{"id":7467,"date":"2025-07-21T13:42:58","date_gmt":"2025-07-21T13:42:58","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7467"},"modified":"2025-07-21T13:42:58","modified_gmt":"2025-07-21T13:42:58","slug":"madurinn-hefur-verid-fundinn-heill-a-hufi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/07\/21\/madurinn-hefur-verid-fundinn-heill-a-hufi\/","title":{"rendered":"Ma\u00f0urinn hefur veri\u00f0 fundinn heill \u00e1 h\u00fafi"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g er alltaf a\u00f0 rekast \u00e1 n\u00fd og n\u00fd d\u00e6mi um a\u00f0 ensk setningager\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 s\u00edast inn \u00ed m\u00e1li\u00f0. Reyndar \u00fearf ekki alltaf a\u00f0 vera um n\u00fdjung a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fe\u00f3tt \u00e9g hafi ekki teki\u00f0 eftir einhverju fyrr. \u00deessi \u00e1hrif einkennist nefnilega af \u00fev\u00ed a\u00f0 or\u00f0in eru \u00f6ll \u00edslensk og vegna \u00feess hversu mettu\u00f0 vi\u00f0 erum af ensku t\u00f6kum vi\u00f0 ekki alltaf eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau eru notu\u00f0 \u00e1 annan h\u00e1tt en venja er a\u00f0 gera \u00e1 \u00edslensku \u2013 vi\u00f0 erum farin a\u00f0 hugsa \u00e1 ensku a\u00f0 einhverju leyti. N\u00fdjasta d\u00e6mi\u00f0 sem \u00e9g hef <a href=\"https:\/\/www.dv.is\/433\/2025\/07\/20\/gascoigne-fannst-medvitundarlaus-og-var-fluttur-sjukrahus\/\">s\u00e9\u00f0<\/a> af \u00feessu tagi var \u00ed <em>DV <\/em>\u00ed g\u00e6r: \u201eSun fjallar um m\u00e1li\u00f0 og segir a\u00f0 Gascoigne hafi veri\u00f0 fundinn n\u00e1nast me\u00f0vitundarlaus \u00ed svefnherbergi s\u00ednu \u00ed Poole \u00e1 f\u00f6studagskv\u00f6ld.\u201c En <em>hafi veri\u00f0 fundinn <\/em>er ekki hef\u00f0bundi\u00f0 or\u00f0alag \u00ed \u00edslensku \u00fe\u00f3tt \u00ed <a href=\"https:\/\/www.thesun.co.uk\/sport\/35930377\/paul-gascoigne-hospital-football\/\">fr\u00e9tt<\/a> <em>the Sun <\/em>segir \u201ewas found semi-conscious\u201c,<\/p>\n<p>Au\u00f0vita\u00f0 er <em>var fundinn <\/em>r\u00e9tt myndu\u00f0 \u00feolmynd af <em>finna <\/em>og notu\u00f0 \u00ed \u00e1kve\u00f0nu samhengi, t.d. <em>hann var fundinn sekur<\/em>. En \u00ed d\u00e6mum eins og \u00fev\u00ed sem h\u00e9r um r\u00e6\u00f0ir, \u00fear sem veri\u00f0 er a\u00f0 segja fr\u00e1 atbur\u00f0i, er venja a\u00f0 nota mi\u00f0myndina <em>finnast <\/em>en ekki \u00feolmyndina <em>var fundinn<\/em> \u2013 hef\u00f0bundi\u00f0 m\u00e1l v\u00e6ri <em>segir a\u00f0 Gascoigne hafi fundist n\u00e1nast me\u00f0vitundarlaus<\/em>. S\u00e9 hins vegar veri\u00f0 a\u00f0 l\u00fdsa \u00e1standi fremur en segja fr\u00e1 atbur\u00f0i er venja a\u00f0 nota n\u00fat\u00ed\u00f0ina <em>er fundinn<\/em>, \u00fear sem <em>fundinn <\/em>er l\u00fdsingaror\u00f0 en ekki sagnmynd, en ekki hj\u00e1lpars\u00f6gnina <em>hafa<\/em>. \u00cd <em>Vi\u00f0skiptabla\u00f0inu <\/em>2019 segir: \u201eN\u00fdr leigjandi hefur veri\u00f0 fundinn a\u00f0 v\u00e9linni.\u201c \u00cd hef\u00f0bundinni \u00edslensku v\u00e6ri sagt <em>n\u00fdr leigjandi er fundinn a\u00f0 v\u00e9linni<\/em>. En \u00ed hvorugu tilvikinu er <em>veri\u00f0 fundinn <\/em>hef\u00f0bundin \u00edslenska.<\/p>\n<p>\u00c9g hef fundi\u00f0 sl\u00e6\u00f0ing af d\u00e6mum um b\u00e1\u00f0ar \u00feessar setningager\u00f0ir, en \u00ed sumum tilvikum g\u00e6ti sambandi\u00f0 veri\u00f0 hvort heldur er l\u00fdsing \u00e1 atbur\u00f0i e\u00f0a \u00e1standi. \u00cd fr\u00e9tt af t\u00fdndu veski \u00ed <em>DV <\/em>2022 segir: \u201eSvo vir\u00f0ist sem a\u00f0 eigandinn hafi veri\u00f0 fundinn.\u201c \u00dearna er h\u00e6gt a\u00f0 l\u00edta \u00e1 <em>hafi veri\u00f0 fundinn<\/em> sem l\u00fdsingu \u00e1 fundi eigandans og \u00fe\u00e1 v\u00e6ri e\u00f0lilegt a\u00f0 segja <em>eigandinn hafi fundist<\/em>, en einnig er h\u00e6gt a\u00f0 l\u00edta \u00e1 \u00feetta sem l\u00fdsingu \u00e1 n\u00faverandi \u00e1standi og \u00fe\u00e1 v\u00e6ri e\u00f0lilegt a\u00f0 segja <em>eigandinn s\u00e9 fundinn<\/em>. Sama m\u00e1li gegnir um fr\u00e9tt \u00e1 vef <em>R\u00edkis\u00fatvarpsins <\/em>2019: \u201eMannsins [svo] sem L\u00f6greglan \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu l\u00fdsti eftir \u00ed morgun hefur veri\u00f0 fundinn heill \u00e1 h\u00fafi.