{"id":6162,"date":"2024-03-11T16:18:02","date_gmt":"2024-03-11T16:18:02","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6162"},"modified":"2024-03-11T16:18:02","modified_gmt":"2024-03-11T16:18:02","slug":"mannskari-og-mannfjoldi-og-mannmergd","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/03\/11\/mannskari-og-mannfjoldi-og-mannmergd\/","title":{"rendered":"Mannskari \u2013 og mannfj\u00f6ldi og mannmerg\u00f0"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g f\u00e9kk fyrirspurn um hvort or\u00f0i\u00f0 <em>mannskari <\/em>v\u00e6ri til, \u00ed merkingunni 'h\u00f3pur f\u00f3lks'. Or\u00f0i\u00f0 <em>skari <\/em>er vitanlega gamalt \u00ed m\u00e1linu og vel \u00feekkt \u00ed <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/36066\">merkingunni<\/a> 'h\u00f3pur, flokkur, fj\u00f6ldi', sem og \u00fdmsar samsetningar \u2013 <em>\u00e1horfendaskari<\/em>, <em>barnaskari<\/em>, <em>fuglaskari<\/em>, <em>krakkaskari<\/em>, <em>stj\u00f6rnuskari<\/em> o.fl. \u00dev\u00ed m\u00e6tti \u00e6tla a\u00f0 <em>mannskari <\/em>v\u00e6ri einnig til og jafnvel algengt, en \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00f3 ekki a\u00f0 finna \u00ed or\u00f0ab\u00f3kum, hvorki <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k<\/em> n\u00e9 <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k<\/em>, og a\u00f0eins eitt d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 er \u00ed <em>Ritm\u00e1lssafni <\/em>\u00c1rnastofnunar \u2013 \u201eEg blanda mjer \u00ed mannskarana \u00ed st\u00f3rst\u00f6\u00f0unum\u201c \u00ed \u00f6\u00f0rum \u00e1rgangi ritsins <em>Margv\u00edslegt Gaman og alvara<\/em> sem Magn\u00fas Stephensen gaf \u00fat 1818. \u00c1 <em>t\u00edmarit.is <\/em>m\u00e1 \u00fe\u00f3 finna 72 d\u00e6mi um or\u00f0i\u00f0, \u00fea\u00f0 elsta fr\u00e1 1912, og 66 d\u00e6mi eru \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni<\/em>.<\/p>\n<p>Or\u00f0i\u00f0 <em>mannskari <\/em>er stofnsamsett en \u00fea\u00f0 er athyglisvert a\u00f0 n\u00e6r allar a\u00f0rar samsetningar me\u00f0 <em>-skari<\/em> eru eignarfallssamsetningar. \u00dea\u00f0 \u00e1 vi\u00f0 um \u00f6ll or\u00f0in sem nefnd eru h\u00e9r a\u00f0 framan og flest \u00f6nnur sem \u00e9g hef fundi\u00f0 d\u00e6mi um. Helsta undantekningin er <em>herskari <\/em>sem \u00e1\u00f0ur merkti 'herflokkur' en <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/19194\">merkir<\/a> n\u00fa bara 'mikill fj\u00f6ldi' \u2013 nokkurn veginn sama og or\u00f0i\u00f0 <em>skari<\/em> eitt og s\u00e9r. Langflest \u00feeirra \u00f6rf\u00e1u d\u00e6ma sem finnast um samsetninguna <em>mann<strong>a<\/strong>skari<\/em> eru \u00far bundnu m\u00e1li \u00fear sem bragformi\u00f0 kallar \u00e1 tv\u00edkv\u00e6\u00f0an fyrri li\u00f0. \u00dea\u00f0 eru til \u00fdmsar eignarfallssamsetningar me\u00f0 -<em>mannaskari <\/em>\u00fear sem fyrri li\u00f0urinn er samsettur, svo sem <em>emb\u00e6ttismannaskari<\/em>, <em>bla\u00f0amannaskari <\/em>o.fl., en eignarfallssamsetning er meginregla \u00ed or\u00f0um af \u00feessu tagi.