{"id":5855,"date":"2023-12-14T08:00:44","date_gmt":"2023-12-14T08:00:44","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5855"},"modified":"2023-12-13T22:39:13","modified_gmt":"2023-12-13T22:39:13","slug":"thad-var-bedid-mig-ad-vaska-upp","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/12\/14\/thad-var-bedid-mig-ad-vaska-upp\/","title":{"rendered":"\u00dea\u00f0 var be\u00f0i\u00f0 mig a\u00f0 vaska upp"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r heyr\u00f0i \u00e9g setninguna \u201e\u00dea\u00f0 var be\u00f0i\u00f0 mig a\u00f0 vaska upp\u201c \u00ed vi\u00f0tals\u00fe\u00e6tti \u00ed <em>R\u00edkis\u00fatvarpinu<\/em>. \u00deetta er hin svokalla\u00f0a \u201en\u00fdja \u00feolmynd\u201c sem Sigr\u00ed\u00f0ur Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttir og Joan Maling <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/5411380#page\/n123\/mode\/2up\">greindu<\/a> fyrstar \u00edtarlega kringum aldam\u00f3tin. S\u00ed\u00f0an hefur miki\u00f0 og oft veri\u00f0 fjalla\u00f0 um \u00feessa setningager\u00f0, b\u00e6\u00f0i fr\u00e6\u00f0ilega og \u00ed almennri m\u00e1lfarsumr\u00e6\u00f0u, og \u00e9g hef \u00e1\u00f0ur <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/10\/29\/nyja-tholmyndin\/\">skrifa\u00f0<\/a> um hana h\u00e9r. Elstu \u00feekktu d\u00e6mi um hana eru meira en 80 \u00e1ra g\u00f6mul en h\u00fan hefur einkum brei\u00f0st \u00fat \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00feremur \u00e1ratugum e\u00f0a svo. Auglj\u00f3st er a\u00f0 b\u00f6rn tileinka s\u00e9r \u00feessa setningager\u00f0 \u00e1 m\u00e1lt\u00f6kuskei\u00f0i og ranns\u00f3knir benda til a\u00f0 \u00feegar b\u00f6rnin fullor\u00f0nast dragi \u00far notkun a.m.k. sumra \u00feeirra \u00e1 henni og sum leggi hana jafnvel alveg af, en h\u00fan vir\u00f0ist haldast a\u00f0 einhverju leyti \u00ed m\u00e1li margra.<\/p>\n<p>N\u00fdja \u00feolmyndin \u2013 sem reyndar eru skiptar sko\u00f0anir um hvort s\u00e9 \u00feolmynd e\u00f0a ekki \u2013 er m\u00f6rgum \u00feyrnir \u00ed augum, enda talsvert \u00f3l\u00edk hef\u00f0bundinni \u00feolmynd. Germynd \u00e1\u00f0urnefndrar setningar er (<em>einhver \u00f3nefndur<\/em>) <em>ba\u00f0 mig a\u00f0 vaska upp<\/em>, og \u00ed hef\u00f0bundinni \u00feolmynd er hj\u00e1lpars\u00f6gnin <em>vera <\/em>sett inn \u00ed setninguna, a\u00f0als\u00f6gnin <em>bi\u00f0ja<\/em> sett \u00ed l\u00fdsingarh\u00e1tt \u00fe\u00e1t\u00ed\u00f0ar, <em>be\u00f0in<\/em>(<em>n<\/em>), og \u00feolandinn, <em>mig<\/em>, tekinn \u00far andlagss\u00e6ti n\u00e6st \u00e1 eftir s\u00f6gninni og f\u00e6r\u00f0ur \u00ed d\u00e6migert frumlagss\u00e6ti fremst \u00ed setningunni. Vi\u00f0 \u00fea\u00f0 f\u00e1 \u00feolfallsandl\u00f6g jafnframt d\u00e6migert fall frumlagsins, nefnifall \u2013 \u00fatkoman ver\u00f0ur <em>\u00e9g var be\u00f0in<\/em>(<em>n<\/em>)<em> a\u00f0 vaska upp<\/em>. \u00de\u00e1gufallsandl\u00f6g halda aftur \u00e1 m\u00f3ti falli s\u00ednu \u00fe\u00f3tt \u00feau f\u00e6rist \u00ed frumlagss\u00e6ti \u2013 germyndin (<em>einhver \u00f3nefndur<\/em>) <em>bjarga\u00f0i m\u00e9r <\/em>ver\u00f0ur <em>m\u00e9r var bjarga\u00f0 <\/em>\u00ed \u00feolmynd.