{"id":6777,"date":"2024-09-05T10:08:46","date_gmt":"2024-09-05T10:08:46","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6777"},"modified":"2024-09-05T10:20:01","modified_gmt":"2024-09-05T10:20:01","slug":"heimgreidslur-yta-undir-malfarslega-mismunun","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/09\/05\/heimgreidslur-yta-undir-malfarslega-mismunun\/","title":{"rendered":"Heimgrei\u00f0slur \u00fdta undir m\u00e1lfarslega mismunun"},"content":{"rendered":"<p>\u00c1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum hafa nokkur sveitarf\u00e9l\u00f6g teki\u00f0 upp svokalla\u00f0ar <em>heimgrei\u00f0slur<\/em> til foreldra ungra barna sem ekki hafa fengi\u00f0 leiksk\u00f3lavist e\u00f0a komist a\u00f0 hj\u00e1 dagforeldri. Margir foreldrar hafa teki\u00f0 \u00feessum grei\u00f0slum fegins hendi vegna \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e6r au\u00f0velda \u00feeim vitanlega a\u00f0 br\u00faa bili\u00f0 fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e6\u00f0ingarorlofi l\u00fdkur og \u00fear til barni\u00f0 kemst \u00ed skipulag\u00f0a dv\u00f6l utan heimilis. En grei\u00f0slurnar hafa einnig veri\u00f0 gagnr\u00fdndar vegna \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e6r haldi konum inni \u00e1 heimilum \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 au\u00f0velda \u00feeim a\u00f0 fara aftur \u00fat \u00e1 vinnumarka\u00f0inn. S\u00fa umr\u00e6\u00f0a \u00e1 ekki heima \u00ed \u00feessum h\u00f3pi en \u00f6\u00f0ru m\u00e1li gegnir um umr\u00e6\u00f0u um \u00feau \u00e1hrif sem \u00feetta fyrirkomulag kann a\u00f0 hafa \u00e1 m\u00e1lt\u00f6ku og m\u00e1l\u00feroska barna innflytjenda eins og bent er \u00e1 \u00ed n\u00fdrri <a href=\"https:\/\/www.oecd.org\/en\/publications\/skills-and-labour-market-integration-of-immigrants-and-their-children-in-iceland_96adc300-en.html\">sk\u00fdrslu<\/a> OECD.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 hefur s\u00fdnt sig a\u00f0 hlutfall foreldra sem \u00feiggja heimgrei\u00f0slur er h\u00e6rra me\u00f0al innflytjenda en innf\u00e6ddra. Fyrir \u00fev\u00ed eru au\u00f0vita\u00f0 \u00fdmsar \u00e1st\u00e6\u00f0ur svo sem l\u00e6gri tekjur innflytjenda, einkum kvenna, og a\u00f0 \u00feeir hafa oft l\u00edti\u00f0 stu\u00f0ningsnet og eiga \u00fev\u00ed f\u00e6rri kosta v\u00f6l \u00ed um\u00f6nnun barna sinna. En \u00feegar innflytjendur sinna b\u00f6rnum s\u00ednum heima \u00fe\u00fd\u00f0ir \u00fea\u00f0 a\u00f0 oft a\u00f0 b\u00f6rnin hafa enga \u00edslensku \u00ed m\u00e1lumhverfi s\u00ednu og \u00fea\u00f0 er \u00fev\u00ed mj\u00f6g mikilv\u00e6gt a\u00f0 b\u00f6rn innflytjenda komist sem allra fyrst \u00ed leiksk\u00f3la. Heimgrei\u00f0slur l\u00e9tta hins vegar \u00e1 \u00fer\u00fdstingi \u00e1 sveitarf\u00e9l\u00f6g a\u00f0 sj\u00e1 \u00f6llum b\u00f6rnum fyrir leiksk\u00f3ladv\u00f6l fr\u00e1 t\u00f3lf m\u00e1na\u00f0a aldri og stu\u00f0la \u00fev\u00ed a\u00f0 aukinni m\u00e1lfarslegri mismunun milli barna sem eiga \u00edslenska foreldra og barna \u00fear sem heimilism\u00e1li\u00f0 er anna\u00f0 en \u00edslenska.<\/p>\n<p>\u00cd sk\u00fdrslunni segir: \u201eB\u00f6rn innflytjenda s\u00e6kja s\u00ed\u00f0ur leiksk\u00f3la en jafnaldrar \u00feeirra og bili\u00f0 er a\u00f0 breikka.\u201c S\u00ed\u00f0ar segir svo: \u201eLeiksk\u00f3linn skapar m\u00e1llegt umhverfi \u00fear sem b\u00f6rn innflytjenda geta l\u00e6rt \u00edslensku sem \u00feau l\u00e6ra ekki heima hj\u00e1 s\u00e9r og PISA-g\u00f6gn benda til \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 s\u00e9rstakur \u00e1vinningur fyrir b\u00f6rn innflytjenda a\u00f0 byrja snemma \u00ed leiksk\u00f3la h\u00e9r \u00e1 landi. B\u00f6rn innflytjenda \u00feurfa \u00e1 m\u00e1llegri a\u00f0sto\u00f0 a\u00f0 halda \u00ed sk\u00f3lanum sem byggir \u00e1 markvissu tungum\u00e1lamati. Helmingur barna innflytjenda \u00e1 \u00cdslandi flokkast sem b\u00f6rn me\u00f0 litla f\u00e6rni \u00ed PISA-mati, langt yfir me\u00f0altali OECD-r\u00edkja sem er 30% og a\u00f0eins Mex\u00edk\u00f3 er \u00fear yfir. \u00de\u00e1 eru innf\u00e6dd b\u00f6rn innflytjenda me\u00f0 svipa\u00f0a, ef ekki verri, f\u00e6rni en jafnaldrar \u00feeirra sem komu til landsins sem b\u00f6rn.