{"id":7462,"date":"2025-07-19T09:55:03","date_gmt":"2025-07-19T09:55:03","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7462"},"modified":"2025-07-19T09:55:03","modified_gmt":"2025-07-19T09:55:03","slug":"heppilega-tok-eg-eftir-thessu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/07\/19\/heppilega-tok-eg-eftir-thessu\/","title":{"rendered":"Heppilega t\u00f3k \u00e9g eftir \u00feessu"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd <a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20252752628d\/grat-bad-um-ad-fa-ad-deyja-en-fagnar-nu-ollum-fram-forum\">fr\u00e9tt<\/a> \u00e1 vefmi\u00f0li \u00ed g\u00e6r rakst \u00e9g \u00e1 setninguna \u201ebarnal\u00e6knir \u00ed sumarfr\u00edi sem heppilega \u00e1tti lei\u00f0 hj\u00e1 hl\u00fa\u00f0i a\u00f0 honum\u201c og hr\u00f6kk a\u00f0eins vi\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 m\u00e9r fannst atviksor\u00f0i\u00f0 <em>heppilega <\/em>vera nota\u00f0 \u00fearna \u00e1 \u00f3venjulegan h\u00e1tt. \u00cd <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k <\/em>er or\u00f0i\u00f0 <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/19037\">sk\u00fdrt<\/a> 'sem kemur s\u00e9r vel' me\u00f0 notkunard\u00e6minu <em>svo heppilega vildi til a\u00f0 l\u00e6knir var n\u00e6rstaddur<\/em> sem er vitaskuld merkingarlega svipa\u00f0 d\u00e6minu \u00ed fr\u00e9ttinni, enda er \u00fea\u00f0 ekki merkingin sem truflar mig \u00fearna heldur setningarsta\u00f0an \u2013 samkv\u00e6mt minni m\u00e1lkennd getur <em>heppilega <\/em>ekki sta\u00f0i\u00f0 \u00e1 \u00feessum sta\u00f0 \u00ed setningu. \u00cd hef\u00f0bundnu n\u00fat\u00edmam\u00e1li held \u00e9g a\u00f0 \u00e6vinlega s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 setja atviksor\u00f0i\u00f0 <em>vel <\/em>\u00ed sta\u00f0 <em>heppilega <\/em>\u00e1n \u00feess a\u00f0 setningager\u00f0 raskist, en \u00fea\u00f0 er ekki h\u00e6gt \u00ed tilvitnu\u00f0u d\u00e6mi.<\/p>\n<p>\u00deegar a\u00f0 er g\u00e1\u00f0 reynist \u00feessi notkun <em>heppilega <\/em>ekki vera einsd\u00e6mi \u00ed umr\u00e6ddri fr\u00e9tt \u2013 allnokkur d\u00e6mi m\u00e1 finna um hana fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum. \u00c1 <em>Bland.is <\/em>2005 segir: \u201eH\u00f6f\u00f0um heppilega sal sem vi\u00f0 g\u00e1tum fengi\u00f0 l\u00e1na\u00f0an.\u201c \u00cd <em>DV <\/em>2012 segir: \u201e\u00ferett\u00e1n af eignarhaldsf\u00e9l\u00f6gunum fimmt\u00e1n hafi heppilega veri\u00f0 stofnu\u00f0 sama daginn.\u201c \u00cd <em>DV <\/em>2018 segir: \u201eH\u00e9r er s\u00f6g\u00f0 saga konu sem hefur heppilega misst minni\u00f0 kv\u00f6ldi\u00f0 sem h\u00fan vir\u00f0ist hafa frami\u00f0 gl\u00e6p.\u201c \u00cd <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2019 segir: \u201e\u00c9g myndi segja a\u00f0 t\u00edsku\u00e1hugi minn hafi heppilega \u00fer\u00f3ast \u00ed r\u00e9tta \u00e1tt undanfarin \u00e1r.\u201c \u00cd <em>V\u00edsi <\/em>2020 segir: \u201eh\u00fan n\u00e1\u00f0i \u00ed fj\u00e1rm\u00e1lastj\u00f3ra Samhj\u00e1lpar sem haf\u00f0i heppilega heyrt allt um vandr\u00e6\u00f0i Wei.\u201c \u00cd engu \u00feessara d\u00e6ma v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 setja <em>vel <\/em>\u00ed sta\u00f0 <em>heppilega<\/em> \u00ed hef\u00f0bundnu m\u00e1li.