{"id":5753,"date":"2023-11-24T16:46:20","date_gmt":"2023-11-24T16:46:20","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5753"},"modified":"2023-11-24T16:46:20","modified_gmt":"2023-11-24T16:46:20","slug":"aukum-talsetningu-barnaefnis","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/11\/24\/aukum-talsetningu-barnaefnis\/","title":{"rendered":"Aukum talsetningu barnaefnis!"},"content":{"rendered":"<p>Fram yfir mi\u00f0jan n\u00edunda \u00e1ratug s\u00ed\u00f0ustu aldar heyr\u00f0i \u00fea\u00f0 til undantekninga ef leiki\u00f0 erlent efni var s\u00fdnt me\u00f0 \u00edslenskri talsetningu \u00ed sj\u00f3nvarpi e\u00f0a kvikmyndah\u00fasum, hvort sem \u00fea\u00f0 var \u00e6tla\u00f0 b\u00f6rnum e\u00f0a fullor\u00f0num. Erlent barnaefni var yfirleitt s\u00fdnt me\u00f0 \u00edslenskum ne\u00f0anm\u00e1lstexta sem gagnast ungum b\u00f6rnum vitaskuld l\u00edti\u00f0. En strax \u00e1 fyrsta starfs\u00e1ri s\u00ednu sumari\u00f0 1987 f\u00f3r <em>St\u00f6\u00f0 tv\u00f6 <\/em>a\u00f0 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1675716?iabr=on#page\/n5\/mode\/1up\/\">talsetja<\/a> \u00edslenskt barnaefni. Vori\u00f0 1989 var \u00ed tengslum vi\u00f0 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/4086872?iabr=on#page\/n6\/mode\/1up\/\">m\u00e1lr\u00e6ktar\u00e1tak<\/a> Svavars Gestssonar menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra \u201eger\u00f0 \u00e1\u00e6tlun um talsetningu alls barnaefnis \u00ed sj\u00f3nvarpi og stefnt a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 allt barnaefni ver\u00f0i \u00e1 \u00edslensku\u201c og um svipa\u00f0 leyti <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1702320?iabr=on#page\/n5\/mode\/1up\/\">\u00e1kva\u00f0<\/a> <em>R\u00edkis\u00fatvarpi\u00f0 <\/em>a\u00f0 allt efni fyrir b\u00f6rn yngri en t\u00edu \u00e1ra skyldi talsett, og \u00ed lok \u00e1rsins voru 95% barnaefnis \u00e1 <em>R\u00daV<\/em> <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1714544?iabr=on#page\/n13\/mode\/1up\/\">or\u00f0in<\/a> talsett.<\/p>\n<p>Kvikmyndah\u00fasin fylgdu svo \u00e1 eftir. \u201eEnn sem komi\u00f0 er er ekki algengt a\u00f0 sett s\u00e9 \u00edslenskt tal vi\u00f0 bamamyndir en \u00fea\u00f0 \u00e1 \u00f6rugglega eftir a\u00f0 breytast\u201c <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/2592998?iabr=on#page\/n6\/mode\/1up\/\">segir<\/a> \u00ed <em>DV <\/em>1991 og s\u00fa var\u00f0 raunin \u2013 upp \u00far \u00feessu var fari\u00f0 a\u00f0 talsetja flestar barnamyndir sem s\u00fdndar voru \u00ed kvikmyndah\u00fasum, svo sem Disney-myndir, og f\u00f3lk innan vi\u00f0 fertugt sem er uppali\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi hefur \u00fev\u00ed alist upp vi\u00f0 talsett barnaefni fr\u00e1 blautu barnsbeini. L\u00edtill vafi er \u00e1 a\u00f0 \u00feetta hefur haft veruleg j\u00e1kv\u00e6\u00f0 \u00e1hrif \u00e1 m\u00e1l\u00feroska, m\u00e1lkunn\u00e1ttu og \u00edslenskan or\u00f0afor\u00f0a \u00feessa f\u00f3lks, enda hefur talsetningin oftast veri\u00f0 v\u00f6ndu\u00f0, \u00e1 g\u00f3\u00f0u og lipru m\u00e1li. Flestir foreldrar kannast v\u00e6ntanlega vi\u00f0 a\u00f0 b\u00f6rn \u00feeirra gr\u00edpi upp or\u00f0 og or\u00f0atilt\u00e6ki \u00far barnaefni \u00ed sj\u00f3nvarpi og breg\u00f0i fyrir sig \u00ed t\u00edma og \u00f3t\u00edma.