{"id":5988,"date":"2024-01-22T17:58:10","date_gmt":"2024-01-22T17:58:10","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=5988"},"modified":"2024-01-23T12:30:54","modified_gmt":"2024-01-23T12:30:54","slug":"thad-sest-hver-drekka-kristal","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/01\/22\/thad-sest-hver-drekka-kristal\/","title":{"rendered":"\u00dea\u00f0 s\u00e9st hver drekka Kristal"},"content":{"rendered":"<p>Fyrir helgi birtist \u00ed <em>V\u00edsi <\/em><a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20242517719d\/ol-gerdin-breytir-slag-ordinu-fyrir-kristal\">fr\u00e9tt<\/a> me\u00f0 fyrirs\u00f6gninni \u201e\u00d6lger\u00f0in breytir slagor\u00f0inu fyrir Kristal\u201c. \u00dear er sagt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed tengslum vi\u00f0 vottun Samtakanna \u00b478 \u00e1 \u00d6lger\u00f0inni sem hinseginv\u00e6num vinnusta\u00f0 hafi veri\u00f0 ger\u00f0 sm\u00e1v\u00e6gileg breyting \u00e1 slagor\u00f0inu \u201esem \u00fej\u00f3\u00f0in hefur \u00feekkt sem \u201e\u00dea\u00f0 s\u00e9st hverjir drekka Kristal.\u201c Kristall er hins vegar fyrir okkur \u00f6ll og uppf\u00e6rt slagor\u00f0 er \u00fev\u00ed \u201e\u00dea\u00f0 s\u00e9st hver drekka Kristal\u201c og \u00feannig er gert r\u00e1\u00f0 fyrir \u00f6llum kynjum\u201c segir forstj\u00f3ri \u00d6lger\u00f0arinnar. \u00dearna er sem s\u00e9 fleirtala hvorugkyns af spurnarfornafninu <em>hver <\/em>sett \u00ed sta\u00f0 karlkynsfleirt\u00f6lunnar <em>hverjir<\/em>. Vitanlega er <em>\u00fea\u00f0 s\u00e9st hver drekka Kristal <\/em>\u00ed fullu samr\u00e6mi vi\u00f0 m\u00e1lkerfi\u00f0 \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 kunni a\u00f0 villa um fyrir einhverjum a\u00f0 fleirtala hvorugkyns af spurnarfornafninu <em>hver <\/em>er l\u00edka <em>hver<\/em>.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt karlkynsmynd spurnarfornafnsins hafi fram til \u00feessa veri\u00f0 notu\u00f0 \u00ed slagor\u00f0inu hefur vitanlega ekki veri\u00f0 gert r\u00e1\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 eing\u00f6ngu karlar drekki Kristal, heldur hefur <em>hverjir<\/em> veri\u00f0 \u00fearna \u00ed kynhlutlausri merkingu sem <a href=\"https:\/\/islenskan.is\/wp-content\/uploads\/2022\/12\/malfregnir-2022-30-1-tbl.pdf\">sj\u00e1lfgefi\u00f0 m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegt karlkyn<\/a> eins og hef\u00f0 er fyrir \u00ed m\u00e1linu. En samkv\u00e6mt minni m\u00e1ltilfinningu a.m.k. er <em>\u00fea\u00f0 s\u00e9st hver drekka Kristal<\/em> ekki \u00ed neinu \u00f3samr\u00e6mi vi\u00f0 m\u00e1lhef\u00f0ina. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 nota s\u00f6gnina <em>sj\u00e1 <\/em>b\u00faum vi\u00f0 til \u00edmynda\u00f0an h\u00f3p sem v\u00edsa\u00f0 er til \u00ed setningunni og \u00fear me\u00f0 getum vi\u00f0 nota\u00f0 <a href=\"https:\/\/islenskan.is\/wp-content\/uploads\/2022\/12\/malfregnir-2022-30-1-tbl.pdf\">v\u00edsandi hvorugkyn<\/a> og sagt <em>hver<\/em>. \u00dea\u00f0 er sem s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 nota hvort heldur sj\u00e1lfgefi\u00f0 m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegt karlkyn og segja <em>\u00fea\u00f0 s\u00e9st hverjir drekka Kristal <\/em>e\u00f0a v\u00edsandi hvorugkyn og segja <em>\u00fea\u00f0 s\u00e9st hver drekka Kristal<\/em>. Hvort tveggja <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/12\/04\/visandi-kyn-og-sjalfgefid-malfraedilegt-karlkyn\/\">stenst<\/a>.<\/p>\n<p>Vitanlega er \u00fea\u00f0 samt r\u00e9tt a\u00f0 venjan hefur veri\u00f0 a\u00f0 nota karlkyn \u00ed d\u00e6mum \u00e1 vi\u00f0 \u00feessu. En m\u00e1lvenjur geta breyst \u2013 og \u00feurfa stundum a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 til a\u00f0 svara kalli t\u00edmans. Au\u00f0vita\u00f0 er \u00d6lger\u00f0in \u00ed fullum r\u00e9tti a\u00f0 breyta slagor\u00f0i s\u00ednu en \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir vitaskuld ekki a\u00f0 vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 breyta m\u00e1li okkar. \u00dat fr\u00e1 umr\u00e6\u00f0u \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum, ekki s\u00edst \u00ed Facebookh\u00f3punum