{"id":7236,"date":"2025-04-09T15:43:10","date_gmt":"2025-04-09T15:43:10","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7236"},"modified":"2025-04-09T15:43:10","modified_gmt":"2025-04-09T15:43:10","slug":"tolum-islensku-en-notum-tulk-ef-tharf","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/04\/09\/tolum-islensku-en-notum-tulk-ef-tharf\/","title":{"rendered":"T\u00f6lum \u00edslensku \u2013 en notum t\u00falk ef \u00fearf"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd <a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20252712571d\/fulltrui-borgarinnar-hardneitad-ad-tala-nema-a-islensku\">fr\u00e9ttum<\/a> \u00e1 vefmi\u00f0lum er vitna\u00f0 \u00ed Facebook-f\u00e6rslu S\u00f3lveigar \u00d6nnu J\u00f3nsd\u00f3ttur formanns Eflingar um a\u00f0 fulltr\u00fai Reykjav\u00edkurborgar \u00e1 fundi um mygluvandam\u00e1l \u00ed leiksk\u00f3la nokkrum hafi neita\u00f0 a\u00f0 svara spurningum \u00e1 ensku og hunsa\u00f0 sl\u00edkar spurningar, og hafna\u00f0 bo\u00f0um fundargesta um t\u00falkun. \u00dea\u00f0 m\u00e1 b\u00faast vi\u00f0 a\u00f0 tilvikum af \u00feessu tagi fari fj\u00f6lgandi og vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 hafa einhverja stefnu \u00ed \u00fev\u00ed hvernig brug\u00f0ist er vi\u00f0. Vi\u00f0 viljum halda \u00fev\u00ed til streitu a\u00f0 \u00edslenska s\u00e9 notu\u00f0 alltaf og alls sta\u00f0ar \u00e1 \u00cdslandi, en jafnframt ver\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 vera rauns\u00e6 og vi\u00f0urkenna a\u00f0 h\u00e9r b\u00fdr fj\u00f6ldi f\u00f3lks sem ekki talar m\u00e1li\u00f0 og \u00fea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 g\u00e6ta r\u00e9ttinda \u00feess f\u00f3lks og halda uppl\u00fdsingum ekki fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u2013 allra s\u00edst \u00feegar m\u00e1li\u00f0 sn\u00fdst um hagsmuni barna.<\/p>\n<p>\u00cdslenska er opinbert m\u00e1l \u00e1 \u00cdslandi, m\u00e1l r\u00edkis og sveitarf\u00e9laga, og vitanlega er e\u00f0lilegt a\u00f0 fundur af \u00feessu tagi fari fram \u00e1 \u00edslensku. En jafnframt er e\u00f0lilegt og \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegt a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 t\u00falkun fyrir \u00feau sem skilja ekki \u00edslensku \u2013 anna\u00f0 er \u00f3\u00feolandi ja\u00f0arsetning sem mun koma okkur \u00ed koll. \u00cd <a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20252712616d\/skolans-ekki-borgarinnar-ad-ut-vega-tulk\">athugasemd<\/a> vi\u00f0 \u00e1\u00f0urnefnda fr\u00e9tt segir samskiptastj\u00f3ri Reykjav\u00edkurborgar a\u00f0 um s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a einkarekinn leiksk\u00f3la og \u00feess vegna s\u00e9 \u00fea\u00f0 hlutverk sk\u00f3lans en ekki borgarinnar a\u00f0 \u00fatvega t\u00falk, og \u00fea\u00f0 m\u00e1 til sanns vegar f\u00e6ra. Samskiptastj\u00f3rinn hafnar \u00fev\u00ed a\u00f0 fulltr\u00fai borgarinnar hafi gert athugasemdir vi\u00f0 a\u00f0 fundargestir v\u00e6ru a\u00f0 t\u00falka en reyndar getur veri\u00f0 vafasamt a\u00f0 \u00feiggja sl\u00edkt bo\u00f0. En a\u00f0alatri\u00f0i\u00f0 er a\u00f0 fundarbo\u00f0endur s\u00e1u ekki til \u00feess a\u00f0 \u00fatvega t\u00falk.