{"id":6953,"date":"2024-10-20T17:05:59","date_gmt":"2024-10-20T17:05:59","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6953"},"modified":"2024-10-20T17:18:26","modified_gmt":"2024-10-20T17:18:26","slug":"vedurfregnir-og-jardarfarir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/10\/20\/vedurfregnir-og-jardarfarir\/","title":{"rendered":"\u201eVe\u00f0urfregnir og jar\u00f0arfarir\u201c"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e6ttinum \u201eKiljunni\u201c var \u00ed s\u00ed\u00f0ustu viku <a href=\"https:\/\/www.ruv.is\/sjonvarp\/spila\/kiljan\/37024\/b12qg3\/vedurfregnir-og-jardarfarir-mao-alheimsdottir\">r\u00e6tt vi\u00f0<\/a> sk\u00e1ldkonuna Ma\u00f3 Alheimsd\u00f3ttur sem er upprunnin \u00ed P\u00f3llandi en b\u00fdr \u00e1 \u00cdslandi. H\u00fan er n\u00fa a\u00f0 gefa \u00fat sk\u00e1lds\u00f6gu og <a href=\"https:\/\/www.ruv.is\/frettir\/menning-og-daegurmal\/2024-10-20-askorun-ad-skrifa-a-tungumali-sem-er-ekki-manns-eigid-eg-skrifa-islensku-eins-og-eg-skynja-hana-424870\">segir<\/a> a\u00f0 ekki hafi anna\u00f0 komi\u00f0 til greina en skrifa \u00e1 \u00edslensku: \u201e\u00c9g tileinka\u00f0i m\u00e9r hana og nota hana eftir m\u00ednu h\u00f6f\u00f0i. \u00c9g skrifa \u00edslensku eins og \u00e9g skynja hana. \u00c9g veit ekki alltaf hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 r\u00e9tt en \u00e9g ger\u00f0i \u00feetta eins og \u00e9g finn fyrir tungum\u00e1linu.\u201c \u00deegar b\u00f3kin er lesin m\u00e1 vissulega finna sitthva\u00f0 sem ekki er \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 venjulega \u00edslenska m\u00e1lnotkun og m\u00e1lhef\u00f0. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir samt ekki a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 rangt e\u00f0a \u00e1st\u00e6\u00f0a hef\u00f0i veri\u00f0 til a\u00f0 breyta \u00fev\u00ed, eins og \u00e9g komst a\u00f0 \u00feegar \u00e9g sko\u00f0a\u00f0i \u00ferj\u00fa d\u00e6mi af \u00feessu tagi \u2013 <em>a\u00f0 gr\u00e1ta l\u00e1gum st\u00f6fum<\/em>, <em>a\u00f0 koma augum \u00e1<\/em> og <em>a\u00f0 brj\u00f3ta \u00fe\u00f6gnina<\/em>.<\/p>\n<p>A\u00f0 <em>gr\u00e1ta <strong>l\u00e1gum<\/strong> st\u00f6fum<\/em>. Or\u00f0myndin <em>h\u00e1st\u00f6fum <\/em>\u00ed sambandinu <em>gr\u00e1ta h\u00e1st\u00f6fum<\/em> \u2013 og einnig me\u00f0 s\u00f6gnum eins og <em>hlj\u00f3\u00f0a<\/em>,<em> hr\u00f3pa<\/em>,<em> kalla<\/em>, <em>kveina<\/em>,<em> \u00e6pa <\/em>o.fl. \u2013 er vitanlega g\u00f6mul \u00ed m\u00e1linu og vel \u00feekkt, og til eru d\u00e6mi um <em>h\u00e1um st\u00f6fum <\/em>\u00ed s\u00f6mu merkingu. \u00cd <em>Dagskr\u00e1 <\/em>1897 segir: \u201e\u00fea\u00f0 jafnrjetti [\u2026] sem franska byltingin milda kunngj\u00f6r\u00f0i svo h\u00e1um st\u00f6fum um s\u00ed\u00f0ustu aldam\u00f3t.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1930 segir: \u201e\u00dea\u00f0 er erfitt, \u00feegar annar lastar \u00fea\u00f0 ni\u00f0ur fyrir allar hellur, sem hinn lofar h\u00e1um st\u00f6fum.