{"id":7215,"date":"2025-04-01T10:45:16","date_gmt":"2025-04-01T10:45:16","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7215"},"modified":"2025-04-01T13:47:02","modified_gmt":"2025-04-01T13:47:02","slug":"vestlendinga-uggir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/04\/01\/vestlendinga-uggir\/","title":{"rendered":"\u201eVestlendinga uggir\u201c"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd \u201eM\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum\u201c var umr\u00e6\u00f0a um <a href=\"https:\/\/www.mbl.is\/200milur\/frettir\/2025\/03\/31\/vestlendinga_uggir_vegna_veidigjalda\/\">fyrirs\u00f6gn<\/a> \u00e1 fors\u00ed\u00f0u <em>Morgunbla\u00f0sins <\/em>\u00ed g\u00e6r: \u201eVestlendinga uggir vegna vei\u00f0igjalda.\u201c Merkingarlega s\u00e9\u00f0 er ekkert athugavert vi\u00f0 notkun sagnarinnar <em>ugga <\/em>\u00fearna \u2013 lj\u00f3st er af fr\u00e9ttinni a\u00f0 h\u00fan er notu\u00f0 \u00ed merkingunni '\u00f3ttast, vera hr\u00e6ddur um (e-\u00f0)' sem er \u00f6nnur a\u00f0almerking hennar <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/42821\">samkv\u00e6mt<\/a> <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k<\/em>. S\u00f6gnin <em>ugga <\/em>\u00ed \u00feessari notkun hefur raunar lengi veri\u00f0 sjaldg\u00e6f eins og m.a. kemur fram \u00ed <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/5401175?iabr=on#page\/n165\/mode\/1up\/\">grein<\/a> Halld\u00f3rs Halld\u00f3rssonar \u00ed <em>\u00cdslensku m\u00e1li <\/em>1982 \u00fear sem hann segir fr\u00e1 k\u00f6nnun \u00e1 notkun frumlagsfalls me\u00f0al 19-20 \u00e1ra nemenda \u00e1ri\u00f0 1981. \u201e\u00de\u00e1 virtust nokku\u00f0 margir aldrei hafa heyrt <em>mig sundla\u00f0i <\/em>og <em>mig uggir<\/em>, og s\u00f6gnin <em>ugga <\/em>yfirleitt virtist l\u00edka heldur l\u00edtt kunnugt d\u00e6mi.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd \u00feessari merkingu tekur <em>ugga<\/em> venjulega \u00feolfallsfrumlag eins og h\u00fan gerir \u00ed fyrirs\u00f6gn <em>Morgunbla\u00f0sins<\/em>, en \u00fe\u00f3 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 segja a\u00f0 notkunin s\u00e9 \u00fear \u00ed fullu samr\u00e6mi vi\u00f0 m\u00e1lhef\u00f0. \u00cd \u00f6llum notkunard\u00e6mum, \u00ed <em>\u00cdslensk-danskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>fr\u00e1 1920-1924, <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>og <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k <\/em>tekur h\u00fan nefnilega me\u00f0 s\u00e9r sk\u00fdringarsetningu, t.d <em>mig uggir a\u00f0 illt muni hlj\u00f3tast af<\/em>; <em>hann ugg\u00f0i a\u00f0 hann yr\u00f0i ekki langl\u00edfur<\/em>. \u00c9g s\u00e9 ekki betur en \u00feannig s\u00e9 s\u00f6gnin undantekningarl\u00edti\u00f0 notu\u00f0, a.m.k. \u00e1 s\u00ed\u00f0ari \u00f6ldum \u2013 auk \u00feolfallsfrumlagsins \u00fearf h\u00fan a\u00f0 taka me\u00f0 s\u00e9r annan r\u00f6kli\u00f0 (fallor\u00f0 e\u00f0a fallsetningu). \u201eVestlendinga uggir\u201c er \u00fev\u00ed hli\u00f0st\u00e6tt vi\u00f0 <em>mig langar<\/em>, <em>mig vantar <\/em>\u00e1n uppl\u00fdsinga um \u00fea\u00f0 <em>hva\u00f0<\/em> mig langar \u00ed e\u00f0a <em>hva\u00f0<\/em> mig vantar.