{"id":6909,"date":"2024-10-08T21:03:34","date_gmt":"2024-10-08T21:03:34","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6909"},"modified":"2024-10-08T21:03:34","modified_gmt":"2024-10-08T21:03:34","slug":"hissa-hissari-hissastur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/10\/08\/hissa-hissari-hissastur\/","title":{"rendered":"Hissa, hissari, hissastur"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd innleggi h\u00e9r \u00ed dag sag\u00f0ist h\u00f3pverji hafa rekist \u00e1 mi\u00f0stigi\u00f0 <em>hissari <\/em>\u00ed \u00fe\u00fdddum reyfara, og fundi\u00f0 nokkur <a href=\"https:\/\/ritmalssafn.arnastofnun.is\/daemi\/193963\">d\u00e6mi<\/a> um \u00fea\u00f0 \u00ed <em>Ritm\u00e1lssafni <\/em>\u00c1rnastofnunar, m.a. fr\u00e1 Halld\u00f3ri Laxness. L\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 <em>hissa <\/em>\u00e1 \u00fea\u00f0 annars venjulega sameiginlegt me\u00f0 \u00f6\u00f0rum l\u00fdsingaror\u00f0um sem enda \u00e1 <em>-a<\/em> a\u00f0 koma a\u00f0eins fyrir \u00ed <a href=\"http:\/\/\u00cd innleggi h\u00e9r \u00ed dag sag\u00f0ist h\u00f3pverji hafa rekist \u00e1 mi\u00f0stigi\u00f0 hissari \u00ed \u00fe\u00fdddum reyfara, og fundi\u00f0 nokkur d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 \u00ed Ritm\u00e1lssafni \u00c1rnastofnunar, m.a. fr\u00e1 Halld\u00f3ri Laxness. L\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 hissa \u00e1 \u00fea\u00f0 annars venjulega sameiginlegt me\u00f0 \u00f6\u00f0rum l\u00fdsingaror\u00f0um sem enda \u00e1 -a a\u00f0 koma a\u00f0eins fyrir \u00ed einni mynd \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 stigbreytast og beygjast \u00ed kynjum, t\u00f6lum og f\u00f6llum eins og l\u00fdsingaror\u00f0 gera annars. \u00deetta eru n\u00e6r eing\u00f6ngu samsett or\u00f0 eins og samm\u00e1la, gjald\u00ferota, einhli\u00f0a, einnota, samfer\u00f0a, vi\u00f0l\u00edka, h\u00e1g\u00e6\u00f0a, fullvalda, andvaka, v\u00e9larvana og fj\u00f6lm\u00f6rg \u00f6nnur. Merking margra \u00feessara or\u00f0a er \u00feess e\u00f0lis a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00faast a\u00f0 \u00feau stigbreytist \u2013 \u00fea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 vera *meira gjald\u00ferota, *meira einnota, *mest samfer\u00f0a o.s.frv. En hissa sker sig \u00far h\u00f3pnum \u00e1 tvennan h\u00e1tt \u2013 annars vegar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera \u00f3samsett, og hins vegar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera merkingarlega e\u00f0lilegt a\u00f0 stigbreytast. \u00dea\u00f0 er enginn vandi a\u00f0 vera meira hissa og mest hissa og um \u00fea\u00f0 eru \u00f3tal d\u00e6mi. \u201eEnginn var meira hissa e\u00f0a rei\u00f0ari en \u00e9g \u00feegar vi\u00f0 fundum ekki vopnin\u201c segir \u00ed Morgunbla\u00f0inu 2010, og \u201e\u00c9g er mest hissa \u00e1 \u00fev\u00ed hva\u00f0 allt er d\u00fdrt\u201c segir \u00ed Feyki 2020. \u00deess vegna er kannski engin fur\u00f0a a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 s\u00e9 stundum stigbreytt \u00e1 venjulegan h\u00e1tt, me\u00f0 hef\u00f0bundnum endingum mi\u00f0stigs og efsta stigs -ari og -astur. Elsta d\u00e6mi um \u00feetta, undir fyrirs\u00f6gninni \u201eM\u00e1lbl\u00f3m\u201c, er \u00ed Lesb\u00f3k Morgunbla\u00f0sins 1932: \u201e\u00deeir ur\u00f0u altaf hissari og hissari, og ekki m\u00e1tti \u00e1 milli sj\u00e1 hver hissastur var\u00f0.\u201c Fyrirs\u00f6gnin s\u00fdnir a\u00f0 veri\u00f0 er a\u00f0 hneykslast \u00e1 \u00feessari stigbreytingu, og flest af \u00feeim r\u00famlega 70 d\u00e6mum sem eru um mi\u00f0stigi\u00f0 og efsta stigi\u00f0 \u00e1 t\u00edmarit.is eru greinilega notu\u00f0 \u00ed gamni og oft innan g\u00e6salappa. Stundum er beinl\u00ednis v\u00edsa\u00f0 \u00ed \u00feetta sem barnam\u00e1l, eins og \u00ed Morgunbla\u00f0inu 2016: \u201e\u00c9g var\u00f0 \u201ealltaf hissari og hissari\u201c, eins og krakkarnir segja.