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 m\u00e1 l\u00edka finna t\u00f6luvert af d\u00e6mum \u00fear sem <em>heppilega <\/em>er nota\u00f0 \u00ed upphafi m\u00e1lsgreinar. \u00c1 <em>Bland.is <\/em>2005 segir: \u201eHeppilega er \u00fea\u00f0 samkomulag a\u00f0 vi\u00f0 systkinin gefum ekki hvert \u00f6\u00f0ru gjafir.\u201c \u00c1 <em>f\u00f3tbolti.net <\/em>2006 segir: \u201eHeppilega \u00fe\u00e1 f\u00f3r eitt eintak af g\u00f6gnum til enska knattspyrnusambandsins.\u201c \u00c1 <em>Twitter <\/em>2014 segir: \u201eHeppilega f\u00f3r \u00e9g ekki \u00ed Versl\u00f3.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2014 segir: \u201eHeppilega h\u00f6f\u00f0um vi\u00f0 betur.\u201c \u00c1 <em>mbl.is <\/em>2015 segir: \u201eHeppilega var l\u00e6knir um bor\u00f0.\u201c \u00cd <em>Vi\u00f0skiptabla\u00f0inu <\/em>2016 segir: \u201eHeppilega \u00fe\u00e1 er \u00feetta ykkar vandam\u00e1l, ekki okkar.\u201c \u00cd <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2020 segir: \u201eHeppilega hefur ekki \u00feurft a\u00f0 leita af f\u00f3lki \u00ed skri\u00f0unum \u00e1 Sey\u00f0isfir\u00f0i.\u201c \u00cd <em>DV <\/em>2020 segir: \u201eHeppilega hefur sl\u00edkt gengi\u00f0 eftir upp til h\u00f3pa.\u201c<\/p>\n<p>Svona er ekki h\u00e6gt a\u00f0 nota <em>heppilega <\/em>\u00ed hef\u00f0bundinni \u00edslensku, en \u00ed hli\u00f0st\u00e6\u00f0um setningum \u00e1 ensku v\u00e6ri aftur \u00e1 m\u00f3ti e\u00f0lilegt a\u00f0 nota atviksor\u00f0i\u00f0 <em>luckily<\/em> og l\u00edtill vafi \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fearna liggur ensk setningager\u00f0 a\u00f0 baki, \u00fe\u00f3tt \u00e1\u00f0urnefnd d\u00e6mi s\u00e9u \u00ed f\u00e6stum tilvikum \u00fe\u00fd\u00f0ingar. En \u00fe\u00f3tt enska l\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 <em>lucky <\/em>\u00fe\u00fd\u00f0i 'heppinn' \u00fe\u00fd\u00f0ir atviksor\u00f0i\u00f0 <em>luckily <\/em>ekki beinl\u00ednis 'heppilega', heldur 'sem betur fer' e\u00f0a 'til allrar hamingju' og \u00feau or\u00f0asamb\u00f6nd v\u00e6ri e\u00f0lilegt a\u00f0 nota \u00ed d\u00e6munum h\u00e9r a\u00f0 framan. \u00dearna er sem s\u00e9 ekki bara veri\u00f0 a\u00f0 breyta \u00edslenskri setningager\u00f0, \u00fev\u00ed a\u00f0 atviksor\u00f0 \u00feeirrar merkingar sem um r\u00e6\u00f0ir getur ekki sta\u00f0i\u00f0 \u00e1 \u00feessum sta\u00f0 \u00ed setningu \u00ed hef\u00f0bundnu m\u00e1li, heldur l\u00edka breyta merkingu atviksor\u00f0sins <em>heppilega <\/em>\u00far '(sem kemur s\u00e9r) vel' \u00ed 'sem betur fer'.<\/p>\n<p>Elstu d\u00e6min sem \u00e9g hef fundi\u00f0 um \u00feessa notkun <em>heppilega <\/em>eru tuttugu \u00e1ra g\u00f6mul og af samf\u00e9lagsmi\u00f0lum eins og h\u00e9r hefur komi\u00f0 fram, en langflest d\u00e6manna eru \u00fe\u00f3 fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu fimm \u00e1rum, \u00fear af m\u00f6rg \u00far vef- og prentmi\u00f0lum. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed greinilegt a\u00f0 \u00feessi notkun er a\u00f0 aukast hratt, og ekki lengur bundin vi\u00f0 \u00f3formlegt m\u00e1lsni\u00f0 samf\u00e9lagsmi\u00f0la. M\u00e1lnotendur dvelja l\u00f6ngum stundum \u00ed enskum menningarheimi og ekki undarlegt a\u00f0 \u00feeir ver\u00f0i fyrir \u00e1hrifum fr\u00e1 enskri setningager\u00f0 og merkingu sem s\u00edast inn \u00ed \u00edslensku \u00e1n \u00feess a\u00f0 f\u00f3lk ver\u00f0i \u00feess vart \u2013 \u00feetta er bara eitt margra d\u00e6ma um sl\u00edkt. Einstakar \u00e1bendingar e\u00f0a lei\u00f0r\u00e9ttingar duga skammt til a\u00f0 hamla gegn \u00feessari \u00fer\u00f3un \u2013 eina lei\u00f0in til a\u00f0 h\u00e6gja \u00e1 henni er a\u00f0 hvetja f\u00f3lk til a\u00f0 lesa meira \u00e1 \u00edslensku.<\/p>\n<p>En \u00fe\u00f3tt \u00feessi notkun <em>heppilega <\/em>s\u00e9 \u00e1n efa komin \u00far ensku \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum er h\u00fan samt <a href=\"https:\/\/ritmalssafn.arnastofnun.is\/daemi\/188080\">ekki algj\u00f6r n\u00fdjung<\/a> \u00ed m\u00e1linu. \u00cd <em>Stuttum si\u00f0al\u00e6rd\u00f3mi fyrir heldri manna b\u00f6rn <\/em>fr\u00e1 1799 segir: \u201eheppilega haf\u00f0i J\u00f3sep s\u00e9\u00f0 \u00feetta fyrir fram.\u201c \u00cd br\u00e9fi til J\u00f3ns Sigur\u00f0ssonar fr\u00e1 1837 segir: \u201eHeppilega hefi eg me\u00f0teki\u00f0 fr\u00e1 y\u00f0ar g\u00f3\u00f0u hendi afskrift af \u00fdmsum merkilegum kv\u00e6\u00f0um.\u201c \u00cd <em>N\u00fdjum f\u00e9lagsritum <\/em>1846 segir: \u201e\u00fe\u00e1 snerist bla\u00f0i\u00f0 heppilega vi\u00f0.\u201c \u00cd <em>\u00de\u00fasund og einni n\u00f3tt <\/em>\u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu Steingr\u00edms Thorsteinssonar fr\u00e1 mi\u00f0ri n\u00edtj\u00e1ndu \u00f6ld segir: \u201eFerjuma\u00f0ur komst heppilega inn \u00ed sama fylgsni\u00f0.\u201c Ekki ver\u00f0ur betur s\u00e9\u00f0 en \u00feessi d\u00e6mi s\u00e9u nokkurn veginn hli\u00f0st\u00e6\u00f0 n\u00fat\u00edmam\u00e1lsd\u00e6munum h\u00e9r a\u00f0 framan, en anna\u00f0 m\u00e1l er hvort f\u00f3lki finnst \u00feau r\u00e9ttl\u00e6ta \u00e1\u00f0urnefnda n\u00fat\u00edmanotkun <em>heppilega<\/em>.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd fr\u00e9tt \u00e1 vefmi\u00f0li \u00ed g\u00e6r rakst \u00e9g \u00e1 setninguna \u201ebarnal\u00e6knir \u00ed sumarfr\u00edi sem heppilega \u00e1tti lei\u00f0 hj\u00e1 hl\u00fa\u00f0i a\u00f0 honum\u201c og hr\u00f6kk a\u00f0eins vi\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 m\u00e9r fannst atviksor\u00f0i\u00f0 heppilega vera nota\u00f0 \u00fearna \u00e1 \u00f3venjulegan h\u00e1tt. \u00cd \u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k er or\u00f0i\u00f0 sk\u00fdrt 'sem kemur s\u00e9r vel' me\u00f0 notkunard\u00e6minu svo heppilega vildi til a\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7462","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7462","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7462"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7462\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7463,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7462\/revisions\/7463"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7462"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7462"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7462"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}