{"id":6276,"date":"2024-04-24T09:03:34","date_gmt":"2024-04-24T09:03:34","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6276"},"modified":"2024-04-24T09:03:34","modified_gmt":"2024-04-24T09:03:34","slug":"hagsmunaarekstur-sem-verdur-ad-leysa","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/04\/24\/hagsmunaarekstur-sem-verdur-ad-leysa\/","title":{"rendered":"Hagsmuna\u00e1rekstur sem ver\u00f0ur a\u00f0 leysa"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r skapa\u00f0ist h\u00e9r heilmikil umr\u00e6\u00f0a um <a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20242560868d\/er-thetta-i-alvoru-verdlaunaefni-\">grein<\/a> sem Snorri M\u00e1sson skrifa\u00f0i \u00e1 <em>V\u00edsi <\/em>og setti inn \u00ed \u00feennan h\u00f3p. \u00dear gerir hann a\u00f0 umr\u00e6\u00f0uefni enskum\u00e6landi r\u00e1\u00f0 \u00ed M\u00fdrdal sem var stofna\u00f0 fyrir tveimur \u00e1rum og \u00e1 a\u00f0 vera \u201evettvangur fyrir erlenda \u00edb\u00faa sveitarf\u00e9lagsins til a\u00f0 koma s\u00ednum sj\u00f3narmi\u00f0um og hugmyndum \u00e1fram\u201c eins og sagt var \u00ed <a href=\"https:\/\/www.vik.is\/is\/frettir\/enskumaelandi-rad-hefur-storf-i-vik\">tilkynningu<\/a> \u00feegar r\u00e1\u00f0i\u00f0 var stofna\u00f0. Snorri segir a\u00f0 n\u00fa fari \u201estj\u00f3rns\u00fdsla \u00ed landinu fram \u00e1 <em>\u00edslensku og ensku<\/em>; \u00fev\u00ed ver\u00f0ur ekki l\u00fdst \u00f6\u00f0ruv\u00edsi\u201c. \u00deetta er reyndar ekki r\u00e9tt \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e1\u00f0i\u00f0 er a\u00f0eins r\u00e1\u00f0gefandi og \u00fev\u00ed ekki beinn hluti af stj\u00f3rns\u00fdslu hreppsins. Snorra \u00feykir s\u00e9rstaklega athugavert a\u00f0 \u00feetta r\u00e1\u00f0 skuli hafa fengi\u00f0 <a href=\"https:\/\/www.byggdastofnun.is\/is\/frettir\/fyrsta-enskumaelandi-politiska-rad-a-landinu-er-i-myrdalshreppi-og-hlaut-thad-samfelagsvidurkenningu-byggdastofnunar-i-ar-\">samf\u00e9lagsvi\u00f0urkenningu<\/a> Bygg\u00f0astofnunar og spyr: \u201eEr \u00feetta \u00ed alv\u00f6ru ver\u00f0launaefni?\u201c<\/p>\n<p>Snorri telur \u201ekostulegt \u00fat af fyrir sig a\u00f0 Bygg\u00f0astofnun skuli veita sveitarf\u00e9l\u00f6gum hvatningarver\u00f0laun fyrir a\u00f0 minnka hlut \u00edslenskrar tungu \u00ed opinberri stj\u00f3rns\u00fdslu\u201c. \u00de\u00f3tt r\u00e1\u00f0i\u00f0 s\u00e9 ekki beinn \u00fe\u00e1ttur \u00ed stj\u00f3rns\u00fdslu sveitarf\u00e9lagsins veikir \u00feetta \u00f3neitanlega st\u00f6\u00f0u \u00edslenskunnar sem eina opinbera tungum\u00e1ls landsins (fyrir utan \u00edslenskt t\u00e1knm\u00e1l) og g\u00e6ti rutt brautina fyrir aukna enskunotkun \u00e1 fleiri svi\u00f0um. \u00dea\u00f0 er vitanlega r\u00e9tt hj\u00e1 Snorra a\u00f0 stofnun r\u00e1\u00f0s af \u00feessu tagi er \u00ed \u00f3samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00edslenska m\u00e1lstefnu \u00fear sem \u00e1hersla er l\u00f6g\u00f0 \u00e1 a\u00f0 \u00edslenska n\u00e9 noth\u00e6f og notu\u00f0 \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um \u00fej\u00f3\u00f0l\u00edfsins. \u00dea\u00f0 m\u00e1 l\u00edka vel halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 stofnun r\u00e1\u00f0sins dragi \u00far hvata innflytjenda til a\u00f0 l\u00e6ra \u00edslensku og vinni \u00feannig gegn st\u00f6\u00f0u \u00edslenskunnar \u00ed samf\u00e9laginu.