{"id":6442,"date":"2024-06-13T17:11:19","date_gmt":"2024-06-13T17:11:19","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6442"},"modified":"2024-10-15T15:39:58","modified_gmt":"2024-10-15T15:39:58","slug":"haettur-kynhlutleysis","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/06\/13\/haettur-kynhlutleysis\/","title":{"rendered":"H\u00e6ttur kynhlutleysis"},"content":{"rendered":"<p>Undanfari\u00f0 hefur veri\u00f0 mikil umr\u00e6\u00f0a \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum og \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum um breytingar \u00e1 \u00edslensku \u00ed \u00e1tt a\u00f0 kynhlutlausu m\u00e1li. \u00dea\u00f0 bitast\u00e6\u00f0asta \u00ed \u00feessari umr\u00e6\u00f0u eru tv\u00e6r greinar sem H\u00f6skuldur \u00der\u00e1insson fyrrverandi pr\u00f3fessor hefur n\u00fdlega skrifa\u00f0 \u00ed <em>V\u00edsi <\/em>\u2013 \u201e<a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20242572616d\/kynhlutlaust-mal-mal-til-finning-og-forsetaframbod\">Kynhlutlaust m\u00e1l, m\u00e1ltilfinning og forsetaframbo\u00f0<\/a>\u201c og \u201e<a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20242582865d\/bokautgafa-islenskukennsla-thydingar-og-maltilfinning\">B\u00f3ka\u00fatg\u00e1fa, \u00edslenskukennsla, \u00fe\u00fd\u00f0ingar og m\u00e1ltilfinning<\/a>\u201c. \u00cd \u00feessum greinum, sem eru h\u00f3fsamar og m\u00e1lefnalegar eins og v\u00e6nta m\u00e1tti, eru f\u00e6r\u00f0 \u00fdmis r\u00f6k gegn breytingunum. M\u00e9r finnst \u00fe\u00f3 \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a m\u00e1li\u00f0 fr\u00e1 \u00f6\u00f0ru sj\u00f3narhorni og \u00fea\u00f0 sem h\u00e9r fer \u00e1 eftir er a\u00f0 mestu leyti vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 vi\u00f0 greinum H\u00f6skuldar og \u00feeim r\u00f6kum sem \u00fear eru sett fram, \u00fe\u00f3tt margt af \u00fev\u00ed sem h\u00e9r er nefnt hafi einnig komi\u00f0 fram annars sta\u00f0ar.<\/p>\n<p><strong>1. Geta breytingarnar leitt til misskilnings \u00ed samskiptum f\u00f3lks?<\/strong><\/p>\n<p>\u00cd hef\u00f0bundinni \u00edslensku er nota\u00f0 karlkyn ef kynjasamsetning h\u00f3ps er ekki \u00feekkt og sagt t.d. <em>Fj\u00f3rir sl\u00f6su\u00f0ust \u00ed \u00e1rekstri<\/em>. Hvorugkyni\u00f0 <em>fj\u00f6gur<\/em> er \u00fev\u00ed a\u00f0eins nota\u00f0 a\u00f0 m\u00e6landinn viti a\u00f0 um kynjablanda\u00f0an h\u00f3p er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. Hj\u00e1 \u00feeim sem breytt hafa m\u00e1li s\u00ednu er hvorugkyni\u00f0 hins vegar nota\u00f0 b\u00e6\u00f0i um kynjablanda\u00f0an h\u00f3p og um h\u00f3p \u00fear sem kynjasamsetningin er \u00f3\u00feekkt. Setningin <em>Fj\u00f6gur sl\u00f6su\u00f0ust \u00ed \u00e1rekstri <\/em>er \u00fev\u00ed einr\u00e6\u00f0 \u00ed hef\u00f0bundinni \u00edslensku \u2013 v\u00edsar a\u00f0eins til kynjablanda\u00f0s h\u00f3ps \u2013 en tv\u00edr\u00e6\u00f0 \u00ed breyttri \u00edslensku, v\u00edsar anna\u00f0hvort til kynjablanda\u00f0s h\u00f3ps e\u00f0a h\u00f3ps \u00fear sem kynjasamsetning er \u00f3\u00feekkt. \u00dev\u00ed hefur veri\u00f0 haldi\u00f0 fram a\u00f0 \u00feessi tv\u00edr\u00e6\u00f0ni s\u00e9 \u00f3\u00e6skileg og geti veri\u00f0 ruglandi, og \u00ed flj\u00f3tu brag\u00f0i m\u00e6tti \u00e6tla a\u00f0 svo v\u00e6ri.