{"id":5761,"date":"2023-11-27T15:49:47","date_gmt":"2023-11-27T15:49:47","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5761"},"modified":"2023-11-27T15:50:47","modified_gmt":"2023-11-27T15:50:47","slug":"munud-atridi-og-vitadir-hlutir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/11\/27\/munud-atridi-og-vitadir-hlutir\/","title":{"rendered":"Munu\u00f0 atri\u00f0i og vita\u00f0ir hlutir"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r var h\u00e9r spurt hvernig \u00e6tti a\u00f0 nota s\u00f6gnina <em>muna <\/em>\u00ed \u00feolmynd \u2013 \u201eef muna\u00f0 er eftir einhverjum atri\u00f0um, eru \u00feau \u00fe\u00e1 munu\u00f0 atri\u00f0i, mund atri\u00f0i \u2026 e\u00f0a hva\u00f0 eru \u00feau?\u201c. \u00deetta er \u00e1g\u00e6t spurning og skiljanleg \u2013 \u00ed \u00feolmynd er nota\u00f0ur l\u00fdsingarh\u00e1ttur \u00fe\u00e1t\u00ed\u00f0ar en s\u00fa beygingarmynd er <a href=\"https:\/\/bin.arnastofnun.is\/beyging\/427492\">ekki gefin upp<\/a> fyrir <em>muna<\/em> \u00ed <em>Beygingarl\u00fdsingu \u00edslensks n\u00fat\u00edmam\u00e1ls<\/em>. Stundum er \u00fev\u00ed haldi\u00f0 fram a\u00f0 ekki s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 mynda \u00feolmynd af <a href=\"https:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/N%C3%BA%C3%BE%C3%A1leg_s%C3%B6gn\">n\u00fa\u00fe\u00e1legum s\u00f6gnum<\/a>, en <em>muna <\/em>er ein af \u00feeim \u00e1samt <em>eiga<\/em>, <em>mega<\/em>, <em>unna<\/em>, <em>kunna<\/em>, <em>munu<\/em>, <em>skulu<\/em>, <em>vilja<\/em>, <em>vita<\/em> og <em>\u00feurfa<\/em>, og <em>Beygingarl\u00fdsingin<\/em> gefur ekki upp l\u00fdsingarh\u00e1tt \u00fe\u00e1t\u00ed\u00f0ar af neinni \u00feessara sagna <a href=\"https:\/\/bin.arnastofnun.is\/leit\/beygingarmynd\/vilja%C3%B0ur\">en<\/a> <em>vilja\u00f0ur <\/em><a href=\"https:\/\/bin.arnastofnun.is\/leit\/beygingarmynd\/vita%C3%B0ur\">og<\/a> <em>vita\u00f0ur <\/em>eru \u00fear sem l\u00fdsingaror\u00f0. Samt er lj\u00f3st a\u00f0 sumar \u00feeirra eru nota\u00f0ar \u00ed l\u00fdsingarh\u00e6tti \u00fe\u00e1t\u00ed\u00f0ar og geta sta\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00feolmynd, a.m.k. <em>muna <\/em>og <em>vita<\/em>.<\/p>\n<p>D\u00e6mi\u00f0 sem spurt var um, <em>munu\u00f0 atri\u00f0i<\/em>, kemur einmitt fyrir \u00ed <em>Menntam\u00e1lum <\/em>1955, og sl\u00e6\u00f0ingur er af \u00f6\u00f0rum d\u00e6mum um l\u00fdsingarh\u00e1ttinn \u00ed \u00fdmsum myndum. \u201e\u00deau verk hans ver\u00f0a lengi munu\u00f0 og ver\u00f0a metin honum til lofs\u201c sag\u00f0i Bjarni Benediktsson og \u201e\u00deessi m\u00e1lflutningur ver\u00f0ur muna\u00f0ur\u201c sag\u00f0i Gylfi \u00de. G\u00edslason, b\u00e1\u00f0ir \u00ed r\u00e6\u00f0um \u00e1 Al\u00feingi 1949. \u00cd <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu <\/em>1949 segir: \u201eS\u00fa gj\u00f6f mun lengi munu\u00f0 ver\u00f0a.\u201c \u00cd <em>Verkamanninum <\/em>1960 segir: \u201eS\u00f6gurnar \u00ed G\u00f3\u00f0u f\u00f3lki og fleiri s\u00f6gur Einars Kristj\u00e1nssonar ver\u00f0a lengi muna\u00f0ar og lesnar.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1965 segir: \u201eHann er einn \u00feeirra manna, sem ver\u00f0a muna\u00f0ir.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1985 segir: \u201e\u00c1 grundvelli \u00feessa, skiptir Freud hverjum draumi \u00ed tvo \u00fe\u00e6tti: \u00ed fyrsta lagi er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a hinn muna\u00f0a draum.\u201c<\/p>\n<p>L\u00fdsingarh\u00e1tturinn <em>vita\u00f0ur <\/em>er <a href=\"https:\/\/blondal.arnastofnun.is\/faersla\/256868\">gefinn<\/a> \u00ed <em>\u00cdslensk-danskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>fr\u00e1 1920-1924 og <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>\u00ed merkingunni 'kunnur'. Um hann er t\u00f6luvert af d\u00e6mum fr\u00e1 \u00fdmsum t\u00edmum. \u00cd <em>V\u00edsi <\/em>1912 segir: \u201e\u00dea\u00f0 er vita\u00f0ur hlutur, a\u00f0 \u00feeir menn, sem nefndir eru \u00ed 11. gr., hafa eigi fj\u00e1rmagn til a\u00f0 reka sl\u00edkt fyrirt\u00e6ki.\u201c \u00cd <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0umanninum <\/em>1934 segir: \u201eS\u00e9 verkl\u00fd\u00f0sf\u00e9lagi\u00f0 ekki \u00ed Al\u00fe\u00fd\u00f0usambandinu, er \u00f3sigur \u00feess vita\u00f0ur fyrirfram.