{"id":7361,"date":"2025-06-04T16:25:04","date_gmt":"2025-06-04T16:25:04","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7361"},"modified":"2025-06-05T22:53:09","modified_gmt":"2025-06-05T22:53:09","slug":"hvers-kyns-er-sturla","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/06\/04\/hvers-kyns-er-sturla\/","title":{"rendered":"Hvers kyns er Sturla?"},"content":{"rendered":"<p>Nafni\u00f0 <em>Sturla <\/em>er gamalt \u00ed m\u00e1linu, kemur fyrir \u00feegar \u00ed <em>Landn\u00e1mu<\/em>. \u00dea\u00f0 beygist eins og veikt kvenkynsor\u00f0 sem er einstakt me\u00f0al karlmannsnafna sem n\u00fa t\u00ed\u00f0kast \u00ed m\u00e1linu. \u00c1\u00f0ur fyrr var \u00fea\u00f0 einnig algengt \u00ed myndinni <em>Sturli <\/em>(og jafnvel <em>Stulli<\/em>) \u00ed nefnifalli og <em>Sturla <\/em>(<em>Stulla<\/em>) \u00ed aukaf\u00f6llum. \u201eVel m\u00e1 t\u00falka n\u00fdju myndina svo a\u00f0 m\u00e1lnotendur hafi laga\u00f0 \u00feetta nafn a\u00f0 beygingum karlkynsor\u00f0a vegna \u00feess a\u00f0 kvenkynsbeygingin rakst \u00e1 vi\u00f0 kynfer\u00f0i nafnberanna\u201c <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/5411452?iabr=on#page\/n195\/mode\/1up\/\">segir<\/a> Margr\u00e9t J\u00f3nsd\u00f3ttir \u00ed <em>\u00cdslensku m\u00e1li <\/em>2001. \u00deessu breg\u00f0ur jafnvel fyrir enn \u2013 \u00ed <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2002 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/3448075?iabr=on#page\/n29\/mode\/1up\/\">segir<\/a> Berg\u00fe\u00f3ra J\u00f3nsd\u00f3ttir: \u201eEinst\u00f6ku sinnum heyrir ma\u00f0ur f\u00f3lk eiga \u00ed vandr\u00e6\u00f0um me\u00f0 \u00feetta og segja Sturli, en \u00e9g held a\u00f0 engum dytti \u00ed hug a\u00f0 taka nafni\u00f0 \u00far notkun fyrir \u00feau glappaskot.\u201c<\/p>\n<p>\u00der\u00e1tt fyrir kvenkynsbeyginguna er <em>Sturla <\/em>yfirleitt flokka\u00f0 sem karlkynsor\u00f0 \u00ed or\u00f0ab\u00f3kum, t.d. <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k<\/em>, <em><a href=\"https:\/\/blondal.arnastofnun.is\/faersla\/252235\">\u00cdslensk-danskri or\u00f0ab\u00f3k<\/a> <\/em>fr\u00e1 1920-1924, <em><a href=\"https:\/\/ritmalssafn.arnastofnun.is\/daemi\/647955\">Ritm\u00e1lssafni<\/a> <\/em>Or\u00f0ab\u00f3kar H\u00e1sk\u00f3lans o.fl. \u2013 greiningin mi\u00f0ast sem s\u00e9 vi\u00f0 merkingu or\u00f0sins. \u00dea\u00f0 er \u00f6fugt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem annars t\u00ed\u00f0kast \u00ed m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegri greiningu \u00fear sem kyn nafnor\u00f0a mi\u00f0ast \u00e6vinlega vi\u00f0 form en ekki merkingu, enda oft l\u00f6g\u00f0 \u00e1hersla \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegt kyn og merkingarlegt kyn s\u00e9 tvennt \u00f3l\u00edkt og \u00feurfi ekki a\u00f0 fara saman. Or\u00f0i\u00f0 <em>flj\u00f3\u00f0 <\/em>er t.d. alltaf greint sem hvorugkynsor\u00f0 og <em>svanni <\/em>sem karlkynsor\u00f0 \u00fe\u00f3tt b\u00e6\u00f0i merki 'kona', en \u00fea\u00f0 fyrrnefnda tekur hvorugkynsbeygingu (eins og t.d. <em>lj\u00f3\u00f0 <\/em>og <em>hlj\u00f3\u00f0<\/em>) og \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0arnefnda karlkynsbeygingu (eins og t.d. <em>granni <\/em>og <em>glanni<\/em>).