{"id":5972,"date":"2024-01-14T09:00:54","date_gmt":"2024-01-14T09:00:54","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5972"},"modified":"2024-01-13T16:40:46","modified_gmt":"2024-01-13T16:40:46","slug":"foru-thau-vill-vega-eda-villur-vega","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/01\/14\/foru-thau-vill-vega-eda-villur-vega\/","title":{"rendered":"F\u00f3ru \u00feau vill vega e\u00f0a villur vega?"},"content":{"rendered":"<p>Or\u00f0asambandi\u00f0 <em>fara villur vega<\/em>(<em>r<\/em>) \u00ed merkingunni 'vera villtur' e\u00f0a 'hafa rangt fyrir s\u00e9r, skj\u00e1tlast' kemur fyrir \u00feegar \u00ed fornu m\u00e1li \u2013 \u201esn\u00fd \u00e9g \u00feessu n\u00ed\u00f0i \u00e1 landv\u00e6ttir [\u2026] svo a\u00f0 allar fari \u00fe\u00e6r villar vega\u201c segir \u00ed <em>Egils s\u00f6gu<\/em>. Oft er sambandi\u00f0 sagt nota\u00f0 ranglega. \u00cd <em>M\u00e1lfarsbankanum <\/em><a href=\"https:\/\/malfar.arnastofnun.is\/grein\/71405\">segir<\/a> t.d.: \u201eL\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 <strong>villur<\/strong> (<strong>vill<\/strong>, <strong>villt<\/strong>) hefur s\u00f6mu merkinu og l\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 <strong>villtur<\/strong>. <em>Hann fer villur vegar. \u00deeir fara villir vegar. H\u00fan fer vill vegar.<\/em> Ekki: \u201e\u00feeir fara villur vegar\u201c, \u201eh\u00fan fer villur vegar\u201c enda er \u00fea\u00f0 ekki nafnor\u00f0i\u00f0 <strong>villa<\/strong> sem h\u00e9r um r\u00e6\u00f0ir.\u201c Og J\u00f3n G. Fri\u00f0j\u00f3nsson <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/4159813?iabr=on#page\/n35\/mode\/1up\/\">segir<\/a> \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2007: \u201e\u00cd n\u00fat\u00edmam\u00e1li (reyndar fr\u00e1 fyrri hluta 20. aldar) er <strong>villur<\/strong> stundum skili\u00f0 sem \u00fef.flt. af <em>villa<\/em> [\u2026]. Sl\u00edk notkun samr\u00e6mist hvorki uppruna n\u00e9 m\u00e1lvenju.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd n\u00fat\u00edmam\u00e1li kemur l\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 <em>villur<\/em> t\u00e6past fyrir nema \u00ed sambandinu <em>fara villur vega<\/em>(<em>r<\/em>). Nafnor\u00f0i\u00f0 <em>villa<\/em> er hins vegar mj\u00f6g algengt og \u00feess vegna er engin fur\u00f0a a\u00f0 m\u00e1lnotendur telji a\u00f0 um \u00fea\u00f0 or\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00ed \u00feessu sambandi. Reyndar er s\u00fa notkun eldri en fr\u00e1 fyrri hluta 20, aldar \u2013 fr\u00e1 \u00fev\u00ed fyrir aldam\u00f3tin 1900. \u00cd <em>Heimskringlu <\/em>1891 segir: \u201e\u00feeir hafa fari\u00f0 villur vegar.\u201c \u00cd <em>L\u00edsingu <\/em>1899 segir: \u201eV\u00e9r sj\u00e1um \u00fea\u00f0, a\u00f0 samviskan getur fari\u00f0 villur vegar.\u201c \u00cd <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum <\/em>1899 segir: \u201e\u00dea\u00f0 er a\u00f0 v\u00edsu raunalegt, a\u00f0 sj\u00e1 g\u00f3\u00f0a, og \u00ed raun og veru skynsama, menn fara villur vegar.\u201c D\u00e6mum fj\u00f6lgar svo \u00feegar kemur fram yfir aldam\u00f3t og alla 20. \u00f6ldina m\u00e1 finna \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em> fj\u00f6lda d\u00e6ma sem s\u00fdna gl\u00f6ggt a\u00f0 <em>villur <\/em>er skili\u00f0 sem nafnor\u00f0 en ekki l\u00fdsingaror\u00f0.<\/p>\n<p>Nokkur d\u00e6mi: \u00cd <em>Fr\u00e6korni <\/em>1908 segir: \u201eA\u00f0 s\u00f6nnu er h\u00f6fundurinn svo v\u00e6gur, a\u00f0 hann \u00e6tlast ekki til, a\u00f0 neinn fari a\u00f0 \u00e1lasa fornkirkjunni e\u00f0a kirkjunni yfirleitt, a\u00f0 h\u00fan hefir fari\u00f0 villur vegar.