{"id":7614,"date":"2025-09-08T22:55:07","date_gmt":"2025-09-08T22:55:07","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7614"},"modified":"2025-09-09T09:27:13","modified_gmt":"2025-09-09T09:27:13","slug":"skertar-fjarveitingar-til-islenskunnar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/09\/08\/skertar-fjarveitingar-til-islenskunnar\/","title":{"rendered":"Skertar fj\u00e1rveitingar til \u00edslenskunnar"},"content":{"rendered":"<p>Eins og <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2024\/09\/10\/fjarlagafrumvarpid-fra-sjonarholi-islenskunnar\/\">\u00ed fyrra<\/a> sko\u00f0a\u00f0i \u00e9g <a href=\"https:\/\/www.stjornarradid.is\/verkefni\/opinber-fjarmal\/fjarlog\/fjarlog-fyrir-arid-2026\/\">fj\u00e1rlagafrumvarp n\u00e6sta \u00e1rs<\/a> sem lagt var fram \u00ed morgun til a\u00f0 leita a\u00f0 v\u00edsbendingum um fj\u00e1rveitingar til a\u00f0 efla \u00edslenskuna, ekki s\u00edst kennslu \u00ed \u00edslensku sem \u00f6\u00f0ru m\u00e1li. \u00cd <a href=\"https:\/\/www.oecd.org\/en\/publications\/skills-and-labour-market-integration-of-immigrants-and-their-children-in-iceland_96adc300-en.html\">sk\u00fdrslu OECD<\/a> um innflytjendur sem var birt fyrir r\u00famu \u00e1ri kom fram a\u00f0 fj\u00e1rveitingar \u00e1 \u00cdslandi til kennslu \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0tungunni eru ekki nema brot af \u00fev\u00ed sem \u00fe\u00e6r eru annars sta\u00f0ar \u00e1 Nor\u00f0url\u00f6ndum. Jafnframt kom fram a\u00f0 kunn\u00e1tta innflytjenda \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0tungunni v\u00e6ri minni en \u00ed nokkru \u00f6\u00f0ru landi OECD. \u00deessi sk\u00fdrsla kom r\u00e9tt \u00e1\u00f0ur en <a href=\"https:\/\/www.stjornarradid.is\/verkefni\/opinber-fjarmal\/fjarlog\/fjarlog-fyrir-arid-2025\/\">fj\u00e1rlagafrumvarp yfirstandandi \u00e1rs<\/a> var lagt fram og haf\u00f0i \u00fev\u00ed ekki \u00e1hrif \u00e1 \u00fea\u00f0, en \u00feess hef\u00f0i m\u00e1tt v\u00e6nta a\u00f0 einhverra breytinga s\u00e6i sta\u00f0 \u00ed fj\u00e1rlagafrumvarpi n\u00e6sta \u00e1rs. Vissulega eru breytingar \u00e1 \u00feessu svi\u00f0i \u2013 en \u00fev\u00ed mi\u00f0ur \u00ed \u00f6fuga \u00e1tt.<\/p>\n<p>\u00deetta kemur sk\u00fdrast fram \u00ed li\u00f0 22.20, \u201eFramhaldsfr\u00e6\u00f0sla og menntun \u00f3flokku\u00f0 \u00e1 sk\u00f3lastig\u201c. Undir \u00feeim li\u00f0 sag\u00f0i \u00ed fj\u00e1rl\u00f6gum s\u00ed\u00f0asta \u00e1rs: Fj\u00e1rheimild m\u00e1laflokksins er aukin t\u00edmabundi\u00f0 um 250 m.kr. til eflingar \u00edslenskukennslu fyrir \u00fatlendinga.\u201c En \u00ed n\u00fdja frumvarpinu segir: \u201eFj\u00e1rheimild m\u00e1laflokksins l\u00e6kkar um 250 m.kr. vegna t\u00edmabundinna verkefna sem falla ni\u00f0ur.\u201c Ekki kemur fram hver \u00feessi t\u00edmabundnu verkefni s\u00e9u en auglj\u00f3st er a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00e1\u00f0urnefnd aukning \u2013 li\u00f0urinn \u201e\u00cdslenskukennsla fyrir \u00fatlendinga\u201c l\u00e6kkar \u00far 564,4 millj\u00f3num kr\u00f3na \u00ed 360,7 millj\u00f3nir kr\u00f3na (h\u00e9r \u00fearf a\u00f0 hafa \u00ed huga ver\u00f0lagsbreytingar). \u00deetta er au\u00f0vita\u00f0 algerlega forkastanlegt. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 gefa \u00ed og efla \u00edslenskukennslu er f\u00e9 til hennar skert st\u00f3rlega.<\/p>\n<p>Undir li\u00f0 29.70, \u201eM\u00e1lefni innflytjenda og fl\u00f3ttamanna\u201c segir: \u201eFj\u00e1rheimild m\u00e1laflokksins l\u00e6kkar um 150 m.kr. Um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a t\u00edmabundna fj\u00e1rheimild vegna a\u00f0ger\u00f0a\u00e1\u00e6tlunar um inngildingu innflytjenda og fl\u00f3ttamanna sem fellur n\u00fa ni\u00f0ur.