{"id":7355,"date":"2025-06-01T09:46:53","date_gmt":"2025-06-01T09:46:53","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7355"},"modified":"2025-06-01T10:56:29","modified_gmt":"2025-06-01T10:56:29","slug":"getur-vanta-tekid-nefnifallsfrumlag","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/06\/01\/getur-vanta-tekid-nefnifallsfrumlag\/","title":{"rendered":"Getur vanta teki\u00f0 nefnifallsfrumlag?"},"content":{"rendered":"<p>S\u00f6gnin <em>vanta <\/em>tekur \u00fdmist me\u00f0 s\u00e9r frumlag \u00ed \u00feolfalli e\u00f0a \u00fe\u00e1gufalli eins og kunnugt er \u2013 <em>mig vantar <\/em>e\u00f0a <em>m\u00e9r vantar<\/em> \u2013 og stendur \u00fev\u00ed jafnan \u00ed \u00feri\u00f0ju pers\u00f3nu eint\u00f6lu vegna \u00feess a\u00f0 sagnir sambeygjast aldrei frumlagi \u00ed aukafalli.\u00a0 St\u00f6ku sinnum, einkum \u00e1 n\u00edtj\u00e1ndu \u00f6ld og framan af \u00feeirri tuttugustu, kemur s\u00f6gnin \u00fe\u00f3 fyrir \u00ed fleirt\u00f6lu. \u00cd <em>\u00dej\u00f3\u00f0\u00f3lfi <\/em>1855 segir: \u201eef \u00feau vanta sta\u00f0fest\u00edngu l\u00f6ggjafans, \u00fe\u00e1 eru \u00fea\u00f0 \u2013 <em>engin l\u00f6g<\/em>.\u201c \u00cd <em>\u00dej\u00f3\u00f0\u00f3lfi <\/em>1895 segir: \u201e\u00de\u00e6r vanta \u00feennan l\u00edfgandi, vekjandi og skapandi krapt.\u201c \u00cd <em>Hauk <\/em>1899 segir: \u201eG\u00f3\u00f0 \u00farr\u00e6\u00f0i eru eins og skyrtuhnappar \u2013 \u00feau vanta oft.\u201c \u00cd <em>Gamni og alv\u00f6ru <\/em>1900 segir: \u201eSt\u00falkurnar vanta bi\u00f0la, og konurnar vanta oft s\u00edna eiginmenn.\u201c \u00cd <em>\u00dej\u00f3\u00f0inni <\/em>1914 segir: \u201e\u00de\u00e6r vanta ekki leikarah\u00e6fileikana.\u201c<\/p>\n<p>\u00dearna stendur s\u00f6gnin ekki \u00ed \u00feri\u00f0ju pers\u00f3nu eint\u00f6lu heldur \u00ed fleirt\u00f6lu, eins og vissulega er merkingarlega e\u00f0lilegt. Fruml\u00f6gin \u00ed \u00feessum setningum g\u00e6tu formsins vegna sta\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00feolfalli en vegna fleirt\u00f6lumynda sagnarinnar liggur beinast vi\u00f0 a\u00f0 \u00e1lykta a\u00f0 \u00feau standi \u00fearna \u00ed nefnifalli og s\u00f6gnin sambeygist \u00feeim eins og e\u00f0lilegt er um nefnifallsfruml\u00f6g. En \u00fea\u00f0 undarlega er a\u00f0 sl\u00edk sambeyging kemur a\u00f0eins fyrir me\u00f0 or\u00f0um sem eru eins \u00ed nefnifalli og \u00feolfalli \u2013 nafnor\u00f0um og forn\u00f6fnum \u00ed kvenkyni og hvorugkyni. \u00dea\u00f0 eru sem s\u00e9 engin d\u00e6mi um *<em>\u00feeir vanta<\/em>, *<em>mennirnir vanta<\/em> e\u00f0a neitt sl\u00edkt. \u00cd lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 <em>\u00fe\u00e1 vantar <\/em>er margfalt algengara en <em>\u00fe\u00e6r vantar <\/em>getur varla veri\u00f0 tilviljun a\u00f0 engin d\u00e6mi eru um *<em>\u00feeir vanta <\/em>en allnokkur um <em>\u00fe\u00e6r vanta<\/em>.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er ekki tr\u00falegt a\u00f0 <em>vanta <\/em>geti haft nefnifallsfrumlag \u00ed kvenkyni og hvorugkyni en aldrei \u00ed karlkyni \u2013 l\u00edklegra er a\u00f0 \u00ed d\u00e6munum h\u00e9r a\u00f0 framan s\u00e9 \u00ed raun um \u00feolfall a\u00f0 r\u00e6\u00f0a en ekki nefnifall. En \u00fe\u00e1 m\u00e1 spyrja hvernig standi \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00f6gnin vir\u00f0ist geta samr\u00e6mst \u00feolfallsfrumlagi \u00ed t\u00f6lu \u00ed kvenkyni og hvorugkyni en aldrei \u00ed karlkyni \u2013 d\u00e6mi eins og *<em>\u00fe\u00e1 vanta peninga <\/em>e\u00f0a *<em>mennina vanta peninga<\/em> eru ekki til. \u00dea\u00f0 er l\u00edka t\u00e6past tilviljun a\u00f0 pers\u00f3nubeyg\u00f0ar myndir <em>vanta <\/em>eru langalgengastar \u00fear sem frumlag er ekki til sta\u00f0ar n\u00e6st s\u00f6gninni, svo sem \u00ed tilv\u00edsunarsetningum og \u00feeirri seinni af tveim hli\u00f0skipu\u00f0um setningum \u00fear sem frumlagi er sleppt vegna sams\u00f6munar vi\u00f0 frumlag \u00feeirrar fyrri, og \u00fear kemur pers\u00f3nubeyging ekkert s\u00ed\u00f0ur fyrir me\u00f0 karlkynsor\u00f0um.