<\/p>\n<p>En n\u00e1kv\u00e6mlega sams konar tv\u00edr\u00e6\u00f0ni er n\u00fa \u00feegar \u00ed hef\u00f0bundinni \u00edslensku, nema \u00fear er \u00fea\u00f0 karlkyni\u00f0 sem er tv\u00edr\u00e6tt. Ef sagt er <em>Fj\u00f3rir sl\u00f6su\u00f0ust \u00ed \u00e1rekstri <\/em>vitum vi\u00f0 ekki hvort v\u00edsa\u00f0 er til fj\u00f6gurra karla e\u00f0a h\u00f3ps af \u00f3\u00feekktri kynjasamsetningu. \u00c9g get ekki s\u00e9\u00f0 a\u00f0 s\u00fa tv\u00edr\u00e6\u00f0ni sem notkun hvorugkyns \u00ed kynhlutlausri merkingu skapar s\u00e9 \u00e1 einhvern h\u00e1tt verri e\u00f0a ska\u00f0legri en s\u00fa sem notkun karlkynsins \u00ed kynhlutlausri merkingu skapar \u00ed hef\u00f0bundinni \u00edslensku. Af hverju \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 vita n\u00e1kv\u00e6mlega hva\u00f0 <em>fj\u00f6gur sl\u00f6su\u00f0ust <\/em>merkir en ekki hva\u00f0 <em>fj\u00f3rir sl\u00f6su\u00f0ust <\/em>merkir? Yfirleitt skiptir engu m\u00e1li hvort vi\u00f0 skiljum <em>fj\u00f3rir sl\u00f6su\u00f0ust<\/em> e\u00f0a <em>fj\u00f6gur sl\u00f6su\u00f0ust<\/em> sem einkynja e\u00f0a kynjablanda\u00f0an h\u00f3p. Ef \u00fea\u00f0 skiptir m\u00e1li kemur \u00fea\u00f0 fram \u00ed samhenginu.<\/p>\n<p><strong>2. Munu breytingarnar valda misskilningi \u00e1 eldri textum og lei\u00f0a til rofs \u00ed m\u00e1linu?<\/strong><\/p>\n<p>Jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00fer\u00f3un \u00ed \u00e1tt til kynhlutleysis haldi \u00e1fram \u2013 sem \u00f3m\u00f6gulegt er a\u00f0 segja til um \u2013 er lj\u00f3st a\u00f0 notkun karlkyns \u00ed kynhlutlausri merkingu mun ver\u00f0a til \u00ed m\u00e1linu \u00ed marga \u00e1ratugi \u00ed vi\u00f0b\u00f3t og m\u00e1lnotendur \u00feekkja b\u00e6\u00f0i kerfin og \u00e1tta sig \u00e1 \u00feeim. Ef kynhlutleysi karlkynsins hverfur alveg \u00far m\u00e1linu einhvern t\u00edma \u00ed framt\u00ed\u00f0inni og <em>Allir eru velkomnir <\/em>e\u00f0a <em>Fj\u00f3rir sl\u00f6su\u00f0ust \u00ed \u00e1rekstri <\/em>hafa ekki lengur kynhlutlausa merkingu hj\u00e1 neinum g\u00e6ti \u00fea\u00f0 vissulega gerst a\u00f0 f\u00f3lk f\u00e6ri a\u00f0 skilja karlkynsmyndir fornafna og t\u00f6luor\u00f0a svo a\u00f0 \u00fe\u00e6r v\u00edsu\u00f0u eing\u00f6ngu til karlmanna, og misskildi \u00feannig eitthva\u00f0 \u00ed eldri textum. En \u00feess er langt a\u00f0 b\u00ed\u00f0a og \u00fear a\u00f0 auki sker samhengi\u00f0 langoftast \u00far um merkinguna \u2013 ef n\u00e1kv\u00e6m merking skiptir m\u00e1li \u00e1 anna\u00f0 bor\u00f0.