<\/p>\n<p>N\u00fa g\u00e6tu einhver au\u00f0vita\u00f0 sagt a\u00f0 \u00fea\u00f0 k\u00e6mi fram \u00ed framhaldinu \u201evegna vei\u00f0igjalda\u201c hva\u00f0 veldur \u00feessum ugg. \u00dea\u00f0 er \u00fat af fyrir sig r\u00e9tt a\u00f0 merkingin kemst til skila me\u00f0 \u00fev\u00ed. En \u00fea\u00f0 er ekki n\u00f3g \u00fev\u00ed a\u00f0 sagnir gera ekki bara merkingarlegar kr\u00f6fur til \u00feeirra li\u00f0a sem standa me\u00f0 \u00feeim, heldur einnig setningafr\u00e6\u00f0ilegar kr\u00f6fur. Sumar sagnir taka ekkert andlag, t.d. <em>\u00e9g sef<\/em>, a\u00f0rar geta teki\u00f0 andlag en \u00feurfa \u00feess ekki eins og <em>\u00e9g les <\/em>(<em>b\u00f3kina<\/em>), enn a\u00f0rar ver\u00f0a a\u00f0 taka andlag eins og <em>\u00e9g \u00f3ttast vei\u00f0igj\u00f6ldin<\/em><em>\u00a0<\/em>\u2013 *<em>\u00e9g \u00f3ttast <\/em>gengur ekki eitt og s\u00e9r, ekki frekar en *<em>mig uggir<\/em>. Svo eru sagnir sem taka e\u00f0a geta teki\u00f0 tv\u00f6 andl\u00f6g, eins og <em>\u00e9g gaf henni b\u00f3kina<\/em>. Sumar sagnir geta svo teki\u00f0 fallsetningu (<em>a\u00f0<\/em>-setningu) sem andlag og <em>ugga <\/em>er ein af \u00feeim sem ver\u00f0a a\u00f0 taka sl\u00edkt andlag.<\/p>\n<p>Hins vegar hefur l\u00fdsingarh\u00e1ttur n\u00fat\u00ed\u00f0ar af s\u00f6gninni, <em>uggandi<\/em>, \u00f6\u00f0last sj\u00e1lfst\u00e6tt l\u00edf sem l\u00fdsingaror\u00f0 og er s\u00e9rst\u00f6k fletta \u00ed <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k <\/em>\u00fear sem hann er <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/51278\">sk\u00fdr\u00f0ur<\/a> 'kv\u00ed\u00f0afullur, sem b\u00fdst vi\u00f0 illu' \u2013 sem passar n\u00e1kv\u00e6mlega \u00ed \u00feessu tilviki. \u00dea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 ekkert einsd\u00e6mi a\u00f0 l\u00fdsingarh\u00e1ttur n\u00fat\u00ed\u00f0ar ver\u00f0i a\u00f0 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u l\u00fdsingaror\u00f0i en ekki algengt a\u00f0 hann ver\u00f0i svo margfalt algengari en s\u00f6gnin sem hann er leiddur af \u2013 r\u00fam fimm \u00fe\u00fasund d\u00e6mi eru um <em>uggandi <\/em>\u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni<\/em>. \u00dea\u00f0 er l\u00edka s\u00e9rkennilegt vi\u00f0 l\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 a\u00f0 \u00f3l\u00edkt s\u00f6gninni getur \u00fea\u00f0 sta\u00f0i\u00f0 \u00e1n framhalds \u2013 <em>Vestlendingar uggandi<\/em> (<em>vegna vei\u00f0igjalda<\/em>) v\u00e6ri fullkomlega e\u00f0lileg setning. E.t.v. hefur \u00fea\u00f0 rugla\u00f0 h\u00f6fund \u00e1\u00f0urnefndrar fyrirsagnar \u00ed r\u00edminu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd \u201eM\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum\u201c var umr\u00e6\u00f0a um fyrirs\u00f6gn \u00e1 fors\u00ed\u00f0u Morgunbla\u00f0sins \u00ed g\u00e6r: \u201eVestlendinga uggir vegna vei\u00f0igjalda.\u201c Merkingarlega s\u00e9\u00f0 er ekkert athugavert vi\u00f0 notkun sagnarinnar ugga \u00fearna \u2013 lj\u00f3st er af fr\u00e9ttinni a\u00f0 h\u00fan er notu\u00f0 \u00ed merkingunni '\u00f3ttast, vera hr\u00e6ddur um (e-\u00f0)' sem er \u00f6nnur a\u00f0almerking hennar samkv\u00e6mt \u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k. S\u00f6gnin ugga \u00ed \u00feessari notkun hefur [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7215","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7215","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7215"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7215\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7218,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7215\/revisions\/7218"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7215"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7215"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7215"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}