{"id":7319,"date":"2025-05-21T10:18:59","date_gmt":"2025-05-21T10:18:59","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7319"},"modified":"2025-05-21T10:18:59","modified_gmt":"2025-05-21T10:18:59","slug":"meinfysi-eda-meinfysni","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/05\/21\/meinfysi-eda-meinfysni\/","title":{"rendered":"Meinf\u00fdsi e\u00f0a meinf\u00fdsni?"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd \u201eM\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum\u201c var veri\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a or\u00f0i\u00f0 <em>meinf\u00fdsni <\/em>en m\u00e1lshefjandi taldi sig a\u00f0eins kannast vi\u00f0 myndina <em>meinf\u00fdsi <\/em>\u2013 \u00e1n <em>n<\/em>. B\u00e1\u00f0ar myndirnar eru algengar og gefnar \u00ed <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k<\/em>, \u00fear sem s\u00ed\u00f0arnefnda myndin er <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/28142\">sk\u00fdr\u00f0<\/a> '\u00fea\u00f0 a\u00f0 vera meinf\u00fdsinn, illkvittni' og greinilega talin a\u00f0almyndin \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00fa fyrrnefnda er ekki sk\u00fdr\u00f0 s\u00e9rstaklega heldur <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/54367\">v\u00edsa\u00f0<\/a> \u00e1 hina. \u00cd <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>eru or\u00f0in sk\u00fdr\u00f0 saman undir <em>meinf\u00fdsi<\/em>, <em>meinf\u00fdsni<\/em>. \u00cd d\u00e1lknum \u201eM\u00e1li\u00f0\u201c \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2019 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/7081918?iabr=on#page\/n27\/mode\/1up\/\">segir<\/a>: \u201e<strong>Meinf\u00fdsi<\/strong> heitir eiginleiki. [\u2026]. \u00deyki manni or\u00f0i\u00f0 ekki l\u00fdsa manni fyllilega stendur annar rith\u00e1ttur til bo\u00f0a: <strong>meinf\u00fdsni<\/strong>. Og \u00fea\u00f0 er eins og auka-<strong>n<\/strong>-i\u00f0 geri \u00fea\u00f0 a\u00f0eins mergja\u00f0ra.\u201c \u00deetta bendir allt til \u00feess a\u00f0 liti\u00f0 s\u00e9 \u00e1 <em>meinf\u00fdsni <\/em>sem afbrig\u00f0i af <em>meinf\u00fdsi<\/em>.<\/p>\n<p>Elsta d\u00e6mi um <em>meinf\u00fdsi <\/em>\u00e1 <em>t\u00edmarit.is <\/em>er \u00ed <em>Austra <\/em>1900: \u201eEn m\u00e9r virtist herra Laup\u00e9pins tillit eigi laust vi\u00f0 meinf\u00fdsi.\u201c Elsta d\u00e6mi um <em>meinf\u00fdsni <\/em>er \u00ed <em>T\u00e1kni t\u00edmanna <\/em>1919: \u201e\u00c1 me\u00f0an \u00feessu fer fram, horfa a\u00f0sto\u00f0armenn \u00f3vinarins me\u00f0 meinf\u00fdsni \u00e1 \u00fe\u00e1, sem \u00feeir hafa leitt til vantr\u00faar.\u201c \u00cd <em>\u00cdslensk-danskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>fr\u00e1 1920-1924 er a\u00f0eins <em>meinf\u00fdsi <\/em><a href=\"https:\/\/blondal.arnastofnun.is\/faersla\/241174\">a\u00f0 finna<\/a>, en <em>meinf\u00fdsni <\/em>er <a href=\"https:\/\/blondal.arnastofnun.is\/faersla\/166535\/merkja\/meinf%C3%BDsni\">hins vegar<\/a> \u00ed <em>Vi\u00f0b\u00e6ti <\/em>b\u00f3karinnar sem var gefinn \u00fat 1963. Myndin <em>meinf\u00fdsi <\/em>vir\u00f0ist \u00fev\u00ed vera a\u00f0eins eldri \u00fe\u00f3tt ekki s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 fullyr\u00f0a um \u00fea\u00f0 vegna \u00feess hversu f\u00e1 d\u00e6min eru lengi framan af. Hvorug myndin er s\u00e9rlega algeng en <em>meinf\u00fdsi <\/em>hefur lengst af veri\u00f0 heldur algengari \u00fe\u00f3tt <em>meinf\u00fdsni <\/em>vir\u00f0ist hafa siglt fram \u00far \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum ef marka m\u00e1 <em>t\u00edmarit.is <\/em>og <em>Risam\u00e1lheildina<\/em>.