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 fj\u00f6lmargt sem hefur breyst \u00ed m\u00e1linu \u00e1 undanf\u00f6rnum \u00e1ratugum og \u00f6ldum \u00e1n \u00feess a\u00f0 nokkrum detti \u00ed hug a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0a s\u00e9 til a\u00f0 \u201e\u00fe\u00fd\u00f0a\u201c textana \u00e1 samt\u00edmam\u00e1l vegna \u00feess. \u00cd \u00cdslendingas\u00f6gum og \u00f6\u00f0rum fornum textum v\u00edsa forn\u00f6fnin <em>vi\u00f0 <\/em>og <em>\u00fei\u00f0 <\/em>t.d. a\u00f0eins til tveggja, en ef v\u00edsa\u00f0 er til fleiri eru nota\u00f0ar myndirnar <em>v\u00e9r <\/em>og <em>\u00fe\u00e9r<\/em>. \u00c9g efast um a\u00f0 venjulegir m\u00e1lnotendur \u00e1tti sig \u00e1 \u00feessu \u00feegar \u00feeir lesa forna texta en \u00fea\u00f0 veldur samt engum misskilningi. \u00dea\u00f0 er einfalt a\u00f0 sk\u00fdra \u00feessa breytingu \u00fat fyrir f\u00f3lki \u00ed eitt skipti fyrir \u00f6ll. Sama er me\u00f0 breytingu \u00e1 hlutlausu kyni. F\u00f3lk sem les eitthva\u00f0 af textum fr\u00e1 \u00fev\u00ed fyrir \u00feessa hugsanlegu framt\u00ed\u00f0arbreytingu mun flj\u00f3tt \u00e1tta sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 karlkyni\u00f0 getur haft kynhlutlausa merkingu \u00ed \u00feeim.<\/p>\n<p><strong>3. Geta breytingarnar rugla\u00f0 b\u00f6rn \u00e1 m\u00e1lt\u00f6kuskei\u00f0i \u00ed r\u00edminu og trufla\u00f0 m\u00e1lt\u00f6ku?<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er vitanlega r\u00e9tt a\u00f0 ef b\u00f6rn alast upp \u00ed m\u00e1lumhverfi \u00fear sem sumt f\u00f3lk notar <em>\u00d6ll eru velkomin <\/em>og <em>Fj\u00f6gur sl\u00f6su\u00f0ust \u00ed \u00e1rekstri <\/em>\u00ed s\u00f6mu merkingu og anna\u00f0 f\u00f3lk notar <em>Allir eru velkomnir <\/em>og <em>Fj\u00f3rir sl\u00f6su\u00f0ust \u00ed \u00e1rekstri<\/em> f\u00e1 \u00feau misv\u00edsandi skilabo\u00f0 sem \u00ed flj\u00f3tu brag\u00f0i m\u00e6tti \u00e6tla a\u00f0 g\u00e6tu rugla\u00f0 \u00feau \u00ed r\u00edminu og tafi\u00f0 e\u00f0a torvelda\u00f0 m\u00e1lt\u00f6kuna. En \u00feetta er hins vegar fjarri \u00fev\u00ed a\u00f0 vera einsd\u00e6mi. B\u00f6rn f\u00e1 brotakenndar og misv\u00edsandi uppl\u00fdsingar um fj\u00f6lm\u00f6rg atri\u00f0i \u00far m\u00e1lumhverfi s\u00ednu en eru \u00f3tr\u00falega gl\u00farin \u00ed a\u00f0 n\u00fdta s\u00e9r \u00feetta til a\u00f0 koma s\u00e9r upp heildst\u00e6\u00f0u m\u00e1lkerfi. B\u00f6rn alast upp vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 sumt f\u00f3lk \u00ed kringum \u00feau segir <em>mig langar <\/em>og <em>\u00e9g vil <\/em>en anna\u00f0 <em>m\u00e9r langar <\/em>og <em>\u00e9g vill<\/em>, sum \u00feeirra heyra b\u00e6\u00f0i nor\u00f0lenskan frambur\u00f0 og sunnlenskan, o.s.frv.