\u201c S\u00e9 \u00feetta fr\u00e1s\u00f6gn af fundinum v\u00e6ri sagt <em>fannst<\/em> \u2013 s\u00e9 \u00fea\u00f0 l\u00fdsing \u00e1 st\u00f6\u00f0u m\u00e1la v\u00e6ri sagt <em>er fundinn<\/em>.<\/p>\n<p>\u00deessi setningager\u00f0 vir\u00f0ist vera n\u00fdleg \u00ed m\u00e1linu \u00fe\u00f3tt \u00fatiloka\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 t\u00edmasetja upphaf hennar n\u00e1kv\u00e6mlega, og varla vafi \u00e1 enskum uppruna hennar. H\u00fan er algengust \u00ed \u00f3formlegu m\u00e1lsni\u00f0i, en reyndar finn \u00e9g d\u00e6mi um hana \u00ed breytingum fr\u00e1 2016 \u00e1 h\u00f6fundal\u00f6gum \u00fear sem <a href=\"https:\/\/island.is\/stjornartidindi\/nr\/a9ac33b1-1f88-4041-9a5e-b18a2412a23b\">segir<\/a>: \u201eMe\u00f0 muna\u00f0arlausu verki er \u00e1tt vi\u00f0 verk \u00ed ritu\u00f0u m\u00e1li, hlj\u00f3\u00f0rit, myndrit e\u00f0a kvikmyndaverk \u00fear sem enginn r\u00e9tthafi hefur veri\u00f0 fundinn \u00fer\u00e1tt fyrir \u00edtarlega leit.\u201c \u00dearna v\u00e6ri venjuleg \u00edslenska a\u00f0 segja <em>enginn r\u00e9tthafi hefur fundist <\/em>en \u00feessi texti \u00e1 r\u00e6tur \u00ed Evr\u00f3putilskipun og g\u00e6ti veri\u00f0 or\u00f0r\u00e9tt yfirf\u00e6rsla \u00e1 <em>has been found <\/em>\u00fe\u00f3tt \u00e9g hafi ekki geta\u00f0 sta\u00f0fest \u00fea\u00f0. En s\u00ed\u00f0ar \u00ed s\u00f6mu grein er notu\u00f0 mi\u00f0mynd og sagt: \u201eEf r\u00e9tthafi verks sem \u00e1\u00f0ur hefur ekki fundist gefur sig fram [...].\u201c<\/p>\n<p>Vissulega m\u00e1 segja a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 l\u00edtilfj\u00f6rleg breyting og \u00fe\u00f3tt h\u00fan s\u00e9 tilkomin fyrir ensk \u00e1hrif er \u00feetta au\u00f0vita\u00f0 \u00edslenska. Or\u00f0in eru \u00edslensk og setningager\u00f0in \u00edslensk \u2013 \u00fea\u00f0 er bara ekki venja a\u00f0 nota hana \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt. En eins og \u00e9g hef \u00e1\u00f0ur sagt hef \u00e9g ekki s\u00e9rstakar \u00e1hyggjur af enskum \u00e1hrifum \u00fat af fyrir sig, heldur af \u00fev\u00ed hvernig og hvers vegna m\u00e1lnotendur taka \u00f3me\u00f0vita\u00f0 upp enska setningager\u00f0. \u00dea\u00f0 stafar v\u00e6ntanlega annars vegar af \u00fev\u00ed hversu mikil enska er \u00ed m\u00e1lumhverfi \u00feeirra, og hins vegar af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir lesa ekki n\u00f3gu miki\u00f0 af hef\u00f0bundinni \u00edslensku til a\u00f0 m\u00e1lkerfi \u00feeirra standist hi\u00f0 enska m\u00e1l\u00e1reiti. Vi\u00f0 getum ekki losna\u00f0 vi\u00f0 enskuna \u00far m\u00e1lumhverfinu en vi\u00f0 getum vel styrkt \u00edslenskuna og \u00fea\u00f0 ver\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 gera me\u00f0 \u00f6llum r\u00e1\u00f0um.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g er alltaf a\u00f0 rekast \u00e1 n\u00fd og n\u00fd d\u00e6mi um a\u00f0 ensk setningager\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 s\u00edast inn \u00ed m\u00e1li\u00f0. Reyndar \u00fearf ekki alltaf a\u00f0 vera um n\u00fdjung a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fe\u00f3tt \u00e9g hafi ekki teki\u00f0 eftir einhverju fyrr. \u00deessi \u00e1hrif einkennist nefnilega af \u00fev\u00ed a\u00f0 or\u00f0in eru \u00f6ll \u00edslensk og vegna \u00feess hversu mettu\u00f0 vi\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7467","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7467","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7467"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7467\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7468,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7467\/revisions\/7468"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7467"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7467"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7467"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}