{"id":6245,"date":"2024-04-14T22:51:56","date_gmt":"2024-04-14T22:51:56","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6245"},"modified":"2024-04-14T22:51:56","modified_gmt":"2024-04-14T22:51:56","slug":"getur-breidd-verid-meiri-en-lengd","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/04\/14\/getur-breidd-verid-meiri-en-lengd\/","title":{"rendered":"Getur breidd veri\u00f0 meiri en lengd?"},"content":{"rendered":"<p>Einu sinni hringdi \u00ed mig ma\u00f0ur sem haf\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 gr\u00faska \u00ed g\u00f6mlum heimildum \u00fear sem tala\u00f0 var um kirkjugar\u00f0 sem var 37 metrar \u00e1 lengd og 43 metrar \u00e1 breidd. Hann var a\u00f0 velta fyrir s\u00e9r hvort \u00fea\u00f0 g\u00e6ti sta\u00f0ist a\u00f0 or\u00f0a \u00feetta svona. Getur breidd veri\u00f0 meiri en lengd? Og \u00fe\u00e1 vi\u00f0 hva\u00f0a a\u00f0st\u00e6\u00f0ur? Hvernig \u00e1 a\u00f0 \u00e1kvar\u00f0a hva\u00f0 er lengd og hva\u00f0 breidd einhvers tv\u00edv\u00ed\u00f0s fyrirb\u00e6ris? \u00deessar spurningar koma sjaldan upp vegna \u00feess a\u00f0 yfirleitt vir\u00f0ist f\u00f3lki finnast \u00feetta auglj\u00f3st \u2013 en hva\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem gerir \u00fea\u00f0 auglj\u00f3st? \u00cd <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k <\/em>er <em>lengd <\/em><a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/leit\/lengd\">sk\u00fdrt<\/a> '\u00fea\u00f0 hversu langt eitthva\u00f0 er' og <em>langur <\/em><a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/25676\">sk\u00fdrt<\/a> 'mikill \u00e1 lengdina, t.d. band e\u00f0a vegur'. Aftur \u00e1 m\u00f3ti er <em>breidd <\/em><a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/6759\">sk\u00fdrt<\/a> '\u00fea\u00f0 hversu breitt eitthva\u00f0 er', og <em>brei\u00f0ur <\/em><a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/6775\">sk\u00fdrt<\/a> 'mikill \u00e1 \u00feverveginn, v\u00ed\u00f0ur'.<\/p>\n<p>\u00deegar fyrirb\u00e6ri\u00f0 sem um r\u00e6\u00f0ir er \u00e1 hreyfingu e\u00f0a getur hreyfst er <em>lengd <\/em>venjulega nota\u00f0 um stefnuna \u2013 \u00feegar tala\u00f0 er t.d. um \u00e1r er <em>lengd <\/em>fjarl\u00e6g\u00f0in fr\u00e1 uppt\u00f6kum til \u00f3sa en <em>breidd <\/em>fjarl\u00e6g\u00f0in milli bakka. J\u00f6kuls\u00e1 \u00e1 Brei\u00f0amerkursandi er ekki nema 500 metra l\u00f6ng og styttist \u00e1r fr\u00e1 \u00e1ri, og svo g\u00e6ti fari\u00f0 \u00e1 endanum a\u00f0 lengd hennar yr\u00f0i minni en breiddin \u2013 en \u00fea\u00f0 yr\u00f0i samt haldi\u00f0 \u00e1fram a\u00f0 nota or\u00f0in <em>lengd <\/em>og <em>breidd <\/em>\u00e1 \u00feann h\u00e1tt sem \u00e1\u00f0ur var l\u00fdst. \u00deegar um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a t.d. h\u00fas me\u00f0 m\u00e6ni held \u00e9g a\u00f0 <em>lengd <\/em>v\u00edsi alltaf til stefnu m\u00e6nisins jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 g\u00e6ti \u00ed undantekningartilvikum leitt til \u00feess a\u00f0 <em>lengd <\/em>h\u00fassins yr\u00f0i minni en <em>breidd <\/em>\u00feess. \u00dev\u00ed m\u00e1 segja a\u00f0 <em>lengd <\/em>v\u00edsi \u00ed einhverjum skilningi til stefnu e\u00f0a hreyfingar en <em>breidd <\/em>til fasta e\u00f0a kyrrst\u00f6\u00f0u.<\/p>\n<p>Langoftast er \u00fea\u00f0 samt \u00feannig a\u00f0 <em>lengd <\/em>\u00feess sem um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a er meiri en <em>breidd <\/em>\u00feess \u00fear sem h\u00e6gt er a\u00f0 finna einhverja tengingu vi\u00f0 stefnu e\u00f0a hreyfingu. En \u00fea\u00f0 er ekki alltaf h\u00e6gt, t.d. \u00feegar um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a landspildu, h\u00fas me\u00f0 fl\u00f6tu \u00feaki, o.m.fl. \u00de\u00e1 er venja a\u00f0 lengri hli\u00f0arnar s\u00e9u kalla\u00f0ar <em>lengd <\/em>en \u00fe\u00e6r styttri <em>breidd<\/em> \u2013 nema einhverjar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur geri kleift a\u00f0 gera upp \u00e1 milli. Ef kirkja st\u00e6\u00f0i \u00ed kirkjugar\u00f0inum sem nefndur var \u00ed upphafi v\u00e6ri e\u00f0lilegt a\u00f0 fara eftir henni \u2013 <em>lengd <\/em>gar\u00f0sins v\u00e6ri samhli\u00f0a <em>lengd <\/em>kirkjunnar, jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 leiddi til \u00feess a\u00f0 <em>lengd <\/em>hans yr\u00f0i minni en <em>breidd<\/em>. Einnig g\u00e6ti gar\u00f0shli\u00f0i\u00f0 r\u00e1\u00f0i\u00f0 \u00feessu \u2013 \u00fea\u00f0 segir til um stefnu inn \u00ed gar\u00f0inn og \u00feess vegna er e\u00f0lilegt a\u00f0 hli\u00f0arnar samhli\u00f0a \u00feeirri stefnu s\u00e9u kalla\u00f0ar <em>lengd <\/em>gar\u00f0sins.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Einu sinni hringdi \u00ed mig ma\u00f0ur sem haf\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 gr\u00faska \u00ed g\u00f6mlum heimildum \u00fear sem tala\u00f0 var um kirkjugar\u00f0 sem var 37 metrar \u00e1 lengd og 43 metrar \u00e1 breidd. Hann var a\u00f0 velta fyrir s\u00e9r hvort \u00fea\u00f0 g\u00e6ti sta\u00f0ist a\u00f0 or\u00f0a \u00feetta svona. Getur breidd veri\u00f0 meiri en lengd? Og \u00fe\u00e1 vi\u00f0 hva\u00f0a [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6245","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6245","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6245"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6245\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6246,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6245\/revisions\/6246"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6245"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6245"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6245"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}