{"id":7016,"date":"2024-10-30T13:20:04","date_gmt":"2024-10-30T13:20:04","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7016"},"modified":"2024-10-30T13:20:04","modified_gmt":"2024-10-30T13:20:04","slug":"messing-latun-og-brass","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/10\/30\/messing-latun-og-brass\/","title":{"rendered":"Messing, l\u00e1t\u00fan \u2013 og brass"},"content":{"rendered":"<p>\u00c1 <em>mbl.is<\/em> s\u00e1 \u00e9g \u00ed morgun <a href=\"https:\/\/www.mbl.is\/smartland\/heimili\/2024\/10\/30\/stal_tekur_vid_af_brassi_a_heimilum\/\">fyrirs\u00f6gnina<\/a> \u201eSt\u00e1l tekur vi\u00f0 af brassi \u00e1 heimilum\u201c og \u00ed fr\u00e9ttinni sag\u00f0i: \u201e\u00de\u00f3 a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 klass\u00edskt efni \u00fe\u00e1 hefur \u00fea\u00f0 undanfarin \u00e1r viki\u00f0 fyrir gull- og brasslitu.\u201c \u00c9g minnist \u00feess ekki a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 or\u00f0in <em>brass <\/em>og <em>brasslitur <\/em>\u00e1\u00f0ur \u00ed \u00feessari merkingu og \u00feau er ekki a\u00f0 finna \u00ed \u00edslenskum or\u00f0ab\u00f3kum en \u00e9g \u00fe\u00f3ttist \u00fe\u00f3 sj\u00e1 a\u00f0 \u00fearna v\u00e6ri um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a enska or\u00f0i\u00f0 <em>brass<\/em> sem er sk\u00fdrt 'messing' e\u00f0a 'l\u00e1t\u00fan' \u00ed ensk-\u00edslenskum or\u00f0ab\u00f3kum og <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/67057\">er<\/a> 'm\u00e1lmblanda, blanda af kopar og sinki'. B\u00e6\u00f0i <em>messing <\/em>og<em> l\u00e1t\u00fan <\/em>eru t\u00f6kuor\u00f0 en g\u00f6mul \u00ed m\u00e1linu \u2013 \u00fea\u00f0 fyrrnefnda a.m.k. <a href=\"https:\/\/onp.ku.dk\/onp\/onp.php?o53929\">fr\u00e1 \u00fev\u00ed um mi\u00f0ja \u00ferett\u00e1ndu \u00f6ld<\/a> en \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0arnefnda a.m.k. <a href=\"https:\/\/onp.ku.dk\/onp\/onp.php?o48091\">fr\u00e1 \u00fev\u00ed um 1400<\/a>. \u00deau hafa b\u00e6\u00f0i lengi veri\u00f0 algeng \u00ed m\u00e1linu \u2013 \u00e1 <em>t\u00edmarit.is <\/em>eru r\u00fam 4.300 um <em>messing<\/em> en r\u00fam 3.100 d\u00e6mi um <em>l\u00e1t\u00fan<\/em>.<\/p>\n<p>Or\u00f0i\u00f0 <em>brass <\/em>og samsetningar af \u00fev\u00ed hefur reyndar veri\u00f0 algengt \u00ed m\u00e1linu lengi \u00ed tengslum vi\u00f0 hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri og t\u00f3nlist \u2013 <em>brassband<\/em>, <em>brasshlj\u00f3msveit<\/em>, <em>brasshlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri<\/em>, <em>brasst\u00f3nlist<\/em>, <em>brasskvintett<\/em>, <em>brasst\u00f3nlistarma\u00f0ur<\/em> o.s.frv. Sumar \u00feessara samsetninga eins og <em>brassband<\/em> koma fyrir \u00ed vestur\u00edslensku bl\u00f6\u00f0unum fr\u00e1 \u00fev\u00ed fyrir 1900 (oftast \u00fe\u00e1 \u00ed tveimur or\u00f0um, <em>brass band<\/em>) en fara ekki a\u00f0 sj\u00e1st \u00ed bl\u00f6\u00f0um \u00e1 \u00cdslandi fyrr en um 1970 a\u00f0 \u00fev\u00ed er vir\u00f0ist. En \u00ed \u00f6\u00f0rum merkingum fer ekki a\u00f0 bera \u00e1 or\u00f0inu fyrr en fyrir 20 \u00e1rum e\u00f0a svo. \u00c1 <em>M\u00e1lefnin.com <\/em>2004 segir: \u201e\u00c9g [\u2026] p\u00fassa allt silfur og brass.