{"id":6006,"date":"2024-02-01T13:42:06","date_gmt":"2024-02-01T13:42:06","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6006"},"modified":"2024-02-01T13:44:36","modified_gmt":"2024-02-01T13:44:36","slug":"ad-eiga-erfidu-gengi-ad-fagna","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/02\/01\/ad-eiga-erfidu-gengi-ad-fagna\/","title":{"rendered":"A\u00f0 eiga erfi\u00f0u gengi a\u00f0 fagna"},"content":{"rendered":"<p>Or\u00f0asambandi\u00f0 <em>eiga<\/em>\/<em>hafa gengi a\u00f0 fagna <\/em>hefur t\u00ed\u00f0kast \u00ed m\u00e1linu a.m.k. s\u00ed\u00f0an seint \u00e1 19. \u00f6ld. Venjulega stendur eitthvert l\u00fdsingaror\u00f0 \u00e1 undan <em>gengi<\/em>, oftast <em>g\u00f3\u00f0u <\/em>\u2013 af 3.400 d\u00e6mum um sambandi\u00f0 \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em> eru n\u00e6rri tv\u00f6 \u00fe\u00fasund um <em>g\u00f3\u00f0u gengi<\/em>. En \u00fdmis \u00f6nnur l\u00fdsingaror\u00f0 koma \u00fe\u00f3 fyrir, og \u00ed M\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum var n\u00fdlega vakin athygli \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttafr\u00e9tt hef\u00f0i veri\u00f0 tala\u00f0 um a\u00f0 <em>eiga erfi\u00f0u gengi a\u00f0 fagna<\/em>. M\u00e1lshefjanda fannst s\u00e9rkennilegt a\u00f0 nota s\u00f6gnina <em>fagna <\/em>sem venjulega <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/10415\">merkir<\/a> 'gle\u00f0jast yfir (e-u), k\u00e6tast vegna (e-s)' \u00ed \u00feessu samhengi \u00fev\u00ed a\u00f0 <em>erfitt gengi<\/em> g\u00e6ti varla veri\u00f0 gle\u00f0iefni. En \u00feetta er \u00fe\u00f3 fjarri \u00fev\u00ed a\u00f0 vera einsd\u00e6mi, og s\u00fdnir vel \u00feann mun sem getur veri\u00f0 \u00e1 grunnmerkingu or\u00f0a og merkingu \u00feeirra \u00ed f\u00f6stum or\u00f0asamb\u00f6ndum.<\/p>\n<p>Elsta d\u00e6mi um sambandi\u00f0 \u00e1 <em>t\u00edmarit.is <\/em>er \u00ed <em>\u00cdsafold <\/em>1877: \u201eh\u00fan hefir, og \u00fea\u00f0 a\u00f0 miklu leyti \u00f3maklega, \u00e1tt allt of litlu gengi a\u00f0 fagna.\u201c \u00deetta \u00fearf \u00fe\u00f3 ekki a\u00f0 skilja \u00feannig a\u00f0 veri\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 fagna \u00fev\u00ed hversu gengi\u00f0 er l\u00edti\u00f0, heldur \u00e1 v\u00e6ntanlega a\u00f0 skilja \u00fea\u00f0 \u00feannig a\u00f0 allt of l\u00edti\u00f0 s\u00e9 til a\u00f0 gle\u00f0jast yfir. Sama gildir v\u00e6ntanlega um \u00f6nnur d\u00e6mi um <em>litlu gengi a\u00f0 fagna<\/em> sem eru um 90 \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em>, sem og d\u00e6mi eins og <em>engu gengi a\u00f0 fagna<\/em>, <em>ekki miklu gengi a\u00f0 fagna <\/em>og fleiri svipu\u00f0. Sambandi\u00f0 er reyndar fremur sjaldg\u00e6ft fram undir mi\u00f0ja 20. \u00f6ld en \u00ed flestum e\u00f0a \u00f6llum d\u00e6mum um \u00fea\u00f0 \u00e1 \u00feeim t\u00edma vir\u00f0ist s\u00f6gnin <em>fagna <\/em>vera notu\u00f0 \u00ed b\u00f3kstaflegri merkingu. En upp \u00far 1940 f\u00f3ru neikv\u00e6\u00f0 l\u00fdsingaror\u00f0 sm\u00e1tt og sm\u00e1tt a\u00f0 sj\u00e1st me\u00f0 <em>gengi<\/em>, einkum \u00fe\u00f3 eftir 1980.<\/p>\n<p>Nokkur d\u00e6mi: \u00cd <em>Helgafelli <\/em>1942 segir: \u201e\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00f3tt \u00feessar hugsj\u00f3nir hafi jafnan \u00e1tt misj\u00f6fnu gengi a\u00f0 fagna \u00ed l\u00edfi \u00fej\u00f3\u00f0a og einstaklinga [\u2026]\u201c. \u00cd <em>Akranesi <\/em>1948 segir: \u201e\u00fdmsar a\u00f0rar fiskitegundir og vei\u00f0ar, eiga minnkandi gengi a\u00f0 fagna.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1970 segir: \u201eStj\u00f3rnm\u00e1laflokkar eiga mismunandi gengi a\u00f0 fagna, me\u00f0byr og m\u00f3tbyr.\u201c \u00cd <em>DV <\/em>1981 segir: \u201eFH-li\u00f0i\u00f0 hefur \u00e1tt skrykkj\u00f3ttu gengi a\u00f0 fagna undanfarin \u00e1r.\u201c \u00cd <em>T\u00edmanum <\/em>1984 segir: \u201eWest Ham, sem hefur \u00e1tt rysj\u00f3ttu gengi a\u00f0 fagna undanfari\u00f0.\u201c \u00cd <em>Eyjafr\u00e9ttum <\/em>1986 segir: \u201evi\u00f0 h\u00f6fum unni\u00f0 miki\u00f0 af \u00e6fingaleikjum, en \u00e1tt l\u00e9legu gengi a\u00f0 fagna \u00ed \u00cdslandsm\u00f3ti \u00e1 eftir.