{"id":6588,"date":"2024-07-18T22:09:44","date_gmt":"2024-07-18T22:09:44","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6588"},"modified":"2024-07-18T22:44:39","modified_gmt":"2024-07-18T22:44:39","slug":"vid-holdum-ad-thetta-byrjadi-tharna","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/07\/18\/vid-holdum-ad-thetta-byrjadi-tharna\/","title":{"rendered":"\u201eVi\u00f0 h\u00f6ldum a\u00f0 \u00feetta byrja\u00f0i \u00fearna\u201c"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd dag var h\u00e9r spurt hvort d\u00e6mi eins og \u201evi\u00f0 h\u00f6ldum a\u00f0 \u00feetta byrja\u00f0i \u00fearna\u201c \u00ed <a href=\"https:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2024\/07\/17\/skyldasti_aettingi_sars_var_i_theirra_eigin_isskap\/\">fr\u00e9tt<\/a> \u00e1 <em>mbl.is<\/em> s\u00e9u \u201eor\u00f0in vi\u00f0tekin \u00edslenska\u201c \u2013 fyrirspyrjandi sag\u00f0ist sj\u00e1 \u00feessa setningager\u00f0 oftar og oftar. Samspil h\u00e1tta og t\u00ed\u00f0a \u00ed aukasetningum vi\u00f0 merkingarflokka sagna \u00ed a\u00f0alsetningum er of fl\u00f3ki\u00f0 til a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 fara miki\u00f0 \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0 \u00e1 \u00feessum vettvangi og v\u00edsast \u00fear \u00ed b\u00f3kina <em>Setningar <\/em>eftir H\u00f6skuld \u00der\u00e1insson \u2013 \u00feri\u00f0ja bindi <em>\u00cdslenskrar tungu<\/em>. \u00dea\u00f0 sem h\u00e9r skiptir m\u00e1li er a\u00f0 \u00ed hef\u00f0bundinni \u00edslensku ver\u00f0ur a\u00f0 hafa vi\u00f0tengingarh\u00e1tt af hj\u00e1lpars\u00f6gninni <em>hafa <\/em>og l\u00fdsingarh\u00e1tt \u00fe\u00e1t\u00ed\u00f0ar af a\u00f0als\u00f6gninni \u00ed sl\u00edkum setningum \u2013 <em>vi\u00f0 h\u00f6ldum a\u00f0 \u00feetta <strong>hafi byrja\u00f0<\/strong> \u00fearna<\/em>. En setningar af \u00feeirri ger\u00f0 sem vitna\u00f0 var til \u00ed upphafi vir\u00f0ast \u00fe\u00f3 vera or\u00f0nar mj\u00f6g algengar, einkum \u00ed \u00f3formlegu m\u00e1lsni\u00f0i.<\/p>\n<p>\u00c1 <em>Bland.is <\/em>2002 segir: \u201e\u00c9g held a\u00f0 \u00feetta var eiginlega mest fyrir mig.\u201c \u00c1 <em>Bland.is <\/em>2005 segir: \u201eSvo \u00e9g held a\u00f0 hann var \u00ed dag bara a\u00f0 gera hetjud\u00e1\u00f0.\u201c \u00c1 <em>Bland.is <\/em>2011 segir: \u201eVi\u00f0 h\u00f6ldum a\u00f0 \u00feetta var brekkubobbi.\u201c \u00c1 <em>Hugi.is <\/em>2002 segir: \u201e\u00c9g held a\u00f0 hann var a\u00f0 svindla.\u201c \u00c1 <em>Hugi.is <\/em>2004 segir: \u201eHeld a\u00f0 \u00feetta var barnab\u00f3k sem hann skrifa\u00f0i fyrir krakkana s\u00edna.\u201c \u00c1 <em>M\u00e1lefnin.com <\/em>2006 segir: \u201e\u00c9g held a\u00f0 h\u00fan var bara a\u00f0 hr\u00e6ra \u00ed \u00fe\u00e9r.