{"id":6026,"date":"2024-02-07T17:43:14","date_gmt":"2024-02-07T17:43:14","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6026"},"modified":"2024-02-07T17:43:14","modified_gmt":"2024-02-07T17:43:14","slug":"bjargar-logfraedin-islenskunni","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/02\/07\/bjargar-logfraedin-islenskunni\/","title":{"rendered":"\u201eBjargar l\u00f6gfr\u00e6\u00f0in \u00edslenskunni?\u201c"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r f\u00f3r \u00e9g \u00e1 fr\u00f3\u00f0legt <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/photo\/?fbid=25618615047737774&amp;set=gm.1329553765105359&amp;idorvanity=348609846533094\">m\u00e1l\u00feing<\/a> \u00e1 vegum L\u00f6gr\u00e9ttu, f\u00e9lags laganema vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Reykjav\u00edk. Yfirskrift \u00feingsins var \u201eBjargar l\u00f6gfr\u00e6\u00f0in \u00edslenskunni?\u201c og frumm\u00e6lendur voru \u00fer\u00edr l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingar \u00far \u00f3l\u00edkum \u00e1ttum. \u00dea\u00f0 var mikill samhlj\u00f3mur \u00ed m\u00e1li \u00feeirra um a\u00f0 lagasetning og eftirfylgni stj\u00f3rnvalda g\u00e6ti komi\u00f0 \u00edslenskunni a\u00f0 verulegu gagni. \u00c9g er samm\u00e1la \u00fev\u00ed mati og hef reyndar skrifa\u00f0 um dugleysi stj\u00f3rnvalda vi\u00f0 a\u00f0 framfylgja \u00feeim l\u00f6gum sem \u00fe\u00f3 eru til og var\u00f0a \u00edslenska tungu, svo sem <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/09\/03\/vanraeksla-sveitarfelaga-vid-setningu-malstefnu\/\">\u00e1kv\u00e6\u00f0um<\/a> um m\u00e1lstefnu sveitarf\u00e9laga \u00ed <em><a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/2011138.html\">Sveitarstj\u00f3rnarl\u00f6gum<\/a><\/em>, <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/08\/11\/ovirk-lagaakvaedi-um-islenskt-mal\/\">\u00e1kv\u00e6\u00f0um<\/a> um fyrirt\u00e6kjaheiti \u00ed <em><a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/lagas\/153b\/1903042.html\">L\u00f6gum um verslunarskr\u00e1r, firmu og pr\u00f3k\u00faruumbo\u00f0<\/a> <\/em>og <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/08\/11\/ovirk-lagaakvaedi-um-islenskt-mal\/\">\u00e1kv\u00e6\u00f0um<\/a> um augl\u00fdsingar \u00e1 \u00edslensku \u00ed <em><a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/2005057.html\">L\u00f6gum um eftirlit me\u00f0 vi\u00f0skiptah\u00e1ttum og marka\u00f0ssetningu<\/a><\/em>.<\/p>\n<p>\u00c1 m\u00e1l\u00feinginu var einnig tala\u00f0 um <em><a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/2011061.html\">L\u00f6g um st\u00f6\u00f0u \u00edslenskrar tungu og \u00edslenskt t\u00e1knm\u00e1ls<\/a><\/em> fr\u00e1 2011. \u00deessi l\u00f6g voru \u00e1g\u00e6t \u00e1 s\u00ednum t\u00edma og eru g\u00f3\u00f0 svo langt sem \u00feau n\u00e1 \u2013 en \u00feau n\u00e1 alltof skammt og hafa of \u00fer\u00f6ngt gildissvi\u00f0. \u00cd fyrstu grein \u00feeirra segir: \u201e\u00cdslenska er \u00fej\u00f3\u00f0tunga \u00cdslendinga og opinbert m\u00e1l \u00e1 \u00cdslandi\u201c og \u00ed annarri grein segir: \u201e\u00dej\u00f3\u00f0tungan er sameiginlegt m\u00e1l landsmanna. Stj\u00f3rnv\u00f6ld skulu tryggja a\u00f0 unnt ver\u00f0i a\u00f0 nota hana \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um \u00edslensks \u00fej\u00f3\u00f0l\u00edfs. Allir sem eru b\u00fasettir h\u00e9r \u00e1 landi skulu eiga \u00feess kost a\u00f0 l\u00e6ra og nota \u00edslensku til almennrar \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0l\u00edfi svo sem n\u00e1nar er m\u00e6lt fyrir um \u00ed s\u00e9rl\u00f6gum.