{"id":6497,"date":"2024-06-27T11:48:42","date_gmt":"2024-06-27T11:48:42","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6497"},"modified":"2024-06-27T13:05:36","modified_gmt":"2024-06-27T13:05:36","slug":"enn-ein-snilldin-margar-snilldir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/06\/27\/enn-ein-snilldin-margar-snilldir\/","title":{"rendered":"Enn ein snilldin \u2013 margar snilldir?"},"content":{"rendered":"<p>\u00c1\u00f0an deildi \u00e9g h\u00e9r pistli um hi\u00f0 st\u00f3rmerkilega \u00edslensku\u00e1tak \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og l\u00e9t fylgja ums\u00f6gnina \u201eEnn ein snilldin fr\u00e1 <em>Gefum \u00edslensku s\u00e9ns<\/em>\u201c. \u00deetta skrifa\u00f0i \u00e9g umhugsunarlaust, en svo f\u00e9kk \u00e9g bak\u00feanka: Ef \u00feetta er <em>enn ein snilldin<\/em> hlj\u00f3ta a\u00f0 vera komnar einhverjar <em>snilldir <\/em>\u00e1\u00f0ur \u2013 en or\u00f0i\u00f0 <em>snilld <\/em>er aldrei haft \u00ed fleirt\u00f6lu, er \u00fea\u00f0? \u00dea\u00f0 er <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/38136\">sk\u00fdrt<\/a> 'eitthva\u00f0 snjallt, mikil leikni, miklir h\u00e6fileikar' \u00ed <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k <\/em>og s\u00fa merking b\u00fd\u00f0ur ekki upp \u00e1 fleirt\u00f6lu enda hlj\u00f3ma <em>margar snilldir<\/em> e\u00f0a <em>\u00ferj\u00e1r snilldir <\/em>nokku\u00f0 torkennilega. En \u00feegar a\u00f0 er g\u00e1\u00f0 reynist fleirtalan vera <a href=\"https:\/\/bin.arnastofnun.is\/leit\/snilld\">gefin upp<\/a> \u00ed <em>Beygingarl\u00fdsingu \u00edslensks n\u00fat\u00edmam\u00e1ls<\/em> og \u00fea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a a\u00f0 einhver d\u00e6mi s\u00e9u um hana \u2013 enda reynist svo vera, \u00feegar a\u00f0 er g\u00e1\u00f0.<\/p>\n<p>\u00cd fer\u00f0aminningum T\u00f3masar S\u00e6mundssonar fr\u00e1 1832 segir: \u201eH\u00e9r af m\u00e1 sj\u00e1, a\u00f0 vi\u00f0 sj\u00f3narleikinn eru flestar snilldir vi\u00f0haf\u00f0ar\u201c og \u00ed r\u00e6\u00f0u T\u00f3masar fr\u00e1 1841 segir: \u201e\u00fear eiga og allar hinar f\u00f6gru snilldirnar heima\u201c. \u00dearna merkir <em>snilld <\/em>eiginlega 'list'. \u00cd r\u00edmu eftir J\u00f3n \u00de\u00f3r\u00f0arson fr\u00e1 1864 sem birtist \u00ed <em>Strandap\u00f3stinum <\/em>1977 segir: \u201e\u00de\u00e1 er Hildur h\u00fasfreyja \/ h\u00f6g \u00e1 snilldir mannkosta.\u201c \u00cd kv\u00e6\u00f0i eftir Ingimund G\u00edslason \u00ed <em>\u00cdsafold <\/em>1895 segir: \u201et\u00edmanum fylgdi hann me\u00f0 snilldum.\u201c \u00cd grein eftir Stephan G. Stephansson \u00ed <em>Baldri <\/em>1907 segir: \u201eSvona koma syndir og snilldir fe\u00f0ranna \u00fat \u00ed dagd\u00f3mum barnanna.\u201c \u00cd kv\u00e6\u00f0i eftir Sighvat Borgfir\u00f0ing \u00ed <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum <\/em>1907 segir: \u201e\u00fe\u00edn var \u00fatr\u00e9tt opt til bjargar \/ og a\u00f0 vinna snilldir margar \/ au\u00f0snilld, sterka hj\u00e1lpar h\u00f6nd.\u201c<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er athyglisvert a\u00f0 langflest d\u00e6mi um fleirt\u00f6luna fr\u00e1 tuttugustu \u00f6ld eru \u00far kve\u00f0skap, og l\u00edklegt a\u00f0 r\u00edm og hrynjandi valdi \u00fev\u00ed stundum a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 er nota\u00f0 \u00ed fleirt\u00f6lu. En \u00feegar kemur fram \u00e1 \u00feessa \u00f6ld fer fleirtalan a\u00f0 sj\u00e1st oftar \u2013 \u00ed vi\u00f0tali \u00ed <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2009 segir: \u201eBar\u00f0i hefur stofna\u00f0 hlj\u00f3mpl\u00f6tu\u00fatg\u00e1funa K\u00f6lska sem er undirmerki hj\u00e1 Senu og segist \u00e6tla a\u00f0 gefa \u00fat \u00ferj\u00e1r snilldir \u00e1 \u00e1ri. [\u2026] \u201e\u00c9g er langt kominn me\u00f0 a\u00f0 finna snilldirnar \u00ferj\u00e1r fyrir n\u00e6sta \u00e1r.