{"id":6359,"date":"2024-05-14T21:19:46","date_gmt":"2024-05-14T21:19:46","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6359"},"modified":"2024-05-14T21:19:46","modified_gmt":"2024-05-14T21:19:46","slug":"hair-skaflar-eda-djupir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/05\/14\/hair-skaflar-eda-djupir\/","title":{"rendered":"H\u00e1ir skaflar \u2013 e\u00f0a dj\u00fapir?"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd M\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum var vitna\u00f0 \u00ed <a href=\"https:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2024\/05\/14\/snjoskaflarnir_allt_ad_fjogurra_metra_djupir\/\">fyrirs\u00f6gnina<\/a> \u201eSnj\u00f3skaflarnir allt a\u00f0 fj\u00f6gurra metra dj\u00fapir\u201c \u00e1 <em>mbl.is<\/em> og sagt \u201eHef\u00f0i frekar nota\u00f0 hversu skaflarnir v\u00e6ru h\u00e1ir.\u201c H\u00e9r er vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 vitna \u00ed greinina \u201eUm \u00fe\u00fd\u00f0ingarleysi\u201c sem \u00deorgeir \u00deorgeirson <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/6292310?iabr=on#page\/n91\/mode\/1up\/\">skrifa\u00f0i<\/a> \u00ed <em>T\u00edmariti M\u00e1ls og menningar <\/em>1984: \u201e\u00de\u00f3 get \u00e9g ekki stilt mig um a\u00f0 nefna skemtilegt d\u00e6mi (sem einnig sannar hva\u00f0 or\u00f0ab\u00f3kin getur veri\u00f0 tv\u00edeggja vopn \u00ed \u00feessu str\u00ed\u00f0i). Frumm\u00e1l: (du) opsluges af en h\u00f6j snedrive, ver\u00f0ur \u00ed fyrsta uppkasti: (\u00fe\u00fa) ert gleyptur af h\u00e1um snj\u00f3skafli. \u00deetta er lemstra\u00f0. Hva\u00f0 er a\u00f0? Vangaveltur og stunur, g\u00f6ngut\u00far ni\u00f0ra\u00f0 Tj\u00f6rn og loksins kemur \u00fea\u00f0. \u00cdslenskur snj\u00f3skafl er ekki h\u00e1r heldur dj\u00fapur!!! Og setningin er flutt yfir svol\u00e1tandi: (\u00fe\u00fa) sekkur \u00ed dj\u00fapan skafl sem gleypir \u00feig.\u201c<\/p>\n<p>\u00deetta er samt ekki alveg svona einfalt. \u00c1 <em>t\u00edmarit.is <\/em>eru talsvert fleiri d\u00e6mi um <em>h\u00e1r <\/em>(<em>snj\u00f3<\/em>)<em>skafl <\/em>en <em>dj\u00fapur <\/em>(<em>snj\u00f3<\/em>)<em>skafl<\/em>, og \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni <\/em>eru d\u00e6min me\u00f0 <em>h\u00e1r <\/em>meira en \u00ferisvar sinnum fleiri en d\u00e6min me\u00f0 <em>dj\u00fapur<\/em>, \u00feannig a\u00f0 <em>h\u00e1r <\/em>vir\u00f0ist vera a\u00f0alor\u00f0i\u00f0 og s\u00e6kja \u00e1 \u00ed \u00feessu sambandi \u00f6fugt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00deorgeir sag\u00f0i. En \u00fe\u00f3tt merkingin vir\u00f0ist svipu\u00f0 er ekki alltaf h\u00e6gt a\u00f0 skipta \u00f6\u00f0ru or\u00f0inu \u00fat fyrir hitt vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau endurspegla oft mismunandi sj\u00f3narhorn. Skaflinn er <em>dj\u00fapur <\/em>ef horft er \u00e1 hann l\u00f3\u00f0r\u00e9tt, ofan fr\u00e1, t.d. ef ma\u00f0ur sekkur \u00ed hann eins og \u00ed d\u00e6mi \u00deorgeirs. En hann er <em>h\u00e1r <\/em>ef horft er \u00e1 hann l\u00e1r\u00e9tt, t.d. ef sta\u00f0i\u00f0 er vi\u00f0 hli\u00f0 hans. \u00cdslenskur snj\u00f3skafl getur \u00feess vegna veri\u00f0 b\u00e6\u00f0i h\u00e1r og dj\u00fapur, e\u00f0a \u00fdmist h\u00e1r e\u00f0a dj\u00fapur, eftir \u00fev\u00ed hvernig \u00e1 \u00fea\u00f0 er liti\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deessi mismunandi sj\u00f3narhorn m\u00e1 sj\u00e1 \u00ed textum fr\u00e1 \u00fdmsum t\u00edmum. \u00cd <em>\u00c1rsriti hins \u00edslenzka kvenf\u00e9lags <\/em>1899 segir: \u201epiltarnir \u00ed sk\u00f3la \u00feessum h\u00f6f\u00f0u fleygt sk\u00f3lastj\u00f3ranum \u00e1 h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00fat um gluggann og ofan \u00ed dj\u00fapan snj\u00f3skafl.