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin vinna au\u00f0veldlega \u00far \u00feessu og \u00fea\u00f0 er ekkert sem bendir til \u00feess a\u00f0 tilbrig\u00f0i \u00ed m\u00e1lumhverfinu valdi \u00feeim vandkv\u00e6\u00f0um \u00ed m\u00e1lt\u00f6kunni. \u00de\u00f3tt notkun hvorugkyns \u00ed kynhlutlausri merkingu s\u00e9 vissulega ekki m\u00f3\u00f0urm\u00e1l neins (enn sem komi\u00f0 er a.m.k.) eins og bent hefur veri\u00f0 \u00e1, heldur till\u00e6r\u00f0, get \u00e9g ekki s\u00e9\u00f0 a\u00f0 \u00feau tilbrig\u00f0i sem h\u00fan skapar horfi \u00e1 annan h\u00e1tt vi\u00f0 b\u00f6rnum \u00e1 m\u00e1lt\u00f6kuskei\u00f0i en \u00f6nnur tilbrig\u00f0i. Engin \u00e1st\u00e6\u00f0a er til a\u00f0 \u00e6tla anna\u00f0 en b\u00f6rnin \u00e1tti sig flj\u00f3tt \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 <em>\u00d6ll eru velkomin <\/em>hj\u00e1 sumum hefur sama hlutverk og <em>Allir eru velkomnir <\/em>hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum, r\u00e9tt eins og \u00feau \u00e1tta sig flj\u00f3tt \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 <em>m\u00e9r langar <\/em>hj\u00e1 sumum merkir \u00fea\u00f0 sama og <em>mig langar <\/em>hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum. B\u00f6rnin velja svo anna\u00f0 tilbrig\u00f0i\u00f0, e\u00f0a nota \u00feau hugsanlega til skiptis. Ekkert a\u00f0 \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p><strong>4. Valda breytingarnar vandkv\u00e6\u00f0um \u00ed kennslu \u00edslensku sem annars m\u00e1ls?<\/strong><\/p>\n<p>\u00deegar veri\u00f0 er a\u00f0 kenna erlend tungum\u00e1l er venjulega eitt tilbrig\u00f0i \u2013 \u00fea\u00f0 sem er algengast, e\u00f0a \u00fea\u00f0 sem n\u00fdtur mestrar vi\u00f0urkenningar \u2013 vali\u00f0 til kennslu en \u00f6nnur hugsanlega nefnd \u00ed framhj\u00e1hlaupi. \u00cd kennslu \u00edslensku sem annars m\u00e1ls er yfirleitt kenndur \u201esunnlenskur\u201c frambur\u00f0ur en ekki nor\u00f0lenskur \u2013 ekki vegna \u00feess a\u00f0 s\u00e1 fyrrnefndi s\u00e9 \u201er\u00e9ttari\u201c heldur vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 er frambur\u00f0ur yfirgn\u00e6fandi meirihluta m\u00e1lnotenda. \u00c9g \u00feykist l\u00edka vita a\u00f0 yfirleitt s\u00e9 kennt a\u00f0 segja <em>mig langar <\/em>og <em>\u00e9g vil <\/em>en ekki <em>m\u00e9r langar <\/em>og <em>\u00e9g vill<\/em> vegna \u00feess a\u00f0 fyrrnefndu afbrig\u00f0in eru vi\u00f0urkennd sem \u201er\u00e9tt\u201c m\u00e1l en \u00feau s\u00ed\u00f0arnefndu ekki \u00fe\u00f3tt \u00feau s\u00e9u mj\u00f6g \u00fatbreidd. En au\u00f0vita\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 segja nemendum fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum tilbrig\u00f0um ef \u00e1st\u00e6\u00f0a \u00feykir til e\u00f0a spurt er.<\/p>\n<p>Sama m\u00e1li gegnir um kynjanotkun \u00ed kynhlutlausri merkingu. \u00dear er e\u00f0lilegt a\u00f0 kennarar \u00ed \u00edslensku sem \u00f6\u00f0ru m\u00e1li velji algengasta tilbrig\u00f0i\u00f0 til kennslu, og \u00fea\u00f0 er \u00f3tv\u00edr\u00e6tt karlkyni\u00f0 enn sem komi\u00f0 er \u2013 og v\u00e6ntanlega um allnokkra framt\u00ed\u00f0. Ef nemendur spyrja er vitanlega h\u00e6gt a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra fyrir \u00feeim a\u00f0 til s\u00e9 f\u00f3lk sem fremur k\u00fds a\u00f0 nota hvorugkyni\u00f0 \u00ed \u00feessu hlutverki. \u00c9g s\u00e9 ekki hvernig \u00feetta \u00e6tti