\u201c \u00c9g veit reyndar ekki til \u00feess a\u00f0 \u00feessi s\u00e9rl\u00f6g hafi veri\u00f0 sett en \u00fear kann van\u00feekkingu minni a\u00f0 vera um a\u00f0 kenna.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er st\u00f3r galli \u00e1 l\u00f6gunum a\u00f0 \u00feau taka eing\u00f6ngu til opinberra a\u00f0ila. \u00cd 8. grein segir: \u201e\u00cdslenska er m\u00e1l Al\u00feingis, d\u00f3mst\u00f3la, stj\u00f3rnvalda, jafnt r\u00edkis sem sveitarf\u00e9laga, sk\u00f3la \u00e1 \u00f6llum sk\u00f3lastigum og annarra stofnana sem hafa me\u00f0 h\u00f6ndum framkv\u00e6mdir og veita almanna\u00fej\u00f3nustu\u201c og \u00ed 4. grein segir: \u201eR\u00edki og sveitarf\u00e9l\u00f6g bera \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 a\u00f0 var\u00f0veita og efla \u00edslenska tungu og skulu sj\u00e1 til \u00feess a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 notu\u00f0.\u201c \u00cd l\u00f6gunum er ekki stakt or\u00f0 um skyldur einstaklinga, fyrirt\u00e6kja og f\u00e9lagasamtaka til a\u00f0 nota \u00edslensku, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1kv\u00e6\u00f0i um a\u00f0ger\u00f0ir ef svo er ekki gert. \u00cd \u00f6\u00f0rum l\u00f6gum eru \u00e1kv\u00e6\u00f0i um \u00edslensk n\u00f6fn fyrirt\u00e6kja og a\u00f0 augl\u00fdsingar sem eiga a\u00f0 h\u00f6f\u00f0a til \u00edslenskra neytenda skuli vera \u00e1 \u00edslensku en \u00feeim l\u00f6gum er sl\u00e6lega framfylgt eins og \u00e1\u00f0ur segir.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er kominn t\u00edmi til a\u00f0 uppf\u00e6ra <em>L\u00f6g um st\u00f6\u00f0u \u00edslenskrar tungu og \u00edslensks t\u00e1knm\u00e1ls<\/em> og m\u00e9r finnst mikilv\u00e6gt a\u00f0 vi\u00f0 \u00fe\u00e1 uppf\u00e6rslu ver\u00f0i gildissvi\u00f0 laganna v\u00edkka\u00f0 \u00feannig a\u00f0 \u00feau taki einnig til einkaa\u00f0ila \u2013 fyrirt\u00e6kja og f\u00e9lagasamtaka. \u00dea\u00f0 er e\u00f0lilegt a\u00f0 \u00feeim ver\u00f0i gert skylt a\u00f0 nota \u00edslensku, t.d. \u00ed augl\u00fdsingum og kynningarefni. \u00dea\u00f0 kemur a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u ekki \u00ed veg fyrir a\u00f0 enska \u2013 e\u00f0a anna\u00f0 erlent tungum\u00e1l \u2013 ver\u00f0i einnig nota\u00f0, en frumskilyr\u00f0i \u00e1 a\u00f0 vera a\u00f0 \u00edslenska s\u00e9 alls sta\u00f0ar \u00ed \u00f6ndvegi. \u00dea\u00f0 \u00fearf einnig a\u00f0 gera atvinnurekendum, b\u00e6\u00f0i opinberum a\u00f0ilum og einkaa\u00f0ilum, skylt a\u00f0 gera erlendu starfsf\u00f3lki kleift a\u00f0 stunda \u00edslenskun\u00e1m me\u00f0 vinnu. \u00cd l\u00f6gunum ver\u00f0a a\u00f0 vera \u00e1kv\u00e6\u00f0i um vi\u00f0url\u00f6g ef \u00fat af er brug\u00f0i\u00f0, og \u00feeim \u00fearf a\u00f0 beita.<\/p>\n<p>\u00d6\u00f0ru m\u00e1li gegnir um \u00e1kv\u00e6\u00f0i sem var\u00f0a m\u00e1l og m\u00e1lnotkun einstaklinga. Fyrir utan <em><a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/1996045.html\">L\u00f6g um mannan\u00f6fn<\/a> <\/em>sem eru s\u00e9r \u00e1 b\u00e1ti (og \u00e6ttu a\u00f0 falla brott a\u00f0 m\u00ednu mati) eru sl\u00edk \u00e1kv\u00e6\u00f0i m\u00e9r vitanlega a\u00f0eins \u00ed <em><a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/1952100.html\">L\u00f6gum um r\u00edkisborgarar\u00e9tt<\/a> <\/em>\u00fear sem \u00ed upptalningu skilyr\u00f0a fyrir r\u00edkisborgarar\u00e9tti segir: \u201eUms\u00e6kjandi hafi sta\u00f0ist pr\u00f3f \u00ed \u00edslensku samkv\u00e6mt kr\u00f6fum sem r\u00e1\u00f0herra setur \u00ed <a href=\"https:\/\/island.is\/reglugerdir\/nr\/1129-2008\">regluger\u00f0<\/a>.