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1988 segir: \u201eFram \u00e1tti frekar sl\u00e6mu gengi a\u00f0 fagna \u00e1 s\u00ed\u00f0asta keppnist\u00edmabili.\u201c<\/p>\n<p>Eins og d\u00e6min benda til er \u00feetta einkum algengt \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttafr\u00e9ttum og \u00fear m\u00e1 l\u00edka finna d\u00e6mi eins og vitna\u00f0 var til \u00ed upphafi \u2013 \u201eBournemouth byrja\u00f0i t\u00edmabili\u00f0 \u00ed deildinni vel en hefur \u00e1tt erfi\u00f0u gengi a\u00f0 fagna s\u00ed\u00f0ustu vikur\u201c segir t.d. \u00ed <em>V\u00edsi <\/em>2018. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed lj\u00f3st a\u00f0 \u00ed m\u00e1li margra hefur s\u00f6gnin <em>fagna<\/em> glata\u00f0 grunnmerkingu sinni \u00ed \u00feessu sambandi og <em>eiga gengi a\u00f0 fagna <\/em>merkir einfaldlega 'ganga' \u2013 <em>eiga g\u00f3\u00f0u gengi a\u00f0 fagna <\/em>merkir 'ganga vel'. \u00c1 sama h\u00e1tt merkir <em>eiga l\u00e9legu<\/em>\/<em>erfi\u00f0u gengi a\u00f0 fagna <\/em>einfaldlega 'ganga illa' en v\u00edsar ekki \u00e1 neinn h\u00e1tt til \u00feess a\u00f0 hi\u00f0 l\u00e9lega gengi s\u00e9 s\u00e9rstakt fagna\u00f0arefni. Notkun neikv\u00e6\u00f0ra l\u00fdsingaror\u00f0a \u00ed sambandinu s\u00fdnir a\u00f0 \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu h\u00e1lfri \u00f6ld e\u00f0a svo hefur <em>eiga gengi a\u00f0 fagna <\/em>or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 f\u00f6stu or\u00f0asambandi og t\u00ed\u00f0ni \u00feess margfaldast.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er lj\u00f3st a\u00f0 \u00fea\u00f0 er fjarri \u00fev\u00ed a\u00f0 vera einsd\u00e6mi a\u00f0 or\u00f0 glati grunnmerkingu sinni \u00ed f\u00f6stum or\u00f0asamb\u00f6ndum. \u00devert \u00e1 m\u00f3ti \u2013 \u00fea\u00f0 er einmitt eitt af einkennum fastra or\u00f0asambanda a\u00f0 merking \u00feeirra er ekki summa e\u00f0a fall af merkingu or\u00f0anna \u00ed sambandinu, heldur hefur sambandi\u00f0 \u00e1kve\u00f0na merkingu sem heild. \u00deetta er hli\u00f0st\u00e6tt <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/09\/03\/eiga-von-a\/\">sambandinu<\/a> <em>eiga von \u00e1<\/em> sem i\u00f0ulega v\u00edsar til einhvers \u00f3\u00e6skilegs enda \u00fe\u00f3tt or\u00f0i\u00f0 <em>von <\/em>\u00fat af fyrir sig s\u00e9 vitanlega j\u00e1kv\u00e6tt. F\u00f3lk getur haft mismunandi sko\u00f0anir \u00e1 \u00feessari \u00fer\u00f3un sambandsins <em>eiga gengi a\u00f0 fagna <\/em>en \u00e1 hana er auglj\u00f3slega komin hef\u00f0. Hitt er samt anna\u00f0 m\u00e1l a\u00f0 sambandi\u00f0 er d\u00e1l\u00edtil klisja sem vel m\u00e1 halda fram a\u00f0 s\u00e9 ofnotu\u00f0. Oft f\u00e6ri betur a\u00f0 segja einfaldlega <em>li\u00f0inu hefur gengi\u00f0 illa s\u00ed\u00f0ustu vikur<\/em>.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Or\u00f0asambandi\u00f0 eiga\/hafa gengi a\u00f0 fagna hefur t\u00ed\u00f0kast \u00ed m\u00e1linu a.m.k. s\u00ed\u00f0an seint \u00e1 19. \u00f6ld. Venjulega stendur eitthvert l\u00fdsingaror\u00f0 \u00e1 undan gengi, oftast g\u00f3\u00f0u \u2013 af 3.400 d\u00e6mum um sambandi\u00f0 \u00e1 t\u00edmarit.is eru n\u00e6rri tv\u00f6 \u00fe\u00fasund um g\u00f3\u00f0u gengi. En \u00fdmis \u00f6nnur l\u00fdsingaror\u00f0 koma \u00fe\u00f3 fyrir, og \u00ed M\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum var n\u00fdlega vakin athygli \u00e1 \u00fev\u00ed [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6006","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6006","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6006"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6006\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6008,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6006\/revisions\/6008"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6006"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6006"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6006"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}