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er ekki bara \u00ed samsetningum me\u00f0 <em>-skari<\/em> sem <em>mann- <\/em>sker sig \u00far \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 mynda stofnsamsetningu. Sama m\u00e1li gegnir um samsetningar me\u00f0 <em>-fj\u00f6ldi<\/em> og <em>-merg\u00f0<\/em> sem hafa svipa\u00f0a merkingu og <em>-skari <\/em>\u2013 fyrri li\u00f0ur \u00feeirra er n\u00e6r alltaf \u00ed eignarfalli fleirt\u00f6lu en undantekningar eru or\u00f0in <em>mannfj\u00f6ldi <\/em>og <em>mannmerg\u00f0<\/em>. Vissulega er <em>mannafj\u00f6ldi <\/em>til en \u00fe\u00e1 v\u00edsar <em>fj\u00f6ldi <\/em>oftast til \u00e1kve\u00f0innar t\u00f6lu eins og \u00ed \u201eMannafj\u00f6ldi er misjafn nokku\u00f0 \u00e1 \u00feessum skipum, en me\u00f0altal mun vera 14 \u00e1 skip\u201c \u00ed <em>Nor\u00f0urlandi <\/em>1903, og \u201e\u00cd 7. t\u00f6flu eru taldir b\u00e6ir og mannafj\u00f6ldi vi\u00f0 l\u00ednurnar\u201c \u00ed <em>T\u00edmariti Verkfr\u00e6\u00f0ingaf\u00e9lags \u00cdslands <\/em>1923. Einnig eru f\u00e1ein d\u00e6mi um <em>mannamerg\u00f0<\/em> en \u00fear af nokkur \u00far bundnu m\u00e1li \u00fear sem tv\u00edkv\u00e6\u00f0ur li\u00f0ur \u00fearf a\u00f0 vera, eins og \u00ed <em>mannaskari<\/em>.<\/p>\n<p>En hvers vegna myndar r\u00f3tin <em>mann- <\/em>ekki eignarfallssamsetningar me\u00f0 <em>-fj\u00f6ldi<\/em>, <em>-merg\u00f0 <\/em>og <em>-skari <\/em>eins og flestar e\u00f0a allar a\u00f0rar r\u00e6tur? Um \u00fea\u00f0 er h\u00e6pi\u00f0 a\u00f0 fullyr\u00f0a nokku\u00f0 en m\u00e9r finnst freistandi a\u00f0 tengja \u00fea\u00f0 vi\u00f0 tv\u00edr\u00e6\u00f0ni or\u00f0sins <em>ma\u00f0ur<\/em>. Ef nota\u00f0ar eru eignarfallssamsetningar eins og <em>mannafj\u00f6ldi<\/em>, <em>mannamerg\u00f0<\/em> og <em>mannaskari<\/em> g\u00e6ti leiki\u00f0 vafi \u00e1 \u00fev\u00ed hvort v\u00edsun fyrri hlutans v\u00e6ri almenn, e\u00f0a hvort v\u00edsa\u00f0 v\u00e6ri til karlmanna eing\u00f6ngu. En r\u00f3tin <em>mann- <\/em>tengist karlm\u00f6nnum ekkert s\u00e9rstaklega \u2013 e\u00f0a miklu s\u00ed\u00f0ur \u2013 \u00ed huga f\u00f3lks eins og m.a. s\u00e9st \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk sem hefur leitast vi\u00f0 a\u00f0 koma me\u00f0 \u00f6nnur or\u00f0 fyrir <em>ma\u00f0ur <\/em>til nota \u00ed almennri merkingu hefur stungi\u00f0 upp \u00e1 <em>manneskja<\/em>, <em>man <\/em>og <em>menni<\/em> \u2013 sem \u00f6ll eru af \u00feessari r\u00f3t. \u00deetta er samt bara skot \u00fat \u00ed lofti\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g f\u00e9kk fyrirspurn um hvort or\u00f0i\u00f0 mannskari v\u00e6ri til, \u00ed merkingunni 'h\u00f3pur f\u00f3lks'. Or\u00f0i\u00f0 skari er vitanlega gamalt \u00ed m\u00e1linu og vel \u00feekkt \u00ed merkingunni 'h\u00f3pur, flokkur, fj\u00f6ldi', sem og \u00fdmsar samsetningar \u2013 \u00e1horfendaskari, barnaskari, fuglaskari, krakkaskari, stj\u00f6rnuskari o.fl. \u00dev\u00ed m\u00e6tti \u00e6tla a\u00f0 mannskari v\u00e6ri einnig til og jafnvel algengt, en \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00f3 ekki [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6162","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6162","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6162"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6162\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6163,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6162\/revisions\/6163"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6162"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6162"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6162"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}