{"id":7209,"date":"2025-03-31T14:09:06","date_gmt":"2025-03-31T14:09:06","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7209"},"modified":"2025-03-31T14:30:54","modified_gmt":"2025-03-31T14:30:54","slug":"hefd-eda-naudung","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/03\/31\/hefd-eda-naudung\/","title":{"rendered":"Hef\u00f0 e\u00f0a nau\u00f0ung?"},"content":{"rendered":"<p>N\u00fa hafa nokkrir \u00feingmenn Vi\u00f0reisnar lagt fram \u00e1 Al\u00feingi <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/altext\/156\/s\/0012.html\">frumvarp<\/a> um breytingu \u00e1 l\u00f6gum um mannan\u00f6fn, \u00fear sem m.a. er gert r\u00e1\u00f0 fyrir almennri heimild til a\u00f0 bera \u00e6ttarnafn en samkv\u00e6mt n\u00fagildandi l\u00f6gum er s\u00fa heimild takm\u00f6rku\u00f0 vi\u00f0 \u00e1kve\u00f0na skilgreinda h\u00f3pa f\u00f3lks. \u00cd <a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20252708261d\/menningar-slys-verdi-frum-varpid-sam-thykkt\">fr\u00e9tt<\/a> \u00e1 <em>V\u00edsi <\/em>\u00ed dag er \u00fev\u00ed sp\u00e1\u00f0 a\u00f0 f\u00f3lk myndi \u00ed st\u00f3rh\u00f3pum leggja ni\u00f0ur f\u00f6\u00f0ur- og m\u00f3\u00f0urn\u00f6fn og taka upp \u00e6ttarn\u00f6fn \u00ed sta\u00f0inn ef sl\u00edkt yr\u00f0i leyft. En \u00e9g s\u00e9 \u00ed raun engar l\u00edkur til \u00feess a\u00f0 svo f\u00e6ri. Stundum er v\u00edsa\u00f0 til \u00feess a\u00f0 <a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/2016160619280\/ottast-ad-islenskur-nafnasidir-deyi-ut\">f\u00f6\u00f0urn\u00f6fn hafi horfi\u00f0<\/a> \u00ed Danm\u00f6rku og Noregi \u00e1 stuttum t\u00edma, en sl\u00edkar v\u00edsanir til \u00f3l\u00edkra samf\u00e9laga \u00e1 \u00f6\u00f0rum t\u00edmum hafa takmarka\u00f0 gildi. N\u00fat\u00edmavi\u00f0horf \u00ed jafnr\u00e9ttism\u00e1lum eru t.d. l\u00edkleg til a\u00f0 valda \u00fev\u00ed a\u00f0 konur s\u00e9u \u00f3f\u00fasari en \u00e1\u00f0ur a\u00f0 taka upp \u00e6ttarnafn eiginmannsins.<\/p>\n<p>H\u00e9r m\u00e1 enn fremur benda \u00e1 a\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 \u00cdslendingar hafa haldi\u00f0 \u00feeim si\u00f0 a\u00f0 kenna sig til f\u00f6\u00f0ur (e\u00f0a m\u00f3\u00f0ur) er \u00fea\u00f0 \u00e1kve\u00f0i\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0areinkenni sem vel m\u00e1 hugsa s\u00e9r a\u00f0 margir vilji halda \u00ed \u00feess vegna, en um sl\u00edkt var ekki a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00ed Danm\u00f6rku og Noregi. \u00cd F\u00e6reyjum hefur \u00fer\u00f3unin \u00e1 undanf\u00f6rnum \u00e1rum einmitt veri\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1 \u00e1tt a\u00f0 styrkja f\u00e6reysk eftirn\u00f6fn eins og kom fram \u00ed <a href=\"https:\/\/www.ruv.is\/frettir\/erlent\/2025-02-15-faereysk-eftirnofn-saekja-i-sig-vedrid-435913\">fr\u00e9tt<\/a> sem birtist n\u00fdlega \u00e1 vef <em>R\u00edkis\u00fatvarpsins<\/em>: \u201eMilli 2001 og 2015 f\u00e6kka\u00f0i F\u00e6reyingum me\u00f0 hi\u00f0 danska -sen \u00ed eftirnafni s\u00ednu um 1.771. \u00c1 sama t\u00edma fj\u00f6lga\u00f0i f\u00f3lki sem kenndi sig til foreldra sinna og er me\u00f0 anna\u00f0 hvort -son e\u00f0a -d\u00f3ttir \u00ed eftirnafninu s\u00ednu um t\u00e6plega fj\u00f3rt\u00e1n hundru\u00f0.\u201c Vel m\u00e1 hugsa s\u00e9r a\u00f0 \u00fer\u00f3unin \u00e1 \u00cdslandi yr\u00f0i s\u00fa a\u00f0 styrkja f\u00f6\u00f0ur- og m\u00f3\u00f0urnafnakerfi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00cd \u00e1\u00f0urnefndri <a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20252708261d\/menningar-slys-verdi-frum-varpid-sam-thykkt\">fr\u00e9tt<\/a> \u00e1 <em>V\u00edsi <\/em>er reglum um \u00e6ttarn\u00f6fn l\u00edkt vi\u00f0 umfer\u00f0arl\u00f6g: \u201eSvo er \u00feetta eins og umfer\u00f0arl\u00f6g. Vi\u00f0 h\u00f6fum h\u00e9rna h\u00e6gri umfer\u00f0 en \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekki gott a\u00f0 hafa b\u00e6\u00f0i vinstri og h\u00e6gri umfer\u00f0.