\u201c Hins vegar eru engin d\u00e6mi um a\u00f0 *<em>gr\u00e1ta l\u00e1gst\u00f6fum <\/em>e\u00f0a *<em>gr\u00e1ta l\u00e1gum st\u00f6fum<\/em>. En \u00fe\u00f3tt ekki s\u00e9 hef\u00f0 fyrir \u00feeim samb\u00f6ndum er <em>gr\u00e1ta l\u00e1gum st\u00f6fum<\/em> sem kemur fyrir \u00ed b\u00f3k Ma\u00f3 vitanlega au\u00f0skili\u00f0 \u2013 og alveg r\u00f6kr\u00e9tt \u2013 \u00fat fr\u00e1 <em>gr\u00e1ta h\u00e1st\u00f6fum<\/em>.<\/p>\n<p>A\u00f0 <em>koma <strong>augum<\/strong> \u00e1<\/em>. Sambandi\u00f0 <em>koma auga \u00e1 <\/em>er einnig gamalt \u00ed m\u00e1linu og mj\u00f6g algengt \u2013 d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em> skipta tugum \u00fe\u00fasunda. \u00dear er eintalan <em>auga <\/em>langoftast notu\u00f0 \u00fe\u00f3tt f\u00e6ra megi r\u00f6k a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fleirtalan v\u00e6ri \u201er\u00f6kr\u00e9ttari\u201c \u2013 \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 sj\u00e1um \u00e1 anna\u00f0 bor\u00f0 sj\u00e1um vi\u00f0 oftast me\u00f0 b\u00e1\u00f0um augum en ekki bara \u00f6\u00f0ru. \u00dev\u00ed er ekkert undarlegt a\u00f0 Ma\u00f3 skuli tala um a\u00f0 <em>koma augum \u00e1<\/em> \u00ed b\u00f3k sinni og \u00fea\u00f0 \u00e1 s\u00e9r reyndar \u00fdmis ford\u00e6mi, \u00fea\u00f0 elsta \u201eEf mey \u00fe\u00fa kemur augum \u00e1 \/ um aptanstund\u201c \u00ed kv\u00e6\u00f0i eftir Bj\u00f6rn M. \u00d3lsen \u00ed <em>Nor\u00f0anfara <\/em>1877. \u00cd <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum <\/em>1967 segir: \u201e\u00c9g hama\u00f0ist vi\u00f0 a\u00f0 koma augum \u00e1 alla \u00feessa kr\u00f6m og ney\u00f0.\u201c \u00cd <em>Austra <\/em>1999 segir: \u201e\u00deau eru nefnilega alltaf \u00ed felulitunum og ekki alltaf gott a\u00f0 koma augum \u00e1 \u00feau.\u201c<\/p>\n<p>A\u00f0 <strong><em>brj\u00f3ta<\/em><\/strong><em> \u00fe\u00f6gnina<\/em>. \u00cd \u00edslensku er tala\u00f0 um a\u00f0 <em>rj\u00fafa \u00fe\u00f6gn <\/em>\u2013 \u00fea\u00f0 samband hefur t\u00ed\u00f0kast a.m.k. s\u00ed\u00f0an \u00e1 n\u00edtj\u00e1ndu \u00f6ld en ekki ver\u00f0ur s\u00e9\u00f0 a\u00f0 neitt \u00f3r\u00f6kr\u00e9ttara s\u00e9 a\u00f0 tala um a\u00f0 <em>brj\u00f3ta \u00fe\u00f6gn <\/em>\u00ed s\u00f6mu merkingu eins og gert er \u00ed b\u00f3k Ma\u00f3. Vissulega g\u00e6ti \u00fea\u00f0 samband hlj\u00f3ma\u00f0 eins og bein yfirf\u00e6rsla \u00far <em>break silence <\/em>\u00ed ensku \u2013 og er \u00fea\u00f0 kannski upphaflega, en \u00fdmis g\u00f6mul d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 m\u00e1 samt finna, ekki \u00f6ll \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingum \u00far ensku. \u00cd <em>Nor\u00f0anfara <\/em>1875 segir: \u201eekki nema einstaka fugl \u00feor\u00f0i a\u00f0 brj\u00f3ta \u00fe\u00f6gnina syndandi \u00ed himinbl\u00e1manum.