{"id":5943,"date":"2024-01-06T10:34:42","date_gmt":"2024-01-06T10:34:42","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5943"},"modified":"2024-01-06T10:48:01","modified_gmt":"2024-01-06T10:48:01","slug":"ad-fresta-flugum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/01\/06\/ad-fresta-flugum\/","title":{"rendered":"A\u00f0 fresta flugum"},"content":{"rendered":"<p>H\u00e9r voru settar inn me\u00f0 stuttu millibili tv\u00e6r f\u00e6rslur \u00fear sem veri\u00f0 var a\u00f0 amast vi\u00f0 setningum eins og <em>\u00f6llum flugum hefur veri\u00f0 fresta\u00f0<\/em>. \u00deessum f\u00e6rslum var hent \u00fat vegna neikv\u00e6\u00f0s anda \u00ed \u00feeim og \u00fat\u00farsn\u00fanings eins og \u201eHven\u00e6r breyttist flug \u00ed flugur\u201c? \u2013 en \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekki a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 ekki ver\u00f0ugt vi\u00f0fangsefni. \u00dea\u00f0 hefur reyndar veri\u00f0 <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/groups\/malspjall\/posts\/524543838939693\/\">r\u00e6tt<\/a> h\u00e9r nokkrum sinnum \u00e1\u00f0ur en a\u00f0eins \u00ed framhj\u00e1hlaupi og n\u00fa skal b\u00e6tt \u00far \u00fev\u00ed. Or\u00f0i\u00f0 <em>flug <\/em><a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/12231\">merkir<\/a> '\u00fea\u00f0 a\u00f0 flj\u00faga' og \u00ed <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k<\/em> eru tekin d\u00e6min <em>h\u00fan athuga\u00f0i flug fuglanna <\/em>og <em>\u00f6llu flugi var afl\u00fdst vegna vonskuve\u00f0urs <\/em>um \u00fe\u00e1 merkingu. En auk \u00feess merkir or\u00f0i\u00f0 'einst\u00f6k fer\u00f0 flugv\u00e9lar' og \u00fea\u00f0 er s\u00fa merking sem i\u00f0ulega er amast vi\u00f0 og \u00fev\u00ed stundum haldi\u00f0 fram a\u00f0 s\u00e9 tilkomin fyrir ensk \u00e1hrif.<\/p>\n<p>En \u00feessi merking er meira en aldarg\u00f6mul \u00ed m\u00e1linu \u2013 meira a\u00f0 segja eldri en saga flugs \u00e1 \u00cdslandi. Elsta d\u00e6mi um hana er \u00ed <em>Fr\u00e6korni <\/em>1909: \u201eVi\u00f0 flugin \u00ed Reims hefir Latham fengi\u00f0 uppreisn fyrir \u00fea\u00f0 hve \u00f3heppinn hann var me\u00f0 tilraunir s\u00ednar a\u00f0 flj\u00faga yfir sundi\u00f0.\u201c \u00cd <em>V\u00edsi <\/em>1911 segir: \u201eer flugin byrju\u00f0u voru \u00fear komnar 600 \u00fe\u00fas. \u00e1horfenda.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1919 er fyrirs\u00f6gnin \u201eFlugin yfir Atlanzhaf.\u201c \u00cd sama bla\u00f0i sama \u00e1r segir: \u201eFlugin t\u00f3kust b\u00e6\u00f0i \u00e1g\u00e6tlega.\u201c \u00cd <em>Sunnudagsbla\u00f0inu <\/em>1926 segir: \u201eSkulu n\u00fa h\u00e9r talin nokkur merkustu flugin.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1928 segir: \u201e\u00feessar fer\u00f0ir eru frekar sko\u00f0a\u00f0ar sem skemtifer\u00f0ir, \u00e1 sama h\u00e1tt og flugin yfir b\u00e6inn og n\u00e1grenni\u00f0.\u201c \u00cd sama bla\u00f0i sama \u00e1r er fyrirs\u00f6gnin \u201eHassel-flugin\u201c. Svo m\u00e6tti lengi telja.