{"id":5836,"date":"2023-12-10T20:08:07","date_gmt":"2023-12-10T20:08:07","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5836"},"modified":"2023-12-10T20:08:07","modified_gmt":"2023-12-10T20:08:07","slug":"hvers-konar-fravik-er-vegna-ofbeldi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/12\/10\/hvers-konar-fravik-er-vegna-ofbeldi\/","title":{"rendered":"Hvers konar fr\u00e1vik er vegna ofbeldi?"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g rakst \u00e1 <a href=\"https:\/\/www.mbl.is\/fjolskyldan\/frettir\/2023\/12\/10\/ottast_ad_missa_barnid_fra_ser_vegna_ofbeldi_fyrrve\/\">fyrirs\u00f6gnina<\/a> \u201e\u00d3ttast a\u00f0 missa barni\u00f0 fr\u00e1 s\u00e9r vegna ofbeldi fyrrverandi\u201c \u00e1 <em>mbl.is<\/em> \u00ed dag. N\u00fa stj\u00f3rnar forsetningin <em>vegna <\/em>eignarfalli og <em>ofbeldi <\/em>er hvorugkynsor\u00f0 sem \u00e6tti a\u00f0 f\u00e1 endinguna -<em>s<\/em> \u00ed eignarfalli eins og \u00f6nnur nafnor\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed kyni (\u00f6nnur en \u00feau sem enda \u00e1 <em>-a<\/em>) \u2013 \u00fearna \u00e6tti sem s\u00e9 a\u00f0 standa <em>vegna ofbeldis<\/em> ef m\u00e1lhef\u00f0 v\u00e6ri fylgt. Au\u00f0vita\u00f0 g\u00e6ti \u00feetta veri\u00f0 einhvers konar fr\u00e1gangs- e\u00f0a flj\u00f3tf\u00e6rnisvilla og \u00fe\u00e1 er svo sem ekki meira um \u00fea\u00f0 a\u00f0 segja, en einnig g\u00e6ti \u00feetta veri\u00f0 vitnisbur\u00f0ur um byrjandi m\u00e1lbreytingu. Undanfarin r\u00fam 40 \u00e1r hefur \u00fev\u00ed oft veri\u00f0 haldi\u00f0 fram a\u00f0 eignarfall st\u00e6\u00f0i h\u00f6llum f\u00e6ti \u00ed m\u00e1linu og stundum veri\u00f0 tala\u00f0 um \u201eeignarfallsfl\u00f3tta\u201c \u00ed \u00fev\u00ed sambandi, allt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Helgi Sk\u00fali Kjartansson skrifa\u00f0i <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/5400057?iabr=on#page\/n107\/mode\/1up\">grein<\/a> me\u00f0 \u00fev\u00ed heiti 1979.<\/p>\n<p>Sl\u00edk breyting g\u00e6ti veri\u00f0 af mismunandi toga. Einn m\u00f6guleiki er s\u00e1 a\u00f0 fallstj\u00f3rn forsetningarinnar <em>vegna <\/em>s\u00e9 a\u00f0 breytast \u2013 h\u00fan taki ekki lengur alltaf me\u00f0 s\u00e9r eignarfall heldur geti stundum teki\u00f0 \u00feolfall e\u00f0a \u00fe\u00e1gufall. \u00cd sumar <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/07\/16\/breyting-a-eignarfalli-kvenkyns-un-orda\/\">skrifa\u00f0i<\/a> \u00e9g um d\u00e6mi eins og <em>vegna hl\u00fdnun<\/em> sem eru nokku\u00f0 algeng og taldi a\u00f0 \u00feau v\u00e6ru \u201efrekar til marks um a\u00f0 kvenkyns -<em>un<\/em>-or\u00f0 s\u00e9u farin a\u00f0 missa eignarfallsendinguna en a\u00f0 fallstj\u00f3rn forsetningarinnar <em>vegna<\/em> s\u00e9 a\u00f0 breytast\u201c en b\u00e6tti vi\u00f0: \u201e\u00deetta \u00fearf \u00fe\u00f3 a\u00f0 kanna miklu n\u00e1nar, og vel m\u00e1 vera a\u00f0 einhver merki s\u00e9u l\u00edka um breytta fallstj\u00f3rn.\u201c \u00dea\u00f0 v\u00e6ri \u00f3heppilegt ef fallstj\u00f3rn <em>vegna <\/em>v\u00e6ri a\u00f0 breytast \u2013 fyrir utan <em>til <\/em>er h\u00fan a\u00f0alforsetningin sem stj\u00f3rnar eignarfalli og breytt fallstj\u00f3rn hennar myndi \u00fev\u00ed veikja st\u00f6\u00f0u \u00feess.<\/p>\n<p>Annar m\u00f6guleiki er a\u00f0 beyging or\u00f0sins <em>ofbeldi <\/em>s\u00e9 a\u00f0 breytast \u2013 \u00fea\u00f0 f\u00e1i ekki lengur endilega <em>-s<\/em>-endingu \u00ed eignarfalli heldur geti veri\u00f0 endingarlaust. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri eiginlega mun alvarlegra en breytt fallstj\u00f3rn <em>vegna <\/em>\u2013 sterk hvorugkynsor\u00f0 eru mj\u00f6g st\u00f3r flokkur or\u00f0a og breyting \u00e1 beygingu \u00feeirra, sem k\u00e6mi \u00feannig \u00fat a\u00f0 \u00feau hvorugkynsor\u00f0 sem enda \u00e1 <em>-i<\/em> h\u00e6ttu a\u00f0 beygjast vegna \u00feess a\u00f0 \u00f6ll f\u00f6ll \u00feeirra \u00ed eint\u00f6lu yr\u00f0u \u00fe\u00e1 eins, v\u00e6ri \u00fev\u00ed veruleg breyting \u00e1 kerfinu og \u00ed raun veiking \u00feess. En \u00feri\u00f0ji m\u00f6guleikinn er s\u00e1 a\u00f0 \u00feetta sn\u00faist hvorki um fallstj\u00f3rn n\u00e9 beygingarmynd, heldur um kyn \u2013 or\u00f0i\u00f0 <em>ofbeldi <\/em>s\u00e9 sem sagt nota\u00f0 \u00fearna \u00ed kvenkyni \u00ed sta\u00f0 hvorugkyns. Kvenkynsor\u00f0 sem enda \u00e1 <em>-i <\/em>geta nefnilega veri\u00f0 endingarlaus \u00ed eignarfalli, svo sem <em>gle\u00f0i<\/em>, <em>rei\u00f0i<\/em>, <em>athygli<\/em>, <em>illgirni<\/em> o.m.fl.