{"id":7661,"date":"2025-10-07T12:28:19","date_gmt":"2025-10-07T12:28:19","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7661"},"modified":"2025-10-07T22:50:53","modified_gmt":"2025-10-07T22:50:53","slug":"samstada-um-eflingu-islenskunnar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/10\/07\/samstada-um-eflingu-islenskunnar\/","title":{"rendered":"Samsta\u00f0a um eflingu \u00edslenskunnar"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd framhaldi af <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/altext\/erindi\/157\/157-21.pdf\">athugasemdum<\/a> sem \u00e9g ger\u00f0i vi\u00f0 frumvarp til fj\u00e1rlaga fyrir n\u00e6sta \u00e1r stofna\u00f0i \u00e9g fyrir viku <a href=\"https:\/\/island.is\/undirskriftalistar\/23694159-a783-4cb8-ad14-8186dcc3d6c4\">undirskriftalista<\/a> \u00e1 <em>\u00cdsland.is<\/em> \u00fear sem skora\u00f0 er \u201e\u00e1 r\u00edkisstj\u00f3rn og Al\u00feingi a\u00f0 st\u00f3rh\u00e6kka framl\u00f6g til kennslu \u00ed \u00edslensku sem \u00f6\u00f0ru m\u00e1li \u00ed fj\u00e1rl\u00f6gum \u00e1rsins 2026\u201c. \u00c9g vissi svo sem ekkert hverjar undirtektir \u00feessi listi fengi en get ekki kvarta\u00f0 \u2013 n\u00fa eru komnar \u00e1 fimmt\u00e1nda hundra\u00f0 undirskriftir og sagt hefur veri\u00f0 fr\u00e1 listanum \u00ed <em><a href=\"https:\/\/www.visir.is\/g\/20252782842d\/skorar-a-rikisstjornina-ad-fjarmagna-islenskunam\">V\u00edsi<\/a><\/em>, \u00e1 <em><a href=\"https:\/\/www.visir.is\/k\/3c787733-0ba2-4a44-91e5-ee1b2acdb13e-1759336127377\">Bylgjunni<\/a> <\/em>og \u00e1 <em>mbl.is<\/em>, ekki <a href=\"https:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2025\/09\/30\/eirikur_stofnar_undirskriftalista\/\">einu sinni<\/a> heldur <a href=\"https:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2025\/10\/06\/enska_radandi_eftir_nokkra_aratugi_ad_obreyttu\/\">tvisvar<\/a>. \u00dea\u00f0 er gott, \u00fev\u00ed a\u00f0 markmi\u00f0i\u00f0 me\u00f0 listanum er ekki bara a\u00f0 f\u00e1 sem flestar undirskriftir heldur l\u00edka a\u00f0 vekja athygli \u00e1 m\u00e1linu og skapa \u00feannig \u00fer\u00fdsting \u00e1 stj\u00f3rnv\u00f6ld \u00ed von um a\u00f0 \u00feeim skiljist a\u00f0 \u00feetta er mj\u00f6g mikilv\u00e6gt m\u00e1l sem n\u00fdtur verulegs stu\u00f0nings \u00ed samf\u00e9laginu.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt \u00e1skoruninni s\u00e9 beint til stj\u00f3rnvalda \u00e1 hvatning til a\u00f0 sty\u00f0ja vi\u00f0 kennslu \u00ed \u00edslensku sem \u00f6\u00f0ru m\u00e1li ekki s\u00ed\u00f0ur erindi til atvinnurekenda \u2013 fyrirt\u00e6kja og stofnana sem eru me\u00f0 f\u00f3lk sem ekki \u00e1 \u00edslensku a\u00f0 m\u00f3\u00f0urm\u00e1li \u00ed vinnu. \u00dea\u00f0 er nau\u00f0synlegt a\u00f0 f\u00f3lk f\u00e1i t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 stunda \u00edslenskun\u00e1m, s\u00e9 hvatt til \u00feess og \u00fev\u00ed li\u00f0sinnt eftir \u00fev\u00ed sem kostur er, svo sem me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 \u00edslenskun\u00e1m \u00e1 vinnut\u00edma. S\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst \u00e1 \u00feessi hvatning erindi til okkar allra \u2013 vi\u00f0 \u00feurfum \u00f6ll a\u00f0 leggja okkar af m\u00f6rkum til a\u00f0 au\u00f0velda f\u00f3lki \u00edslenskun\u00e1m, nota \u00edslensku \u00ed samskiptum vi\u00f0 innflytjendur ef \u00feess er nokkur kostur (\u00e1n \u00feess a\u00f0 s\u00fdna \u00f3kurteisi), taka tilraunum f\u00f3lks til a\u00f0 tala \u00edslensku vel og \u00fdta undir \u00fe\u00e6r. \u00deetta kostar ekki neitt \u2013 nema tillitssemi.