{"id":7635,"date":"2025-09-22T22:01:22","date_gmt":"2025-09-22T22:01:22","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7635"},"modified":"2025-09-22T22:01:22","modified_gmt":"2025-09-22T22:01:22","slug":"stigar-og-vegs-eda-stigs-og-vegar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/09\/22\/stigar-og-vegs-eda-stigs-og-vegar\/","title":{"rendered":"St\u00edgar og vegs e\u00f0a st\u00edgs og vegar?"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r hnaut \u00e9g um setninguna \u201eN\u00fdm\u00e1la\u00f0 h\u00fas Myndlistarsk\u00f3lans \u00ed Reykjav\u00edk \u00e1 horni Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgar og Laugavegs hefur vaki\u00f0 athygli fyrir litad\u00fdr\u00f0\u201c \u00ed <a href=\"https:\/\/nyr.ruv.is\/frettir\/innlent\/2025-09-21-nyjasta-kennileiti-midborgarinnar-motefni-vid-graa-faraldrinum-453883\">fr\u00e9tt<\/a> \u00e1 vef <em>R\u00edkis\u00fatvarpsins<\/em>. N\u00fa hefur fr\u00e9ttinni reyndar veri\u00f0 breytt \u00feannig a\u00f0 \u00ed sta\u00f0inn fyrir \u201e\u00e1 horni Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgar og Laugavegs\u201c stendur \u201e\u00e1 horni Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgs og Laugavegar\u201c \u2013 eignarfallsendingunum <em>-s<\/em> og <em>-ar<\/em> hefur sem s\u00e9 veri\u00f0 v\u00edxla\u00f0 og eru n\u00fa \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem venjulega hefur veri\u00f0 kennt. \u00cd <em>Beygingarl\u00fdsingu \u00edslensks n\u00fat\u00edmam\u00e1ls <\/em>er eing\u00f6ngu <a href=\"https:\/\/bin.arnastofnun.is\/leit\/rau%C3%B0ar%C3%A1rst%C3%ADgur\">gefi\u00f0<\/a> eignarfalli\u00f0 <em>Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgs <\/em>en hins vegar <a href=\"https:\/\/bin.arnastofnun.is\/leit\/laugavegur\">b\u00e6\u00f0i<\/a> <em>Laugavegs <\/em>og <em>Laugavegar<\/em>. \u00cd athugasemd vi\u00f0 s\u00ed\u00f0arnefnda or\u00f0i\u00f0 segir: \u201eUpprunalegt eignarfall af or\u00f0inu <strong>vegur<\/strong> er <em>vegar<\/em> en eignarfallinu <em>vegs<\/em> breg\u00f0ur einnig fyrir.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu <\/em>1954 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/1100408?iabr=on#page\/n4\/mode\/1up\/\">segir<\/a> Sveinbj\u00f6rn Sigurj\u00f3nsson: \u201eLaugavegs er rangt, \u00fev\u00ed a\u00f0 ef. af or\u00f0inu vegur \u00ed merkingunni lei\u00f0 er yfirleitt <strong>vegar<\/strong>, ekki <strong>vegs<\/strong>.\u201c \u00cd <em>M\u00e1lfarsbankanum <\/em><a href=\"https:\/\/malfar.arnastofnun.is\/grein\/66513\">segir<\/a>: \u201e<strong>Vegar<\/strong> er eignarfall af <strong>vegur<\/strong> \u00feegar or\u00f0i\u00f0 merkir: lei\u00f0 o.s.frv. [\u2026] Samt sem \u00e1\u00f0ur getur <em>vegs<\/em> komi\u00f0 fyrir \u00ed samsetningum \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 heiti\u00f0 <em>Laugavegsap\u00f3tek<\/em>.\u201c \u00cd ritd\u00f3mi \u00ed <em>\u00cdslandi <\/em>1929 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/5236857?iabr=on#page\/n2\/mode\/2up\/\">segir<\/a>: \u201eLaugavegs Ap\u00f3thek [\u2026] \u00fe\u00fd\u00f0ir \u00e1 \u00edslenzku Lyfjab\u00fa\u00f0 Laugavegar\u201c. \u00dea\u00f0 er vel \u00feekkt a\u00f0 or\u00f0 hafa oft a\u00f0ra eignarfallsmynd \u00ed samsetningum en ein og s\u00e9r, en myndin <em>Laugavegs <\/em>\u00e1 s\u00e9r einnig langa hef\u00f0 utan samsetninga. Um hana eru h\u00e1tt \u00ed tuttugu \u00fe\u00fasund d\u00e6mi \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em>, \u00feau elstu fr\u00e1 \u00fev\u00ed fyrir 1900 \u2013 en d\u00e6min um \u201er\u00e9ttu\u201c myndina <em>Laugavegar <\/em>eru ekki nema r\u00e9tt \u00e1 fj\u00f3r\u00f0a \u00fe\u00fasund.