{"id":6396,"date":"2024-05-23T19:54:54","date_gmt":"2024-05-23T19:54:54","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6396"},"modified":"2024-05-23T20:04:39","modified_gmt":"2024-05-23T20:04:39","slug":"ad-neita-fyrir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/05\/23\/ad-neita-fyrir\/","title":{"rendered":"A\u00f0 neita fyrir"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd M\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum s\u00e1 \u00e9g a\u00f0 veri\u00f0 var a\u00f0 gera athugasemd vi\u00f0 or\u00f0alagi\u00f0 \u201eneita fyrir mist\u00f6k\u201c \u00ed Facebookf\u00e6rslu sem <em>DV <\/em><a href=\"https:\/\/www.dv.is\/frettir\/2024\/05\/23\/segir-kerfid-thurfa-ad-axla-abyrgd-andlati-ungra-barna-ad-neita-fyrir-mistok-strair-salti-sar-eftir-erfida-upplifan\/\">t\u00f3k upp<\/a>. \u00dea\u00f0 er ekki einsd\u00e6mi \u2013 \u00feetta or\u00f0alag hefur veri\u00f0 teki\u00f0 fyrir \u00ed d\u00e1lknum \u201eM\u00e1li\u00f0\u201c \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu<\/em>, <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/6060952?iabr=on#page\/n32\/mode\/1up\/\">fyrst<\/a> 2013: \u201e\u00d3si\u00f0ur \u00ed s\u00f3kn: \u201ea\u00f0 neita fyrir e-\u00f0\u201c. Hreinn \u00f3\u00fearfi, \u00fev\u00ed h\u00e6gt er a\u00f0 <strong>neita \u00fev\u00ed<\/strong>, <strong>\u00feverneita \u00fev\u00ed<\/strong>, <strong>\u00fer\u00e6ta fyrir \u00fea\u00f0<\/strong>, <strong>\u00fevertaka fyrir <\/strong>\u00fea\u00f0 og synja <strong>fyrir<\/strong> \u00fea\u00f0 \u2013 vilji ma\u00f0ur ekki j\u00e1ta \u00fea\u00f0.\u201c \u00c1ri\u00f0 2016 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/6784376?iabr=on#page\/n35\/mode\/1up\/\">sag\u00f0i<\/a> svo \u00ed sama d\u00e1lki: \u201e<strong>A\u00f0 neita <\/strong>merkir <strong>a\u00f0 segja nei vi\u00f0 e-u<\/strong> \u2013 e\u00f0a <strong>hafna e-u<\/strong>: neita (til)bo\u00f0i. Ennfremur a\u00f0 <strong>\u00fer\u00e6ta fyrir e-\u00f0<\/strong> (\u201eHann neita\u00f0i \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa bor\u00f0a\u00f0 allar p\u00f6nnuk\u00f6kurnar einn\u201c) og <strong>\u00fevertaka fyrir e-\u00f0<\/strong>. A\u00f0 \u201eneita fyrir\u201c e-\u00f0, sem stundum s\u00e9st (\u201eReyndu ekki a\u00f0 neita fyrir \u00feetta!\u201c), er l\u00edkast til <strong>samsl\u00e1ttur<\/strong>.\u201c<\/p>\n<p>Vissulega er <em>neita fyrir <\/em>ekki mj\u00f6g gamalt \u2013 l\u00edklega innan vi\u00f0 40 \u00e1ra. Elsta d\u00e6mi sem \u00e9g hef rekist \u00e1 er \u00ed <em>Heimsmynd <\/em>1987: \u201eH\u00fan hefur alla t\u00ed\u00f0 neita\u00f0 fyrir \u00fea\u00f0.\u201c \u00cd <em>B\u00e6jarins besta <\/em>1989 segir \u201ehann g\u00e6ti \u00fev\u00ed ekki neita\u00f0 fyrir a\u00f0 s\u00e1rin v\u00e6ru af manna v\u00f6ldum\u201c og \u00ed sama bla\u00f0i sama \u00e1r segir \u201eJ\u00f3n Fri\u00f0geir kva\u00f0st ekki geta neita\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri r\u00e9tt\u201c. En annars fer \u00feetta ekki a\u00f0 sj\u00e1st fyrr en eftir aldam\u00f3t. \u00cd <em>Or\u00f0laus <\/em>2002 segir: \u201eFyrstu vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 hans ver\u00f0a l\u00edklega \u00feau a\u00f0 neita fyrir \u00feetta.\u201c \u00cd sama bla\u00f0i 2004 segir: \u201ePollard neita\u00f0i fyrir a\u00f0 nj\u00f3sna um Bandar\u00edkin.\u201c \u00cd <em>DV <\/em>2004 segir: \u201eHann reyndar neita\u00f0i fyrir \u00fea\u00f0 \u00ed samtali vi\u00f0 bla\u00f0amann eftir leikinn.\u201c \u00cd <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2006 segir: \u201eHann s\u00fdnir ekki g\u00f3\u00f0a fyrirmynd me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 neita fyrir l\u00edti\u00f0 umfer\u00f0arlagabrot.