<\/p>\n<p>M\u00e9r finnst mikilv\u00e6gt a\u00f0 vi\u00f0 gerum okkur grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 sn\u00fdst ekki bara um \u00edslenskuna og framt\u00ed\u00f0 hennar, heldur einnig og ekki s\u00ed\u00f0ur um \u00fea\u00f0 \u00ed hvers konar samf\u00e9lagi vi\u00f0 viljum b\u00faa \u00ed framt\u00ed\u00f0inni \u2013 og b\u00faa b\u00f6rnum okkar. Viljum vi\u00f0 b\u00faa \u00ed samf\u00e9lagi \u00fear sem \u00edslenskan er bur\u00f0ar\u00e1s og sameiningart\u00e1kn, \u00fear sem h\u00fan er samskiptam\u00e1l \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um og menningarmi\u00f0lari, sameign \u00edb\u00faanna \u2013 e\u00f0a viljum vi\u00f0 b\u00faa \u00ed samf\u00e9lagi \u00fear sem umtalsver\u00f0ur hluti \u00edb\u00faanna talar ekki \u00edslensku, festist \u00ed l\u00e1glaunast\u00f6rfum og einangrast \u00ed afm\u00f6rku\u00f0um samf\u00e9l\u00f6gum, og tekur ekki \u00fe\u00e1tt \u00ed samf\u00e9lagslegri umr\u00e6\u00f0u, kosningum e\u00f0a neins konar f\u00e9lags- og menningarstarfi? \u00c9g vonast til og geri r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 f\u00e6stum hugnist s\u00ed\u00f0arnefndi kosturinn \u2013 en \u00fe\u00e1 \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 s\u00fdna \u00fea\u00f0 \u00ed verki.<\/p>\n<p>\u00c9g hef i\u00f0ulega veri\u00f0 saka\u00f0ur um a\u00f0 hr\u00f3pa \u201e\u00falfur, \u00falfur\u201c, m\u00e1la skrattann \u00e1 vegginn og hafa uppi hr\u00e6\u00f0slu\u00e1r\u00f3\u00f0ur, d\u00f3msdagssp\u00e1r og anna\u00f0 \u00fea\u00f0an af verra \u00feegar \u00e9g bendi \u00e1 \u00fe\u00e1 lei\u00f0 sem m\u00e9r s\u00fdnist \u00edslenskan og \u00edslenskt samf\u00e9lag vera \u00e1. Sannarlega vonast \u00e9g til a\u00f0 \u00e9g hafi rangt fyrir m\u00e9r og \u00edslenskan standi \u00feetta af s\u00e9r eins og h\u00fan hefur gert hinga\u00f0 til, \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 utana\u00f0komandi \u00fer\u00fdstingur \u00e1 hana s\u00e9 meiri en nokkru sinni fyrr, og annars e\u00f0lis sem gerir erfi\u00f0ara a\u00f0 standast hann. En ekki veldur s\u00e1 er varar, og \u00e9g \u00e6tla ekki a\u00f0 ver\u00f0a s\u00e1 sem taldi sig sj\u00e1 h\u00e6ttumerki en l\u00e9t vera a\u00f0 benda \u00e1 \u00feau. Jafnvel \u00fe\u00f3tt h\u00e6ttan reynist minni en m\u00e9r s\u00fdnist og allt fari \u00e1 besta veg getur aldrei veri\u00f0 nema til g\u00f3\u00f0s a\u00f0 leggja meira r\u00e6kt vi\u00f0 \u00edslenskuna.<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 hefur alltof l\u00edti\u00f0 veri\u00f0 gert til a\u00f0 styrkja \u00edslenskuna og gera henni kleift a\u00f0 standast \u00feennan \u00fer\u00fdsting. \u00c9g reyni yfirleitt a\u00f0 vera bjarts\u00fdnn og hef i\u00f0ulega tala\u00f0 fyrir j\u00e1kv\u00e6\u00f0ri umr\u00e6\u00f0u um \u00edslenskuna en \u00f3rauns\u00e6 bjarts\u00fdni getur samt komi\u00f0 manni \u00ed koll, og \u00e9g hef raunverulegar og einl\u00e6gar \u00e1hyggjur af framt\u00ed\u00f0 \u00edslenskunnar. H\u00fan er vitanlega ekki a\u00f0 fara a\u00f0 deyja \u00e1 n\u00e6stunni, en eftir \u00fev\u00ed sem v\u00e6gi ensku sem samskiptam\u00e1ls eykst veikist \u00edslenskan og ver\u00f0ur undir \u2013 og hverfur a\u00f0 lokum. G\u00f3\u00f0u fr\u00e9ttirnar eru samt \u00fe\u00e6r a\u00f0 \u00feetta \u00fearf ekkert a\u00f0 fara \u00feannig. Vi\u00f0 getum alveg sn\u00fai\u00f0 \u00fer\u00f3uninni vi\u00f0, eflt \u00edslenskuna og gert hana a\u00f0 \u00feeirri sameign sem h\u00fan \u00fearf a\u00f0 vera. Takist a\u00f0 skapa um \u00fea\u00f0 samst\u00f6\u00f0u stj\u00f3rnvalda, atvinnul\u00edfs og almennings er \u00e1st\u00e6\u00f0a til bjarts\u00fdni.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd framhaldi af athugasemdum sem \u00e9g ger\u00f0i vi\u00f0 frumvarp til fj\u00e1rlaga fyrir n\u00e6sta \u00e1r stofna\u00f0i \u00e9g fyrir viku undirskriftalista \u00e1 \u00cdsland.is \u00fear sem skora\u00f0 er \u201e\u00e1 r\u00edkisstj\u00f3rn og Al\u00feingi a\u00f0 st\u00f3rh\u00e6kka framl\u00f6g til kennslu \u00ed \u00edslensku sem \u00f6\u00f0ru m\u00e1li \u00ed fj\u00e1rl\u00f6gum \u00e1rsins 2026\u201c. \u00c9g vissi svo sem ekkert hverjar undirtektir \u00feessi listi fengi en get [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7661","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7661","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7661"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7661\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7663,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7661\/revisions\/7663"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7661"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7661"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7661"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}