\u201c \u00cd <em>NT <\/em>1984 segir: \u201e\u00deegar ma\u00f0ur deyr fer forg\u00f6r\u00f0um brot v\u00edsd\u00f3ms sem var aldrei \u00e1\u00f0ur vita\u00f0ur og ver\u00f0ur aldrei vita\u00f0ur aftur.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2008 segir: \u201eN\u00e1nari uppl\u00fdsingar um tildr\u00f6g slyssins eru ekki vita\u00f0ar.\u201c \u00cd <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2019 segir: \u201eH\u00fan segir uppruna svetts ekki vita\u00f0an me\u00f0 vissu.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd m\u00f6rgum d\u00e6manna hefur l\u00fdsingarh\u00e1tturinn l\u00edklega setningarhlutverk l\u00fdsingaror\u00f0s en \u00fe\u00f3 eru nokkur d\u00e6mi um \u00f3tv\u00edr\u00e6\u00f0a \u00feolmynd me\u00f0 <em>af<\/em>-li\u00f0. \u00cd <em>F\u00e1lkanum <\/em>1932 segir: \u201eL\u00f6gin, sem mest ber \u00e1 \u00ed myndinni eru einkar skemtileg og ver\u00f0a sj\u00e1lfsagt munu\u00f0 af \u00feeim, sem heyra hana.\u201c \u00cd <em>Austurlandi <\/em>1967 segir: \u201eAfsta\u00f0a J\u00f3nasar P\u00e9turssonar til \u00feessa m\u00e1ls ver\u00f0ur \u00e1byggilega munu\u00f0 af Nor\u00f0fir\u00f0ingum og fleiri Austfir\u00f0ingum.\u201c \u00cd <em>Lesb\u00f3k Morgunbla\u00f0sins <\/em>1970 segir: \u201eEn \u00feessi hrottaskapur var vita\u00f0ur af m\u00f6rgum sj\u00f3farendum.\u201c \u00cd <em>Sk\u00edrni <\/em>1955 segir: \u201eHlutveruleikinn er [\u2026] veruleiki, sem \u00e1 s\u00e9r tilvist einnig \u00fear, sem hann er ekki \u201evita\u00f0ur\u201c af neinum.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1975 segir: \u201e\u00deessi \u00fe\u00e1ttur \u00e6fingarinnar var ekki vita\u00f0ur af bj\u00f6rgunarsveitarm\u00f6nnum.\u201c<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed enginn vafi \u00e1 a\u00f0 sagnirnar <em>muna <\/em>og <em>vita <\/em>eru til \u00ed l\u00fdsingarh\u00e6tti \u00fe\u00e1t\u00ed\u00f0ar og af setningum me\u00f0 \u00feeim er stundum h\u00e6gt a\u00f0 mynda \u00feolmynd. \u00d6\u00f0ru m\u00e1li gegnir um a\u00f0rar n\u00fa\u00fe\u00e1legar sagnir \u2013 \u00fe\u00e6r er yfirleitt ekki h\u00e6gt a\u00f0 nota \u00ed \u00feolmynd og H\u00f6skuldur \u00der\u00e1insson hefur t.d. <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/5410887?iabr=on#page\/n194\/mode\/1up\/\">bent \u00e1<\/a> a\u00f0 ekki s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 segja *<em>B\u00edllinn var \u00e1ttur af forstj\u00f3ra r\u00edkisfyrirt\u00e6kis<\/em>. \u00de\u00f3tt einst\u00f6ku g\u00f6mul d\u00e6mi um l\u00fdsingarh\u00e6tti megi reyndar finna eins og \u201e\u00ed hrepp hverjum voru \u00e1ttar 3 l\u00f6gsamkomur\u201c \u00ed <em>Sk\u00fdrslum um landshagi \u00e1 \u00cdslandi <\/em>1861, \u201eHinn fyrsti safna\u00f0arfundur \u00ed h\u00f6fu\u00f0sta\u00f0 landsins var \u00e1ttur 31. j\u00fal\u00ed um h\u00e1degi\u201c \u00ed <em>Nor\u00f0anfara <\/em>1880 og \u201evilja\u00f0ur hverjum manni betur til a\u00f0 ver\u00f0a \u00fej\u00f3\u00f0 sinni til nytsemdar\u201c \u00ed <em>\u00cdsafold <\/em>1894 m\u00e1 fullyr\u00f0a a\u00f0 \u00feau s\u00e9u fjarri m\u00e1lkennd f\u00f3lks n\u00fa \u00e1 t\u00edmum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r var h\u00e9r spurt hvernig \u00e6tti a\u00f0 nota s\u00f6gnina muna \u00ed \u00feolmynd \u2013 \u201eef muna\u00f0 er eftir einhverjum atri\u00f0um, eru \u00feau \u00fe\u00e1 munu\u00f0 atri\u00f0i, mund atri\u00f0i \u2026 e\u00f0a hva\u00f0 eru \u00feau?\u201c. \u00deetta er \u00e1g\u00e6t spurning og skiljanleg \u2013 \u00ed \u00feolmynd er nota\u00f0ur l\u00fdsingarh\u00e1ttur \u00fe\u00e1t\u00ed\u00f0ar en s\u00fa beygingarmynd er ekki gefin upp fyrir muna \u00ed [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5761","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5761","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5761"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5761\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5763,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5761\/revisions\/5763"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5761"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5761"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5761"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}