{"id":6985,"date":"2024-10-24T12:39:48","date_gmt":"2024-10-24T12:39:48","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=6985"},"modified":"2024-10-24T12:43:36","modified_gmt":"2024-10-24T12:43:36","slug":"agusti-vantar-gummistigvel","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/10\/24\/agusti-vantar-gummistigvel\/","title":{"rendered":"\u201e\u00c1g\u00fasti vantar g\u00famm\u00edst\u00edgv\u00e9l\u201c"},"content":{"rendered":"<p>Vefverslunin <em>Boozt.com <\/em>f\u00f3r a\u00f0 augl\u00fdsa v\u00f6rur s\u00ednar \u00e1 \u00cdslandi fyrir f\u00e1um \u00e1rum og framan af eing\u00f6ngu \u00e1 ensku, e.t.v. a\u00f0 vi\u00f0b\u00e6ttu einu \u00edslensku or\u00f0i e\u00f0a tveimur. \u00c9g <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/groups\/malspjall\/posts\/986223519438387\">skrifa\u00f0i<\/a> oft um \u00feetta h\u00e9r fyrir tveimur \u00e1rum og <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/groups\/malspjall\/posts\/974501680610571\/\">kvarta\u00f0i<\/a> \u00ferisvar yfir \u00fev\u00ed til Neytendastofu sem \u00e1 a\u00f0 hafa eftirlit me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 <em><a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/2005057.html\">L\u00f6gum um eftirlit me\u00f0 vi\u00f0skiptah\u00e1ttum og marka\u00f0ssetningu<\/a> <\/em>s\u00e9 framfylgt, m.a. \u00e1kv\u00e6\u00f0inu \u201eAugl\u00fdsingar sem h\u00f6f\u00f0a eiga til \u00edslenskra neytenda skulu vera \u00e1 \u00edslensku\u201c. \u00c9g <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2022\/08\/26\/bref-til-fjolmidla-um-auglysingar-a-ensku\/\">skrifa\u00f0i<\/a> einnig ritstj\u00f3rum fj\u00f6lmi\u00f0la sem birtu \u00feessar augl\u00fdsingar og benti \u00e1 \u00e1byrg\u00f0 fj\u00f6lmi\u00f0la \u00ed \u00feessu efni. \u00c9g veit ekki hvort \u00feessar kvartanir og \u00feessi skrif h\u00f6f\u00f0u einhver \u00e1hrif, en nokku\u00f0 er \u00fea\u00f0 a\u00f0 sk\u00f6mmu eftir \u00feetta f\u00f3r verslunin a\u00f0 augl\u00fdsa \u00e1 \u00edslensku a\u00f0 mestu leyti og hefur gert \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0an, a\u00f0 \u00e9g held.<\/p>\n<p>N\u00fa ber hins vegar svo vi\u00f0 a\u00f0 <em>Boozt <\/em>birtir augl\u00fdsingu sem vekur mun meiri neikv\u00e6\u00f0 vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 en augl\u00fdsingar \u00e1 ensku ger\u00f0u nokkurn t\u00edma, \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 vera \u00e1 \u00edslensku, vegna \u00feess eins a\u00f0 \u00ed henni kemur fyrir setningin \u201e\u00c1g\u00fasti vantar g\u00famm\u00edst\u00edgv\u00e9l\u201c. \u00dearna er komin hin hryllilega \u201e\u00fe\u00e1gufallss\u00fdki\u201c sem bari\u00f0 hefur veri\u00f0 inn \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0ina \u00e1ratugum saman a\u00f0 s\u00e9u einhver verstu m\u00e1lspj\u00f6ll sem h\u00e6gt er a\u00f0 hugsa s\u00e9r. F\u00f3lk <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/groups\/1395992847329077\/posts\/3723175277944144\/\">heitir \u00fev\u00ed<\/a> a\u00f0 versla aldrei vi\u00f0 <em>Boozt <\/em>vegna \u00feessa og segir \u201evekur fur\u00f0u a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 