a\u00f0 skapa meiri vanda en \u00f6nnur tilbrig\u00f0i. Reyndar sag\u00f0i Kjartan J\u00f3nsson fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed <a href=\"https:\/\/heimildin.is\/grein\/22097\/\">grein<\/a> \u00ed <em>Heimildinni <\/em>fyrr \u00ed vikunni a\u00f0 \u00ed sk\u00f3la sem hann rekur hef\u00f0i hvorugkyni\u00f0 undanfarin \u00e1r veri\u00f0 kennt sem hlutlaust kyn og \u00fatsk\u00fdrt fyrir nemendum a\u00f0 \u00feeir hafi val \u00ed \u00feessu efni. Ekki kom fram hj\u00e1 honum a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i valdi\u00f0 nokkrum s\u00e9rst\u00f6kum vandr\u00e6\u00f0um.<\/p>\n<p><strong>5. Klj\u00fafa breytingarnar m\u00e1lsamf\u00e9lagi\u00f0 og skapa m\u00e1lfarslega st\u00e9ttaskiptingu?<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er vitanlega r\u00e9tt a\u00f0 breyting \u00ed \u00e1tt til kynhlutleysis hefur valdi\u00f0 klofningi \u00ed m\u00e1lsamf\u00e9laginu eins og umr\u00e6\u00f0an undanfari\u00f0 ber gl\u00f6ggt vitni um. En klofningurinn er ekki fyrst og fremst \u00ed m\u00e1linu, heldur \u00ed umr\u00e6\u00f0unni, og spurningin er hver beri megin\u00e1byrg\u00f0 \u00e1 honum \u2013 \u00feau sem breyta m\u00e1li s\u00ednu e\u00f0a \u00feau sem amast vi\u00f0 breytingunum. Ef f\u00f3lk s\u00fdnir umbur\u00f0arlyndi, \u00e1ttar sig \u00e1 a\u00f0 breytingarnar eru sumum hjartans m\u00e1l en stafa ekki af einhverri misskilinni jafnr\u00e9ttisbar\u00e1ttu e\u00f0a skilningsleysi \u00e1 mismun m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegs og l\u00edffr\u00e6\u00f0ilegs kyns, \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur enginn klofningur. \u00de\u00e1 halda sum \u00e1fram a\u00f0 segja <em>Allir eru velkomnir <\/em>og <em>Fj\u00f3rir sl\u00f6su\u00f0ust \u00ed \u00e1rekstri<\/em> en \u00f6nnur segja <em>\u00d6ll eru velkomin <\/em>og <em>Fj\u00f6gur sl\u00f6su\u00f0ust \u00ed \u00e1rekstri <\/em>\u00e1n \u00feess a\u00f0 annar h\u00f3purinn amist vi\u00f0 m\u00e1li hins.<\/p>\n<p>\u00dev\u00ed hefur l\u00edka veri\u00f0 haldi\u00f0 fram a\u00f0 me\u00f0 breytingunum s\u00e9 h\u00e6tta \u00e1 a\u00f0 ali\u00f0 s\u00e9 \u00e1 sk\u00f6mm hj\u00e1 \u00feeim sem ekki hafa breytt m\u00e1li s\u00ednu \u2013 sk\u00f6mm yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 tala \u201ekarll\u00e6gt\u201c m\u00e1l \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 tileinka s\u00e9r m\u00e1l \u201eg\u00f3\u00f0a f\u00f3lksins\u201c sem geri \u00f6llum kynjum jafnh\u00e1tt undir h\u00f6f\u00f0i. \u00dea\u00f0 er vitanlega \u00f3t\u00e6kt ef f\u00f3lk er gagnr\u00fdnt e\u00f0a liti\u00f0 ni\u00f0ur \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00e1 einhvern h\u00e1tt fyrir a\u00f0 tala \u00fe\u00e1 hef\u00f0bundnu \u00edslensku sem \u00fea\u00f0 hefur alist upp vi\u00f0, en vissulega er \u00fea\u00f0 ekki \u00f3hugsandi og \u00e9g hef s\u00e9\u00f0 einhver d\u00e6mi sem m\u00e6tti t\u00falka \u00e1 \u00feann veg. \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00f3 ekki nema \u00f6rl\u00edti\u00f0 brot af \u00feeirri gagnr\u00fdni sem f\u00f3lk sem hefur breytt m\u00e1li s\u00ednu \u00ed \u00e1tt til kynhlutleysis hefur fengi\u00f0 \u00e1 sig. B\u00e6\u00f0i \u00feau sem tala hef\u00f0bundna \u00edslensku og \u00feau sem breyta m\u00e1li s\u00ednu ver\u00f0a a\u00f0 s\u00fdna vi\u00f0horfi hins h\u00f3psins skilning og umbur\u00f0arlyndi.