\u201c \u00de\u00f3 eru til d\u00e6mi sem ekki bera \u00fea\u00f0 s\u00e9rstaklega me\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 vera notu\u00f0 \u00ed gamni, t.d. \u201eMa\u00f0ur var bara hissari \u00fev\u00ed fleira sem sagt var\u201c \u00ed leikd\u00f3mi eftir \u00d3laf J\u00f3nsson b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ing \u00ed DV 1979. \u00d3lafur mun reyndar hafa \u00fe\u00fdtt reyfarann sem vitna\u00f0 var til \u00ed upphafi sem bendir til \u00feess a\u00f0 honum hafi veri\u00f0 \u00feessi stigbreyting e\u00f0lileg, hvort sem hann hefur teki\u00f0 hana me\u00f0vita\u00f0 upp e\u00f0a ekki. Eins og \u00e1\u00f0ur var nefnt kemur mi\u00f0stigi\u00f0 hissari fyrir hj\u00e1 Halld\u00f3ri Laxness \u2013 raunar \u00ed \u00feremur sk\u00e1lds\u00f6gum hans, At\u00f3mst\u00f6\u00f0inni, Brekkukotsann\u00e1l og Kristnihaldi undir J\u00f6kli. Halld\u00f3r leyf\u00f0i s\u00e9r au\u00f0vita\u00f0 \u00fdmislegt \u00f3hef\u00f0bundi\u00f0 og haf\u00f0i gaman af a\u00f0 \u00f6gra lesendum me\u00f0 m\u00e1lnotkun sinni. En stigbreytingin vir\u00f0ist ekki hafa brei\u00f0st miki\u00f0 \u00fat \u2013 \u00ed meginhluta \u00feeirra u.\u00fe.b. sext\u00edu d\u00e6ma sem eru um hana \u00ed Risam\u00e1lheildinni er h\u00fan notu\u00f0 \u00ed gamni, e\u00f0a veri\u00f0 a\u00f0 gera gr\u00edn a\u00f0 henni. \u00dea\u00f0 gildir ekki s\u00ed\u00f0ur um texta \u00far \u00f3formlegu m\u00e1li samf\u00e9lagsmi\u00f0la og s\u00fdnir a\u00f0 stigbreytingin fellur yfirleitt ekki a\u00f0 m\u00e1lkennd m\u00e1lnotenda. M\u00e9r finnst \u00fev\u00ed engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 \u00fdta undir hana e\u00f0a m\u00e6la me\u00f0 henni \u00fe\u00f3tt vissulega k\u00e6mi s\u00e9r oft vel a\u00f0 geta stigbreytt hissa.\">einni mynd<\/a> \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 stigbreytast og beygjast \u00ed kynjum, t\u00f6lum og f\u00f6llum eins og l\u00fdsingaror\u00f0 gera annars. \u00deetta eru n\u00e6r eing\u00f6ngu samsett or\u00f0 eins og <em>samm\u00e1la<\/em>, <em>gjald\u00ferota<\/em>, <em>einhli\u00f0a<\/em>, <em>einnota<\/em>, <em>samfer\u00f0a<\/em>, <em>vi\u00f0l\u00edka<\/em>, <em>h\u00e1g\u00e6\u00f0a<\/em>, <em>fullvalda<\/em>, <em>andvaka<\/em>, <em>v\u00e9larvana<\/em> og fj\u00f6lm\u00f6rg \u00f6nnur. Merking margra \u00feessara or\u00f0a er \u00feess e\u00f0lis a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00faast a\u00f0 \u00feau stigbreytist \u2013 \u00fea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 vera *<em>meira gjald\u00ferota<\/em>, *<em>meira einnota<\/em>, *<em>mest samfer\u00f0a<\/em> o.s.frv.<\/p>\n<p>En <em>hissa <\/em>sker sig \u00far h\u00f3pnum \u00e1 tvennan h\u00e1tt \u2013 annars vegar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera \u00f3samsett, og hins vegar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera merkingarlega e\u00f0lilegt a\u00f0 stigbreytast. \u00dea\u00f0 er enginn vandi a\u00f0 vera <em>meira hissa <\/em>og<em> mest hissa <\/em>og um \u00fea\u00f0 eru \u00f3tal d\u00e6mi. \u201eEnginn var meira hissa e\u00f0a rei\u00f0ari en \u00e9g \u00feegar vi\u00f0 fundum ekki vopnin\u201c segir \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2010, og \u201e\u00c9g er mest hissa \u00e1 \u00fev\u00ed hva\u00f0 allt er d\u00fdrt\u201c segir \u00ed <em>Feyki <\/em>2020. \u00deess vegna er kannski engin fur\u00f0a a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 s\u00e9 stundum stigbreytt \u00e1 venjulegan h\u00e1tt, me\u00f0 hef\u00f0bundnum endingum mi\u00f0stigs og efsta stigs <em>-ari<\/em> og <em>-astur<\/em>. Elsta d\u00e6mi um \u00feetta, undir fyrirs\u00f6gninni \u201eM\u00e1lbl\u00f3m\u201c, er \u00ed <em>Lesb\u00f3k Morgunbla\u00f0sins <\/em>1932: \u201e\u00deeir ur\u00f0u altaf hissari og hissari, og ekki m\u00e1tti \u00e1 milli sj\u00e1 hver hissastur var\u00f0.