{"id":7130,"date":"2025-01-31T15:57:07","date_gmt":"2025-01-31T15:57:07","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7130"},"modified":"2025-01-31T15:57:07","modified_gmt":"2025-01-31T15:57:07","slug":"eirikur-vandar-smellibeitum-ekki-kvedjurnar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/01\/31\/eirikur-vandar-smellibeitum-ekki-kvedjurnar\/","title":{"rendered":"Eir\u00edkur vandar smellibeitum ekki kve\u00f0jurnar"},"content":{"rendered":"<p>Sumir \u00edslenskir vefmi\u00f0lar gera \u00fat \u00e1 smellibeitur \u2013 setja fram fyrirsagnir sem eru til \u00feess \u00e6tla\u00f0ar a\u00f0 f\u00e1 lesendur til a\u00f0 smella \u00e1 \u00fe\u00e6r og auka \u00feannig umfer\u00f0 um vefinn svo a\u00f0 hann ver\u00f0i f\u00fdsilegri fyrir augl\u00fdsendur. \u00cd \u00feessum fyrirs\u00f6gnum er oft gert mun meira en efni standa til \u00far sm\u00e1v\u00e6gilegum \u00e1greiningi e\u00f0a m\u00e1lefnalegri gagnr\u00fdni. \u00c9g \u00feekki \u00fea\u00f0 vel \u00fev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1lfur hef \u00e9g nokkrum sinnum n\u00fdst \u00feessum mi\u00f0lum, \u00ed fyrirs\u00f6gnum eins og \u201e<a href=\"https:\/\/www.hringbraut.is\/frettir-pistlar\/hiti-i-umraedum-um-skrifa-kolbrunar-eirikur-aefur-osmekklegt-og-ekki-fyndid\/\">Eir\u00edkur \u00e6fur<\/a>\u201c, \u201e<a href=\"https:\/\/www.hringbraut.is\/frettir-pistlar\/eirikur-skammar-noa-sirius-thetta-er-fyrirtaekinu-ekki-til-soma\/\">Eir\u00edkur skammar<\/a> \u2026\u201c, \u201e<a href=\"https:\/\/www.hringbraut.is\/frettir-pistlar\/eirikur-hirtir-islenskuserfraedinga-thad-er-rangt-og-thad-er-ljott\/\">Eir\u00edkur hirtir<\/a> \u2026\u201c, \u201e<a href=\"https:\/\/www.mannlif.is\/frettir\/eirikur-hudskammar-tha-sem-segja-freyju-ekki-geta-tekid-vid-fosturbarni\/\">Eir\u00edkur h\u00fa\u00f0skammar<\/a> \u2026\u201c, \u201e<a href=\"https:\/\/www.mannlif.is\/frettir\/fraegir-hnakkrifast-um-kynin-i-tungumalinu-thetta-eru-farveikar-forsendur\/\">Fr\u00e6gir hnakkr\u00edfast<\/a> \u2026\u201c o.fl. \u00c9g man hins vegar ekki eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 sagt hafi veri\u00f0 \u00ed fyrirs\u00f6gn a\u00f0 \u00e9g <em>vanda\u00f0i einhverjum ekki kve\u00f0jurnar<\/em> en \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00f3 einhver algengasti or\u00f0aleppurinn \u00ed fyrirs\u00f6gnum af \u00feessu tagi.<\/p>\n<p>\u00cd <em>Hugvekjum <\/em>s\u00e9ra Vigf\u00fasar Erlendssonar fr\u00e1 seinni hluta 18. aldar <a href=\"https:\/\/ritmalssafn.arnastofnun.is\/daemi\/272589\">kemur fyrir<\/a> sambandi\u00f0 <em>a\u00f0 h\u00fan vandi \u00fe\u00e9r betri kve\u00f0jurnar <\/em>en elsta d\u00e6mi sem \u00e9g finn \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em> um sambandi\u00f0 <em>vanda ekki kve\u00f0jurnar <\/em>er \u00ed <em>Gjallarhorni <\/em>1905: \u201eEinar ritstj. Hj\u00f6rleifsson velti s\u00e9r yfir \u00d3lafsv\u00edkur l\u00e6knirinn \u00ed 20. tbl. \u00bbFj.konunnar\u00ab og vandar honum ekki kve\u00f0jurnar.