{"id":7005,"date":"2024-10-28T17:39:02","date_gmt":"2024-10-28T17:39:02","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7005"},"modified":"2024-10-28T18:08:19","modified_gmt":"2024-10-28T18:08:19","slug":"nyyrdi-i-stad-tokuords-skriddreki","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/10\/28\/nyyrdi-i-stad-tokuords-skriddreki\/","title":{"rendered":"N\u00fdyr\u00f0i \u00ed sta\u00f0 t\u00f6kuor\u00f0s: skri\u00f0dreki"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g skrifa\u00f0i h\u00e9r fyrr \u00ed dag um t\u00f6kuor\u00f0i\u00f0 <em>tank <\/em>sem \u00ed <em>\u00cdslenskri or\u00f0sifjab\u00f3k <\/em>er <a href=\"https:\/\/ordsifjabok.arnastofnun.is\/faersla\/20246\">tali\u00f0<\/a> komi\u00f0 \u00far ensku en l\u00edklega \u00ed gegnum d\u00f6nsku. En \u00ed ensku hefur or\u00f0i\u00f0 ekki bara <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/41206\">merkinguna<\/a> 'st\u00f3rt loka\u00f0 \u00edl\u00e1t undir v\u00f6kva' eins og \u00ed \u00edslensku, heldur l\u00edka merkinguna 'skri\u00f0dreki'. S\u00fa merking or\u00f0sins er mun yngri, fr\u00e1 1916, en runnin fr\u00e1 hinni merkingunni \u2013 hvernig \u00fea\u00f0 ger\u00f0ist er \u00e1hugaver\u00f0 saga sem ekki \u00e1 heima h\u00e9r en er rakin \u00ed <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/4233484?iabr=on#page\/n43\/mode\/2up\/\">greininni<\/a> \u201eSkri\u00f0drekar. Hvernig \u201etankarnir\u201c hluti s\u00edna nafngift\u201c \u00ed <em>Sj\u00f3mannabla\u00f0inu V\u00edkingi<\/em> 1959. En \u00ed fyrstu var or\u00f0i\u00f0 l\u00edka nota\u00f0 \u00ed \u00feessari merkingu \u00ed \u00edslensku og elstu d\u00e6mi \u00ed m\u00e1linu um b\u00e1\u00f0ar merkingar eru jafng\u00f6mul. \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1916 segir: \u201eJ\u00f6r\u00f0in er sem eitt forarfen, og jafnvel \u201etank\u201c-bifrei\u00f0arnar hafa ekki geta\u00f0 a\u00f0hafst neitt verulegt.\u201c<\/p>\n<p>Or\u00f0i\u00f0 <em>tank <\/em>var oft nota\u00f0 \u00ed \u00feessari merkingu \u00ed \u00edslenskum bl\u00f6\u00f0um \u2013 framan af gjarna innan g\u00e6salappa. \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1917 segir: \u201eHollendingar eru n\u00fa farnir a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a s\u00e9r brynvar\u00f0ar bifrei\u00f0ar eftir fyrirmynd brezku \u201etankanna\u201c og \u201eSegir \u00ed erlendum bl\u00f6\u00f0um a\u00f0 tankarnir hafi or\u00f0i\u00f0 Bretum a\u00f0 \u00f3metanlegu gagni. \u00dej\u00f3\u00f0verjar hafi allssta\u00f0ar hlaupist \u00e1 brott, er \u00feeir s\u00e1u tankana koma.\u201c (\u00cd s\u00f6mu fr\u00e9tt er \u00fe\u00f3 notu\u00f0 ensk fleirt\u00f6lumynd: \u201e\u00de\u00e1 \u00f3ku 12 tanks af sta\u00f0 \u00far herb\u00fa\u00f0um Breta.\u201c) \u00cd <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu <\/em>1920 segir: \u201eTankar nota\u00f0ir til a\u00f0 moka snj\u00f3 af vegum. Hinar \u00e6gilegu v\u00edgv\u00e9lar tankarnir eru n\u00fa nota\u00f0ir til fri\u00f0samlegri vinnu \u00ed Frakklandi en \u00ed str\u00ed\u00f0inu.\u201c \u00cd <em>V\u00edsi <\/em>1929 segir: \u201eH\u00f6f\u00f0u \u00feeir \u00fe\u00e1 flutt austur eftir flugv\u00e9lar, tanka og \u00f6nnur n\u00fdt\u00edsku herna\u00f0art\u00e6ki.\u201c<\/p>\n<p>En flj\u00f3tlega f\u00f3ru a\u00f0 koma fram \u00fdmsar \u00edslenskar samsvaranir. \u00cd <em>Heimskringlu <\/em>1917 segir: \u201eBretar hafa skri\u00f0dreka s\u00edna hina st\u00f3ru \u2013 tanks \u2013 sem ekkert hefur unni\u00f0 \u00e1 enn \u00fe\u00e1.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1917 segir: \u201e\u00cd orustum [\u2026] seinni hluta sumarsins, hafa Bretar \u00f3spart teflt fram hinum miklu \u201ebryndrekum\u201c, \u201ethe tanks\u201c.\u201c \u00cd <em>Heimskringlu <\/em>1918 segir: \u201eKaled\u00edn foringja hefur veri\u00f0 l\u00edkt vi\u00f0 brynrei\u00f0 (tank). \u00cd <em>V\u00edsi <\/em>1918 segir: \u201eLandbryndrekinn \u201eThe Tank\u201c veltir s\u00e9r \u00e1fram yfir skotgrafir.\u201c \u00cd <em>Vestra <\/em>1918 segir: \u201eNokkrum metrum handar situr enskur brynbar\u00f0i (tank) fastur.