<\/p>\n<p>\u00cd n\u00fdju \u00feolmyndinni f\u00e6r \u00feolandinn aftur \u00e1 m\u00f3ti a\u00f0 vera kyrr \u00ed andlagss\u00e6tinu \u00e1 eftir s\u00f6gninni og heldur falli s\u00ednu. \u00cd sta\u00f0 \u00feolandans er frumlagss\u00e6ti\u00f0 \u00ed upphafi setningarinnar fyllt me\u00f0 merkingarsnau\u00f0u <em>\u00fea\u00f0<\/em>, en einnig er h\u00e6gt a\u00f0 hafa atviksor\u00f0 e\u00f0a forsetningarli\u00f0 fremst \u00ed setningunni, t.d. <em>\u00e1\u00f0an var be\u00f0i\u00f0 mig a\u00f0 vaska upp<\/em> e\u00f0a <em>\u00ed morgun var be\u00f0i\u00f0 mig a\u00f0 vaska upp<\/em>. \u00de\u00f3tt \u00e9g s\u00e9 ekki alinn upp vi\u00f0 n\u00fdju \u00feolmyndina og h\u00fan s\u00e9 ekki mitt m\u00e1l hef \u00e9g heyrt hana svo oft og lesi\u00f0 svo miki\u00f0 um hana a\u00f0 \u00e9g er l\u00f6ngu h\u00e6ttur a\u00f0 kippa m\u00e9r upp vi\u00f0 hana og farinn a\u00f0 f\u00e1 d\u00e1litla tilfinningu fyrir henni, finnst m\u00e9r. Og \u00e9g \u00e1tta\u00f0i mig \u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed g\u00e6r a\u00f0 m\u00e9r fannst setningin <em>\u00fea\u00f0 var be\u00f0i\u00f0 mig a\u00f0 vaska upp<\/em> fullkomlega e\u00f0lileg \u00ed \u00fev\u00ed samhengi sem h\u00fan var s\u00f6g\u00f0.<\/p>\n<p>En ekki bara \u00fea\u00f0: M\u00e9r fannst h\u00fan eiga betur vi\u00f0 \u00fearna en hin hef\u00f0bundna \u00feolmynd, <em>\u00e9g var be\u00f0inn a\u00f0 vaska upp<\/em>. \u00c9g held a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0an s\u00e9 s\u00fa a\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feolandinn s\u00e9 kyrr \u00ed s\u00ednu s\u00e6ti \u00e1 eftir s\u00f6gninni komi meiri \u00e1hersla \u00e1 \u00feolandahlutverk andlagsins en ef \u00fea\u00f0 f\u00e6r\u00f0ist \u00ed frumlagss\u00e6ti\u00f0 (og fengi \u00fear nefnifall ef um \u00feolfallsandlag er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a). Frumlagss\u00e6ti\u00f0 er hi\u00f0 d\u00e6miger\u00f0a s\u00e6ti gerandans og nefnifall hi\u00f0 d\u00e6miger\u00f0a fall gerandans, og \u00e9g held a\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feolandanum s\u00e9u gefin \u00feessi tv\u00f6 d\u00e6miger\u00f0u einkenni gerandans breytist vi\u00f0horf okkar til hans \u2013 vi\u00f0 skynjum hann ekki sem eins mikinn \u00feolanda, e\u00f0a f\u00f3rnarlamb, og ef hann er \u00ed germyndarst\u00f6\u00f0u sinni. En ef hann f\u00e6r a\u00f0 vera kyrr \u00e1 eftir s\u00f6gninni heldur hann \u00feolandahlutverkinu \u00far germyndinni alveg.<\/p>\n<p>\u00cd lj\u00f3si \u00feessa er e\u00f0lilegt a\u00f0 n\u00fdja \u00feolmyndin komi upp og s\u00e9 algeng \u00ed m\u00e1li barna. B\u00f6rn upplifa sig \u00f6rugglega oft sem \u00feolendur sem hafi litla stj\u00f3rn \u00e1 eigin l\u00edfi \u2013 \u00fea\u00f0 er alltaf veri\u00f0 a\u00f0 r\u00e1\u00f0skast eitthva\u00f0 me\u00f0 \u00feau. D\u00e6miger\u00f0ar setningar eins og <em>\u00fea\u00f0 var l\u00e1ti\u00f0 mig fara a\u00f0 sofa<\/em>, <em>\u00fea\u00f0 var be\u00f0i\u00f0 mig a\u00f0 fara<\/em>, <em>\u00fea\u00f0 var bari\u00f0 mig<\/em>, <em>\u00fea\u00f0 var skili\u00f0 mig \u00fatundan<\/em>, <em>\u00fea\u00f0 var hrint m\u00e9r<\/em>, <em>\u00fea\u00f0 var sagt m\u00e9r a\u00f0 \u00feegja<\/em> o.s.frv. l\u00fdsa \u00feessu \u00e1hrifa- og varnarleysi miklu betur en <em>\u00e9g var l\u00e1tin<\/em>(<em>n<\/em>) <em>fara a\u00f0 sofa<\/em>, <em>\u00e9g var be\u00f0in<\/em>(<em>n<\/em>) <em>a\u00f0 fara<\/em>, <em>\u00e9g var barin<\/em>(<em>n<\/em>), <em>\u00e9g var skilin<\/em>(<em>n<\/em>) <em>\u00fatundan<\/em>, <em>m\u00e9r var hrint<\/em>, <em>m\u00e9r var sagt a\u00f0 \u00feegja<\/em> o.s.frv. \u00deessi b\u00f6rn halda s\u00ed\u00f0an \u00e1fram a\u00f0 nota n\u00fdju \u00feolmyndina vi\u00f0 svipa\u00f0ar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur \u00feegar \u00feau fullor\u00f0nast \u2013 en sjaldnar, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e1 hafa \u00feau meiri stj\u00f3rn \u00e1 eigin l\u00edfi.<\/p>\n<p>\u00c1 <em>Bland.is<\/em> rakst \u00e9g \u00e1 mj\u00f6g \u00e1hugaver\u00f0a setningu: \u201e\u00c9g ger\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00feannig vi\u00f0 minn pjakk a\u00f0 hann var l\u00e1tinn \u00ed r\u00fami\u00f0 sitt og svo var l\u00e1ti\u00f0 hann grenja \u00ed 5 m\u00edn fyrst.