{"id":6067,"date":"2024-02-16T20:05:59","date_gmt":"2024-02-16T20:05:59","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6067"},"modified":"2024-02-16T20:08:17","modified_gmt":"2024-02-16T20:08:17","slug":"urslit-skolahreystis","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/02\/16\/urslit-skolahreystis\/","title":{"rendered":"\u00darslit Sk\u00f3lahreystis"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd dag var h\u00e9r vakin athygli \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 <em>hreysti <\/em>hef\u00f0i veri\u00f0 nota\u00f0 \u00ed hvorugkyni \u00ed <a href=\"https:\/\/www.ruv.is\/frettir\/menning-og-daegurmal\/2024-02-16-eg-missti-alveg-tenginguna-vid-neistann-405057\">fr\u00e9tt<\/a> \u00e1 vef <em>R\u00edkis\u00fatvarpsins<\/em>. \u00dear segir: \u201eOg \u00e1 hverjum einasta fasa \u00ed minni endurh\u00e6fingu er manneskja sem er \u00ed andlega hreystinu l\u00edka\u201c og \u201eInga \u00e1tta\u00f0i sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 var ekki n\u00f3g a\u00f0 huga a\u00f0 l\u00edkamlegu hreysti heldur \u00feurfti a\u00f0 huga a\u00f0 \u00fev\u00ed andlega l\u00edka\u201c. Or\u00f0i\u00f0 <em>hreysti <\/em>er upphaflega \u2013 og venjulega \u2013 kvenkynsor\u00f0 en or\u00f0 me\u00f0 \u00feessa stofnger\u00f0 g\u00e6ti \u00fat af fyrir sig eins veri\u00f0 hvorugkynsor\u00f0. Or\u00f0i\u00f0 <em>h\u00e1reysti <\/em>sem hefur s\u00f6mu stofnger\u00f0 og er mynda\u00f0 me\u00f0 <em>i<\/em>-hlj\u00f3\u00f0varpi af <em>raust <\/em>\u00e1 samb\u00e6rilegan h\u00e1tt og <em>hreysti <\/em>af <em>hraust<\/em>(<em>ur<\/em>) er fr\u00e1 fornu fari til b\u00e6\u00f0i \u00ed <a href=\"https:\/\/onp.ku.dk\/onp\/onp.php?o31635\">kvenkyni<\/a> og <a href=\"https:\/\/onp.ku.dk\/onp\/onp.php?o31636\">hvorugkyni<\/a> \u00fe\u00f3tt eing\u00f6ngu kvenkyni\u00f0 s\u00e9 <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/18172\">gefi\u00f0 upp<\/a> \u00ed <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k<\/em> enda l\u00edklega yfirgn\u00e6fandi \u00ed n\u00fat\u00edmam\u00e1li.<\/p>\n<p>Kvenkynsor\u00f0i\u00f0 <em>hreysti <\/em>er <a href=\"https:\/\/bin.arnastofnun.is\/leit\/hreysti\">eins<\/a> \u00ed \u00f6llum f\u00f6llum eint\u00f6lu \u2013 fleirtala er ekki notu\u00f0 af merkingarlegum \u00e1st\u00e6\u00f0um. \u00cd hvorugkyni f\u00e1 or\u00f0 af \u00feessu tagi <em>-s<\/em>-endingu \u00ed eignarfalli en eru eins \u00ed nefnifalli, \u00feolfalli og \u00fe\u00e1gufalli. \u00dear af lei\u00f0ir a\u00f0 mj\u00f6g oft er ekki h\u00e6gt a\u00f0 sj\u00e1 hvort or\u00f0i\u00f0 er \u00ed kvenkyni e\u00f0a hvorugkyni. \u00dea\u00f0 gildir t.d. um setningar eins og \u201eDugna\u00f0ur og hreysti \u00e1samt \u00f3drepandi seiglu eru \u00fear ofarlega \u00e1 bla\u00f0i\u201c \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2020, \u201eH\u00fan vekur hvarvetna athygli fyrir geislandi fegur\u00f0 og hreysti\u201c \u00ed <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2020, \u201e\u00dativera stu\u00f0lar a\u00f0 betri heilsu; l\u00fd\u00f0heilsu, ge\u00f0heilbrig\u00f0i og hreysti\u201c \u00ed <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2021, \u201e\u00dev\u00ed er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 efla hreysti, l\u00edfsfyllingu, f\u00e9lagsleg tengsl og virkni f\u00f3lks \u00e1 \u00feri\u00f0ja \u00e6viskei\u00f0i\u201c \u00ed <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2022, o.s.frv.<\/p>\n<p>Til a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 sj\u00e1 \u00ed hva\u00f0a kyni or\u00f0i\u00f0 er haft \u00fearf \u00fea\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera \u00ed eignarfalli, me\u00f0 greini, e\u00f0a taka me\u00f0 s\u00e9r \u00e1kv\u00e6\u00f0isor\u00f0 \u2013 l\u00fdsingaror\u00f0 e\u00f0a fornafn. F\u00e1ein d\u00e6mi um a\u00f0 \u00feessi atri\u00f0i beri vitni um hvorugkyn m\u00e1 finna \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em>. \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1947 segir: \u201eA\u00f0alhlutverki\u00f0 leikur hinn karlmannlegi og djarfi Massimo Derotti, sem vegna afl[s] og hreystis er nefndur \u00cdtalski Tarzan.\u201c \u00cd <em>Foringjanum <\/em>1976 segir: \u201e\u00dea\u00f0 er keppt b\u00e6\u00f0i \u00ed verklegum og b\u00f3klegum greinum, auk l\u00edkamlegs hreystis.