{"id":6583,"date":"2024-07-18T12:59:06","date_gmt":"2024-07-18T12:59:06","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6583"},"modified":"2024-07-23T10:26:53","modified_gmt":"2024-07-23T10:26:53","slug":"med-sjalfstraustid-i-botni","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/07\/18\/med-sjalfstraustid-i-botni\/","title":{"rendered":"Me\u00f0 sj\u00e1lfstrausti\u00f0 \u00ed botni"},"content":{"rendered":"<p>Nafnor\u00f0i\u00f0 <em>botn <\/em>hefur \u00fdmsar merkingar en a\u00f0almerkingin sem a\u00f0rar merkingar eru v\u00e6ntanlega komnar af er '(flatur) ne\u00f0sti hluti e-s' eins og <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/6431\">segir<\/a> \u00ed <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k<\/em>. Or\u00f0i\u00f0 er oft nota\u00f0 um ne\u00f0sta e\u00f0a s\u00ed\u00f0asta s\u00e6ti \u00ed einhverri r\u00f6\u00f0, ekki s\u00edst \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttakeppnum. \u201e\u00der\u00f3ttur fr\u00e1 Neskaupsta\u00f0 er n\u00fa aftur kominn \u00e1 botninn \u00ed deildinni\u201c segir \u00ed <em>T\u00edmanum <\/em>1973; \u201eFylkir lenti \u00e1 botninum\u201c segir \u00ed <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum <\/em>sama \u00e1r. En einnig hefur \u00fea\u00f0 lengi veri\u00f0 nota\u00f0 um \u00e1stand f\u00f3lks. \u00cd <em>T\u00edmanum <\/em>1975 segir: \u201eLei\u00f0 hans hefur legi\u00f0 ni\u00f0ur \u00e1 vi\u00f0 um \u00e1rabil, en n\u00fa er hann kominn \u00e1 botninn, \u00fev\u00ed hann \u00feambar kaffi og reykir Winston.\u201c \u00cd <em>Vikunni <\/em>1979 segir: \u201e\u00c9g var aftur kominn \u00e1 botninn b\u00e6\u00f0i andlega og fj\u00e1rhagslega.\u201c \u00cd <em>DV <\/em>2002 segir: \u201eH\u00fan enda\u00f0i \u00e1 botninum \u00ed neyslu.\u201c<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er sem s\u00e9 yfirleitt ekki gott a\u00f0 <em>lenda \u00e1 botninum <\/em>e\u00f0a vera <em>kominn \u00e1 botninn<\/em> \u2013 \u00fearna merkir <em>botn '<\/em>l\u00e1gmark, l\u00e6gsta hugsanleg sta\u00f0a' e\u00f0a eitthva\u00f0 sl\u00edkt. En hins vegar breg\u00f0ur svo vi\u00f0 a\u00f0 <em>botn<\/em> er einnig nota\u00f0 um j\u00e1kv\u00e6tt \u00e1stand, svo sem <em>vera me\u00f0 sj\u00e1lfstrausti\u00f0 \u00ed botni<\/em> \u00fear sem <em>botn <\/em>vir\u00f0ist merkja 'h\u00e1mark' sem er eiginlega \u00fever\u00f6fugt vi\u00f0 \u00f6nnur samb\u00f6nd. \u00cd <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k <\/em>eru reyndar tilgreind or\u00f0asamb\u00f6nd me\u00f0 <em>botn<\/em> \u00fear sem \u00feessi sama merking kemur fram, svo sem <em>gefa allt \u00ed botn <\/em>\u00ed merkingunni 'keyra mj\u00f6g hratt, st\u00edga fast \u00e1 bens\u00edni\u00f0' og <em>&lt;stilla t\u00f3nlistina&gt; \u00ed botn <\/em>\u00ed merkingunni '(stilla t\u00f3nlistina) mj\u00f6g h\u00e1tt'. Hvernig stendur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 <em>botn <\/em>er nota\u00f0 \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt sem vir\u00f0ist vera \u00ed andst\u00f6\u00f0u vi\u00f0 grunnmerkingu or\u00f0sins?<\/p>\n<p>Upprunans er \u00e1n efa a\u00f0 leita \u00ed sambandinu <em>st\u00edga bens\u00edni\u00f0 \u00ed botn<\/em> sem er a.m.k. h\u00e1tt \u00ed 90 \u00e1ra gamalt \u2013 kemur fyrst fyrir \u00e1 prenti 1938. \u00cd <em>Sk\u00f3labla\u00f0inu <\/em>\u00fea\u00f0 \u00e1r segir: \u201eBenz\u00edni\u00f0 er stigi\u00f0 \u00ed botn, en v\u00e9lin gengur jafn silalega og \u00e1\u00f0ur.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>sama \u00e1r segir: \u201eb\u00edlstj\u00f3rinn segir, a\u00f0 hann hafi \u00feurft \u201ea\u00f0 st\u00edga bens\u00edni\u00f0 \u00ed botn\u201c til a\u00f0 f\u00e1 vjelina til a\u00f0 vinna.