<\/p>\n<p>Eignarfalli\u00f0 <em>vegs<\/em> \u00ed merkingunni 'lei\u00f0' kemur reyndar fyrir \u00feegar \u00ed <em>Reykjah\u00f3lab\u00f3k <\/em>fr\u00e1 fyrri hluta sext\u00e1ndu aldar, og vegna aldurs og t\u00ed\u00f0ni er lj\u00f3st a\u00f0 <em>Laugavegs <\/em>hl\u00fdtur a\u00f0 teljast r\u00e9tt. Eignarfalli\u00f0 (<em>Rau\u00f0ar\u00e1r<\/em>)<em>st\u00edgar <\/em>hefur hins vegar allt a\u00f0ra st\u00f6\u00f0u en er \u00fe\u00f3 ekki einsd\u00e6mi. \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1940 segir: \u201eLaugarness\u00f3kn, austan Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgar.\u201c \u00cd <em>T\u00edmanum <\/em>1979 segir: \u201e\u00cd fyrrakv\u00f6ld var eki\u00f0 \u00e1 fullor\u00f0na konu \u00e1 m\u00f3tum Sk\u00falag\u00f6tu og Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgar.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1998 segir: \u201e\u00c1 horni Nj\u00e1lsg\u00f6tu og Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgar.\u201c \u00dea\u00f0 m\u00e1 l\u00edka finna myndirnar <em>Laugavegs <\/em>og <em>Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgar <\/em>\u00e1 s\u00ed\u00f0unni <em>frostiberg <\/em>\u00ed <a href=\"https:\/\/frostiberg.wordpress.com\/2016\/11\/18\/hjolad-vid-hlemm\/\">texta<\/a> fr\u00e1 2016 vi\u00f0 mynd af h\u00fasinu sem v\u00edsa\u00f0 var til \u00ed \u00e1\u00f0urnefndri fr\u00e9tt <em>R\u00edkis\u00fatvarpsins<\/em>: \u201eSt\u00f3rh\u00fdsi Egils Vilhj\u00e1lmssonar, \u00e1 horni Laugavegs og Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgar n\u00fdrisi\u00f0.\u201c<\/p>\n<p>Einnig m\u00e1 finna f\u00e1ein d\u00e6mi um <em>-ar<\/em>-eignarfall annarra <em>st\u00edgs<\/em>-heita. \u00cd <em>V\u00edsi <\/em>1952 segir: \u201eog \u00fear sett fram gagnr\u00fdni vegna \u00f3samr\u00fdmis milli g\u00f6tulj\u00f3sanna \u00e1 horni Sk\u00f3lav\u00f6r\u00f0ust\u00edgar og Laugavegs annars vegar og lj\u00f3sanna \u00e1 m\u00f3tum Bankastr\u00e6tis og Laugavegar hins vegar.\u201c \u00cd <em>V\u00edsi <\/em>1955 segir: \u201eHinn \u00e1reksturinn var\u00f0 milli hj\u00f3lrei\u00f0amanns og bifrei\u00f0ar \u00e1 m\u00f3tum Bar\u00f3nsst\u00edgar og Laugavegar.\u201c \u00cd <em>DV <\/em>1987 segir: \u201eUmfer\u00f0arslys var\u00f0 \u00ed ve\u00f0urbl\u00ed\u00f0unni \u00ed g\u00e6r \u00e1 m\u00f3tum Bergsta\u00f0astr\u00e6tis og Bjarnarst\u00edgar.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2000 segir: \u201eR\u00famgott og bjart versl.h\u00fasn. \u00e1 horni Bar\u00f3nsst\u00edgar og Laugavegar.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2001 segir: \u201eVorum a\u00f0 f\u00e1 \u00ed s\u00f6lu \u00feetta gl\u00e6silega verslunarh\u00fasn\u00e6\u00f0i \u00e1 horni Sk\u00f3lav\u00f6r\u00f0ust\u00edgar og \u00d3\u00f0insg\u00f6tu.\u201c<\/p>\n<p>En eignarfallsmyndir me\u00f0 <em>-st\u00edgar<\/em> eru ekki bundnar vi\u00f0 g\u00f6tuheiti. \u00c1 vef <em>R\u00edkis\u00fatvarpsins <\/em>2012 segir: \u201e\u00cd g\u00e6r m\u00e6ttu b\u00e6jarb\u00faar me\u00f0 sk\u00f3flur og h\u00f3fu ger\u00f0 gangst\u00edgar.\u201c \u00c1 <em>mbl.is <\/em>2017 segir: \u201e\u00deannig s\u00e9 n\u00fa unni\u00f0 a\u00f0 ger\u00f0 hj\u00f3last\u00edgar milli Akureyrar og \u00fe\u00e9ttb\u00fdlisins \u00ed Hrafnagili.\u201c \u00cd <em>V\u00edsi <\/em>2022 segir: \u201eFramkv\u00e6mdir h\u00f3fust vi\u00f0 Litluhl\u00ed\u00f0 fyrir ne\u00f0an B\u00fasta\u00f0aveg \u00ed ma\u00ed \u00ed fyrra vi\u00f0 ger\u00f0 n\u00fds g\u00f6ngu- og hj\u00f3last\u00edgar.