\u201c \u00cd <em>D\u00fdravininum <\/em>1909 segir: \u201eHann gr\u00f3f sig \u00ed f\u00f6nn \u00ed dj\u00fapum skafli.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1956 segir: \u201e\u00cd svo sem tuttugu metra fjarl\u00e6g\u00f0 fr\u00e1 \u00feeim t\u00f3k sk\u00ed\u00f0ama\u00f0urinn heljarmiki\u00f0 st\u00f6kk, stakkst \u00e1 h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00ed dj\u00fapan snj\u00f3skafla og hvarf sj\u00f3num \u00feeirra.\u201c \u00cd <em>Nor\u00f0anfara <\/em>1873 segir: \u201eSnj\u00f3rinn er sag\u00f0ur hafa foki\u00f0 saman \u00ed 15 feta h\u00e1a skafla e\u00f0a meira.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1914 segir: \u201eH\u00e9r eru n\u00fa stiku h\u00e1ir snj\u00f3skaflar \u00e1 a\u00f0alg\u00f6tum mi\u00f0b\u00e6jarins.\u201c \u00cd <em>J\u00f3labla\u00f0inu <\/em>1930 segir: \u201eStormurinn hefur hla\u00f0i\u00f0 snj\u00f3num \u00ed h\u00e1a skafla h\u00e9r og \u00fear.\u201c<\/p>\n<p>Hitt er anna\u00f0 m\u00e1l a\u00f0 \u00f3v\u00edst er a\u00f0 m\u00e1lnotendur geri alltaf \u00feennan mun e\u00f0a \u00e1tti sig \u00e1 honum, og oft getur sj\u00f3narhorni\u00f0 l\u00edka veri\u00f0 \u00e1 hvorn veginn sem er. \u00cd umr\u00e6ddri fr\u00e9tt <em>mbl.is <\/em><a href=\"https:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2024\/05\/14\/snjoskaflarnir_allt_ad_fjogurra_metra_djupir\/\">segir<\/a>: \u201eB\u00fai\u00f0 er a\u00f0 stinga \u00ed gegnum skaflana \u00e1 hei\u00f0inni, sem margir hverjir eru allt a\u00f0 fj\u00f6gurra metra <strong>dj\u00fapir<\/strong>, a\u00f0 \u00fev\u00ed er fram kemur \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u Vegager\u00f0arinnar\u201c \u2013 en \u00fear <a href=\"https:\/\/www.vegagerdin.is\/upplysingar-og-utgafa\/frettir\/mjoafjardarheidi-opnud\">segir<\/a> hins vegar: \u201eB\u00fai\u00f0 er a\u00f0 stinga \u00ed gegnum skaflana sem margir hverjir eru allt a\u00f0 fj\u00f6gurra metra <strong>h\u00e1ir<\/strong>\u201c (feitletrun m\u00edn). Hvort tveggja getur \u00e1tt r\u00e9tt \u00e1 s\u00e9r \u2013 \u00fea\u00f0 m\u00e1 segja a\u00f0 \u00e1\u00f0ur en fari\u00f0 er a\u00f0 moka s\u00e9u skaflarnir <em>dj\u00fapir <\/em>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e1 er eing\u00f6ngu horft \u00e1 \u00fe\u00e1 l\u00f3\u00f0r\u00e9tt, en \u00feegar b\u00fai\u00f0 er a\u00f0 moka g\u00f6ng \u00ed gegnum skaflana m\u00e1 tala um \u00fe\u00e1 sem <em>h\u00e1a <\/em>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e1 er h\u00e6gt a\u00f0 v\u00edsa \u00ed st\u00e1li\u00f0 sitt hvoru megin vi\u00f0 snj\u00f3g\u00f6ngin.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd M\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum var vitna\u00f0 \u00ed fyrirs\u00f6gnina \u201eSnj\u00f3skaflarnir allt a\u00f0 fj\u00f6gurra metra dj\u00fapir\u201c \u00e1 mbl.is og sagt \u201eHef\u00f0i frekar nota\u00f0 hversu skaflarnir v\u00e6ru h\u00e1ir.\u201c H\u00e9r er vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 vitna \u00ed greinina \u201eUm \u00fe\u00fd\u00f0ingarleysi\u201c sem \u00deorgeir \u00deorgeirson skrifa\u00f0i \u00ed T\u00edmariti M\u00e1ls og menningar 1984: \u201e\u00de\u00f3 get \u00e9g ekki stilt mig um a\u00f0 nefna skemtilegt d\u00e6mi (sem [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6359","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6359","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6359"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6359\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6360,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6359\/revisions\/6360"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6359"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6359"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6359"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}