<\/p>\n<p>\u00deetta \u00e1 ekki a\u00f0eins vi\u00f0 um PISA-stig heldur einnig brottfall \u00far framhaldssk\u00f3la \u00fear sem brottfall er meira hj\u00e1 innf\u00e6ddum b\u00f6rnum innflytjenda en hj\u00e1 b\u00f6rnum innflytjenda sem koma til landsins fyrir sex \u00e1ra aldur. \u00deetta vir\u00f0ist a\u00f0 miklu leyti vera vegna tungum\u00e1laerfi\u00f0leika \u00feessa h\u00f3ps. \u00de\u00f3 a\u00f0 \u00fartak innf\u00e6ddra barna innflytjenda s\u00e9 of l\u00edti\u00f0 til greiningar er munurinn \u00e1 PISA-lestrarstigum \u00feeirra innf\u00e6ddu sem tala \u00edslensku heima og \u00feeirra sem ekki tala \u00edslensku 81 stig, e\u00f0a meira en \u00feriggja \u00e1ra sk\u00f3laganga, mesti munur allra OECD-r\u00edkja. [\u2026] Reynsla annarra OECD-r\u00edkja og langt\u00edmaranns\u00f3kn \u00e1 \u00e1hrifum m\u00e1lf\u00e6rnimats \u00ed leiksk\u00f3lum \u00e1 n\u00e1ms\u00e1rangur benda til a\u00f0 mat \u00e1 tungum\u00e1lakunn\u00e1ttu geti skila\u00f0 miklum \u00e1rangri til a\u00f0 b\u00e6ta frammist\u00f6\u00f0u barna innflytjenda.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd sk\u00fdrslu OECD er bent \u00e1 a\u00f0 reynsla fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum r\u00edkjum OECD s\u00fdni a\u00f0 l\u00e1g leiksk\u00f3lagj\u00f6ld s\u00e9u l\u00edkleg til a\u00f0 lei\u00f0a til \u00feess a\u00f0 h\u00e6rra hlutfall barna innflytjenda s\u00e6ki leiksk\u00f3la. H\u00e1 leiksk\u00f3lagj\u00f6ld og of f\u00e1 leiksk\u00f3lapl\u00e1ss vinna \u00fev\u00ed beinl\u00ednis gegn \u00edslenskun\u00e1mi og inngildingu barna innflytjenda. \u00deess vegna er lagt til \u00ed sk\u00fdrslunni a\u00f0 <strong>heimgrei\u00f0slur til foreldra ver\u00f0i afnumdar<\/strong> og <strong>dregi\u00f0 \u00far h\u00e6kkun leiksk\u00f3lagjalda<\/strong> \u00ed \u00feeim tilgangi a\u00f0 auka leiksk\u00f3las\u00f3kn barna innflytjenda. Heimgrei\u00f0slur og h\u00e1 leiksk\u00f3lagj\u00f6ld vinna gegn \u00edslenskun\u00e1mi innflytjendabarna \u00e1 m\u00e1lt\u00f6kuskei\u00f0i og stu\u00f0la \u00fear me\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00faa h\u00e9r til alvarlega m\u00e1lfarslega st\u00e9ttaskiptingu sem \u00e1 endanum mun kosta okkur margfalt meira en fj\u00f6lgun \u00f3d\u00fdrra leiksk\u00f3lapl\u00e1ssa.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum hafa nokkur sveitarf\u00e9l\u00f6g teki\u00f0 upp svokalla\u00f0ar heimgrei\u00f0slur til foreldra ungra barna sem ekki hafa fengi\u00f0 leiksk\u00f3lavist e\u00f0a komist a\u00f0 hj\u00e1 dagforeldri. Margir foreldrar hafa teki\u00f0 \u00feessum grei\u00f0slum fegins hendi vegna \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e6r au\u00f0velda \u00feeim vitanlega a\u00f0 br\u00faa bili\u00f0 fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e6\u00f0ingarorlofi l\u00fdkur og \u00fear til barni\u00f0 kemst \u00ed skipulag\u00f0a dv\u00f6l [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6777","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6777","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6777"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6777\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6779,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6777\/revisions\/6779"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6777"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6777"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6777"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}