<\/p>\n<p>Hin hli\u00f0in \u00e1 m\u00e1linu er s\u00fa a\u00f0 fulltr\u00fai borgarinnar \u00e1 fundinum treysti s\u00e9r ekki til a\u00f0 tala ensku a\u00f0 s\u00f6gn samskiptastj\u00f3rans. \u00dea\u00f0 er ekkert \u00f3e\u00f0lilegt \u2013 \u00fe\u00f3tt \u00cdslendingar geti flestir bjarga\u00f0 s\u00e9r \u00feokkalega \u00e1 ensku er \u00fea\u00f0 alls ekki algilt, og auk \u00feess \u00fearf meira en hversdagslegan or\u00f0afor\u00f0a til a\u00f0 tala um fl\u00f3kin og s\u00e9rh\u00e6f\u00f0 m\u00e1l eins og mygluskemmdir sem \u00fearna voru til umr\u00e6\u00f0u. Au\u00f0vita\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 gera kr\u00f6fu um \u00fea\u00f0 a\u00f0 almennt starfsf\u00f3lk tali ensku ef \u00fea\u00f0 er ekki skilgreindur hluti af verksvi\u00f0i \u00feess, og \u00fea\u00f0 \u00e1 ekki a\u00f0 vera og m\u00e1 ekki ver\u00f0a sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0 krafa a\u00f0 f\u00f3lk skipti yfir \u00ed ensku \u00fe\u00f3tt einhver krefjist \u00feess e\u00f0a \u00fe\u00f3tt einhver vi\u00f0staddra skilji ekki \u00edslensku. \u00dea\u00f0 er r\u00e9ttur okkar a\u00f0 tala \u00edslensku \u00e1 \u00cdslandi og ekki h\u00e6gt a\u00f0 skylda okkur til annars.<\/p>\n<p>Hin einfalda, auglj\u00f3sa og \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milega lei\u00f0 \u00ed \u00feessu m\u00e1li er a\u00f0 sj\u00e1 til \u00feess a\u00f0 t\u00falkur s\u00e9 \u00e6vinlega til sta\u00f0ar. \u00deannig g\u00e6tum vi\u00f0 hagsmuna og r\u00e9ttinda allra a\u00f0ila \u2013 \u00feau sem treysta s\u00e9r til geta tala\u00f0 \u00edslensku, og ver\u00f0a ekki krafin um anna\u00f0, en t\u00falka\u00f0 er fyrir \u00feau sem ekki skilja m\u00e1li\u00f0. Au\u00f0vita\u00f0 kostar \u00feetta eitthva\u00f0 \u2013 sennilega heilmiki\u00f0 \u2013 og au\u00f0vita\u00f0 mun kostna\u00f0urinn vaxa einhverjum \u00ed augum. En vi\u00f0 h\u00f6fum \u00ed raun ekkert val, nema vi\u00f0 viljum tro\u00f0a \u00e1 r\u00e9ttindum anna\u00f0hvort \u00edslenskunnar e\u00f0a innflytjenda sem eiga \u00fea\u00f0 inni hj\u00e1 okkur a\u00f0 vera ekki haf\u00f0ir utanveltu \u2013 \u00feeir eru komnir hinga\u00f0 til a\u00f0 vinna fyrir okkur, oft st\u00f6rf sem vi\u00f0 getum ekki e\u00f0a viljum ekki sinna, og eiga verulegan \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00feeim hagvexti og \u00feeim l\u00edfskj\u00f6rum sem vi\u00f0 h\u00f6fum noti\u00f0 undanfari\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd fr\u00e9ttum \u00e1 vefmi\u00f0lum er vitna\u00f0 \u00ed Facebook-f\u00e6rslu S\u00f3lveigar \u00d6nnu J\u00f3nsd\u00f3ttur formanns Eflingar um a\u00f0 fulltr\u00fai Reykjav\u00edkurborgar \u00e1 fundi um mygluvandam\u00e1l \u00ed leiksk\u00f3la nokkrum hafi neita\u00f0 a\u00f0 svara spurningum \u00e1 ensku og hunsa\u00f0 sl\u00edkar spurningar, og hafna\u00f0 bo\u00f0um fundargesta um t\u00falkun. \u00dea\u00f0 m\u00e1 b\u00faast vi\u00f0 a\u00f0 tilvikum af \u00feessu tagi fari fj\u00f6lgandi og vi\u00f0 \u00feurfum [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7236","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7236","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7236"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7236\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7237,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7236\/revisions\/7237"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7236"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7236"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7236"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}