\u201c\u201c \u00deessar <em>snilldir <\/em>eru hlj\u00f3mpl\u00f6tur og <em>snilld<\/em> merkir \u00fev\u00ed 'snilldarverk'. Allm\u00f6rg d\u00e6mi um fleirt\u00f6luna fr\u00e1 s\u00ed\u00f0asta aldarfj\u00f3r\u00f0ungi m\u00e1 finna \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum og \u00fear er merkingin hli\u00f0st\u00e6\u00f0 \u2013 yfirleitt v\u00edsa\u00f0 til einhvers hlutar e\u00f0a verkna\u00f0ar. Sama gildir um <em>enn ein snilldin <\/em>sem er algengt fr\u00e1 aldam\u00f3tum.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt fleirtalan s\u00e9 algeng \u00ed \u00f3formlegu m\u00e1li samf\u00e9lagsmi\u00f0la vir\u00f0ist h\u00fan enn sem komi\u00f0 er l\u00edti\u00f0 sem ekkert vera notu\u00f0 \u00ed formlegra m\u00e1li \u00fe\u00f3tt samb\u00f6nd eins og <em>enn ein snilldin <\/em>sem fela \u00ed s\u00e9r sams konar v\u00edsun til hlutar e\u00f0a verkna\u00f0ar s\u00e9u algeng \u00fear. \u00deetta er <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/02\/01\/thegar-eintoluord-fa-fleirtolu\/\">enn eitt d\u00e6mi<\/a> um a\u00f0 fari\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 nota fleirt\u00f6lu af or\u00f0i sem \u00e1\u00f0ur var yfirleitt a\u00f0eins nota\u00f0 \u00ed eint\u00f6lu vegna \u00feess a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 hefur fengi\u00f0 v\u00edkka\u00f0a e\u00f0a n\u00fdja merkingu \u2013 auk almennrar og \u00f3hlutst\u00e6\u00f0rar v\u00edsunar er \u00fea\u00f0 fari\u00f0 a\u00f0 v\u00edsa til einstakra og oft \u00e1\u00fereifanlegra fyrirb\u00e6ra, eintaks af \u00feeirri tegund sem um er r\u00e6tt, og \u00fe\u00e1 er fleirtalan e\u00f0lileg og sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0. \u00cd \u00feessu tilviki \u00e1 fleirtalan s\u00e9r l\u00edka g\u00f6mul ford\u00e6mi og \u00fea\u00f0 \u00e6tti \u00feess vegna ekkert a\u00f0 vera \u00fev\u00ed til fyrirst\u00f6\u00f0u a\u00f0 tala um <em>snilldir<\/em> \u2013 vi\u00f0 \u00feurfum bara a\u00f0 venjast \u00fev\u00ed.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1\u00f0an deildi \u00e9g h\u00e9r pistli um hi\u00f0 st\u00f3rmerkilega \u00edslensku\u00e1tak \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og l\u00e9t fylgja ums\u00f6gnina \u201eEnn ein snilldin fr\u00e1 Gefum \u00edslensku s\u00e9ns\u201c. \u00deetta skrifa\u00f0i \u00e9g umhugsunarlaust, en svo f\u00e9kk \u00e9g bak\u00feanka: Ef \u00feetta er enn ein snilldin hlj\u00f3ta a\u00f0 vera komnar einhverjar snilldir \u00e1\u00f0ur \u2013 en or\u00f0i\u00f0 snilld er aldrei haft \u00ed fleirt\u00f6lu, er \u00fea\u00f0? [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6497","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6497","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6497"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6497\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6501,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6497\/revisions\/6501"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6497"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6497"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6497"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}