<\/p>\n<p>En m\u00e1li\u00f0 hefur l\u00edka a\u00f0ra hli\u00f0 sem sn\u00fdr a\u00f0 mannr\u00e9ttindum og l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i. Haft er eftir sveitarstj\u00f3ra M\u00fdrdals a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u201ehafi komi\u00f0 \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 st\u00f3r hluti samf\u00e9lagsins v\u00e6ri \u00ed raun frekar afskiptur og hef\u00f0i hvorki r\u00f6dd n\u00e9 t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 koma s\u00ednum hugmyndum \u00e1 framf\u00e6ri og taka raunverulega \u00fe\u00e1tt \u00ed stefnum\u00f3tunum og stj\u00f3rnvalds\u00e1kv\u00f6r\u00f0unum \u00ed sveitarf\u00e9laginu\u201c en \u201eS\u00f6kum a\u00f0st\u00e6\u00f0na hafa ekki allir s\u00f6mu t\u00e6kif\u00e6ri til \u00feess a\u00f0 l\u00e6ra \u00edslensku [\u2026]\u201c. Forma\u00f0ur r\u00e1\u00f0sins segir: \u201e\u00c9g var b\u00fainn a\u00f0 b\u00faa \u00ed V\u00edk \u00ed \u00e1tta\u00a0 \u00e1r en fannst \u00e9g aldrei\u00a0 tilheyra a\u00f0 fullu e\u00f0a geta haft einhver \u00e1hrif \u00e1 samf\u00e9lagi\u00f0. \u00dea\u00f0 er fr\u00e1b\u00e6rt a\u00f0 \u00fearna s\u00e9 kominn vettvangur fyrir \u00edb\u00faa af erlendum uppruna til a\u00f0 hafa \u00e1hrif innan stj\u00f3rns\u00fdslunnar og geta komi\u00f0 s\u00ednum hugmyndum \u00e1 framf\u00e6ri.\u201c<\/p>\n<p>Snorri telur a\u00f0 r\u00e1\u00f0i\u00f0 s\u00fdni uppgj\u00f6f \u2013 \u00ed \u00fev\u00ed \u201ebirtist okkur s\u00fa s\u00fdn a\u00f0 <em>eina<\/em> lei\u00f0 \u00edb\u00faa af erlendum uppruna til a\u00f0 hafa \u00e1hrif, e\u00f0a \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta \u00e1hrifamesta lei\u00f0 \u00feeirra til a\u00f0 gera \u00fea\u00f0, s\u00e9 a\u00f0 stj\u00f3rns\u00fdslan f\u00e6rist yfir \u00e1 ensku. Eins og \u00fea\u00f0 s\u00e9 varla h\u00e6gt a\u00f0 \u00e6tlast til \u00feess \u00far \u00feessu a\u00f0 umr\u00e6ddir \u00edb\u00faar l\u00e6ri \u00edslensku og hafi \u00e1hrif eftir \u00feeirri lei\u00f0.\u201c H\u00e9r m\u00e1 nefna a\u00f0 M\u00fdrdalshreppur hefur ekki, frekar en flest \u00f6nnur sveitarf\u00e9l\u00f6g, sett s\u00e9r <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/09\/03\/vanraeksla-sveitarfelaga-vid-setningu-malstefnu\/\">m\u00e1lstefnu<\/a> \u00fer\u00e1tt fyrir sk\u00fdr \u00e1kv\u00e6\u00f0i <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/2011138.html\">Sveitarstj\u00f3rnarlaga<\/a>: \u201eEnn fremur skal koma fram hva\u00f0a g\u00f6gn liggja a\u00f0 jafna\u00f0i fyrir \u00ed erlendum m\u00e1lb\u00faningi og hva\u00f0a tungum\u00e1l \u00fear er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. \u00de\u00e1 skal \u00fear setja reglur um r\u00e9tt \u00edb\u00faa af erlendum uppruna til samskipta vi\u00f0 stofnanir sveitarf\u00e9lagsins \u00e1 annarri tungu en \u00edslensku.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd <a href=\"https:\/\/www.byggdastofnun.is\/is\/frettir\/fyrsta-enskumaelandi-politiska-rad-a-landinu-er-i-myrdalshreppi-og-hlaut-thad-samfelagsvidurkenningu-byggdastofnunar-i-ar-\">tilkynningu<\/a> Bygg\u00f0astofnunar um vi\u00f0urkenninguna er viki\u00f0 a\u00f0 b\u00e1\u00f0um hli\u00f0um m\u00e1lsins, st\u00f6\u00f0u \u00edslenskunnar og l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i og mannr\u00e9ttindum: \u201eEnskum\u00e6landi r\u00e1\u00f0 eflir samf\u00e9lagslega \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00edb\u00faa sem annars v\u00e6ri h\u00e6tt vi\u00f0 a\u00f0 