{"id":6766,"date":"2024-08-28T21:41:44","date_gmt":"2024-08-28T21:41:44","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6766"},"modified":"2024-08-28T21:53:00","modified_gmt":"2024-08-28T21:53:00","slug":"fjarbladamannafundur-bladamannafjarfundur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/08\/28\/fjarbladamannafundur-bladamannafjarfundur\/","title":{"rendered":"Fjarbla\u00f0amannafundur \u2013 bla\u00f0amannafjarfundur"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd fr\u00e9tt \u00e1 vef <em>R\u00edkis\u00fatvarpsins <\/em>\u00ed dag <a href=\"https:\/\/www.ruv.is\/frettir\/ithrottir\/2024-08-28-gylfi-snyr-aftur-i-landslidid-alfred-gerdi-ser-sjalfur-grein-fyrir-stodunni-420690\">segir<\/a>: \u201eHareide sat fyrir sv\u00f6rum \u00e1 fjarbla\u00f0amannafundi eftir a\u00f0 h\u00f3purinn var kynntur.\u201c \u00c9g kanna\u00f0ist ekki vi\u00f0 a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 or\u00f0i\u00f0 <em>fjarbla\u00f0amannafundur <\/em>\u00e1\u00f0ur en \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00f3 vitanlega au\u00f0skiljanlegt. N\u00e1nari athugun leiddi \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 er ekki alveg n\u00fdtt \u2013 nokkur d\u00e6mi m\u00e1 finna um \u00fea\u00f0 fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu fj\u00f3rum \u00e1rum. \u00c1 <em>mbl.is <\/em>2020 segir: \u201e\u201eEn vi\u00f0 b\u00faumst vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1hrifin muni ekki vara lengi,\u201c sag\u00f0i hann \u00e1 fjarbla\u00f0amannafundi \u00ed dag.\u201c \u00c1 vef <em>R\u00edkis\u00fatvarpsins <\/em>2020 segir: \u201e\u201eVi\u00f0 \u00e6tlum okkur a\u00f0 vinna og komast \u00e1 EM,\u201c sag\u00f0i Erik \u00e1 fjarbla\u00f0amannafundi KS\u00cd \u00ed dag.\u201c \u00c1 <em>V\u00edsi <\/em>2021 segir: \u201eGu\u00f0mundur Felix r\u00e6ddi vi\u00f0 fr\u00e9ttamenn \u00e1 fjarbla\u00f0amannafundi fr\u00e1 sj\u00fakrabe\u00f0i s\u00ednum \u00ed Lyon \u00ed Frakklandi s\u00ed\u00f0degis.\u201c<\/p>\n<p>\u00d6rf\u00e1 \u00f6nnur d\u00e6mi m\u00e1 finna, en einnig eru d\u00e6mi um or\u00f0i\u00f0 <em>bla\u00f0amannafjarfundur <\/em>\u00ed s\u00f6mu merkingu. \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2021 segir: \u201eHammer var \u00fe\u00e1 kv\u00e6ntur og sag\u00f0i Effie \u00e1 bla\u00f0amannafjarfundi a\u00f0 Hammer hef\u00f0i nau\u00f0ga\u00f0 henni \u00ed fj\u00f3rar klukkustundir.\u201c \u00c1 <em>V\u00edsi <\/em>2024 segir: \u201eHareide kynnti h\u00f3p sinn \u00e1 bla\u00f0amannafjarfundi, \u00ed gegnum t\u00f6lvu.\u201c B\u00e6\u00f0i <em>fjar-bla\u00f0a-manna-fundur <\/em>og <em>bla\u00f0a-manna-fjar-fundur <\/em>eru fj\u00f3rli\u00f0a samsetningar me\u00f0 s\u00f6mu li\u00f0um, <em>fjar<\/em>, <em>bla\u00f0<\/em>, <em>fund <\/em>og <em>mann <\/em>\u2013 \u00ed mismunandi r\u00f6\u00f0. \u00der\u00edli\u00f0a samsetningin <em>bla\u00f0a-manna-fundur <\/em>er meira en hundra\u00f0 \u00e1ra g\u00f6mul \u00ed m\u00e1linu og mj\u00f6g algeng. Tv\u00edli\u00f0a samsetningin <em>fjar-fundur <\/em>er hins vegar ekki nema t\u00e6plega \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1ra g\u00f6mul en er l\u00edka mj\u00f6g algeng, einkum s\u00ed\u00f0ustu fj\u00f6gur \u00e1r.