<\/p>\n<p>\u00cd <em>Fr\u00f3\u00f0a <\/em>1882 segir: \u201eEinnig geta \u00feeir, sem vanta bl\u00f6\u00f0 af 3. \u00e1rinu, fengi\u00f0 \u00feau hj\u00e1 \u00feeim.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1946 segir: \u201e\u00deeir, sem vanta jar\u00f0\u00fdtu um lengri t\u00edma, tali vi\u00f0 mig \u00ed kv\u00f6ld.\u201c \u00cd <em>V\u00edsi <\/em>2021 segir: \u201eFyrir \u00fe\u00e1 sem vanta hugmyndir hafa margir einstaklingar deilt sinni eigin dagskr\u00e1.\u201c \u00cd <em>Nor\u00f0anfara <\/em>1873 segir: \u201e\u00feeir sem framvegis kynnu a\u00f0 hafa l\u00f6ngun til a\u00f0 flytja hinga\u00f0\u00a0<em>og <\/em>vanta\u00a0fje til fer\u00f0akostna\u00f0ar geta sent mjer n\u00f6fn s\u00edn.\u201c \u00cd <em>H\u00e6ni <\/em>1925 segir: \u201eOg eru \u00fea\u00f0 ekki \u00feeir, sem engin hafa k\u00faab\u00fain\u00a0<em>og <\/em>vanta\u00a0vi\u00f0bit og ost?\u201c \u00cd <em>\u00dej\u00f3\u00f0viljanum <\/em>1936 segir: \u201efj\u00f6ldi barna \u00ed Reykjav\u00edk b\u00fdr \u00ed heilsuspillandi \u00edb\u00fa\u00f0um\u00a0<em>og <\/em>vanta\u00a0\u00fe\u00e1 n\u00e6ringu, sem b\u00f6rn nau\u00f0synlega \u00feurfa.\u201c \u00c1 <em>Bland.is<\/em> 2006 segir: \u201eEr annars a\u00f0 fara \u00ed fr\u00ed eftir 2 vikur og vanta eitthva\u00f0 a\u00f0 lesa.\u201c<\/p>\n<p>Ni\u00f0ursta\u00f0a m\u00edn er s\u00fa a\u00f0 \u00f6fugt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem vir\u00f0ist og \u00e9g h\u00e9lt \u00ed flj\u00f3tu brag\u00f0i hafi <em>vanta <\/em>aldrei teki\u00f0 nefnifallsfrumlag. \u00cd m\u00e1li sumra vir\u00f0ist hins vegar gilda s\u00fa regla a\u00f0 s\u00f6gn standi \u00ed \u00feeirri t\u00f6lu sem er merkingarlega e\u00f0lileg, nema frumlagi\u00f0 sendi fr\u00e1 s\u00e9r sk\u00fdr skilabo\u00f0 um a\u00f0 \u00fea\u00f0 standi \u00ed aukafalli. Vegna \u00feess a\u00f0 s\u00f6gn getur aldrei sambeygst aukafallsfrumlagi var sambeyging \u00fatiloku\u00f0 \u00ed sl\u00edkum tilvikum en s\u00f6gnin kom \u00ed hinni \u00f3m\u00f6rku\u00f0u mynd \u00feri\u00f0ju pers\u00f3nu eint\u00f6lu. En engin sl\u00edk skilabo\u00f0 berast fr\u00e1 \u00feolfallsfruml\u00f6gunum h\u00e9r a\u00f0 framan vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau g\u00e6tu formsins vegna sta\u00f0i\u00f0 \u00ed nefnifalli \u2013 og sl\u00edk skilabo\u00f0 berast ekki heldur \u00ed setningum sem hafa ekkert yfirbor\u00f0sfrumlag. En umr\u00e6dd regla vir\u00f0ist vera \u00e1 undanhaldi \u00ed m\u00e1linu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>S\u00f6gnin vanta tekur \u00fdmist me\u00f0 s\u00e9r frumlag \u00ed \u00feolfalli e\u00f0a \u00fe\u00e1gufalli eins og kunnugt er \u2013 mig vantar e\u00f0a m\u00e9r vantar \u2013 og stendur \u00fev\u00ed jafnan \u00ed \u00feri\u00f0ju pers\u00f3nu eint\u00f6lu vegna \u00feess a\u00f0 sagnir sambeygjast aldrei frumlagi \u00ed aukafalli.\u00a0 St\u00f6ku sinnum, einkum \u00e1 n\u00edtj\u00e1ndu \u00f6ld og framan af \u00feeirri tuttugustu, kemur s\u00f6gnin \u00fe\u00f3 fyrir \u00ed [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7355","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7355","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7355"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7355\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7357,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7355\/revisions\/7357"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7355"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7355"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7355"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}