ekki lei\u00f0r\u00e9tt\u201c, \u201e\u00f3sk\u00f6p aumkunarvert a\u00f0 heyra\u201c, \u201e\u00f3\u00feolandi \u00fe\u00e1gufallss\u00fdki\u201c, \u201eskelfilegt a\u00f0 hlusta \u00e1 \u00feetta\u201c, \u201em\u00e9r ver\u00f0ur illt\u201c, \u201egu\u00f0 minn g\u00f3\u00f0ur\u201c, \u201ef\u00e1r\u00e1\u00f0ar eru v\u00edst illa a\u00f0 s\u00e9r\u201c, \u201etek andk\u00f6f \u00ed hvert sinn\u201c, \u201e\u00f3skiljanlegt, af hverju er \u00feetta leyft?\u201c \u2013 o.s.frv.<\/p>\n<p>\u00deetta er a\u00f0eins l\u00edti\u00f0 brot af athugasemdum vi\u00f0 \u00e1\u00f0urnefnda setningu \u00far h\u00f3punum <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/groups\/20515436122\/posts\/10160080412516123\/\">Skemmtileg \u00edslensk or\u00f0<\/a> og <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/groups\/1395992847329077\/posts\/3722799151315090\">M\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e1tturinn<\/a> og vi\u00f0 innlegg um setninguna hafa veri\u00f0 skrifa\u00f0ar h\u00e1tt \u00ed tv\u00f6 hundru\u00f0 athugasemdir sem langflestar taka undir hneykslunina \u00ed upphafsinnleggjunum. \u00c9g fann hins vegar ekki nema eitt d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 \u00ed \u00feessum h\u00f3pum a\u00f0 vakin hef\u00f0i veri\u00f0 athygli \u00e1 augl\u00fdsingum <em>Boozt <\/em>\u00e1 ensku \u00e1 s\u00ednum t\u00edma, og s\u00e1raf\u00e1 umm\u00e6li voru um \u00fea\u00f0 innlegg \u2013 f\u00f3lki\u00f0 sem n\u00fa hneykslast sem mest \u00feag\u00f0i \u00feunnu hlj\u00f3\u00f0i. \u00dea\u00f0 m\u00e6tti \u00e6tla a\u00f0 f\u00f3lk hugsa\u00f0i svipa\u00f0 og h\u00f6fundur <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/2757435?iabr=on#page\/n3\/mode\/1up\/\">lesendabr\u00e9fs<\/a> \u00ed <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum <\/em>1950: \u201eEn \u00fe\u00f3 lei\u00f0inlegt s\u00e9, a\u00f0 daglegt m\u00e1l s\u00e9 menga\u00f0 \u00fatlendum or\u00f0um, me\u00f0 meira og minna r\u00f6ngum frambur\u00f0i, er \u00fea\u00f0 illsk\u00e1rra en \u00fe\u00e1gufallss\u00fdki og fl\u00e1m\u00e6li.\u201c<\/p>\n<p>M\u00e9r finnst \u00feetta vera einkar sk\u00fdrt en jafnframt dapurlegt d\u00e6mi um \u00fe\u00e6r villig\u00f6tur sem umhyggja fyrir \u00edslensku m\u00e1li lei\u00f0ist oft \u00fat \u00e1. \u00dea\u00f0 er engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 \u00e6tla anna\u00f0 en flest \u00feeirra sem leggja \u00fearna or\u00f0 \u00ed belg beri hag tungunnar fyrir brj\u00f3sti, en hneykslun og ford\u00e6ming er ekki til \u00feess fallin a\u00f0 efla \u00edslenskuna e\u00f0a vekja j\u00e1kv\u00e6\u00f0ar tilfinningar \u00ed gar\u00f0 hennar. Vi\u00f0 \u00fea\u00f0 b\u00e6tist a\u00f0 \u00fearna er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a einstaklega l\u00edtilfj\u00f6rlegt atri\u00f0i sem skiptir \u00ed raun engu m\u00e1li \u2013 hefur engin \u00e1hrif \u00e1 m\u00e1lkerfi\u00f0 og skiptir engu fyrir framt\u00ed\u00f0 \u00edslenskunnar e\u00f0a samhengi\u00f0 \u00ed \u00edslensku m\u00e1li. B\u00e6\u00f0i frumlags- og andlagsfall mikils fj\u00f6lda sagna hefur breyst \u00e1 undanf\u00f6rnum \u00f6ldum \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 trufli okkur nokku\u00f0 og oftast \u00e1n \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 vitum af \u00fev\u00ed e\u00f0a t\u00f6kum eftir \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p>En af einhverjum \u00e1st\u00e6\u00f0um hefur hin svokalla\u00f0a \u201e\u00fe\u00e1gufallss\u00fdki\u201c or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/10\/12\/thad-er-ekkert-til-sem-heitir-thagufallssyki\/\">t\u00e1kni hins illa<\/a> \u00ed huga \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u2013 e.t.v. a\u00f0 hluta til vegna sj\u00fakd\u00f3msv\u00e6\u00f0ingarinnar sem felst \u00ed heitinu sem festist vi\u00f0 \u00feessa sm\u00e1v\u00e6gilegu breytingu sem brei\u00f0ist sm\u00e1m saman \u00fat \u00fer\u00e1tt fyrir \u00e1ratuga bar\u00e1ttu gegn henni og er n\u00fa e\u00f0lilegt m\u00e1l talsver\u00f0s hluta \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. \u201e\u00de\u00e1gufallss\u00fdki\u201c hefur i\u00f0ulega veri\u00f0 notu\u00f0 til a\u00f0 gera l\u00edti\u00f0 \u00far f\u00f3lki og ni\u00f0url\u00e6gja \u00fea\u00f0 \u00e1 \u00fdmsan h\u00e1tt \u2013 ef \u00fei\u00f0 efist um \u00fea\u00f0 skulu\u00f0 \u00fei\u00f0<a href=\"https:\/\/timarit.is\/?q=%C3%BE%C3%A1gufallss%C3%BDki&amp;size=100&amp;isBeygingar=on&amp;isAdvanced=false&amp;sort=date\"> leita a\u00f0 \u201e\u00fe\u00e1gufallss\u00fdki\u201c<\/a> \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em>. \u00dea\u00f0 er lj\u00f3tt og vont \u2013 b\u00e6\u00f0i fyrir f\u00f3lki\u00f0 sem \u00e1 \u00ed hlut en ekki s\u00ed\u00f0ur fyrir \u00edslenskuna. \u00c9g treysti \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00c1g\u00fasti veri\u00f0 \u00fatvegu\u00f0 g\u00famm\u00edst\u00edgv\u00e9l \u00e1 n\u00e6stunni, en a\u00f0alatri\u00f0i\u00f0 er a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0inni h\u00e6tti a\u00f0 skorta umbur\u00f0arlyndi gagnvart tilbrig\u00f0um \u00ed m\u00e1li.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Vefverslunin Boozt.com f\u00f3r a\u00f0 augl\u00fdsa v\u00f6rur s\u00ednar \u00e1 \u00cdslandi fyrir f\u00e1um \u00e1rum og framan af eing\u00f6ngu \u00e1 ensku, e.t.v. a\u00f0 vi\u00f0b\u00e6ttu einu \u00edslensku or\u00f0i e\u00f0a tveimur. \u00c9g skrifa\u00f0i oft um \u00feetta h\u00e9r fyrir tveimur \u00e1rum og kvarta\u00f0i \u00ferisvar yfir \u00fev\u00ed til Neytendastofu sem \u00e1 a\u00f0 hafa eftirlit me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 L\u00f6gum um eftirlit me\u00f0 vi\u00f0skiptah\u00e1ttum [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-6985","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6985","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6985"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6985\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6987,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6985\/revisions\/6987"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6985"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6985"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6985"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}