<\/p>\n<p>\u00dearna \u00fearf sem s\u00e9 a\u00f0 tengja saman tv\u00f6 or\u00f0 me\u00f0 sama s\u00ed\u00f0asta li\u00f0, -<em>fundur<\/em>. Ein a\u00f0fer\u00f0 til \u00feess er a\u00f0 tengja or\u00f0in me\u00f0 <em>og <\/em>og sleppa sameiginlega li\u00f0num \u00ed fyrra or\u00f0inu (og enda fyrri li\u00f0inn \u00e1 bandstriki). \u00deetta er t.d. gert \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2005: \u201eFr\u00e6\u00f0slu- og a\u00f0alfundur Fr\u00e6\u00f0slusamtaka um kynl\u00edf og barneignir ver\u00f0ur haldinn fimmtudaginn 15. mars.\u201c Til a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 h\u00e6gt ver\u00f0a fyrri li\u00f0irnir a\u00f0 vera sama e\u00f0lis (\u00ed einhverjum skilningi). \u00cd <em>bla\u00f0amanna-fundur <\/em>v\u00edsar fyrri li\u00f0urinn til fundargesta en til fundarforms \u00ed <em>fjar-fundur<\/em> og \u00feess vegna er \u00fatiloka\u00f0 a\u00f0 segja *<em>bla\u00f0amanna- og fjarfundur <\/em>e\u00f0a *<em>fjar- og bla\u00f0amannafundur<\/em>. Eina lei\u00f0in er \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00faa til n\u00fdtt or\u00f0 \u00fear sem allir fj\u00f3rir li\u00f0irnir komi fram \u2013 en \u00fe\u00e1 upphefst vandinn vi\u00f0 a\u00f0 ra\u00f0a \u00feeim saman.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er lj\u00f3st a\u00f0 -<em>fundur <\/em>ver\u00f0ur seinasti li\u00f0urinn, en \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegt er a\u00f0 rj\u00fafa anna\u00f0hvort tengslin milli <em>fjar-<\/em> og <em>-fundur <\/em>e\u00f0a milli <em>bla\u00f0amanna- <\/em>og -<em>fundur<\/em>. \u00ddmislegt getur haft \u00e1hrif \u00e1 hvor lei\u00f0in er farin, en m\u00e9r finnst skipta m\u00e1li hvort megin\u00e1herslan er \u00e1 e\u00f0li fundarins og \u00fe\u00e1 e\u00f0lilegt a\u00f0 tala um <em>fjarbla\u00f0amannafund<\/em>, e\u00f0a \u00e1 markh\u00f3pinn og \u00fe\u00e1 e\u00f0lilegt a\u00f0 tala um <em>bla\u00f0amannafjarfund<\/em>. En \u00e1hersla og hrynjandi getur l\u00edka skipt m\u00e1li. \u00cd e\u00f0lilegri v\u00edxlhrynjandi getur <em>fjarbla\u00f0amanna-fundur <\/em>hlj\u00f3ma\u00f0 eins og fyrri li\u00f0urinn s\u00e9 *<em>fjarbla\u00f0amenn <\/em>en \u00fea\u00f0 or\u00f0 er ekki til (\u00ed \u00feeirri merkingu sem h\u00e9r \u00e1 vi\u00f0). \u00cd frambur\u00f0i \u00fearf \u00feess vegna eiginlega a\u00f0 sl\u00edta <em>fjar- <\/em>fr\u00e1 afgangnum af or\u00f0inu, eins og gert var \u00feegar \u00e1\u00f0urnefnd fr\u00e9tt var <a href=\"https:\/\/www.ruv.is\/sjonvarp\/spila\/ithrottir\/30657\/ag93k7\/gylfi-thor-sigurdsson-snyr-aftur\">lesin<\/a> \u00ed fr\u00e9ttum sj\u00f3nvarps \u00ed kv\u00f6ld.<\/p>\n<p>Fleirsamsett or\u00f0 eins og <em>fjarbla\u00f0amannafundur <\/em>\u00fear sem fyrsta li\u00f0num er b\u00e6tt framan vi\u00f0 or\u00f0 sem er margsamsett fyrir eru \u00fe\u00f3 ekki einsd\u00e6mi \u00ed m\u00e1linu. \u00c9g hef \u00e1\u00f0ur <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/09\/21\/ohagnadardrifin-fyrirtaeki\/\">skrifa\u00f0<\/a> um or\u00f0i\u00f0 <em>\u00f3hagna\u00f0ardrifinn<\/em> \u00fear sem fyrri hlutinn er ekki or\u00f0i\u00f0 <em>\u00f3hagna\u00f0ur<\/em> (sem merkti anna\u00f0) heldur er <em>\u00f3- <\/em>b\u00e6tt framan vi\u00f0 <em>hagna\u00f0ardrifinn<\/em>. Anna\u00f0 margsamsett or\u00f0 me\u00f0 fyrsta li\u00f0num <em>fjar- <\/em>er <em>fjarheilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nusta<\/em>. Or\u00f0i\u00f0 *<em>fjarheilbrig\u00f0i <\/em>er ekki til frekar en *<em>fjarbla\u00f0ama\u00f0ur<\/em>, en vitanlega er <em>heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nusta <\/em>til, og einnig <em>fjar\u00fej\u00f3nusta<\/em>. \u00deegar \u00fearf a\u00f0 steypa \u00feessu saman kemur upp sami vandinn og me\u00f0 <em>bla\u00f0amannafund <\/em>og <em>fjarfund<\/em> \u2013 seinasti li\u00f0urinn ver\u00f0ur alltaf <em>\u00fej\u00f3nusta <\/em>en \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegt er a\u00f0 rj\u00fafa tengsl hans vi\u00f0 anna\u00f0hvort <em>heilbrig\u00f0i- <\/em>e\u00f0a <em>fjar-<\/em>.<\/p>\n<p>Or\u00f0 eins og <em>fjarbla\u00f0amannafundur<\/em>, <em>fjarheilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nusta <\/em>og \u00f6nnur sl\u00edk eru vissulega frekar stir\u00f0 eins og margsamsett or\u00f0 hlj\u00f3ta alltaf a\u00f0 vera en \u00e9g s\u00e9 samt ekki a\u00f0 \u00feau brj\u00f3ti \u00e1 neinn h\u00e1tt \u00ed b\u00e1ga vi\u00f0 \u00edslenskar or\u00f0myndunarreglur, og sama m\u00e1li gegnir um <em>bla\u00f0amannafjarfundur <\/em>og *<em>heilbrig\u00f0isfjar\u00fej\u00f3nusta <\/em>(sem \u00e9g finn engin d\u00e6mi um). En m\u00f6rg or\u00f0 af \u00feessu tagi hafa or\u00f0i\u00f0 til \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum, ekki s\u00edst \u00e1 covid-t\u00edmanum, vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 e\u00f0li \u00fdmissa gamalgr\u00f3inna fyrirb\u00e6ra var breytt og \u00feau ger\u00f0 a\u00f0 <em>fjarfyrirb\u00e6rum<\/em>. Um \u00feessi fyrirb\u00e6ri voru til gamalgr\u00f3in or\u00f0 og \u00fea\u00f0 er skiljanlegt a\u00f0 e\u00f0lisbreytingin s\u00e9 frekar t\u00e1knu\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00e6ta <em>fjar- <\/em>framan vi\u00f0 or\u00f0in en me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 brj\u00f3ta \u00feessi gamalgr\u00f3nu or\u00f0 upp me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 skj\u00f3ta -<em>fjar- <\/em>milli li\u00f0a \u00ed \u00feeim.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd fr\u00e9tt \u00e1 vef R\u00edkis\u00fatvarpsins \u00ed dag segir: \u201eHareide sat fyrir sv\u00f6rum \u00e1 fjarbla\u00f0amannafundi eftir a\u00f0 h\u00f3purinn var kynntur.\u201c \u00c9g kanna\u00f0ist ekki vi\u00f0 a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 or\u00f0i\u00f0 fjarbla\u00f0amannafundur \u00e1\u00f0ur en \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00f3 vitanlega au\u00f0skiljanlegt. N\u00e1nari athugun leiddi \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 er ekki alveg n\u00fdtt \u2013 nokkur d\u00e6mi m\u00e1 finna um \u00fea\u00f0 fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6766","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6766","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6766"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6766\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6768,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6766\/revisions\/6768"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6766"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6766"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6766"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}