\u201c \u00dearna er fyrst hef\u00f0bundin \u00feolmynd, <em>hann var l\u00e1tinn \u00ed r\u00fami\u00f0<\/em>, og svo n\u00fd \u00feolmynd me\u00f0 s\u00f6mu s\u00f6gn, <em>svo var l\u00e1ti\u00f0 hann grenja<\/em>. Seinna d\u00e6mi\u00f0 s\u00fdnir \u00feolanda- og f\u00f3rnarlambshlutverki\u00f0 vel og \u00fea\u00f0 hef\u00f0i hlj\u00f3ma\u00f0 mun \u00f3e\u00f0lilegar a\u00f0 v\u00edxla \u00feessu og segja <em>\u00fea\u00f0 var l\u00e1ti\u00f0 hann \u00ed r\u00fami\u00f0 og svo var hann l\u00e1tinn grenja<\/em>. \u00c9g \u00e1tta\u00f0i mig meira a\u00f0 segja \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g nota n\u00fdju \u00feolmyndina stundum svona sj\u00e1lfur. Ef m\u00e9r finnst vera r\u00e1\u00f0skast me\u00f0 mig segi \u00e9g stundum <em>\u00fea\u00f0 var l\u00e1ti\u00f0 mig ryksuga <\/em>e\u00f0a eitthva\u00f0 sl\u00edkt \u2013 vissulega \u00ed gr\u00edni, en m\u00e9r finnst \u00e9g miklu meira f\u00f3rnarlamb svona en ef \u00e9g seg\u00f0i <em>\u00e9g var l\u00e1tinn ryksuga<\/em>.<\/p>\n<p>\u00c9g hef bori\u00f0 \u00feessa tilfinningu undir fleira fullor\u00f0i\u00f0 f\u00f3lk, sem ekki er heldur ali\u00f0 upp vi\u00f0 n\u00fdju \u00feolmyndina, og sumt af \u00fev\u00ed kannast vi\u00f0 hana l\u00edka \u00feannig a\u00f0 \u00e9g held a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 ekki \u00edmyndun \u00ed m\u00e9r. En ef \u00feetta er r\u00e9tt \u00fe\u00fd\u00f0ir \u00fea\u00f0 a\u00f0 n\u00fdja \u00feolmyndin gegnir eil\u00edti\u00f0 \u00f6\u00f0ru merkingarlegu hlutverki en hin hef\u00f0bundna \u00feolmynd og \u00feess vegna er engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 \u00e6tla anna\u00f0 en b\u00e1\u00f0ar setningager\u00f0irnar geti lifa\u00f0 hli\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0 um langa framt\u00ed\u00f0. \u00c9g veit a\u00f0 m\u00f6rgum finnst n\u00fdja \u00feolmyndin lj\u00f3t en h\u00fan er hluti af m\u00e1li yngri kynsl\u00f3\u00f0anna og ekkert \u00e1 f\u00f6rum. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 ergja sig yfir henni \u00e6ttum vi\u00f0 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a hana velkomna og fagna \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fearna er komin inn \u00ed \u00edslenskuna n\u00fd setningager\u00f0 sem gegnir \u00e1kve\u00f0nu hlutverki og au\u00f0gar \u00fev\u00ed m\u00e1li\u00f0 en spillir \u00fev\u00ed ekki.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r heyr\u00f0i \u00e9g setninguna \u201e\u00dea\u00f0 var be\u00f0i\u00f0 mig a\u00f0 vaska upp\u201c \u00ed vi\u00f0tals\u00fe\u00e6tti \u00ed R\u00edkis\u00fatvarpinu. \u00deetta er hin svokalla\u00f0a \u201en\u00fdja \u00feolmynd\u201c sem Sigr\u00ed\u00f0ur Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttir og Joan Maling greindu fyrstar \u00edtarlega kringum aldam\u00f3tin. S\u00ed\u00f0an hefur miki\u00f0 og oft veri\u00f0 fjalla\u00f0 um \u00feessa setningager\u00f0, b\u00e6\u00f0i fr\u00e6\u00f0ilega og \u00ed almennri m\u00e1lfarsumr\u00e6\u00f0u, og \u00e9g hef \u00e1\u00f0ur skrifa\u00f0 um [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5855","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5855","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5855"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5855\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5856,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5855\/revisions\/5856"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5855"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5855"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5855"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}