{"id":6400,"date":"2024-05-24T10:21:55","date_gmt":"2024-05-24T10:21:55","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6400"},"modified":"2024-05-24T10:33:01","modified_gmt":"2024-05-24T10:33:01","slug":"ad-hafa-ekki-rod-vid-eda-eiga-ekki-rod-i","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/05\/24\/ad-hafa-ekki-rod-vid-eda-eiga-ekki-rod-i\/","title":{"rendered":"A\u00f0 hafa ekki ro\u00f0 vi\u00f0 e\u00f0a eiga ekki ro\u00f0 \u00ed"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r var h\u00e9r spurt um or\u00f0asambandi\u00f0 <em>eiga ekki ro\u00f0 \u00ed<\/em> sem fyrirspyrjandi sag\u00f0ist hafa vanist \u00ed myndinni <em>hafa ekki ro\u00f0 vi\u00f0<\/em>. \u00dea\u00f0 er alveg r\u00e9tt a\u00f0 s\u00ed\u00f0arnefnda ger\u00f0in er mun eldri \u2013 \u00ed elsta <a href=\"https:\/\/ritmalssafn.arnastofnun.is\/daemi\/384241\">d\u00e6mi<\/a> um sambandi\u00f0 \u00ed <em>Ritm\u00e1lssafni <\/em>\u00c1rnastofnunar er reyndar notu\u00f0 s\u00f6gnin <em>standa<\/em>, eins og J\u00f3n G. Fri\u00f0j\u00f3nsson bendir \u00e1 \u00ed <em>Merg m\u00e1lsins<\/em>. \u00dea\u00f0 d\u00e6mi er \u00far \u00fe\u00fd\u00f0ingu eftir s\u00e9ra Snorra Bj\u00f6rnsson \u00e1 H\u00fasafelli fr\u00e1 seinni hluta 18. aldar:\u00a0\u201eEn \u00fea\u00f0 sto\u00f0ar ekki flj\u00f3\u00f0 \/ enginn ro\u00f0 vi\u00f0 honum st\u00f3\u00f0.\u201c En elsta d\u00e6mi um myndina <em>hafa ekki ro\u00f0 vi\u00f0 <\/em>er \u00ed <em>Sm\u00e1s\u00f6gum <\/em>Magn\u00fasar Stephensen fr\u00e1 1820: \u201e\u00fe\u00f3tt d\u00e1vel smakka\u00f0ist P\u00e9tri t\u00e1ri\u00f0 jafna\u00f0arlega, haf\u00f0i hann ekki ro\u00f0 vi\u00f0.\u201c Sambandi\u00f0 ver\u00f0ur \u00fe\u00f3 ekki algengt fyrr en fer a\u00f0 l\u00ed\u00f0a \u00e1 tuttugustu \u00f6ld, einkum \u00e1 s\u00ed\u00f0asta \u00feri\u00f0jungi hennar.<\/p>\n<p>En um \u00fea\u00f0 leyti fara einnig a\u00f0 koma fram tilbrig\u00f0i \u00ed or\u00f0asambandinu eins og <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/4174481?iabr=on#page\/n35\/mode\/1up\/\">fram kemur<\/a> hj\u00e1 J\u00f3ni G. Fri\u00f0j\u00f3nssyni \u00ed \u00fe\u00e6ttinum \u201e\u00cdslenskt m\u00e1l\u201c \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2007: \u201eOr\u00f0atilt\u00e6ki\u00f0 <strong>hafa ekki ro\u00f0 vi\u00f0 einhverjum<\/strong> 'vera hvergi n\u00e6rri eins g\u00f3\u00f0ur \u00ed einhverju og einhver; standa einhverjum langt a\u00f0 baki' v\u00edsar til hunda sem sl\u00e1st um (togast \u00e1 um) fiskro\u00f0 og annar hefur ekki vi\u00f0 hinum. V\u00edsunin hl\u00fdtur a\u00f0 vera gagns\u00e6 \u00ed hugum flestra en h\u00fan fer fyrir ofan gar\u00f0 og ne\u00f0an ef ekki er valin r\u00e9tt forsetning [\u2026].\u201c \u00dearna er J\u00f3n a\u00f0 v\u00edsa til d\u00e6ma \u00fear sem forsetningin <em>\u00ed<\/em> er notu\u00f0 \u00ed sta\u00f0 <em>vi\u00f0<\/em>. Elsta d\u00e6mi sem \u00e9g finn um \u00fea\u00f0 er \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1980: \u201eEastwood karlinn er einnig \u00ed essinu s\u00ednu sem hinn f\u00e1m\u00e1li, \u00f3drepandi karlpeningur sem enginn hefur ro\u00f0 \u00ed.\u201c<\/p>\n<p>I\u00f0ulega er \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3 ekki bara forsetningin sem breytist, heldur einnig s\u00f6gnin \u2013 <em>eiga <\/em>kemur \u00ed sta\u00f0 <em>hafa<\/em>. Elsta d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 er \u00ed <em>T\u00edmanum <\/em>1983: \u201eKR-ingar, sem n\u00fa n\u00e1lgast \u00f3\u00f0um fyrstu deildina, \u00e1ttu aldrei ro\u00f0 \u00ed Valsmenn.\u201c Nokkur n\u00e6stu d\u00e6mi eru einnig \u00far <em>T\u00edmanum<\/em> en flj\u00f3tlega fylgja fleiri bl\u00f6\u00f0 \u00e1 eftir. \u00cd <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum <\/em>1984 segir: \u201eendu\u00f0u svo yfirleitt me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 reyna a\u00f0 gefa h\u00e1ar sendingar \u00e1 J\u00f3n Oddsson og Ing\u00f3lf Ing\u00f3lfsson, sem \u00e1ttu ekki ro\u00f0 \u00ed h\u00e1vaxna mi\u00f0ver\u00f0i IBK.\u201c \u00cd <em>Helgarp\u00f3stinum <\/em>1984 segir: \u201eRush \u00e1tti ekki ro\u00f0 \u00ed KR-v\u00f6rnina.