<\/p>\n<p>Nafnor\u00f0i\u00f0 <em>meinf\u00fdsi <\/em>er auglj\u00f3slega mynda\u00f0 me\u00f0 <em>i<\/em>-hlj\u00f3\u00f0varpi af l\u00fdsingaror\u00f0inu <em>meinf\u00fas<\/em> sem er reyndar n\u00e1nast horfi\u00f0 \u00far n\u00fat\u00edmam\u00e1li \u2013 a\u00f0eins um 50 d\u00e6mi eru um \u00fea\u00f0 \u00e1 <em>t\u00edmarit.is <\/em>og \u00fea\u00f0 finnst hvorki \u00ed <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>n\u00e9 <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k<\/em> en er <a href=\"https:\/\/blondal.arnastofnun.is\/leit\/?leit=meinf%C3%BAs\">hins vegar<\/a> \u00ed <em>\u00cdslensk-danskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>fr\u00e1 1920-1924. Or\u00f0myndun af \u00feessu tagi er mj\u00f6g algeng \u2013 vi\u00f0 h\u00f6fum t.d. nafnor\u00f0in <em>l\u00fdsi<\/em> og <em>l\u00fdti <\/em>af l\u00fdsingaror\u00f0unum <em>lj\u00f3s<\/em> og <em>lj\u00f3tur<\/em>, nafnor\u00f0i\u00f0 <em>h\u00fdsi <\/em>af nafnor\u00f0inu <em>h\u00fas<\/em>, o.s.frv. \u00cd \u00feessum or\u00f0um er ekkert <em>n <\/em>\u2013 \u00fea\u00f0 eru ekki til myndir eins og *<em>l\u00fdsni<\/em>, *<em>l\u00fdtni <\/em>o.s.frv. N\u00fa er \u00fea\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 varla svo a\u00f0 \u00feetta <em>n <\/em>tro\u00f0i s\u00e9r inn \u00ed <em>meinf\u00fdsi <\/em>af einhverri tilviljun, \u201eaf \u00fev\u00ed bara\u201c, heldur hl\u00fdtur a\u00f0 vera einhver \u00e1st\u00e6\u00f0a fyrir \u00fev\u00ed. Lykillinn a\u00f0 \u00feessu er v\u00e6ntanlega l\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 <em>meinf\u00fdsinn<\/em>.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 or\u00f0 er ekki a\u00f0 finna \u00ed <em>\u00cdslensk-danskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>fr\u00e1 1920-1924 \u2013 elsta d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 er \u00ed <em>V\u00edsi <\/em>1920: \u201eSvipur hans var\u00f0 \u00fe\u00e1 b\u00e6\u00f0i \u00ed senn, h\u00e1\u00f0slegur og meinf\u00fdsinn.\u201c Or\u00f0i\u00f0 g\u00e6ti veri\u00f0 mynda\u00f0 beint af <em>meinf\u00fas <\/em>me\u00f0 <em>i<\/em>-hlj\u00f3\u00f0varpi, eins og <em>meinf\u00fdsi<\/em>, en gegn \u00fev\u00ed m\u00e6lir \u00fea\u00f0 a\u00f0 <em>meinf\u00fdsinn <\/em>vir\u00f0ist hafa alveg s\u00f6mu merkingu og <em>meinf\u00fas <\/em>og vands\u00e9\u00f0 hvers vegna \u00e1st\u00e6\u00f0a hef\u00f0i \u00fe\u00f3tt til a\u00f0 b\u00faa til n\u00fdtt l\u00fdsingaror\u00f0 af l\u00fdsingaror\u00f0i s\u00f6mu merkingar. Or\u00f0i\u00f0 <em>meinf\u00fas <\/em>vir\u00f0ist alltaf hafa veri\u00f0 mj\u00f6g sjaldg\u00e6ft eins og \u00e1\u00f0ur segir og \u00f3v\u00edst a\u00f0 margir m\u00e1lnotendur hafi \u00feekkt \u00fea\u00f0. L\u00edklegra er \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 <em>meinf\u00fdsinn <\/em>hafi veri\u00f0 mynda\u00f0 af nafnor\u00f0inu <em>meinf\u00fdsi <\/em>\u2013 sl\u00edk or\u00f0myndun liggur beint vi\u00f0. Myndunin er \u00fe\u00e1 <em>meinf\u00fas <\/em>&gt; <em>meinf\u00fdsi <\/em>&gt; <em>meinf\u00fdsinn<\/em> frekar en <em>meinf\u00fas <\/em>&gt; <em>meinf\u00fdsinn<\/em>.