\u201c \u00c1 <em>M\u00e1lefnin.com <\/em>2012 segir: \u201eEf h\u00fan segir a\u00f0 \u00feetta var allt uppspuni lendir h\u00fan sj\u00e1lf \u00ed vandr\u00e6\u00f0um.\u201c \u00c1 <em>Twitter <\/em>2013 segir: \u201eHeld a\u00f0 \u00fea\u00f0 var tekin mynd af m\u00e9r \u00e1 ballinu.\u201c \u00c1 <em>Twitter <\/em>2019 segir: \u201e\u00c9g held a\u00f0 \u00feetta var eini skynsamlegi leikurinn \u00ed st\u00f6\u00f0unni.\u201c \u00c1 <em>Twitter <\/em>2020 segir: \u201e\u00e9g held a\u00f0 \u00fea\u00f0 var \u00ed marsm\u00e1nu\u00f0i.\u201c<\/p>\n<p>\u00ddmis d\u00e6mi \u00far formlegra m\u00e1lsni\u00f0i m\u00e1 \u00fe\u00f3 finna. \u00cd <em>V\u00edsi <\/em>2010 segir: \u201eEva segir a\u00f0 h\u00fan var l\u00f6g\u00f0 \u00ed einelti \u00ed sk\u00f3la.\u201c \u00cd <em>V\u00edsi <\/em>2020 segir: \u201e\u00e9g held a\u00f0 hann var a\u00f0 f\u00e1 \u00fearna minna en millj\u00f3n \u00e1 \u00e1ri.\u201c \u00cd <em>DV <\/em>2011 segir: \u201eEir\u00edkur Bergmann Einarsson stj\u00f3rnm\u00e1lafr\u00e6\u00f0ingur segir a\u00f0 \u00fea\u00f0 var von \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 fylgi Besta flokksins myndi minnka.\u201c \u00cd <em>DV <\/em>2021 segir: \u201e\u00c9g held a\u00f0 \u00feetta var bara eitthva\u00f0 svona.\u201c \u00c1 <em>f\u00f3tbolti.net <\/em>2006 segir: \u201e\u00c9g held a\u00f0 \u00feetta var erfi\u00f0asti leikurinn okkar \u00e1 t\u00edmabilinu.\u201c \u00c1 <em>f\u00f3tbolti.net <\/em>2020 segir: \u201e\u00e9g held a\u00f0 hann var s\u00e1ttur me\u00f0 frammist\u00f6\u00f0una.\u201c \u00c1 <em>mbl.is <\/em>2017 segir: \u201e\u00c9g held a\u00f0 hann var alveg \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann \u00e1tti a\u00f0 f\u00e1 v\u00edti.\u201c \u00c1 vef <em>R\u00edkis\u00fatvarpsins <\/em>2018 segir: \u201eH\u00fan segir a\u00f0 \u00fea\u00f0 var \u00ed fyrsta sinn sem lagt er fram minnisbla\u00f0 um n\u00e1\u00f0un til allra r\u00e1\u00f0herra.\u201c<\/p>\n<p>Vegna \u00feess a\u00f0 \u00feessi setningager\u00f0 er einkum bundin vi\u00f0 \u00f3formlegt m\u00e1l er erfitt a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 upphafi hennar, en d\u00e6mi af samf\u00e9lagsmi\u00f0lum s\u00fdna \u00fe\u00f3 a\u00f0 h\u00fan var a.m.k. tilkomin upp \u00far aldam\u00f3tum. Einn \u00fe\u00e1tttakenda \u00ed umr\u00e6\u00f0u um fyrirspurnina sem v\u00edsa\u00f0 var til \u00ed upphafi sag\u00f0i \u201e\u00c9g g\u00e6ti tr\u00faa\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta s\u00e9u l\u00famsk \u00e1hrif fr\u00e1 ensku\u201c og \u00fea\u00f0 er ekki \u00f3tr\u00falegt \u2013 \u00ed samsvarandi setningum \u00e1 ensku er notu\u00f0 einf\u00f6ld \u00fe\u00e1t\u00ed\u00f0 en ekki hj\u00e1lpars\u00f6gn og l\u00fdsingarh\u00e1ttur \u00feannig a\u00f0 setningin sem vitna\u00f0 var til g\u00e6ti veri\u00f0 <em>we think it originated there <\/em>\u00e1 ensku. Annar \u00fe\u00e1tttakandi sag\u00f0i: \u201e\u00c6tla a\u00f0 slengja \u00fev\u00ed h\u00e9r fram sem tilg\u00e1tu a\u00f0 flestir undir fertugu tali og skrifi svona.