\u201c \u00cd <em>Unga hermanninum <\/em>1909 segir: \u201eOg \u00feeir, sem hugsa, a\u00f0 Gu\u00f0 vilji ekki, a\u00f0 b\u00f6rn hans umgangist hann \u00feannig, \u00feeir fara villur vegar.\u201c \u00cd <em>V\u00edsi <\/em>1937 segir: \u201eFlugurnar fara villur vegar stundum.\u201c \u00cd <em>Skinfaxa <\/em>1939 segir: \u201e\u00deau fara villur vegar \u00ed hr\u00ed\u00f0 og n\u00e1ttmyrkri.\u201c \u00cd <em>\u00cdslendingi <\/em>1955 segir: \u201eB\u00e1\u00f0ir a\u00f0ilar fara villur vegar.\u201c \u00cd <em>Skagabla\u00f0inu <\/em>1986 segir: \u201e\u00dea\u00f0 er ekki oft sem fr\u00e9ttist af f\u00f3lki sem fer villur vegar \u00e1 e\u00f0a vi\u00f0 Akranes.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1992 segir: \u201e\u00c9g held a\u00f0 megni\u00f0 af \u00feessu unga f\u00f3lki hafi n\u00fa gert s\u00e9r grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 f\u00f3r villur vegar.\u201c<\/p>\n<p>Vissulega er enginn vafi \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 <em>villur <\/em>er upphaflega l\u00fdsingaror\u00f0 \u00ed sambandinu <em>fara villur vega<\/em>(<em>r<\/em>). En \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekki endilega a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um bundin vi\u00f0 \u00feann skilning og annar skilningur s\u00e9 sj\u00e1lfkrafa rangur \u2013 \u00fea\u00f0 eru fj\u00f6lm\u00f6rg d\u00e6mi um a\u00f0 or\u00f0 og or\u00f0asamb\u00f6nd hafi n\u00fa a\u00f0ra merkingu e\u00f0a s\u00e9u skilin \u00e1 annan h\u00e1tt en \u00ed fornu m\u00e1li. \u00dea\u00f0 er enginn vafi \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00f6ng og mikil notkun or\u00f0sins <em>villur <\/em>sem nafnor\u00f0s \u00ed \u00feessu sambandi hefur skapa\u00f0 n\u00fdja m\u00e1lvenju \u2013 til hli\u00f0ar vi\u00f0 \u00fe\u00e1 g\u00f6mlu sem au\u00f0vita\u00f0 er enn \u00ed fullu gildi. \u00dea\u00f0 er nefnilega ekkert a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tv\u00e6r mismunandi m\u00e1lvenjur s\u00e9u \u00ed gangi \u2013 vi\u00f0 \u00feurfum ekkert \u00f6ll a\u00f0 tala eins. Tilbrig\u00f0i s\u00fdna a\u00f0 \u00fea\u00f0 er l\u00edf \u00ed m\u00e1linu. B\u00e6\u00f0i <em>bla\u00f0i\u00f0 f\u00f3r villt vega <\/em>og <em>bla\u00f0i\u00f0 f\u00f3r villur vega <\/em>hl\u00fdtur a\u00f0 teljast r\u00e9tt m\u00e1l.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Or\u00f0asambandi\u00f0 fara villur vega(r) \u00ed merkingunni 'vera villtur' e\u00f0a 'hafa rangt fyrir s\u00e9r, skj\u00e1tlast' kemur fyrir \u00feegar \u00ed fornu m\u00e1li \u2013 \u201esn\u00fd \u00e9g \u00feessu n\u00ed\u00f0i \u00e1 landv\u00e6ttir [\u2026] svo a\u00f0 allar fari \u00fe\u00e6r villar vega\u201c segir \u00ed Egils s\u00f6gu. Oft er sambandi\u00f0 sagt nota\u00f0 ranglega. \u00cd M\u00e1lfarsbankanum segir t.d.: \u201eL\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 villur (vill, villt) hefur s\u00f6mu [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5972","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5972","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5972"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5972\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5973,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5972\/revisions\/5973"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5972"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5972"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5972"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}