{"id":7219,"date":"2025-04-03T15:12:01","date_gmt":"2025-04-03T15:12:01","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7219"},"modified":"2025-04-14T09:19:23","modified_gmt":"2025-04-14T09:19:23","slug":"thessi-nokkru-skipti","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/04\/03\/thessi-nokkru-skipti\/","title":{"rendered":"\u00deessi nokkru skipti"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd \u201eM\u00e1lspjalli\u201c var \u00ed g\u00e6r spurt hvort f\u00f3lk kanna\u00f0ist vi\u00f0 a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 <em>nokkur <\/em>v\u00e6ri beygt veikt, t.d. <em>\u00feau nokkru skipti<\/em>. Venja er a\u00f0 telja <em>nokkur <\/em>til \u00f3\u00e1kve\u00f0inna fornafna en beyging \u00feeirra skiptist ekki \u00ed sterka og veika beygingu heldur er \u00e6vinlega sterk, \u00fe.e. samsvarar sterkri beygingu l\u00fdsingaror\u00f0a eins og t.d. <a href=\"https:\/\/bin.arnastofnun.is\/leit\/nokkur\">kemur fram<\/a> \u00ed <em>Beygingarl\u00fdsingu \u00edslensks n\u00fat\u00edmam\u00e1ls<\/em>. M\u00e9r fannst samt <em>\u00feau nokkru skipti <\/em>ekki hlj\u00f3ma s\u00e9rlega framandi og vi\u00f0 n\u00e1nari athugun kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 veikar myndir or\u00f0sins eru fjarri \u00fev\u00ed a\u00f0 vera n\u00fdjung, og notkun \u00feeirra vir\u00f0ist hafa aukist verulega \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum. Elsta d\u00e6mi\u00f0 sem \u00e9g fann er fr\u00e1 n\u00edtj\u00e1ndu \u00f6ld, \u00ed <em>\u00dej\u00f3\u00f0\u00f3lfi <\/em>1858: \u201eHir\u00f0ir sk\u00fdrir eigi fr\u00e1, hverir hinir af \u00feessum \u201enokkru m\u00f6nnum\u201c hafi veri\u00f0.\u201c \u00deetta er \u00fe\u00f3 alger undantekning.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er ekki fyrr en undir mi\u00f0ja tuttugustu \u00f6ld sem st\u00f6ku d\u00e6mi af \u00feessu tagi fara a\u00f0 sj\u00e1st. \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1944 segir: \u201eJeg \u00feykist vita, a\u00f0 ekki \u00feurfti nema a\u00f0 minna \u00feetta blessa\u00f0 f\u00f3lk \u00e1, a\u00f0 ganga hlj\u00f3\u00f0lega \u00feessi nokkru skref framhj\u00e1 sp\u00edtalanum.\u201c \u00cd <em>Siglfir\u00f0ingi <\/em>1946 segir: \u201eKannske, a\u00f0 ma\u00f0urinn, sem kallar sj\u00e1lfan sig \u201ehinn f\u00e1t\u00e6ka sj\u00f3mansson\u201c hafi \u00e1tt a\u00f0 borga \u00feessar \u201enokkru kr\u00f3nur\u201c.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1948 segir: \u201eHvernig \u00e6tli \u00fea\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 nota till\u00f6guna hans J\u00f3nasar og taka nokkrar kvikmyndir af \u00feessum nokkru drukknu m\u00f6nnum?\u201c \u00cd <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum <\/em>1950 segir: \u201eOg hann b\u00e6tti \u00fev\u00ed vi\u00f0 a\u00f0 \u00feessar nokkru tylftir \u00f3h\u00e1\u00f0ra fyrirt\u00e6kja yr\u00f0u tengdar saman \u00ed h\u00f3pa vegna \u00f3n\u00f3gra afkasta.\u201c \u00d6rf\u00e1 d\u00e6mi eru svo fr\u00e1 n\u00e6stu \u00e1ratugum \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em>.