\u201c<\/p>\n<p>En \u00fear me\u00f0 er ekki \u00f6ll sagan s\u00f6g\u00f0. Auk grunnsagnarinnar <em>neita <\/em>eru til samsetningarnar <em>har\u00f0neita <\/em>og <em>\u00feverneita <\/em>sem merkja \u00fea\u00f0 sama \u2013 a\u00f0 vi\u00f0b\u00e6ttri \u00e1herslu. Sambandi\u00f0 <em>har\u00f0neita fyrir <\/em>er \u00e1l\u00edka gamalt og <em>neita fyrir <\/em>\u2013 elsta d\u00e6mi\u00f0 er \u00ed <em>Vikunni <\/em>1988: \u201eGvendur har\u00f0neita\u00f0i fyrir a\u00f0 hann hef\u00f0i neinar syndsamlegar hugsanir \u00ed huga.\u201c En <em>\u00feverneita fyrir <\/em>er miklu eldra. \u00cd <em>Heimskringlu <\/em>1941 segir: \u201eEg get ekki \u00feverneita\u00f0 fyrir \u00fea\u00f0.\u201c \u00cd <em>F\u00e1lkanum <\/em>1961 segir: \u201eHauptmann \u00feverneita\u00f0i fyrir allt.\u201c \u00cd <em>Lesb\u00f3k Morgunbla\u00f0sins <\/em>1963 segir: \u201e\u00feeir h\u00f6f\u00f0u ekkert l\u00e1ti\u00f0 fr\u00e1 s\u00e9r fara, sem ekki var h\u00e6gt a\u00f0 \u00feverneita fyrir.\u201c \u00cd <em>Dagbla\u00f0inu <\/em>1979 segir: \u201eUnglingarnir j\u00e1tu\u00f0u fyrir honum s\u00f6mu lex\u00eduna sem \u00feau svo \u00feverneitu\u00f0u fyrir a\u00f0 nokkrum t\u00edma li\u00f0num.\u201c<\/p>\n<p>T\u00ed\u00f0ni sambandsins <em>neita fyrir <\/em>hefur aukist mj\u00f6g \u00f6rt \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum \u2013 \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni <\/em>er a.m.k. \u00e1 sj\u00f6unda hundra\u00f0 d\u00e6ma um \u00fea\u00f0. \u00c1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 <em>\u00feverneita <\/em>ry\u00f0ur \u00fearna brautina eru v\u00e6ntanlega einkum \u00e1hrif fr\u00e1 <em>\u00fevertaka fyrir<\/em> eins og \u00e1\u00f0ur er nefnt \u2013 \u00fea\u00f0 m\u00e1 kalla \u00fea\u00f0 samsl\u00e1tt ef f\u00f3lk vill. En vi\u00f0 \u00feetta b\u00e6tast svo \u00f6nnur samb\u00f6nd svipa\u00f0rar merkingar sem hafa <em>fyrir<\/em> og einnig voru nefnd \u00e1\u00f0ur, eins og <em>\u00fer\u00e6ta fyrir<\/em> og <em>synja fyrir<\/em>. \u00dea\u00f0 er mj\u00f6g e\u00f0lilegt og skiljanlegt a\u00f0 <em>neita <\/em>ver\u00f0i fyrir \u00e1hrifum fr\u00e1 \u00feeim, og ekkert athugavert vi\u00f0 \u00fea\u00f0. Engin lei\u00f0 er a\u00f0 halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u201er\u00f6kr\u00e9tt\u201c a\u00f0 nota <em>fyrir <\/em>me\u00f0 <em>\u00fevertaka<\/em>, <em>\u00fer\u00e6ta <\/em>og <em>synja <\/em>en ekki me\u00f0 <em>neita<\/em> \u2013 \u00fea\u00f0 er bara venja sem getur breyst. Og h\u00fan er a\u00f0 breytast \u2013 fyrir \u00edslensk \u00e1hrif, ekki ensk. \u00dea\u00f0 er \u00ed g\u00f3\u00f0u lagi.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd M\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum s\u00e1 \u00e9g a\u00f0 veri\u00f0 var a\u00f0 gera athugasemd vi\u00f0 or\u00f0alagi\u00f0 \u201eneita fyrir mist\u00f6k\u201c \u00ed Facebookf\u00e6rslu sem DV t\u00f3k upp. \u00dea\u00f0 er ekki einsd\u00e6mi \u2013 \u00feetta or\u00f0alag hefur veri\u00f0 teki\u00f0 fyrir \u00ed d\u00e1lknum \u201eM\u00e1li\u00f0\u201c \u00ed Morgunbla\u00f0inu, fyrst 2013: \u201e\u00d3si\u00f0ur \u00ed s\u00f3kn: \u201ea\u00f0 neita fyrir e-\u00f0\u201c. Hreinn \u00f3\u00fearfi, \u00fev\u00ed h\u00e6gt er a\u00f0 neita \u00fev\u00ed, \u00feverneita [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6396","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6396","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6396"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6396\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6399,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6396\/revisions\/6399"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6396"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6396"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6396"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}