\u201c \u00deegar \u00feessar 150 millj\u00f3nir komu inn \u00ed fj\u00e1rl\u00f6gum \u00feessa \u00e1rs var \u00fea\u00f0 til a\u00f0 hrinda \u00ed framkv\u00e6md <a href=\"https:\/\/www.stjornarradid.is\/efst-a-baugi\/frettir\/stok-frett\/2024\/02\/20\/Heildarsyn-i-utlendingamalum\/\">a\u00f0ger\u00f0a\u00e1\u00e6tlun<\/a> fyrri r\u00edkisstj\u00f3rnar um inngildingu innflytjenda og fl\u00f3ttaf\u00f3lks \u00ed \u00edslenskt samf\u00e9lag. Vitanlega gerist sl\u00edkt ekki \u00e1 einu \u00e1ri og \u00feess vegna fr\u00e1leitt a\u00f0 fj\u00e1rveitingin haldist ekki \u00e1fram. Vissulega t\u00f3k \u00feessi a\u00f0ger\u00f0a\u00e1\u00e6tlun til margra \u00fe\u00e1tta og \u00f3v\u00edst a\u00f0 miki\u00f0 af \u00fev\u00ed f\u00e9 sem \u00e6tla\u00f0 var til hennar hafi fari\u00f0 beinl\u00ednis \u00ed \u00edslenskukennslu, en hvers kyns a\u00f0rar a\u00f0ger\u00f0ir til inngildingar styrkja l\u00edka \u00edslenskuna.<\/p>\n<p>En vondu fr\u00e9ttirnar eru fleiri. Undir li\u00f0 18.30, \u201eMenningarsj\u00f3\u00f0ir\u201c, segir: \u201e\u00cd samr\u00e6mi vi\u00f0 stefnuyfirl\u00fdsingu r\u00edkisstj\u00f3rnarinnar er fj\u00e1rheimild m\u00e1laflokksins aukin um 950 m.kr. Af \u00feeim ver\u00f0ur 720 m.kr. vari\u00f0 \u00ed a\u00f0 efla menningarsj\u00f3\u00f0i og standa \u00feannig v\u00f6r\u00f0 um grasr\u00f3t skapandi greina og st\u00f6rf innan hennar.\u201c Li\u00f0urinn \u201eMi\u00f0st\u00f6\u00f0 \u00edslenskra b\u00f3kmennta\u201c h\u00e6kkar vissulega um 50 millj\u00f3nir, en li\u00f0urinn \u201eStu\u00f0ningur vi\u00f0 \u00fatg\u00e1fu b\u00f3ka \u00e1 \u00edslensku\u201c l\u00e6kkar um fj\u00f3rar og h\u00e1lfa millj\u00f3n og \u201eB\u00f3kasafnssj\u00f3\u00f0ur h\u00f6funda\u201c l\u00e6kkar um h\u00e1lfa a\u00f0ra millj\u00f3n \u2013 raunl\u00e6kkun er vitanlega talsvert meiri. F\u00e1tt skiptir meira m\u00e1li fyrir \u00edslenskuna en \u00f6flug b\u00f3ka\u00fatg\u00e1fa \u00e1 \u00edslensku, og til a\u00f0 b\u00e6kur s\u00e9u gefnar \u00fat \u00fearf a\u00f0 skrifa \u00fe\u00e6r. L\u00e6kkun \u00e1 \u00feessum li\u00f0um er atlaga a\u00f0 \u00edslenskunni.<\/p>\n<p>Einnig segir undir li\u00f0 18.30: \u201e230 m.kr. ver\u00f0ur vari\u00f0 til styrkingar m\u00e1lefna \u00edslensku, barnamenningar og aukins a\u00f0gengis a\u00f0 menningu \u00f3h\u00e1\u00f0 b\u00fasetu og efnahag.\u201c M\u00e9r hefur satt a\u00f0 segja ekki tekist a\u00f0 finna \u00feessar millj\u00f3nir \u2013 li\u00f0urinn \u201eBarnamenningarsj\u00f3\u00f0ur\u201c l\u00e6kkar t.d. um 1200 \u00fe\u00fasund. Gefum okkur samt a\u00f0 eitthva\u00f0 af \u00feessum millj\u00f3num skili s\u00e9r til \u00edslenskunnar, og einnig getur veri\u00f0 a\u00f0 einhvers sta\u00f0ar annars sta\u00f0ar \u00ed frumvarpinu leynist eitthva\u00f0 sem kemur \u00edslenskunni til g\u00f3\u00f0a. \u00dea\u00f0 eru \u00fe\u00f3 engar l\u00edkur \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 vinni upp \u00fe\u00e6r sker\u00f0ingar sem nefndar eru h\u00e9r a\u00f0 framan. \u00cd heildina m\u00e1 segja a\u00f0 fj\u00e1rlagafrumvarpi\u00f0 s\u00e9 g\u00edfurleg vonbrig\u00f0i fyrir \u00f6ll \u00feau sem bera hag \u00edslenskunnar fyrir brj\u00f3sti og hafa \u00e1hyggjur af st\u00f6\u00f0u hennar og framt\u00ed\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Eins og \u00ed fyrra sko\u00f0a\u00f0i \u00e9g fj\u00e1rlagafrumvarp n\u00e6sta \u00e1rs sem lagt var fram \u00ed morgun til a\u00f0 leita a\u00f0 v\u00edsbendingum um fj\u00e1rveitingar til a\u00f0 efla \u00edslenskuna, ekki s\u00edst kennslu \u00ed \u00edslensku sem \u00f6\u00f0ru m\u00e1li. \u00cd sk\u00fdrslu OECD um innflytjendur sem var birt fyrir r\u00famu \u00e1ri kom fram a\u00f0 fj\u00e1rveitingar \u00e1 \u00cdslandi til kennslu \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0tungunni [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7614","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7614","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7614"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7614\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7619,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7614\/revisions\/7619"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7614"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7614"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7614"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}