\u201c \u00cd <em>V\u00edkurfr\u00e9ttum <\/em>1994 segir: \u201eSigr\u00fan, sem sj\u00e1lf er hreysti\u00f0 uppm\u00e1la\u00f0, hvetur f\u00f3lk til a\u00f0 auka hreyfinguna og bor\u00f0a r\u00e9tt.\u201c \u00cd <em>Degi <\/em>1999 segir: \u201eVi\u00f0 s\u00e1um fyrir okkur ungan, l\u00edfsgla\u00f0an og huglj\u00fafan mann sem einkenndist af miklu l\u00edkamlegu hreysti og keppnisanda.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd umr\u00e6\u00f0um var nefnt a\u00f0 hvorugkynsbeyging hef\u00f0i veri\u00f0 algeng \u00ed heiti keppninnar \u201eSk\u00f3lahreysti\u201c sem s\u00fdnd hefur veri\u00f0 \u00ed sj\u00f3nvarpi undanfarin \u00e1r. \u00cd <em>DV <\/em>2007 segir: \u201e\u00dea\u00f0 er n\u00f3g um a\u00f0 vera \u00e1 Skj\u00e1 einum \u00ed kv\u00f6ld \u00feegar fram fara \u00farslit Sk\u00f3lahreystis \u00e1 slaginu 20.00.\u201c \u00cd <em>Velfer\u00f0 <\/em>2007 segir: \u201eS\u00ed\u00f0an g\u00e1tu b\u00f6rn skemmt s\u00e9r \u00ed hoppikastala og \u00ferautabraut \u00ed anda Sk\u00f3lahreystis.\u201c \u00cd <em>Vesturb\u00e6jarbla\u00f0inu <\/em>2017 segir: \u201eLandsbankinn er n\u00fdr bakhjarl Sk\u00f3lahreystis.\u201c \u00cd <em>V\u00edkurfr\u00e9ttum <\/em>2018 segir: \u201eN\u00e1nari uppl\u00fdsingar og myndir m\u00e1 finna \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u Sk\u00f3lahreystis og Facebook.\u201c \u00cd <em>Mosfellingi <\/em>2018 segir: \u201eVins\u00e6ldir Sk\u00f3lahreystis hafa aukist jafnt og \u00fe\u00e9tt s\u00ed\u00f0ustu \u00e1r.\u201c Alls eru t\u00e6p 60 d\u00e6mi um eignarfalli\u00f0 <em>Sk\u00f3lahreystis <\/em>\u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em> og r\u00fam 60 \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni<\/em>.<\/p>\n<p>\u00cd d\u00e6mum af \u00feessu tagi, \u00fear sem nafnor\u00f0 (<em>\u00farslit<\/em>, <em>anda<\/em>,<em> bakhjarl<\/em>, <em>heimas\u00ed\u00f0u<\/em>,<em> vins\u00e6ldir<\/em>) tekur me\u00f0 s\u00e9r anna\u00f0 nafnor\u00f0 \u00ed eignarfalli, vir\u00f0ist \u00fea\u00f0 trufla m\u00e1lnotendur ef ekki s\u00e9st a\u00f0 um eignarfall er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. \u00dea\u00f0 s\u00e9st ekki \u00ed kvenkyni vegna \u00feess a\u00f0 \u00f6ll f\u00f6llin eru eins, og \u00feess vegna er tilhneiging til a\u00f0 b\u00e6ta eignarfallsendingu hvorugkyns vi\u00f0. D\u00e6mi um kvenkynseignarfall eru samt mun fleiri, og s\u00e9 liti\u00f0 fram hj\u00e1 samsetningunni <em>Sk\u00f3lahreysti <\/em>er hvorugkynsbeyging or\u00f0sins <em>hreysti <\/em>sjaldg\u00e6f. \u00de\u00f3 er tr\u00falegt a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 algengari en h\u00e6gt er a\u00f0 s\u00fdna fram \u00e1, \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00edklegt er a\u00f0 sum d\u00e6mi sem g\u00e6tu veri\u00f0 kvenkyn s\u00e9u \u00ed raun og veru hvorugkyn \u00ed huga h\u00f6funda sinna. En \u00fe\u00f3tt hvorugkyni\u00f0 breiddist \u00fat v\u00e6ri \u00fea\u00f0 saklaust enda v\u00e6ri \u00fea\u00f0 ekkert \u00f3e\u00f0lileg eins og \u00e1\u00f0ur segir.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd dag var h\u00e9r vakin athygli \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 hreysti hef\u00f0i veri\u00f0 nota\u00f0 \u00ed hvorugkyni \u00ed fr\u00e9tt \u00e1 vef R\u00edkis\u00fatvarpsins. \u00dear segir: \u201eOg \u00e1 hverjum einasta fasa \u00ed minni endurh\u00e6fingu er manneskja sem er \u00ed andlega hreystinu l\u00edka\u201c og \u201eInga \u00e1tta\u00f0i sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 var ekki n\u00f3g a\u00f0 huga a\u00f0 l\u00edkamlegu hreysti [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6067","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6067","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6067"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6067\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6069,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6067\/revisions\/6069"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6067"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6067"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6067"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}