\u201c En \u00feetta er s\u00e9rlega \u00f3heppileg l\u00edking. Vi\u00f0 h\u00f6fum nefnilega b\u00e6\u00f0i vinstri og h\u00e6gri umfer\u00f0 n\u00fa \u00feegar. Flest okkar eru skikku\u00f0 til a\u00f0 keyra h\u00e6gra megin en svo er h\u00f3pur f\u00f3lks sem keyrir vinstra megin og m\u00e1 \u00fea\u00f0 \u2013 en m\u00e6tti l\u00edka keyra h\u00e6gra megin ef \u00fea\u00f0 vildi. \u00dea\u00f0 skapar au\u00f0vita\u00f0 margs konar vanda og \u00f3\u00e1n\u00e6gju sem \u00e1 endanum vinnur gegn hef\u00f0inni. \u00c9g tek heils hugar undir \u00fea\u00f0 a\u00f0 kenning til f\u00f6\u00f0ur e\u00f0a m\u00f3\u00f0ur er menningarhef\u00f0 sem \u00e6skilegt er a\u00f0 vi\u00f0halda. En hef\u00f0ir eru l\u00edtils vir\u00f0i nema samf\u00e9lagi\u00f0 \u00fear sem \u00fe\u00e6r gilda hafi \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 halda \u00ed \u00fe\u00e6r.<\/p>\n<p>H\u00e9r vegur \u00fe\u00f3 \u00feyngst a\u00f0 n\u00fagildandi l\u00f6g standast ekki me\u00f0 nokkru m\u00f3ti jafnr\u00e6\u00f0iskr\u00f6fur samt\u00edmans \u2013 og eru raunar a\u00f0 \u00fev\u00ed er best ver\u00f0ur s\u00e9\u00f0 brot \u00e1 65. grein <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/1944033.html\">stj\u00f3rnarskr\u00e1rinnar<\/a> \u00fear sem segir m.a. a\u00f0 allir \u201eskulu vera jafnir fyrir l\u00f6gum og nj\u00f3ta mannr\u00e9tt\u00adinda \u00e1n tillits til [\u2026] \u00e6tternis [\u2026]\u201c. \u00dea\u00f0 stenst \u00fev\u00ed ekki a\u00f0 sumum s\u00e9 leyft \u00fea\u00f0 sem \u00f6\u00f0rum leyfist ekki. \u00c1 \u00feetta hefur oft veri\u00f0 bent, t.d. \u00ed <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/altext\/120\/s\/0073.html\">athugasemdum<\/a> nefndar sem samdi frumvarp a\u00f0 gildandi mannanafnal\u00f6gum, og \u00ed <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/altext\/erindi\/120\/120-229.pdf\">athugasemdum<\/a> \u00cdslenskrar m\u00e1lnefndar vi\u00f0 \u00fea\u00f0 frumvarp. \u00dea\u00f0 er vitanlega ekki veri\u00f0 a\u00f0 \u201ekasta [hef\u00f0inni] \u00e1 gl\u00e6\u201c \u00fe\u00f3tt reglur um uppt\u00f6ku \u00e6ttarnafna ver\u00f0i r\u00fdmka\u00f0ar. Hef\u00f0 sem \u00fearf a\u00f0 vi\u00f0halda me\u00f0 l\u00f6gum er ekki hef\u00f0 \u2013 heldur nau\u00f0ung.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00fa hafa nokkrir \u00feingmenn Vi\u00f0reisnar lagt fram \u00e1 Al\u00feingi frumvarp um breytingu \u00e1 l\u00f6gum um mannan\u00f6fn, \u00fear sem m.a. er gert r\u00e1\u00f0 fyrir almennri heimild til a\u00f0 bera \u00e6ttarnafn en samkv\u00e6mt n\u00fagildandi l\u00f6gum er s\u00fa heimild takm\u00f6rku\u00f0 vi\u00f0 \u00e1kve\u00f0na skilgreinda h\u00f3pa f\u00f3lks. \u00cd fr\u00e9tt \u00e1 V\u00edsi \u00ed dag er \u00fev\u00ed sp\u00e1\u00f0 a\u00f0 f\u00f3lk myndi \u00ed [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7209","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7209","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7209"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7209\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7211,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7209\/revisions\/7211"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7209"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7209"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7209"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}