\u201c \u00cd <em>Nor\u00f0urlj\u00f3sinu <\/em>1888 segir: \u201eHann efast um, hvort hann hafi veri\u00f0 heppinn \u00ed \u00fev\u00ed, a\u00f0 brj\u00f3ta \u00fe\u00f6gnina um verzlunina \u00e1 H\u00fasav\u00edk.\u201c Auk \u00feess er algengt a\u00f0 tala um a\u00f0 <em>brj\u00f3ta \u00feagnarm\u00farinn<\/em> \u00fe\u00f3tt <em>rj\u00fafa \u00feagnarm\u00farinn <\/em>s\u00e9 algengara.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt m\u00e1lnotkunin \u00ed \u00feessum \u00feremur d\u00e6mum s\u00e9 ekki \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 m\u00e1lhef\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 fr\u00e1leitt a\u00f0 \u201elei\u00f0r\u00e9tta\u201c hana \u2013 h\u00fan er fullkomlega r\u00f6kr\u00e9tt og \u00e1 s\u00e9r a\u00f0 auki bein e\u00f0a \u00f3bein ford\u00e6mi \u00ed eldri textum. Vissulega er samt \u00fdmislegt anna\u00f0 \u00ed b\u00f3k Ma\u00f3 sem v\u00edkur fr\u00e1 m\u00e1lhef\u00f0 og sumu hef\u00f0i \u00e9g kannski breytt ef \u00e9g hef\u00f0i veri\u00f0 \u00ed hlutverki yfirlesara \u2013 en \u00fea\u00f0 hef\u00f0i ekki veri\u00f0 r\u00e9tt. Vi\u00f0 eigum a\u00f0 fagna \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk sem ekki \u00e1 \u00edslensku a\u00f0 m\u00f3\u00f0urm\u00e1li skuli vilja nota m\u00e1li\u00f0 til listr\u00e6nnar sk\u00f6punar, og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 \u00e1 \u00feann h\u00e1tt sem \u00fea\u00f0 k\u00fds \u2013 ver\u00f0ur a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 eignast hlut \u00ed \u00edslenskunni. Eins og d\u00e6min h\u00e9r a\u00f0 framan s\u00fdna getur \u00f3hef\u00f0bundin m\u00e1lnotkun \u00feess i\u00f0ulega s\u00fdnt okkur \u00edslenskuna \u00ed n\u00fdju lj\u00f3si og vaki\u00f0 okkur til umhugsunar um fj\u00f6lbreytileik m\u00e1lsins.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e6ttinum \u201eKiljunni\u201c var \u00ed s\u00ed\u00f0ustu viku r\u00e6tt vi\u00f0 sk\u00e1ldkonuna Ma\u00f3 Alheimsd\u00f3ttur sem er upprunnin \u00ed P\u00f3llandi en b\u00fdr \u00e1 \u00cdslandi. H\u00fan er n\u00fa a\u00f0 gefa \u00fat sk\u00e1lds\u00f6gu og segir a\u00f0 ekki hafi anna\u00f0 komi\u00f0 til greina en skrifa \u00e1 \u00edslensku: \u201e\u00c9g tileinka\u00f0i m\u00e9r hana og nota hana eftir m\u00ednu h\u00f6f\u00f0i. \u00c9g skrifa \u00edslensku eins [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6953","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6953","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6953"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6953\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6956,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6953\/revisions\/6956"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6953"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6953"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6953"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}