<\/p>\n<p>Vissulega er yfirleitt v\u00edsa\u00f0 til manna sem heita <em>Sturla <\/em>me\u00f0 karlkynsfornafninu <em>hann <\/em>\u00fe\u00f3tt <em>h\u00fan <\/em>breg\u00f0i fyrir, og eins eru venjulega notu\u00f0 l\u00fdsingaror\u00f0 \u00ed karlkyni sem sagnfylling me\u00f0 nafninu. \u00dea\u00f0 \u00fearf \u00fe\u00f3 ekki a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a a\u00f0 nafni\u00f0 s\u00e9 karlkynsor\u00f0 \u2013 \u00fearna er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a merkingarlega v\u00edsun en ekki m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilega, \u00fe.e. ekki er veri\u00f0 a\u00f0 v\u00edsa til nafnsins <em>Sturla <\/em>heldur til mannsins sem ber nafni\u00f0. Merkingarleg v\u00edsun hefur alltaf t\u00ed\u00f0kast a\u00f0 einhverju marki \u00ed m\u00e1linu \u2013 v\u00edsun til <em>foreldra <\/em>og <em>krakka <\/em>sem eru karlkynsor\u00f0 me\u00f0 hvorugkynsfornafninu <em>\u00feau<\/em> er vel \u00feekkt. Notkun sl\u00edkrar v\u00edsunar fer vaxandi \u2013 d\u00e6mi eins og <em>r\u00e1\u00f0herra var vi\u00f0st\u00f6dd ath\u00f6fnina<\/em> \u00fear sem v\u00edsa\u00f0 er til kvenkyns r\u00e1\u00f0herra me\u00f0 kvenkynsmynd l\u00fdsingaror\u00f0s \u00fe\u00f3tt <em>r\u00e1\u00f0herra <\/em>s\u00e9 karlkynsor\u00f0 eru algeng.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt eing\u00f6ngu karlmenn beri nafni\u00f0 <em>Sturla <\/em>eftir \u00fev\u00ed sem best er vita\u00f0 er \u00fev\u00ed fullkomlega e\u00f0lilegt og raunar \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegt a\u00f0 greina or\u00f0i\u00f0 sem kvenkynsor\u00f0 eins og Kristj\u00e1n R\u00fanarsson <a href=\"https:\/\/skemman.is\/bitstream\/1946\/21420\/1\/BA-ritger%C3%B0%20-%20M%C3%A1lfr%C3%A6%C3%B0i%20%C3%A6ttarnafna%20-%20Kristj%C3%A1n%20R%C3%BAnarsson.pdf\">gerir<\/a> \u00ed BA-ritger\u00f0 sinni. \u00dea\u00f0 er \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 form \u00feess og beygingu, og \u00fe\u00f3tt v\u00edsa\u00f0 s\u00e9 til nafnbera \u00feess me\u00f0 karlkynsfornafni og \u00fea\u00f0 taki me\u00f0 s\u00e9r l\u00fdsingaror\u00f0 \u00ed karlkyni er \u00fea\u00f0 \u00ed fullu samr\u00e6mi vi\u00f0 merkingarlega v\u00edsun sem v\u00ed\u00f0a er notu\u00f0 \u00ed m\u00e1linu. H\u00e9r m\u00e1 einnig benda \u00e1 a\u00f0 \u00ed raun eru ekki lengur til s\u00e9rst\u00f6k karla- og kvennan\u00f6fn eftir a\u00f0 <em><a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/1996045.html\">L\u00f6gum um mannan\u00f6fn<\/a><\/em> var breytt \u00ed kj\u00f6lfar setningar <em><a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/lagas\/nuna\/2019080.html\">Laga um kynr\u00e6nt sj\u00e1lfr\u00e6\u00f0i<\/a><\/em> \u00e1ri\u00f0 2019. N\u00fa hefur karlma\u00f0ur fengi\u00f0 <a href=\"https:\/\/www.ruv.is\/frettir\/innlent\/faer-loksins-ad-heita-sigridur\">leyfi<\/a> til a\u00f0 bera nafni\u00f0 <em>Sigr\u00ed\u00f0ur<\/em> en engum hefur dotti\u00f0 \u00ed hug a\u00f0 \u00fea\u00f0 lei\u00f0i til breytinga \u00e1 kyngreiningu or\u00f0sins.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Nafni\u00f0 Sturla er gamalt \u00ed m\u00e1linu, kemur fyrir \u00feegar \u00ed Landn\u00e1mu. \u00dea\u00f0 beygist eins og veikt kvenkynsor\u00f0 sem er einstakt me\u00f0al karlmannsnafna sem n\u00fa t\u00ed\u00f0kast \u00ed m\u00e1linu. \u00c1\u00f0ur fyrr var \u00fea\u00f0 einnig algengt \u00ed myndinni Sturli (og jafnvel Stulli) \u00ed nefnifalli og Sturla (Stulla) \u00ed aukaf\u00f6llum. \u201eVel m\u00e1 t\u00falka n\u00fdju myndina svo a\u00f0 m\u00e1lnotendur hafi [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7361","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7361","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7361"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7361\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7367,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7361\/revisions\/7367"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7361"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7361"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7361"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}