\u201c D\u00e6mi \u00e1 <em>Bland.is <\/em>2005 bendir til \u00feess a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 s\u00e9 \u00fe\u00e1 ekki mj\u00f6g kunnuglegt \u00ed \u00feessari merkingu: \u201e\u00c9g held allavega a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 kalla\u00f0 brass, svona gullita\u00f0ur \u00feungur m\u00e1lmur.\u201c<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er ekki fyrr en eftir mi\u00f0jan s\u00ed\u00f0asta \u00e1ratug sem or\u00f0i\u00f0 <em>brass <\/em>og samsetningar af \u00fev\u00ed fara a\u00f0 sj\u00e1st \u00ed \u00feessari merkingu \u00ed prentmi\u00f0lum. \u00cd <em>Stundinni <\/em>2016 segir: \u201e\u00e9g f\u00e6 s\u00e9rstaka kl\u00edgju af g\u00f6mlum j\u00e1rnhn\u00edfap\u00f6rum, hn\u00edfap\u00f6rum \u00far burstu\u00f0u j\u00e1rni og \u00far brassi.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2017 segir: \u201eF\u00e6turnir \u00e1 bor\u00f0inu mega gjarnan vera me\u00f0 brass-\u00e1fer\u00f0 sem \u00feykir s\u00e9rlega falleg n\u00fana.\u201c \u00cd <em>Mannl\u00edfi <\/em>2019 segir: \u00cdb\u00fa\u00f0in er ansi v\u00f6ndu\u00f0 en \u00fear m\u00e6tast marmari, brass og vi\u00f0ur \u00e1 sjarmerandi h\u00e1tt.\u201c \u00c1 <em>mbl.is <\/em>2020 segir: \u201e\u00c9g hef alltaf veri\u00f0 meira fyrir silfur en gull en brassliturinn hefur veri\u00f0 a\u00f0 koma a\u00f0eins inn hj\u00e1 m\u00e9r \u00ed skreytingum.\u201c \u00cd <em>V\u00edsi <\/em>2021 segir: \u201e\u00deess vegna l\u00e1 efnisvali\u00f0 nokku\u00f0 auglj\u00f3st fyrir, \u00fear sem Nero Marquina marmari og bursta\u00f0 brass eru allsr\u00e1\u00f0andi.\u201c<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt b\u00e6\u00f0i <em>messing <\/em>og <em>l\u00e1t\u00fan <\/em>hafi lengi veri\u00f0 notu\u00f0 \u00ed \u00edslensku fellur hvorugt or\u00f0i\u00f0 s\u00e9rlega vel a\u00f0 m\u00e1linu. Fyrrnefnda or\u00f0i\u00f0 er venjulega haft \u00ed hvorugkyni en \u00edslensk hvorugkynsor\u00f0 enda yfirleitt ekki \u00e1 <em>-ing<\/em> \u2013 reyndar var \u00fea\u00f0 frekar haft \u00ed kvenkyni \u00e1\u00f0ur fyrr eins og s\u00e9st \u00ed <a href=\"https:\/\/ritmalssafn.arnastofnun.is\/daemi\/324559\">d\u00e6mum<\/a> \u00ed <em>Ritm\u00e1lssafni <\/em>Or\u00f0ab\u00f3kar H\u00e1sk\u00f3lans, svo sem \u201e\u00e1 milli \u00feeirra er brei\u00f0 messing, sem v\u00e9r nefnum l\u00e1t\u00fan\u201c \u00far <em>Reisub\u00f3k s\u00e9ra \u00d3lafs Egilssonar <\/em>fr\u00e1 mi\u00f0ri 17. \u00f6ld. Einnig eru d\u00e6mi um myndina <em>mersing<\/em>. S\u00ed\u00f0arnefnda or\u00f0i\u00f0 einnig er venjulega haft \u00ed hvorugkyni en karlkynsmyndin <em>l\u00e1t\u00fann <\/em><a href=\"https:\/\/onp.ku.dk\/onp\/onp.php?o48092\">kemur \u00fe\u00f3 fyrir<\/a> \u00ed fornu m\u00e1li. En tv\u00edkv\u00e6\u00f0ur stofn af \u00feessu tagi, \u00fear sem hvorugt atkv\u00e6\u00f0i\u00f0 e\u00f0a hlutann (<em>l\u00e1<\/em> e\u00f0a <em>t\u00fan<\/em>) er h\u00e6gt a\u00f0 tengja \u00f6\u00f0ru \u00edslensku or\u00f0i, ber greinilega me\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 vera t\u00f6kuor\u00f0.<\/p>\n<p>Aftur \u00e1 m\u00f3ti fellur hvorugkynsor\u00f0i\u00f0 <em>brass <\/em>\u00e1g\u00e6tlega a\u00f0 m\u00e1linu og r\u00edmar vi\u00f0 g\u00f6mul or\u00f0 eins og <em>hlass<\/em>, <em>kjass<\/em> og <em>skass <\/em>auk n\u00fdlegri t\u00f6kuor\u00f0a eins og <em>dass<\/em>, <em>hass<\/em>, <em>krass<\/em>, <em>pass<\/em>, <em>smass<\/em> o.fl. \u00dearna erum vi\u00f0 sem s\u00e9 me\u00f0 \u00ferj\u00fa t\u00f6kuor\u00f0 \u2013 tv\u00f6 g\u00f6mul sem bera erlendan uppruna me\u00f0 s\u00e9r, eitt n\u00fdlegt sem g\u00e6ti formsins vegna veri\u00f0 af norr\u00e6num uppruna. Vissulega er almennt s\u00e9\u00f0 \u00e6skilegt a\u00f0 halda sig vi\u00f0 \u00feau or\u00f0 sem lengi hafa veri\u00f0 notu\u00f0 \u00ed m\u00e1linu, en \u00e1 m\u00f3ti kemur a\u00f0 \u00fea\u00f0 er l\u00edka \u00e6skilegt a\u00f0 t\u00f6kuor\u00f0 falli vel a\u00f0 \u00feeim or\u00f0um sem eru fyrir \u00ed m\u00e1linu. Ef tekin hef\u00f0i veri\u00f0 me\u00f0vitu\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um a\u00f0 taka upp <em>brass <\/em>\u00ed sta\u00f0inn fyrir <em>messing <\/em>og <em>l\u00e1t\u00fan<\/em> fyndist m\u00e9r \u00fea\u00f0 ekki fr\u00e1leitt, en l\u00edklegra er samt a\u00f0 upptaka <em>brass <\/em>stafi af hugsunarlausri yfirf\u00e6rslu \u00far ensku.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1 mbl.is s\u00e1 \u00e9g \u00ed morgun fyrirs\u00f6gnina \u201eSt\u00e1l tekur vi\u00f0 af brassi \u00e1 heimilum\u201c og \u00ed fr\u00e9ttinni sag\u00f0i: \u201e\u00de\u00f3 a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 klass\u00edskt efni \u00fe\u00e1 hefur \u00fea\u00f0 undanfarin \u00e1r viki\u00f0 fyrir gull- og brasslitu.\u201c \u00c9g minnist \u00feess ekki a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 or\u00f0in brass og brasslitur \u00e1\u00f0ur \u00ed \u00feessari merkingu og \u00feau er ekki a\u00f0 finna [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7016","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7016","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7016"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7016\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7017,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7016\/revisions\/7017"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7016"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7016"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7016"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}