<\/p>\n<p>En n\u00fa eru blikur \u00e1 lofti. M\u00e9r skilst a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi dregi\u00f0 mj\u00f6g miki\u00f0 \u00far frambo\u00f0i talsettra teiknimynda \u00ed \u00edslensku sj\u00f3nvarpi undanfarin \u00e1r og l\u00edkur s\u00e9u \u00e1 a\u00f0 s\u00fa \u00f3heilla\u00fer\u00f3un haldi \u00e1fram. Jafnvel s\u00e9 hugsanlegt a\u00f0 vins\u00e6lar \u00fe\u00e1ttara\u00f0ir sem hafa veri\u00f0 talsettar ver\u00f0i \u00fea\u00f0 ekki \u00e1fram \u00feannig a\u00f0 b\u00f6rn sem vilja halda \u00e1fram a\u00f0 horfa \u00e1 \u00fe\u00e6r veri\u00f0 a\u00f0 s\u00e6tta sig vi\u00f0 a\u00f0 horfa \u00e1 \u00fe\u00e6r \u00e1 ensku. \u00deetta er grafalvarlegt m\u00e1l. Hafi talsetning barnaefnis \u00fe\u00f3tt mikilv\u00e6g fyrir 30-35 \u00e1rum er h\u00fan margfalt mikilv\u00e6gari n\u00fa. \u00c1st\u00e6\u00f0an er s\u00fa a\u00f0 efni \u00e1 ensku, \u00fear \u00e1 me\u00f0al barnaefni, fl\u00e6\u00f0ir yfir okkur sem aldrei fyrr, fr\u00e1 erlendum sj\u00f3nvarpsst\u00f6\u00f0vum og einkum \u00e1 netinu. \u00deess vegna er br\u00e1\u00f0nau\u00f0synlegt a\u00f0 til m\u00f3tv\u00e6gis s\u00e9 einnig til vanda\u00f0 efni \u00e1 \u00edslensku sem h\u00e6gt er a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a b\u00f6rnunum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er h\u00e6tta \u00e1 a\u00f0 vi\u00f0 ver\u00f0um s\u00edfellt \u00f3n\u00e6mari fyrir enskunni \u00ed umhverfi okkar og h\u00e6ttum a\u00f0 gera kr\u00f6fur um talsett \u00edslenskt barnaefni \u2013 hugsum sem svo a\u00f0 b\u00f6rnin skilji hvort e\u00f0 er efni \u00e1 ensku. \u00cdslensk talsetning er l\u00edka d\u00fdr og \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r ekkert undarlegt a\u00f0 \u00feegar har\u00f0nar \u00e1 dalnum hj\u00e1 fj\u00f6lmi\u00f0lum komi \u00fea\u00f0 ni\u00f0ur \u00e1 talsetningunni. \u00deess vegna ver\u00f0a stj\u00f3rnv\u00f6ld a\u00f0 koma h\u00e9r til og tryggja a\u00f0 metna\u00f0arfullri talsetningu barnaefnis ver\u00f0i haldi\u00f0 \u00e1fram og h\u00fan aukin. \u00dar \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00e6gt er a\u00f0 verja millj\u00f6r\u00f0um kr\u00f3na \u00far r\u00edkissj\u00f3\u00f0i til a\u00f0 endurgrei\u00f0a erlendum a\u00f0ilum kostna\u00f0 vegna kvikmyndager\u00f0ar hl\u00fdtur a\u00f0 vera h\u00e6gt a\u00f0 setja myndarlegar upph\u00e6\u00f0ir \u00ed grei\u00f0slur til \u00edslenskra sj\u00f3nvarpsst\u00f6\u00f0va vegna \u00edslenskrar talsetningar \u00e1 barnaefni. \u00cdslenskan er \u00ed h\u00fafi.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fram yfir mi\u00f0jan n\u00edunda \u00e1ratug s\u00ed\u00f0ustu aldar heyr\u00f0i \u00fea\u00f0 til undantekninga ef leiki\u00f0 erlent efni var s\u00fdnt me\u00f0 \u00edslenskri talsetningu \u00ed sj\u00f3nvarpi e\u00f0a kvikmyndah\u00fasum, hvort sem \u00fea\u00f0 var \u00e6tla\u00f0 b\u00f6rnum e\u00f0a fullor\u00f0num. Erlent barnaefni var yfirleitt s\u00fdnt me\u00f0 \u00edslenskum ne\u00f0anm\u00e1lstexta sem gagnast ungum b\u00f6rnum vitaskuld l\u00edti\u00f0. En strax \u00e1 fyrsta starfs\u00e1ri s\u00ednu sumari\u00f0 1987 f\u00f3r [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5753","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5753","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5753"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5753\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5754,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5753\/revisions\/5754"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5753"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5753"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5753"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}