yr\u00f0u ja\u00f0arsettir og gefur erlendum \u00edb\u00faum vettvang til \u00feess a\u00f0 koma sj\u00f3narmi\u00f0um og \u00e1herslum s\u00ednum \u00e1 framf\u00e6ri. Allar fundarger\u00f0ir r\u00e1\u00f0sins eru skrifa\u00f0ar b\u00e6\u00f0i \u00e1 \u00edslensku og ensku og veita \u00feannig r\u00e1\u00f0sme\u00f0limum og \u00feeim sem lesa fundarger\u00f0irnar jafnframt aukna inns\u00fdn \u00ed \u00edslenska tungu en eru um lei\u00f0 \u00f6llum skiljanlegar. R\u00e1\u00f0i\u00f0 hefur fjalla\u00f0 um \u00edslenskukennslu og hefur fjalla\u00f0 umtalsvert um lei\u00f0ir sem h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 fara til \u00feess a\u00f0 efla st\u00f6\u00f0u tungum\u00e1lsins \u00ed enskum\u00e6landi hagkerfi, sem fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustusamf\u00e9l\u00f6g jafnan eru.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd \u00feessu m\u00e1li kemur gl\u00f6ggt \u00ed lj\u00f3s \u00fea\u00f0 sem \u00e9g hef margoft skrifa\u00f0 h\u00e9r um: Me\u00f0 atvinnustefnu sem byggist \u00e1 l\u00e1glaunast\u00f6rfum \u00fear sem f\u00f3lk vinnur langan vinnudag, og me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leggja alltof litla \u00e1herslu \u00e1 kennslu \u00edslensku sem annars m\u00e1ls, erum vi\u00f0 a\u00f0 b\u00faa h\u00e9r til tv\u00edskipt samf\u00e9lag. \u00dea\u00f0 er e\u00f0lilegt a\u00f0 \u00e6tlast til \u00feess a\u00f0 \u00edslenska s\u00e9 notu\u00f0 og noth\u00e6f \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um, en jafnframt er e\u00f0lilegt a\u00f0 f\u00f3lk sem hefur ekki veri\u00f0 b\u00fain n\u00e6gilega g\u00f3\u00f0 a\u00f0sta\u00f0a og t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 l\u00e6ra m\u00e1li\u00f0 vilji nj\u00f3ta l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegra r\u00e9ttinda til \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed samf\u00e9laginu. Eins og sta\u00f0an er n\u00fana ver\u00f0ur \u00e1rekstur milli hagsmuna \u00edslenskunnar og hagsmuna innflytjenda. Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 finna lei\u00f0 til a\u00f0 leysa \u00far \u00fev\u00ed \u00feannig a\u00f0 r\u00e9ttur f\u00f3lks s\u00e9 virtur \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 komi ni\u00f0ur \u00e1 \u00edslenskunni.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r skapa\u00f0ist h\u00e9r heilmikil umr\u00e6\u00f0a um grein sem Snorri M\u00e1sson skrifa\u00f0i \u00e1 V\u00edsi og setti inn \u00ed \u00feennan h\u00f3p. \u00dear gerir hann a\u00f0 umr\u00e6\u00f0uefni enskum\u00e6landi r\u00e1\u00f0 \u00ed M\u00fdrdal sem var stofna\u00f0 fyrir tveimur \u00e1rum og \u00e1 a\u00f0 vera \u201evettvangur fyrir erlenda \u00edb\u00faa sveitarf\u00e9lagsins til a\u00f0 koma s\u00ednum sj\u00f3narmi\u00f0um og hugmyndum \u00e1fram\u201c eins og sagt [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6276","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6276","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6276"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6276\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6277,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6276\/revisions\/6277"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6276"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6276"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6276"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}