<\/p>\n<p>Undir 1990 fer d\u00e6mum svo fj\u00f6lgandi og s\u00fa \u00fer\u00f3un vir\u00f0ist hafa haldi\u00f0 \u00e1fram allt til \u00feessa. Mikill fj\u00f6ldi d\u00e6ma um veiku myndirnar er \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni<\/em>, meginhluti \u00feeirra vissulega af samf\u00e9lagsmi\u00f0lum en t\u00f6luvert er einnig \u00far formlegra m\u00e1lsni\u00f0i \u2013 \u201e\u00c9g \u00e6tla ekki a\u00f0 taka hinar nokkru sek\u00fandur sem eftir eru \u00ed \u00fe\u00e6r\u201c segir t.d. \u00ed r\u00e6\u00f0u \u00e1 Al\u00feingi 2005; \u201eEkki er h\u00e6gt a\u00f0 loka veginum \u00feessa nokkru daga me\u00f0an \u00e1 vi\u00f0ger\u00f0 stendur\u201c segir \u00ed <em>T\u00edmanum <\/em>1990. \u00dea\u00f0 er eing\u00f6ngu fleirt\u00f6lumyndin <em>nokkru <\/em>sem kemur fyrir \u2013 engin d\u00e6mi vir\u00f0ast vera um eint\u00f6lumyndirnar sem \u00e6ttu a\u00f0 vera *(<em>s\u00e1<\/em>) <em>nokkri<\/em> og *(<em>s\u00fa<\/em>) <em>nokkra<\/em>. \u00dea\u00f0 er \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r ekki skr\u00edti\u00f0 \u2013 \u00fea\u00f0 er erfitt a\u00f0 hugsa upp a\u00f0st\u00e6\u00f0ur \u00fear sem sl\u00edkar myndir v\u00e6ru merkingarlega e\u00f0lilegar.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er ekki einsd\u00e6mi a\u00f0 or\u00f0 sem venja er a\u00f0 flokka sem \u00f3\u00e1kve\u00f0in forn\u00f6fn f\u00e1i veika beygingu. \u00dear er helst a\u00f0 <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2022\/03\/20\/hin-ymsu\/\">nefna<\/a> <em>\u00fdmis <\/em>sem reyndar er oft <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/46674\">flokka\u00f0<\/a> sem l\u00fdsingaror\u00f0, enda d\u00e6mi eins og <em>hinir<\/em> \/ <em>hinar <\/em>\/ <em>hin \u00fdmsu<\/em> mj\u00f6g algeng. Or\u00f0i\u00f0 <em>f\u00e1einir <\/em>er oft <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/10748\">tali\u00f0<\/a> \u00f3\u00e1kve\u00f0i\u00f0 fornafn en hefur i\u00f0ulega veikar myndir, svo sem <em>\u00feessi f\u00e1einu d\u00e6mi<\/em>, og er <a href=\"https:\/\/bin.arnastofnun.is\/leit\/f%C3%A1einir\">flokka\u00f0 sem<\/a> l\u00fdsingaror\u00f0 \u00ed <em>Beygingarl\u00fdsingu \u00edslensks n\u00fat\u00edmam\u00e1ls <\/em>\u2013 <a href=\"https:\/\/bin.arnastofnun.is\/leit\/%C3%BDmis\">eins og<\/a> <em>\u00fdmis<\/em>. En einst\u00f6ku d\u00e6mi m\u00e1 l\u00edka finna um veikar myndir einhverra annarra or\u00f0a \u00far \u00feessum flokki. \u00cd till\u00f6gu til \u00feings\u00e1lyktunar fr\u00e1 2012 segir: \u201eskulu hluta\u00f0eigandi eftirlitsyfirv\u00f6ld og yfirv\u00f6ld sem bera \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 eftirliti me\u00f0 \u00feessum \u00f6\u00f0ru f\u00e9l\u00f6gum hafa me\u00f0 s\u00e9r n\u00e1i\u00f0 samstarf.\u201c \u00c1 <em>Hugi.is <\/em>2002 segir: \u201e\u00feessar sumu myndir vilja bara ekki koma.\u201c<\/p>\n<p>\u00deetta eru \u00fe\u00f3 algerar undantekningar sem \u00e1st\u00e6\u00f0ulaust er a\u00f0 draga nokkrar \u00e1lyktanir af. Veik beyging or\u00f0sins <em>nokkur <\/em>er hins vegar svo algeng a\u00f0 \u00fatiloka\u00f0 er a\u00f0 l\u00edta fram hj\u00e1 henni. Vi\u00f0 h\u00f6fum \u00ed raun tvo kosti. Annars vegar getum vi\u00f0 sagt a\u00f0 veika beygingin s\u00fdni a\u00f0 <em>nokkur <\/em>hafi breytt um or\u00f0flokk og r\u00e9tt s\u00e9 a\u00f0 flokka \u00fea\u00f0 framvegis sem l\u00fdsingaror\u00f0 \u2013 eins og <em>\u00fdmis<\/em>. Vissulega stigbreytist <em>nokkur <\/em>ekki eins og flest l\u00fdsingaror\u00f0 