<\/p>\n<p>\u00deetta skiptir \u00fe\u00f3 \u00ed raun ekki m\u00e1li \u2013 hver sem myndunarsaga l\u00fdsingaror\u00f0sins <em>meinf\u00fdsinn <\/em>er hl\u00fdtur \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera forsenda fyrir nafnor\u00f0inu <em>meinf\u00fdsni<\/em>, me\u00f0 <em>n<\/em>-i. Af l\u00fdsingaror\u00f0um sem enda \u00e1 <em>-inn<\/em> eru nefnilega oft leidd nafnor\u00f0 sem enda \u00e1 <em>-ni<\/em>, svo sem <em>fyndinn <\/em>\u2013 <em>fyndni<\/em>, \u00a0<em>glettinn <\/em>\u2013 <em>glettni<\/em>, <em>heppinn <\/em>\u2013 <em>heppni<\/em>, <em>hittinn <\/em>\u2013 <em>hittni<\/em>, (<em>\u00e1st<\/em>)<em>leitinn <\/em>\u2013 <em>\u00e1stleitni<\/em> og m\u00f6rg fleiri, \u00fear sem <em>n<\/em>-i\u00f0 \u00ed nafnor\u00f0inu er auglj\u00f3slega \u00e6tta\u00f0 \u00far l\u00fdsingaror\u00f0inu. Sama gildir um <em>meinf\u00fdsinn <\/em>\u2013 <em>meinf\u00fdsni<\/em>. Or\u00f0in <em>meinf\u00fdsinn <\/em>og <em>meinf\u00fdsni<\/em> eru \u00e1l\u00edka g\u00f6mul \u00ed m\u00e1linu ef marka m\u00e1 <em>t\u00edmarit.is <\/em>(\u00fe\u00f3tt vissulega s\u00e9 erfitt a\u00f0 draga \u00e1lyktanir af \u00fev\u00ed vegna d\u00e6maf\u00e6\u00f0ar) og ekkert \u00fev\u00ed til fyrirst\u00f6\u00f0u a\u00f0 m\u00e1lnotendur hafi mynda\u00f0 nafnor\u00f0i\u00f0 af l\u00fdsingaror\u00f0inu eftir mynstri sem var \u00feeim vel kunnugt.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed lj\u00f3st a\u00f0 <em>meinf\u00fdsni <\/em>er ekki eitthvert tilviljanakennt frambur\u00f0ar- og rith\u00e1ttartilbrig\u00f0i vi\u00f0 <em>meinf\u00fdsi<\/em>, heldur eru or\u00f0in or\u00f0myndunarlega \u00f3l\u00edk \u2013 annars vegar <em>meinf\u00fas <\/em>\u2013 <em>meinf\u00fdsi<\/em> og hins vegar <em>meinf\u00fas <\/em>\u2013 <em>meinf\u00fdsi \u2013 meinf\u00fdsinn \u2013 meinf\u00fdsni<\/em> (e\u00f0a <em>meinf\u00fas <\/em>\u2013 <em>meinf\u00fdsinn <\/em>\u2013 <em>meinf\u00fdsni<\/em>). Sama m\u00e1li gegnir v\u00e6ntanlega um tv\u00edmyndirnar <em>vandf\u00fdsi <\/em>og <em>vandf\u00fdsni <\/em>(sem er ekki \u00ed <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k <\/em>en <a href=\"https:\/\/blondal.arnastofnun.is\/faersla\/255482\/merkja\/vandf%C3%BDsni\">a\u00f0almyndin<\/a> \u00ed <em>\u00cdslensk-danskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>fr\u00e1 1920-1924) \u00fe\u00f3tt t\u00edmal\u00ednan s\u00e9 \u00fear \u00f3lj\u00f3sari \u2013 elsta d\u00e6mi um <em>vandf\u00fdsi <\/em>er fr\u00e1 1892, um <em>vandf\u00fdsni <\/em>fr\u00e1 1856, um <em>vandf\u00fdsinn <\/em>fr\u00e1 1874, en <em>vandf\u00fas <\/em>kemur n\u00e1nast ekki fyrir (a\u00f0eins tv\u00f6 d\u00e6mi fr\u00e1 1934 og 1977). B\u00e1\u00f0ar or\u00f0myndunara\u00f0fer\u00f0irnar eru vitanlega g\u00f3\u00f0ar og gildar og \u00e1st\u00e6\u00f0ulaust a\u00f0 gera upp \u00e1 milli \u00feeirra.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd \u201eM\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum\u201c var veri\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a or\u00f0i\u00f0 meinf\u00fdsni en m\u00e1lshefjandi taldi sig a\u00f0eins kannast vi\u00f0 myndina meinf\u00fdsi \u2013 \u00e1n n. B\u00e1\u00f0ar myndirnar eru algengar og gefnar \u00ed \u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k, \u00fear sem s\u00ed\u00f0arnefnda myndin er sk\u00fdr\u00f0 '\u00fea\u00f0 a\u00f0 vera meinf\u00fdsinn, illkvittni' og greinilega talin a\u00f0almyndin \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00fa fyrrnefnda er ekki sk\u00fdr\u00f0 s\u00e9rstaklega heldur v\u00edsa\u00f0 \u00e1 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7319","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7319","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7319"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7319\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7320,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7319\/revisions\/7320"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7319"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7319"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7319"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}