\u201c Hva\u00f0 sem um \u00fea\u00f0 er s\u00fdnist m\u00e9r a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 or\u00f0i\u00f0 svo \u00fatbreitt a\u00f0 \u00fev\u00ed ver\u00f0i vart sn\u00fai\u00f0 vi\u00f0.<\/p>\n<p>Kannski er ekki heldur \u00e1st\u00e6\u00f0a til \u00feess. \u00de\u00f3tt \u00fatbrei\u00f0slu \u00feessarar setningager\u00f0ar \u00e1 tuttugustu og fyrstu \u00f6ld megi hugsanlega rekja til enskra \u00e1hrifa er nefnilega nokku\u00f0 um keiml\u00edkar setningar \u00ed fornu m\u00e1li. \u00cd <em>Grettis s\u00f6gu <\/em>segir: \u201e\u00der\u00e1ndur segir a\u00f0 hann var br\u00f3\u00f0ir Eyvindar austmanns.\u201c \u00cd <em>Hei\u00f0arv\u00edga s\u00f6gu <\/em>segir: \u201eHann segir a\u00f0 hann var \u00fear.\u201c \u00cd <em>Reykd\u00e6la s\u00f6gu <\/em>segir: \u201eV\u00e9mundur segir a\u00f0 hann var n\u00fa eftir sendur fanginu.\u201c \u00cd <em>Heimskringlu<\/em> segir: \u201eKarl svarar a\u00f0 hann var \u00e1\u00f0ur r\u00e1\u00f0inn a\u00f0 fara til Leifs.\u201c \u00cd <em>Sturlungu <\/em>segir: \u201ePrestur og allir heimamenn segja a\u00f0 hann var brott ri\u00f0inn.\u201c \u00cd <em>Heimskringlu <\/em>segir: \u201eKonungur spyr hvort \u00fea\u00f0 var Kn\u00fats konungs gj\u00f6f.\u201c \u00dea\u00f0 m\u00e1 svo au\u00f0vita\u00f0 deila um hvort \u00feetta dugi til a\u00f0 s\u00e6ttast vi\u00f0 svipa\u00f0a setningager\u00f0 \u00ed n\u00fat\u00edmam\u00e1li.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd dag var h\u00e9r spurt hvort d\u00e6mi eins og \u201evi\u00f0 h\u00f6ldum a\u00f0 \u00feetta byrja\u00f0i \u00fearna\u201c \u00ed fr\u00e9tt \u00e1 mbl.is s\u00e9u \u201eor\u00f0in vi\u00f0tekin \u00edslenska\u201c \u2013 fyrirspyrjandi sag\u00f0ist sj\u00e1 \u00feessa setningager\u00f0 oftar og oftar. Samspil h\u00e1tta og t\u00ed\u00f0a \u00ed aukasetningum vi\u00f0 merkingarflokka sagna \u00ed a\u00f0alsetningum er of fl\u00f3ki\u00f0 til a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 fara miki\u00f0 \u00fat \u00ed [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6588","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6588","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6588"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6588\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6590,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6588\/revisions\/6590"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6588"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6588"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6588"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}