gera, en au\u00f0velt er a\u00f0 r\u00f6ksty\u00f0ja a\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed s\u00e9u merkingarlegar \u00e1st\u00e6\u00f0ur. Hins vegar getum vi\u00f0 sagt a\u00f0 beyging \u00f3\u00e1kve\u00f0inna fornafna s\u00e9 a\u00f0 breytast \u2013 \u00feau geti n\u00fa haft b\u00e6\u00f0i sterka og veika beygingu. \u00deessi kostur v\u00e6ri e\u00f0lilegri ef flest \u00f3\u00e1kve\u00f0nu forn\u00f6fnin v\u00e6ru farin a\u00f0 beygjast veikt \u2013 en svo er ekki, enn sem komi\u00f0 er a.m.k.<\/p>\n<p>En or\u00f0flokkur er hvort e\u00f0 er bara merkimi\u00f0i sem vi\u00f0 hengjum \u00e1 or\u00f0 til a\u00f0 gl\u00f6ggva okkur betur \u00e1 heg\u00f0un \u00feeirra og sk\u00fdra hana, og fj\u00f6lm\u00f6rg or\u00f0 falla ekki \u00f3tv\u00edr\u00e6tt \u00ed einhvern \u00e1kve\u00f0inn flokk heldur bera einkenni tveggja flokka. A\u00f0alatri\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00feessu m\u00e1li er a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 fagna \u00feessari n\u00fdjung vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan s\u00fdnir styrk beygingakerfisins \u00ed huga m\u00e1lnotenda \u2013 \u00feeir b\u00faa til beygingu sem \u00feeim finnst vanta. Fleiri svipu\u00f0 d\u00e6mi m\u00e1 finna eins og \u00e9g hef skrifa\u00f0 um \u00e1\u00f0ur, svo sem sterkar myndir af ra\u00f0t\u00f6lunum <em><a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2022\/03\/12\/thridjar-a-svid\/\">\u00feri\u00f0ji<\/a> <\/em>og <em><a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/01\/21\/fjordur-a-lista\/\">fj\u00f3r\u00f0i<\/a><\/em> og <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2022\/03\/13\/hinir-fjoru-storu-fundudu-i-fjoran-og-halfan-dag\/\">veika mynd<\/a> af <em>fj\u00f3rir<\/em>. Veik beyging <em>nokkur <\/em>er \u00e1ratuga g\u00f6mul \u00ed m\u00e1linu og or\u00f0in talsvert \u00fatbreidd og \u00fea\u00f0 er engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 amast vi\u00f0 henni. \u00devert \u00e1 m\u00f3ti er full \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 fagna henni sem gagnlegri vi\u00f0b\u00f3t vi\u00f0 m\u00e1lkerfi\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd \u201eM\u00e1lspjalli\u201c var \u00ed g\u00e6r spurt hvort f\u00f3lk kanna\u00f0ist vi\u00f0 a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 nokkur v\u00e6ri beygt veikt, t.d. \u00feau nokkru skipti. Venja er a\u00f0 telja nokkur til \u00f3\u00e1kve\u00f0inna fornafna en beyging \u00feeirra skiptist ekki \u00ed sterka og veika beygingu heldur er \u00e6vinlega sterk, \u00fe.e. samsvarar sterkri beygingu l\u00fdsingaror\u00f0a eins og t.d. kemur fram \u00ed Beygingarl\u00fdsingu \u00edslensks [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7219","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7219","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7219"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7219\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7245,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7219\/revisions\/7245"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7219"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7219"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7219"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}