M\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e1tturinn og Skemmtileg \u00edslensk or\u00f0, m\u00e6tti \u00fe\u00f3 \u00e6tla a\u00f0 veri\u00f0 v\u00e6ri vinna meirih\u00e1ttar skemmdarverk \u00e1 m\u00e1linu \u00ed \u00fe\u00e1gu f\u00e1menns en heimtufreks h\u00f3ps sem \u201etr\u00fair \u00fev\u00ed allt \u00ed einu a\u00f0 kynin s\u00e9u fleiri en tv\u00f6\u201c. \u00cd \u00feessum h\u00f3pum eru komnar samtals h\u00e1tt \u00ed 300 athugasemdir vi\u00f0 innlegg um m\u00e1li\u00f0 \u2013 allmargar j\u00e1kv\u00e6\u00f0ar en mikill meirihluti \u00fe\u00f3 neikv\u00e6\u00f0ar eins og eftirfarandi d\u00e6mi s\u00fdna:<\/p>\n<p>\u201e\u00deetta er kolrugla\u00f0. \u00dea\u00f0 er veri\u00f0 a\u00f0 st\u00f3rskemma okkar fallega m\u00e1l; \u00deetta er bara hall\u00e6rislegt en \u00fea\u00f0 er kannski t\u00edskan \u00ed dag; \u00deessa bull m\u00e1lnotkun skal enginn ma\u00f0ur f\u00e1 mig til a\u00f0 nota; Alger f\u00e1viska; \u00feetta er svo heimskulegt a\u00f0 engum t\u00e1rum tekur, \u00fea\u00f0 \u00e1 a\u00f0 nota \u00f3\u00e1kve\u00f0na fornafni\u00f0 r\u00e9tt, anna\u00f0 er heimska; Glata\u00f0; \u00d6murlegt; Asnaleg breyting til hins verra; barnam\u00e1l; Alveg einstaklega h\u00e1lfvitalegt, og getur hreinlega ekki veri\u00f0 m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilega r\u00e9tt; skelfileg r\u00e9tthugsunarhandaflsm\u00e1l\u00fer\u00f3un; \u00deeir s\u00fdna \u00edslensku m\u00e1li l\u00edtilsvir\u00f0ingu; R\u00e9tt ein m\u00e1lvillan; \u00feetta er meira rugli\u00f0; F\u00e1r\u00e1nlegt; M\u00e1lfarsleg f\u00e1t\u00e6kt, eymd og vol\u00e6\u00f0i villur\u00e1fandi m\u00e1lvillinga; Sorglegt metna\u00f0arleysi; Algj\u00f6rt rugl; Hall\u00e6risleg a\u00f0f\u00f6r a\u00f0 tungum\u00e1linu; Asnalegt bara, sm\u00e1barna m\u00e1l.\u201c<\/p>\n<p>Mun fleiri d\u00e6mi m\u00e6tti taka, og \u00e9g ver\u00f0 a\u00f0 segja a\u00f0 \u00fea\u00f0 er eitthva\u00f0 anna\u00f0 en umhyggja fyrir tungum\u00e1linu og notendum \u00feess sem b\u00fdr \u00e1 bak vi\u00f0 athugasemdir af \u00feessu tagi. Vitanlega er samt e\u00f0lilegt a\u00f0 sko\u00f0anir s\u00e9u skiptar \u00e1 \u00feessari breytingu. En \u00fea\u00f0 liggur fyrir a\u00f0 \u00fdmsum konum og kv\u00e1rum finnst karlkynsmyndir fornafna og l\u00fdsingaror\u00f0a ekki h\u00f6f\u00f0a til s\u00edn. Vi\u00f0 getum au\u00f0vita\u00f0 reynt a\u00f0 segja \u00feeim a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 misskilningur a\u00f0 karlkynsmyndirnar s\u00e9u eitthva\u00f0 \u00fatilokandi fyrir \u00feau, en h\u00e6pi\u00f0 er a\u00f0 \u00fea\u00f0 breyti tilfinningu \u00feeirra. Betra er, b\u00e6\u00f0i fyrir m\u00e1li\u00f0 og m\u00e1lnotendur, a\u00f0 s\u00fdna umbur\u00f0arlyndi og taka tillit til tilfinninga f\u00f3lks. Vi\u00f0 \u00feurfum ekki \u00f6ll a\u00f0 tala eins, og vi\u00f0 hlj\u00f3tum a\u00f0 geta unnt \u00f6\u00f0rum \u00feess a\u00f0 nota m\u00e1li\u00f0 svol\u00edti\u00f0 \u00f6\u00f0ruv\u00edsi en vi\u00f0 gerum sj\u00e1lf.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrir helgi birtist \u00ed V\u00edsi fr\u00e9tt me\u00f0 fyrirs\u00f6gninni \u201e\u00d6lger\u00f0in breytir slagor\u00f0inu fyrir Kristal\u201c. \u00dear er sagt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed tengslum vi\u00f0 vottun Samtakanna \u00b478 \u00e1 \u00d6lger\u00f0inni sem hinseginv\u00e6num vinnusta\u00f0 hafi veri\u00f0 ger\u00f0 sm\u00e1v\u00e6gileg breyting \u00e1 slagor\u00f0inu \u201esem \u00fej\u00f3\u00f0in hefur \u00feekkt sem \u201e\u00dea\u00f0 s\u00e9st hverjir drekka Kristal.\u201c Kristall er hins vegar fyrir okkur \u00f6ll og [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-5988","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5988","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5988"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5988\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5991,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5988\/revisions\/5991"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5988"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5988"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5988"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}