\u201c N\u00e6sta d\u00e6mi er \u00ed <em>N\u00fdjum kv\u00f6ldv\u00f6kum <\/em>1918: \u201eOg \u00fev\u00ed var \u00fea\u00f0 engin fur\u00f0a, \u00ed okkar augum, \u00fe\u00f3 vi\u00f0 v\u00f6ndu\u00f0um henni ekki kve\u00f0jurnar, \u00feegar h\u00fan rak okkur \u00far \u00feessum s\u00e6lusta\u00f0.\u201c Annars er sambandi\u00f0 frekar sjaldg\u00e6ft fram um 1950, en \u00fe\u00f3 er \u00fea\u00f0 einkum \u00feegar n\u00e1lgast aldam\u00f3tin a\u00f0 t\u00ed\u00f0ni \u00feess fer a\u00f0 aukast, og \u00e1 \u00e1runum 2000-2009 er \u00fea\u00f0 meira en fj\u00f3rum sinnum algengara \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em> en tveimur \u00e1ratugum \u00e1\u00f0ur.<\/p>\n<p>Sambandi\u00f0 <em>vanda <\/em>&lt;<em>honum<\/em>&gt;<em> ekki kve\u00f0jurnar<\/em> er <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/24997\">sk\u00fdrt<\/a> 'l\u00e1ta illa af honum, tala illa um hann' \u00ed <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k <\/em>og 'tala \u00f3mj\u00fakum or\u00f0um til e-s, skamma e-n' \u00ed <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k<\/em>. \u00deetta r\u00edmar vi\u00f0 skilning minn \u00e1 sambandinu \u2013 m\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 vera nokku\u00f0 sterkt og fela \u00ed s\u00e9r harkalega \u00e1r\u00e1s \u00e1 \u00fe\u00e1 sem um er r\u00e6tt. \u00c9g s\u00e9 ekki betur en \u00fea\u00f0 stemmi l\u00edka vi\u00f0 notkun sambandsins \u00ed eldri d\u00e6mum, og m\u00e9r finnst mj\u00f6g \u00f3e\u00f0lilegt a\u00f0 nota \u00fea\u00f0 um m\u00e1lefnalega gagnr\u00fdni sem beinist a\u00f0 m\u00e1lflutningi f\u00f3lks en ekki pers\u00f3nu \u00feess \u2013 sem er \u00fe\u00f3 i\u00f0ulega gert \u00ed fyrirs\u00f6gnum vefmi\u00f0la. \u00dea\u00f0 er \u00f3heppilegt \u00feegar or\u00f0 og or\u00f0asamb\u00f6nd eru gengisfelld \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt og f\u00f3lki ger\u00f0 upp afsta\u00f0a sem \u00fea\u00f0 hefur ekki. Smellibeitur eru hvorki m\u00e1lefnalegri umr\u00e6\u00f0u n\u00e9 \u00edslenskunni til hagsb\u00f3ta.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sumir \u00edslenskir vefmi\u00f0lar gera \u00fat \u00e1 smellibeitur \u2013 setja fram fyrirsagnir sem eru til \u00feess \u00e6tla\u00f0ar a\u00f0 f\u00e1 lesendur til a\u00f0 smella \u00e1 \u00fe\u00e6r og auka \u00feannig umfer\u00f0 um vefinn svo a\u00f0 hann ver\u00f0i f\u00fdsilegri fyrir augl\u00fdsendur. \u00cd \u00feessum fyrirs\u00f6gnum er oft gert mun meira en efni standa til \u00far sm\u00e1v\u00e6gilegum \u00e1greiningi e\u00f0a m\u00e1lefnalegri gagnr\u00fdni. [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7130","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7130","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7130"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7130\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7131,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7130\/revisions\/7131"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7130"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7130"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7130"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}