\u201c<\/p>\n<p>Fyrirs\u00f6gnin s\u00fdnir a\u00f0 veri\u00f0 er a\u00f0 hneykslast \u00e1 \u00feessari stigbreytingu, og flest af \u00feeim r\u00famlega 70 d\u00e6mum sem eru um mi\u00f0stigi\u00f0 og efsta stigi\u00f0 \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em> eru greinilega notu\u00f0 \u00ed gamni og oft innan g\u00e6salappa. Stundum er beinl\u00ednis v\u00edsa\u00f0 \u00ed \u00feetta sem barnam\u00e1l, eins og \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2016: \u201e\u00c9g var\u00f0 \u201ealltaf hissari og hissari\u201c, eins og krakkarnir segja.\u201c \u00de\u00f3 eru til d\u00e6mi sem ekki bera \u00fea\u00f0 s\u00e9rstaklega me\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 vera notu\u00f0 \u00ed gamni, t.d. \u201eMa\u00f0ur var bara hissari \u00fev\u00ed fleira sem sagt var\u201c \u00ed leikd\u00f3mi eftir \u00d3laf J\u00f3nsson b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ing \u00ed <em>DV <\/em>1979. \u00d3lafur mun reyndar hafa \u00fe\u00fdtt reyfarann sem vitna\u00f0 var til \u00ed upphafi sem bendir til \u00feess a\u00f0 honum hafi veri\u00f0 \u00feessi stigbreyting e\u00f0lileg, hvort sem hann hefur teki\u00f0 hana me\u00f0vita\u00f0 upp e\u00f0a ekki.<\/p>\n<p>Eins og \u00e1\u00f0ur var nefnt kemur mi\u00f0stigi\u00f0 <em>hissari <\/em>fyrir hj\u00e1 Halld\u00f3ri Laxness \u2013 raunar \u00ed \u00feremur sk\u00e1lds\u00f6gum hans, <em>At\u00f3mst\u00f6\u00f0inni<\/em>, <em>Brekkukotsann\u00e1l <\/em>og <em>Kristnihaldi undir J\u00f6kli<\/em>. Halld\u00f3r leyf\u00f0i s\u00e9r au\u00f0vita\u00f0 \u00fdmislegt \u00f3hef\u00f0bundi\u00f0 og haf\u00f0i gaman af a\u00f0 \u00f6gra lesendum me\u00f0 m\u00e1lnotkun sinni. En stigbreytingin vir\u00f0ist ekki hafa brei\u00f0st miki\u00f0 \u00fat \u2013 \u00ed meginhluta \u00feeirra u.\u00fe.b. sext\u00edu d\u00e6ma sem eru um hana \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni <\/em>er h\u00fan notu\u00f0 \u00ed gamni, e\u00f0a veri\u00f0 a\u00f0 gera gr\u00edn a\u00f0 henni. \u00dea\u00f0 gildir ekki s\u00ed\u00f0ur um texta \u00far \u00f3formlegu m\u00e1li samf\u00e9lagsmi\u00f0la og s\u00fdnir a\u00f0 stigbreytingin fellur yfirleitt ekki a\u00f0 m\u00e1lkennd m\u00e1lnotenda. M\u00e9r finnst \u00fev\u00ed engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 \u00fdta undir hana e\u00f0a m\u00e6la me\u00f0 henni \u00fe\u00f3tt vissulega k\u00e6mi s\u00e9r oft vel a\u00f0 geta stigbreytt <em>hissa<\/em>.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd innleggi h\u00e9r \u00ed dag sag\u00f0ist h\u00f3pverji hafa rekist \u00e1 mi\u00f0stigi\u00f0 hissari \u00ed \u00fe\u00fdddum reyfara, og fundi\u00f0 nokkur d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 \u00ed Ritm\u00e1lssafni \u00c1rnastofnunar, m.a. fr\u00e1 Halld\u00f3ri Laxness. L\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 hissa \u00e1 \u00fea\u00f0 annars venjulega sameiginlegt me\u00f0 \u00f6\u00f0rum l\u00fdsingaror\u00f0um sem enda \u00e1 -a a\u00f0 koma a\u00f0eins fyrir \u00ed einni mynd \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 stigbreytast og [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6909","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6909","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6909"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6909\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6910,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6909\/revisions\/6910"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6909"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6909"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6909"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}