\u201c \u00deetta samband, oft me\u00f0 <em>bens\u00edngjafann <\/em>e\u00f0a <em>bens\u00edngj\u00f6fina <\/em>\u00ed sta\u00f0 <em>bens\u00edni\u00f0<\/em>, var lengi mj\u00f6g algengt en dregi\u00f0 hefur \u00far t\u00ed\u00f0ni \u00feess \u00e1 seinni \u00e1rum. En \u00fea\u00f0 var h\u00e6gt a\u00f0 st\u00edga fleira \u00ed <em>botn<\/em> en bens\u00edni\u00f0. \u00cd <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu <\/em>1962 segir: \u201eUm lei\u00f0 og \u00f6kuma\u00f0urinn steig bremsurnar \u00ed botn, heyr\u00f0ist \u00e6gilegt \u00f6skur yfir h\u00f6f\u00f0um \u00feeirra.\u201c \u00cd <em>Austra <\/em>1958 segir: \u201eMe\u00f0 fastri spyrnu st\u00edg \u00e9g allt \u00ed botn, tengsli og hemla.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd \u00feessum d\u00e6mum hefur <em>botn <\/em>\u00ed upphafi b\u00f3kstaflega merkingu, \u00fe.e. 'botn b\u00edlsins' \u2013 \u00fe\u00f3tt vissulega s\u00e9 algengara a\u00f0 tala um <em>g\u00f3lf <\/em>\u00ed b\u00edlum kemur <em>botn <\/em>\u00fe\u00f3 fyrir \u00ed \u00feeirri merkingu og er au\u00f0skiljanlegt. En vegna \u00feess a\u00f0 langalgengast var a\u00f0 tala um aflgjafann <em>bens\u00edn <\/em>\u00ed \u00feessu sambandi hefur f\u00f3lk fari\u00f0 a\u00f0 skilja <em>botn<\/em> sem 'h\u00e1mark' \u2013 <em>vera me\u00f0 bens\u00edni\u00f0 \u00ed botni <\/em>er \u00fe\u00e1 skili\u00f0 sem 'nota h\u00e1marksafl' e\u00f0a 'vera \u00e1 h\u00e6stu stillingu' og \u00fe\u00e1 opnast lei\u00f0 fyrir a\u00f0 nota <em>botn<\/em> \u00ed \u00f6\u00f0ru samhengi. \u00cd <em>Dagbla\u00f0inu <\/em>1976 segir: \u201eMeiri hlutinn vill m\u00fas\u00edk til a\u00f0 hreyfa sig eftir, \u00e6sa sig upp, til a\u00f0 drekka me\u00f0, til a\u00f0 syngja me\u00f0 og \u201ef\u00edla allt \u00ed botn\u201c.\u201c \u00cd <em>Sk\u00f3labla\u00f0inu <\/em>1977 segir: \u201eMikil (og vaxandi) \u00fe\u00f6rf fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 nota sterk og \u201esl\u00e1andi\u201c or\u00f0, t.a.m. [\u2026] (a\u00f0) f\u00edla (eitthva\u00f0 \u00ed botn).\u201c<\/p>\n<p>\u00dearna er auglj\u00f3slega um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a merkinguna 'h\u00e1mark', og \u00ed langflestum tilvikum merkir <em>\u00ed botn <\/em>\/ <em>botni '<\/em>h\u00e1marksstillingu hlj\u00f3\u00f0styrks'. Sl\u00edk d\u00e6mi koma til \u00e1 n\u00edunda \u00e1ratugnum. \u00cd <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum <\/em>1983 segir: \u201eDjasss\u00ed\u00f0a \u00dej\u00f3\u00f0viljans hvetur alla \u00e6rlega djassgeggjara a\u00f0 setja gr\u00e6jurnar \u00ed botn.\u201c \u00cd <em>Helgarp\u00f3stinum <\/em>1985 segir: \u201e\u00c9g \u00fe\u00f3tti v\u00edst ekkert s\u00e9rstaklega efnilegur unglingur, baldinn og alltaf me\u00f0 m\u00fas\u00edkina \u00ed botni.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1986 segir: \u201ehann er a\u00f0 gera \u00e6fingarnar sj\u00e1lfur \u00ed takt vi\u00f0 t\u00f3nlistina og \u00fatsk\u00fdra \u00fe\u00e6r me\u00f0 t\u00f3nlistina \u00ed botni.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1988 segir: \u201eb\u00edlstj\u00f3rinn setur \u00fatvarpi\u00f0 \u00ed botn me\u00f0 gr\u00edsku hlj\u00f3mlistinni og syngur me\u00f0.\u201c \u00cd <em>Degi <\/em>1988 segir: \u201eHann tromma\u00f0i svo \u00ed stofunni heima hj\u00e1 s\u00e9r me\u00f0 pl\u00f6tuspilarann \u00ed botni.\u201c<\/p>\n<p>Svo var fari\u00f0 a\u00f0 nota <em>\u00ed botni\u00a0<\/em>\u00ed merkingunni 'h\u00e1mark' um \u00fdmislegt sem ekki er stillanlegt. \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2002 segir: \u201e\u00dea\u00f0 v\u00e6ri mj\u00f6g huggulegt a\u00f0 geta borga\u00f0 leiguna \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma og vera ekki alltaf me\u00f0 yfirdr\u00e1ttinn \u00ed botni.