\u201c \u00c1 m\u00e1l\u00feinginu var nefnt a\u00f0 \u00feetta pr\u00f3f v\u00e6ri l\u00e9tt, jafnvel of l\u00e9tt. Um \u00fea\u00f0 get \u00e9g ekki d\u00e6mt en vel m\u00e1 vera a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0a s\u00e9 til a\u00f0 \u00feyngja pr\u00f3fi\u00f0. Hins vegar s\u00e6kir ekki nema l\u00edtill hluti \u00feeirra \u00fatlendinga sem h\u00e9r b\u00faa um \u00edslenskan r\u00edkisborgarar\u00e9tt \u00feannig a\u00f0 auknar kr\u00f6fur til \u00feeirra hef\u00f0u l\u00edtil almenn \u00e1hrif \u00e1 \u00edslenskukunn\u00e1ttu innflytjenda, heldur hef\u00f0u fyrst og fremst t\u00e1knr\u00e6nt gildi.<\/p>\n<p>En a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti finnst m\u00e9r ekki koma til \u00e1lita a\u00f0 setja nein \u00e1kv\u00e6\u00f0i \u00ed l\u00f6g um m\u00e1l, m\u00e1lnotkun og m\u00e1lkunn\u00e1ttu einstaklinga. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 m\u00ednu mati alvarleg takm\u00f6rkun \u00e1 tj\u00e1ningarfrelsi f\u00f3lks, by\u00f0i heim margv\u00edslegri misbeitingu og mismunun og \u00fdtti undir \u00fej\u00f3\u00f0ernishroka. \u00dea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 halda l\u00edfi \u00ed \u00edslenskunni me\u00f0 l\u00f6gum \u2013 h\u00fan lifir ekki nema vi\u00f0, notendur hennar, viljum a\u00f0 h\u00fan lifi. \u00dea\u00f0 er h\u00e6gt \u2013 og \u00fearf \u2013 a\u00f0 styrkja \u00edslenskuna \u00e1 \u00fdmsan h\u00e1tt, me\u00f0 kennslu \u00ed \u00edslensku sem \u00f6\u00f0ru m\u00e1li, me\u00f0 ger\u00f0 af\u00fereyingar- og fr\u00e6\u00f0sluefnis \u00e1 \u00edslensku, o.s.frv. En hinn marg\u00fev\u00e6ldi frasi \u201evilji er allt sem \u00fearf\u201c \u00e1 ekki vi\u00f0 h\u00e9r (og raunar sjaldnast) \u2013 \u00fea\u00f0 \u00fearf l\u00edka a\u00f0ger\u00f0ir, fyrst og fremst vitundarvakningu um a\u00f0 \u00edslenskan skipti m\u00e1li og \u00fea\u00f0 \u00feurfi a\u00f0 hl\u00faa a\u00f0 henni.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r f\u00f3r \u00e9g \u00e1 fr\u00f3\u00f0legt m\u00e1l\u00feing \u00e1 vegum L\u00f6gr\u00e9ttu, f\u00e9lags laganema vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Reykjav\u00edk. Yfirskrift \u00feingsins var \u201eBjargar l\u00f6gfr\u00e6\u00f0in \u00edslenskunni?\u201c og frumm\u00e6lendur voru \u00fer\u00edr l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingar \u00far \u00f3l\u00edkum \u00e1ttum. \u00dea\u00f0 var mikill samhlj\u00f3mur \u00ed m\u00e1li \u00feeirra um a\u00f0 lagasetning og eftirfylgni stj\u00f3rnvalda g\u00e6ti komi\u00f0 \u00edslenskunni a\u00f0 verulegu gagni. \u00c9g er samm\u00e1la \u00fev\u00ed mati og [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6026","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6026","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6026"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6026\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6027,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6026\/revisions\/6027"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6026"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6026"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6026"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}