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eru d\u00e6mi um a\u00f0 or\u00f0 af \u00feessari ger\u00f0 fari milli kynja. Or\u00f0i\u00f0 <em>athygli <\/em>sem n\u00fa er alltaf haft \u00ed kvenkyni var t.d. <a href=\"https:\/\/ritmalssafn.arnastofnun.is\/daemi\/24423\">ekki s\u00ed\u00f0ur<\/a> hvorugkynsor\u00f0 \u00e1\u00f0ur fyrr og <em>-s- <\/em>\u00ed l\u00fdsingaror\u00f0inu <em>athyglisver\u00f0ur<\/em> er \u00fev\u00ed alveg e\u00f0lilegt. \u00de\u00f3tt <em>ofbeldi <\/em>s\u00e9 n\u00e6r alltaf hvorugkynsor\u00f0 m\u00e1 finna einst\u00f6ku d\u00e6mi \u00e1 netinu um a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 haft \u00ed kvenkyni. \u00c1 <em>Bland.is <\/em>2005 segir: \u201e\u00e9g var\u00f0 fyrir mikilli l\u00edkamlegri og andlegri ofbeldi af barnsf\u00f6\u00f0ur m\u00ednum.\u201c \u00c1 <em>Blog.is<\/em> 2009 segir: \u201e\u00c1 m\u00f3tm\u00e6lafundinum \u00ed dag var engin ofbeldi.\u201c \u00cd <em>DV <\/em>2018 segir: \u201eMikil ofbeldi hefur \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0 undanfarna daga \u00ed borginni Ghazipur \u00ed Uttar Pradesh h\u00e9ra\u00f0inu \u00ed Indlandi.\u201c \u00cd <em>V\u00edsi <\/em>2021 segir: \u201e\u00dea\u00f0 er alveg jafn mikil ofbeldi.\u201c D\u00e6mi af \u00feessu tagi eru \u00fe\u00f3 vissulega mj\u00f6g f\u00e1 og ekki h\u00e6gt a\u00f0 draga miklar \u00e1lyktanir af \u00feeim.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eru sem s\u00e9 fj\u00f3rar hugsanlegar sk\u00fdringar \u00e1 \u00fev\u00ed fr\u00e1viki fr\u00e1 m\u00e1lhef\u00f0 sem kemur fram \u00ed fyrirs\u00f6gninni sem nefnd var \u00ed upphafi. Fyrir utan a\u00f0 vera fr\u00e1gangsvilla getur \u00feetta s\u00fdnt breytta fallstj\u00f3rn forsetningarinnar <em>vegna<\/em>, breytta fallbeygingu nafnor\u00f0sins <em>ofbeldi<\/em>, e\u00f0a breytt kyn or\u00f0sins. Af hinum \u00feremur hugsanlegu m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegum sk\u00fdringum er s\u00fa s\u00ed\u00f0astnefnda \u201e\u00e6skilegust\u201c, ef svo m\u00e1 segja, fr\u00e1 sj\u00f3narhorni tungum\u00e1lsins. Hinar tv\u00e6r eru nefnilega r\u00f6skun \u00e1 kerfinu en breyting \u00e1 kyni einstaks or\u00f0s, sem formsins vegna g\u00e6ti veri\u00f0 af tveimur mismunadi kynjum, hefur engin v\u00ed\u00f0t\u00e6kari \u00e1hrif. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 afgrei\u00f0a fr\u00e1vik fr\u00e1 m\u00e1lhef\u00f0 einfaldlega sem \u201evillur\u201c er miklu gagnlegra a\u00f0 velta fyrir s\u00e9r \u00ed hverju \u00feau felast \u2013 og hva\u00f0a \u00e1hrif \u00feau g\u00e6tu haft.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g rakst \u00e1 fyrirs\u00f6gnina \u201e\u00d3ttast a\u00f0 missa barni\u00f0 fr\u00e1 s\u00e9r vegna ofbeldi fyrrverandi\u201c \u00e1 mbl.is \u00ed dag. N\u00fa stj\u00f3rnar forsetningin vegna eignarfalli og ofbeldi er hvorugkynsor\u00f0 sem \u00e6tti a\u00f0 f\u00e1 endinguna -s \u00ed eignarfalli eins og \u00f6nnur nafnor\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed kyni (\u00f6nnur en \u00feau sem enda \u00e1 -a) \u2013 \u00fearna \u00e6tti sem s\u00e9 a\u00f0 standa [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5836","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5836","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5836"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5836\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5837,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5836\/revisions\/5837"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5836"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5836"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5836"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}