<\/p>\n<p>\u00cd \u00f6llum \u00feessum d\u00e6mum er lj\u00f3st a\u00f0 veri\u00f0 er a\u00f0 v\u00edsa til tiltekinna fer\u00f0a flugv\u00e9la og \u00feess vegna er fleirtalan e\u00f0lileg. \u00dea\u00f0 m\u00e1 vel vera a\u00f0 einhverjum finnist samfall or\u00f0anna <em>flug <\/em>og <em>fluga <\/em>\u00ed \u00fe\u00e1gufalli fleirt\u00f6lu truflandi, en sl\u00edkt samfall beygingarmynda er fjarri \u00fev\u00ed a\u00f0 vera einsd\u00e6mi og vitanlega eru engar l\u00edkur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 d\u00e6mi eins og <em>\u00f6llum flugum afl\u00fdst <\/em>misskiljist \u2013 \u00fea\u00f0 er or\u00f0hengilsh\u00e1ttur og \u00fat\u00farsn\u00faningur a\u00f0 halda \u00fev\u00ed fram. Vissulega er \u00fearna l\u00edka h\u00e6gt a\u00f0 nota eint\u00f6luna, <em>\u00f6llu flugi afl\u00fdst <\/em>\u2013 en hva\u00f0 \u00e1 a\u00f0 gera ef afl\u00fdsingin er ekki alger, \u00ed d\u00e6mum eins og \u201e\u00de\u00e1 var um 400 flugum afl\u00fdst til og fr\u00e1 landinu\u201c \u00ed <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2022? Oft er sagt a\u00f0 \u00ed sl\u00edkum tilvikum eigi a\u00f0 nota or\u00f0i\u00f0 <em>flugfer\u00f0 <\/em>\u00ed sta\u00f0inn \u2013 en er \u00fea\u00f0 \u00f6rugglega h\u00e6gt?<\/p>\n<p>Or\u00f0i\u00f0 <em>flugfer\u00f0<\/em> <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/12252\">merkir<\/a> 'fer\u00f0alag me\u00f0 flugv\u00e9l' og \u00e1 ekki endilega vi\u00f0 \u00ed \u00feessu samhengi, \u00fear sem merkingin er frekar 'fer\u00f0 flugv\u00e9lar'. Vissulega m\u00e1 segja a\u00f0 <em>400 flugfer\u00f0um afl\u00fdst<\/em> yr\u00f0i fremur skili\u00f0 sem '400 fer\u00f0um flugv\u00e9la' en 'fer\u00f0um 400 far\u00feega' en stundum finnst m\u00e9r vera greinlegur og mikilv\u00e6gur merkingarmunur \u00e1 <em>flug <\/em>og <em>flugfer\u00f0<\/em>. \u00c9g get t.d. sagt <em>\u00e9g var a\u00f0 koma \u00far langri flugfer\u00f0 \u2013 \u00feurfti a\u00f0 fara \u00ed \u00ferj\u00fa flug<\/em>. \u00dearna fyndist m\u00e9r \u00f3t\u00e6kt a\u00f0 segja <em>\u00e9g var a\u00f0 koma \u00far l\u00f6ngu flugi <\/em>ef \u00e9g skipti um v\u00e9lar, en eins fyndist m\u00e9r \u00f3t\u00e6kt a\u00f0 segja <em>\u00feurfti a\u00f0 fara \u00ed \u00ferj\u00e1r flugfer\u00f0ir<\/em> ef eitt flug tekur vi\u00f0 af \u00f6\u00f0ru \u2013 \u00fe\u00e1 er \u00feetta ein fer\u00f0. En hva\u00f0 sem \u00feessu l\u00ed\u00f0ur er lj\u00f3st a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekkert athugavert vi\u00f0 a\u00f0 segja <em>\u00f6llum flugum hefur veri\u00f0 fresta\u00f0<\/em>.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00e9r voru settar inn me\u00f0 stuttu millibili tv\u00e6r f\u00e6rslur \u00fear sem veri\u00f0 var a\u00f0 amast vi\u00f0 setningum eins og \u00f6llum flugum hefur veri\u00f0 fresta\u00f0. \u00deessum f\u00e6rslum var hent \u00fat vegna neikv\u00e6\u00f0s anda \u00ed \u00feeim og \u00fat\u00farsn\u00fanings eins og \u201eHven\u00e6r breyttist flug \u00ed flugur\u201c? \u2013 en \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekki a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 ekki ver\u00f0ugt vi\u00f0fangsefni. \u00dea\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5943","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5943","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5943"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5943\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5946,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5943\/revisions\/5946"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5943"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5943"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5943"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}