\u201c \u00cd <em>Heimskringlu <\/em>1927 segir: \u201eflugv\u00e9lin, gasi\u00f0, j\u00e1rndrekinn, sem kalla\u00f0ur er \u201ctank\u201d og ne\u00f0ansj\u00e1varb\u00e1turinn.\u201c \u00cd <em>Lesb\u00f3k Morgunbla\u00f0sins <\/em>1931 segir: \u201eN\u00fdjasti landdrekinn (tank).\u201c<\/p>\n<p>\u00dearna eru \u00fdmis \u00e1g\u00e6t or\u00f0 \u2013 <em><a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/7214\">bryndreki<\/a><\/em>, <em><a href=\"https:\/\/ritmalssafn.arnastofnun.is\/daemi\/56441\">brynbar\u00f0i<\/a><\/em> (b\u00e6\u00f0i or\u00f0in voru fyrir \u00ed m\u00e1linu \u00ed merkingunni 'brynvari\u00f0 herskip'), <em>landbryndreki<\/em>, <em><a href=\"https:\/\/ritmalssafn.arnastofnun.is\/daemi\/56520\">brynrei\u00f0<\/a> <\/em>(sem <a href=\"https:\/\/onp.ku.dk\/onp\/onp.php?o11790\">kemur fyrir<\/a> \u00ed fornu m\u00e1li), <em>j\u00e1rndreki<\/em>, <em>landdreki<\/em> \u2013 en elsta or\u00f0i\u00f0, <em>skri\u00f0dreki<\/em>, er \u00fea\u00f0 eina sem hefur lifa\u00f0, enda mj\u00f6g l\u00fdsandi or\u00f0. \u00dea\u00f0 er \u00e1hugavert hvernig \u00f6rl\u00f6g or\u00f0sins <em>tank <\/em>sem kom inn \u00ed m\u00e1li\u00f0 \u00ed tveimur merkingum \u00e1 sama t\u00edma hafa or\u00f0i\u00f0 mismunandi eftir merkingu. \u00cd annarri merkingunni helst or\u00f0i\u00f0 sem t\u00f6kuor\u00f0 og a\u00f0lagast hlj\u00f3\u00f0- og beygingakerfi m\u00e1lsins me\u00f0 t\u00edmanum, en fyrir hina merkinguna eru b\u00fain til \u00fdmis n\u00fdyr\u00f0i (e\u00f0a n\u00fdmerkingar) sem eru notu\u00f0 j\u00f6fnum h\u00f6ndum fyrstu \u00e1rin en flj\u00f3tlega \u2013 \u00feegar um 1930 \u2013 vinnur eitt \u00feeirra afgerandi sigur. En b\u00e6\u00f0i t\u00f6kuor\u00f0i\u00f0 og n\u00fdyr\u00f0i\u00f0 eru \u00e1g\u00e6tis or\u00f0.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r e\u00f0lilegt \u2013 og heppilegt \u2013 a\u00f0 mismunandi or\u00f0 skulu hafa veri\u00f0 valin fyrir mismunandi merkingar t\u00f6kuor\u00f0sins <em>tank<\/em>. Hins vegar m\u00e1 spyrja hvers vegna or\u00f0i\u00f0 hafi haldi\u00f0 s\u00e9r \u00ed merkingunni 'st\u00f3rt loka\u00f0 \u00edl\u00e1t undir v\u00f6kva' en n\u00fdtt or\u00f0 \u2013 e\u00f0a n\u00fd or\u00f0 \u2013 komi\u00f0 \u00ed sta\u00f0inn \u00ed merkingunni \u201a'brynvari\u00f0 \u00f6kut\u00e6ki \u00e1 skri\u00f0beltum, b\u00fai\u00f0 til herna\u00f0ar me\u00f0 \u00f6flugum byssum' eins og or\u00f0i\u00f0 er <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/37084\">sk\u00fdrt<\/a> \u00ed <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k<\/em>. Hugsanlega hefur \u00fea\u00f0 haft \u00e1hrif a\u00f0 danska nota\u00f0i ekki <em>tank <\/em>\u00ed \u00feessari merkingu en danska or\u00f0i\u00f0, <em>kampvogn<\/em>, er \u00fe\u00f3 \u00f3skylt \u00fev\u00ed \u00edslenska. \u00cd enskri b\u00f3k fr\u00e1 1919 um uppruna skri\u00f0dreka \u00fear sem enska heiti\u00f0 <em>tank<\/em> er sk\u00fdrt <a href=\"https:\/\/archive.org\/details\/tankslogbookofpi00ster\/page\/39\/mode\/1up\">segir<\/a> reyndar \u201ethe name has now been adopted by all countries in the world\u201c sem er auglj\u00f3slega ekki r\u00e9tt.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g skrifa\u00f0i h\u00e9r fyrr \u00ed dag um t\u00f6kuor\u00f0i\u00f0 tank sem \u00ed \u00cdslenskri or\u00f0sifjab\u00f3k er tali\u00f0 komi\u00f0 \u00far ensku en l\u00edklega \u00ed gegnum d\u00f6nsku. En \u00ed ensku hefur or\u00f0i\u00f0 ekki bara merkinguna 'st\u00f3rt loka\u00f0 \u00edl\u00e1t undir v\u00f6kva' eins og \u00ed \u00edslensku, heldur l\u00edka merkinguna 'skri\u00f0dreki'. S\u00fa merking or\u00f0sins er mun yngri, fr\u00e1 1916, en runnin fr\u00e1 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7005","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7005","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7005"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7005\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7008,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7005\/revisions\/7008"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7005"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7005"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7005"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}