<\/p>\n<p><strong>Breytingar \u00ed \u00e1tt til kynhlutleysis eru h\u00e6ttulausar<\/strong><\/p>\n<p>Vitanlega er e\u00f0lilegt a\u00f0 f\u00f3lk hafi mismunandi sko\u00f0anir \u00e1 breytingum \u00ed \u00e1tt til kynhlutleysis \u2013 allar breytingar m\u00e6ta andst\u00f6\u00f0u og vi\u00f0 viljum helst hafa m\u00e1li\u00f0 eins og vi\u00f0 tileinku\u00f0um okkur \u00fea\u00f0 \u00e1 m\u00e1lt\u00f6kuskei\u00f0i. En \u00feessar breytingar ey\u00f0ileggja ekki \u00edslenskuna. \u00de\u00e6r valda ekki alvarlegum misskilningi, \u00fe\u00e6r rj\u00fafa ekki samhengi m\u00e1lsins, \u00fe\u00e6r trufla ekki m\u00e1lt\u00f6ku barna, og \u00fe\u00e6r torvelda ekki kennslu \u00edslensku sem annars m\u00e1ls. \u00de\u00e6r klj\u00fafa ekki heldur m\u00e1lsamf\u00e9lagi\u00f0 e\u00f0a valda m\u00e1lfarslegri st\u00e9ttaskiptingu \u2013 nema vi\u00f0 viljum hafa \u00fea\u00f0 \u00feannig. Sameinumst \u00feess \u00ed sta\u00f0 um a\u00f0 leyfa \u00edslenskunni a\u00f0 bl\u00f3mstra \u00ed \u00f6llum kynjum og sn\u00faum okkur a\u00f0 \u00fev\u00ed sem m\u00e1li skiptir \u2013 a\u00f0 b\u00e6ta og styrkja st\u00f6\u00f0u \u00edslenskunnar gagnvart \u00feeim ytri \u00fer\u00fdstingi sem h\u00fan ver\u00f0ur fyrir.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Undanfari\u00f0 hefur veri\u00f0 mikil umr\u00e6\u00f0a \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum og \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum um breytingar \u00e1 \u00edslensku \u00ed \u00e1tt a\u00f0 kynhlutlausu m\u00e1li. \u00dea\u00f0 bitast\u00e6\u00f0asta \u00ed \u00feessari umr\u00e6\u00f0u eru tv\u00e6r greinar sem H\u00f6skuldur \u00der\u00e1insson fyrrverandi pr\u00f3fessor hefur n\u00fdlega skrifa\u00f0 \u00ed V\u00edsi \u2013 \u201eKynhlutlaust m\u00e1l, m\u00e1ltilfinning og forsetaframbo\u00f0\u201c og \u201eB\u00f3ka\u00fatg\u00e1fa, \u00edslenskukennsla, \u00fe\u00fd\u00f0ingar og m\u00e1ltilfinning\u201c. \u00cd \u00feessum greinum, sem eru h\u00f3fsamar [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6442","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6442","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6442"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6442\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6934,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6442\/revisions\/6934"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6442"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6442"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6442"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}