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1987 segir: \u201eKeppinautar Helgu \u00e1ttu ekki ro\u00f0 \u00ed hana \u00ed \u00feetta skipti.\u201c \u00cd <em>Fr\u00e9ttum <\/em>1988 segir: \u201e\u00c9g held a\u00f0 Eyjastr\u00e1karnir b\u00ed\u00f0i l\u00e6gri hlut \u00far vi\u00f0ureigninni, \u00feeir eiga ekkert ro\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1 jap\u00f6nsku.\u201c<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 r\u00e9tt sem J\u00f3n G. Fri\u00f0j\u00f3nsson segir a\u00f0 v\u00edsunin \u00ed or\u00f0asambandinu \u201efer fyrir ofan gar\u00f0 og ne\u00f0an ef ekki er valin r\u00e9tt forsetning\u201c. Hins vegar held \u00e9g a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 alls ekki r\u00e9tt a\u00f0 v\u00edsunin s\u00e9 \u201egagns\u00e6 \u00ed hugum flestra\u201c. \u00c9g held a\u00f0 f\u00e6stir m\u00e1lnotendur hafi s\u00e9\u00f0 hunda togast \u00e1 um fiskro\u00f0 og s\u00fa v\u00edsun skipti engu m\u00e1li fyrir skilning \u00feeirra \u00e1 or\u00f0asambandinu \u2013 enda hef\u00f0i \u00fea\u00f0 varla breyst ef svo hef\u00f0i veri\u00f0. Enda er \u00fea\u00f0 einmitt e\u00f0lileg \u00fer\u00f3un fastra or\u00f0asambanda \u2013 \u00feau eru gagns\u00e6 \u00ed upphafi en fara sm\u00e1tt og sm\u00e1tt a\u00f0 lifa sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u l\u00edfi og tengslin vi\u00f0 upprunann dofna e\u00f0a rofna algerlega. Fyrir n\u00fat\u00edma m\u00e1lnotendum er <em>hafa ekki ro\u00f0 vi\u00f0 <\/em>bara or\u00f0asamband me\u00f0 \u00e1kve\u00f0na merkingu sem \u00fearf a\u00f0 l\u00e6ra, \u00f3h\u00e1\u00f0 v\u00edsun, og eins h\u00e6gt a\u00f0 segja <em>eiga ekki ro\u00f0 \u00ed<\/em>.<\/p>\n<p>En \u00fe\u00f3tt rofin tengsl vi\u00f0 uppruna lei\u00f0i til \u00feess a\u00f0 sambandi\u00f0 <strong>gat<\/strong> breyst sk\u00fdra \u00feau ekki a\u00f0 \u00fea\u00f0 <strong>skyldi<\/strong> breytast. \u00c1 \u00fev\u00ed kann \u00e9g svo sem enga sk\u00fdringu en hugsanlegt er a\u00f0 \u00e1hrif fr\u00e1 <em>eiga s\u00e9ns \u00ed<\/em> sem hefur s\u00f6mu merkingu spili \u00fear inn \u00ed. Hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur er lj\u00f3st a\u00f0 or\u00f0asambandi\u00f0 hefur breyst \u2013 langalgengasta mynd \u00feess \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni <\/em>er s\u00fa \u00fear sem b\u00e6\u00f0i s\u00f6gn og forsetning breytist, <em>eiga ekki ro\u00f0 \u00ed<\/em>. Um hana eru r\u00fam sj\u00f6 hundru\u00f0 d\u00e6mi en d\u00e6min um eldri myndina, <em>hafa ekki ro\u00f0 vi\u00f0<\/em>, r\u00famlega \u00ferj\u00fa hundru\u00f0, og d\u00e6min \u00fear sem a\u00f0eins forsetningin breytist, <em>hafa ekki ro\u00f0 \u00ed<\/em>, r\u00famlega hundra\u00f0. Vegna aldurs og t\u00ed\u00f0ni myndanna <em>eiga<\/em>\/<em>hafa ekki ro\u00f0 \u00ed<\/em> er engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til annars en telja \u00fe\u00e6r g\u00f3\u00f0ar og gildar vi\u00f0 hli\u00f0 eldri myndarinnar <em>hafa ekki ro\u00f0 vi\u00f0<\/em>.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r var h\u00e9r spurt um or\u00f0asambandi\u00f0 eiga ekki ro\u00f0 \u00ed sem fyrirspyrjandi sag\u00f0ist hafa vanist \u00ed myndinni hafa ekki ro\u00f0 vi\u00f0. \u00dea\u00f0 er alveg r\u00e9tt a\u00f0 s\u00ed\u00f0arnefnda ger\u00f0in er mun eldri \u2013 \u00ed elsta d\u00e6mi um sambandi\u00f0 \u00ed Ritm\u00e1lssafni \u00c1rnastofnunar er reyndar notu\u00f0 s\u00f6gnin standa, eins og J\u00f3n G. Fri\u00f0j\u00f3nsson bendir \u00e1 \u00ed Merg [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6400","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6400","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6400"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6400\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6403,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6400\/revisions\/6403"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6400"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6400"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6400"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}