\u201c \u00cd <em>Austurglugganum <\/em>2003 segir: \u201eFram kom \u00ed svari fr\u00e1 sveitarf\u00e9l\u00f6gunum a\u00f0 hj\u00e1 \u00ferett\u00e1n af fimmt\u00e1n v\u00e6ri \u00fatsvari\u00f0 \u00ed botni.\u201c En einnig var fari\u00f0 a\u00f0 nota \u00feetta um f\u00f3lk, einkum me\u00f0 or\u00f0inu <em>sj\u00e1lfstraust<\/em> \u2013 \u00ed <em>DV <\/em>1997 segir: \u201eKR-ingar eru \u00e1 bullandi siglingu og me\u00f0 sj\u00e1lfstrausti\u00f0 \u00ed botni.\u201c Alls eru 63 d\u00e6mi um <em>sj\u00e1lfstrausti\u00f0 \u00ed botni <\/em>\u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em>, \u00f6ll hin fr\u00e1 \u00feessari \u00f6ld, og h\u00e1tt \u00ed tv\u00f6 hundru\u00f0 \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni<\/em>. Einnig eru d\u00e6mi um <em>eg\u00f3i\u00f0<\/em>, <em>metna\u00f0inn<\/em>, <em>sj\u00e1lfs\u00e1liti\u00f0 <\/em>o.fl. me\u00f0 <em>\u00ed botni <\/em>\u2013 yfirgn\u00e6fandi meirihluti d\u00e6ma er \u00far \u00ed\u00fer\u00f3ttafr\u00e9ttum.<\/p>\n<p>\u00deetta er mj\u00f6g \u00e1hugavert og skemmtilegt d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 hvernig merking or\u00f0s sn\u00fdst \u00ed raun alveg vi\u00f0 \u00ed \u00e1kve\u00f0nu sambandi \u2013 \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 merkja 'ne\u00f0sti hluti, l\u00e1gmark' fer <em>botn <\/em>a\u00f0 merkja 'h\u00e1mark' \u00feannig a\u00f0 <em>vera me\u00f0 sj\u00e1lfstrausti\u00f0 \u00ed botni <\/em>merkir \u00fea\u00f0 sama og <em>vera me\u00f0 sj\u00e1lfstrausti\u00f0 \u00ed toppi <\/em>sem einnig kemur fyrir, \u00fe\u00f3tt <em>toppur <\/em>og <em>botn <\/em>s\u00e9u venjulega andst\u00e6\u00f0ur. \u00d6ll stig \u00feessarar breytingar eru fullkomlega e\u00f0lileg og skiljanleg og eiga s\u00e9r \u00fdmsar hli\u00f0st\u00e6\u00f0ur en \u00fatkoman g\u00e6ti samt veri\u00f0 ruglandi \u2013 ef \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 sj\u00e1 <em>sj\u00e1lfstrausti\u00f0 \u00ed botni <\/em>\u00ed fyrsta skipti myndi \u00e9g sennilega telja \u00fea\u00f0 merkja sama og \u201e\u00c9g hef veri\u00f0 algerlega \u00e1 botninum me\u00f0 sj\u00e1lfstraust\u201c \u00e1 <em>Bland.is <\/em>2009. En samhengi\u00f0 s\u00fdnir yfirleitt hva\u00f0 sambandi\u00f0 merkir og vi\u00f0 l\u00e6rum \u00fea\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Nafnor\u00f0i\u00f0 botn hefur \u00fdmsar merkingar en a\u00f0almerkingin sem a\u00f0rar merkingar eru v\u00e6ntanlega komnar af er '(flatur) ne\u00f0sti hluti e-s' eins og segir \u00ed \u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k. Or\u00f0i\u00f0 er oft nota\u00f0 um ne\u00f0sta e\u00f0a s\u00ed\u00f0asta s\u00e6ti \u00ed einhverri r\u00f6\u00f0, ekki s\u00edst \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttakeppnum. \u201e\u00der\u00f3ttur fr\u00e1 Neskaupsta\u00f0 er n\u00fa aftur kominn \u00e1 botninn \u00ed deildinni\u201c segir \u00ed T\u00edmanum [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6583","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6583","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6583"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6583\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6622,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6583\/revisions\/6622"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6583"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6583"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6583"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}