea\u00f0 m\u00e1 segja a\u00f0 sambandi\u00f0 <em>byggja \u00e1<\/em> hafi fengi\u00f0 merkinguna 'hv\u00edla \u00e1'. \u00c1 hana er komin l\u00f6ng og r\u00edk hef\u00f0 og h\u00fan er auglj\u00f3slega <a href=\"https:\/\/www.visindavefur.is\/svar.php?id=2148\">r\u00e9tt m\u00e1l<\/a> sem engin \u00e1st\u00e6\u00f0a er til a\u00f0 amast vi\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd M\u00e1lfarsbankanum segir: \u201eR\u00e9tt er a\u00f0 gera greinarmun \u00e1 notkun sagnarinnar byggja og mi\u00f0mynd hennar byggjast. D\u00e6mi: \u00deetta mat er byggt \u00e1 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ri ranns\u00f3kn. Hann byggir \u00feetta mat \u00e1 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ri ranns\u00f3kn. \u00deetta mat byggist \u00e1 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ri ranns\u00f3kn. S\u00ed\u00f0ur: \u201e\u00feetta mat byggir \u00e1 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ri ranns\u00f3kn\u201c.\u201c \u00cd \u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k er \u201ee-\u00f0 byggir \u00e1 e-u\u201c merkt \u201e!?\u201c sem [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5619","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5619","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5619"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5619\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5622,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5619\/revisions\/5622"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5619"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5619"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5619"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}