\u201c Einnig m\u00e1 finna d\u00e6mi um eignarfalli\u00f0 <em>st\u00edgar <\/em>eitt og s\u00e9r. \u00cd <em>Vikunni <\/em>1965 segir: \u201eVi\u00f0 enda eins st\u00edgarins gn\u00e6f\u00f0i stytta af Pan.\u201c \u00cd <em>Mosfellsbla\u00f0inu <\/em>2000 segir: \u201eMikil handv\u00f6mm vir\u00f0ist \u00ed lagningu \u00feessa st\u00edgar.\u201c En erfitt er a\u00f0 leita rafr\u00e6nt a\u00f0 d\u00e6mum um eignarfalli\u00f0 <em>st\u00edgar <\/em>\u00e1n greinis vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 fellur saman vi\u00f0 fleirt\u00f6luna.<\/p>\n<p>Enda \u00fe\u00f3tt eignarfallinu <em>st\u00edgar <\/em>hafi lengi brug\u00f0i\u00f0 fyrir er ekki a\u00f0 sj\u00e1 \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni <\/em>a\u00f0 t\u00ed\u00f0ni \u00feess fari vaxandi \u2013 s\u00e1raf\u00e1 d\u00e6mi eru um \u00fea\u00f0 af samf\u00e9lagsmi\u00f0lum. \u00dea\u00f0 er lj\u00f3st a\u00f0 \u00feetta eignarfall er of sjaldg\u00e6ft til a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 telja \u00fea\u00f0 m\u00e1lvenju og \u00fear me\u00f0 er \u00fea\u00f0 ekki \u201er\u00e9tt m\u00e1l\u201c samkv\u00e6mt hef\u00f0bundinni <a href=\"https:\/\/www.visindavefur.is\/svar.php?id=2148\">skilgreiningu<\/a>. \u00deess vegna var r\u00e9tt a\u00f0 breyta \u00fev\u00ed \u00e1 vef <em>R\u00edkis\u00fatvarpsins <\/em>\u2013 en e\u00f0lilegt hef\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 leyfa <em>Laugavegs<\/em> a\u00f0 standa. Hitt er anna\u00f0 m\u00e1l a\u00f0 eins og \u00e9g hef <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/12\/14\/laeks-eda-laekjar\/\">skrifa\u00f0<\/a> um eru fj\u00f6lm\u00f6rg d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 fr\u00e1 \u00fdmsum t\u00edmum a\u00f0 karlkynsor\u00f0 flakki milli <em>-s-<\/em> og <em>-ar<\/em>-eignarfalls, og \u00fdmis or\u00f0 h\u00f6f\u00f0u tv\u00edmyndir \u00feegar \u00ed fornu m\u00e1li. \u00dea\u00f0 v\u00e6ru engin m\u00e1lspj\u00f6ll og algerlega meinlaust \u00fe\u00f3tt eignarfalli\u00f0 <em>Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgar <\/em>breiddist \u00fat og yr\u00f0i m\u00e1lvenja.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r hnaut \u00e9g um setninguna \u201eN\u00fdm\u00e1la\u00f0 h\u00fas Myndlistarsk\u00f3lans \u00ed Reykjav\u00edk \u00e1 horni Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgar og Laugavegs hefur vaki\u00f0 athygli fyrir litad\u00fdr\u00f0\u201c \u00ed fr\u00e9tt \u00e1 vef R\u00edkis\u00fatvarpsins. N\u00fa hefur fr\u00e9ttinni reyndar veri\u00f0 breytt \u00feannig a\u00f0 \u00ed sta\u00f0inn fyrir \u201e\u00e1 horni Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgar og Laugavegs\u201c stendur \u201e\u00e1 horni Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgs og Laugavegar\u201c \u2013 eignarfallsendingunum -s og -ar hefur sem [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7635","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7635","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7635"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7635\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7636,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7635\/revisions\/7636"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7635"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7635"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7635"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}