{"id":7671,"date":"2025-10-12T10:30:14","date_gmt":"2025-10-12T10:30:14","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7671"},"modified":"2025-10-12T10:33:11","modified_gmt":"2025-10-12T10:33:11","slug":"hid-raunverulega-vandamal","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/10\/12\/hid-raunverulega-vandamal\/","title":{"rendered":"Hi\u00f0 raunverulega vandam\u00e1l"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd umr\u00e6\u00f0u um meintan minnkandi lestur \u00e1 sk\u00e1lds\u00f6gum Halld\u00f3rs Laxness \u00ed sk\u00f3lum hefur stafsetningu Halld\u00f3rs, minnkandi lesskilningi, breyttum t\u00ed\u00f0aranda, styttingu framhaldssk\u00f3lans og jafnvel marx\u00edskum hugsunarh\u00e6tti veri\u00f0 kennt um.\u00a0 En \u00ed <em>mbl.is <\/em>\u00ed g\u00e6r voru nokkrir nemendur \u00ed Verslunarsk\u00f3la \u00cdslands <a href=\"https:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2025\/10\/11\/hef_ahyggjur_af_mer_sjalfri_thvi_eg_les_svo_litid\/\">teknir tali<\/a> og spur\u00f0ir hvort \u00feeim fyndist \u00e1hyggjuefni a\u00f0 ungt f\u00f3lk lesi ekki b\u00e6kur. Ung kona svarar \u00fev\u00ed svo: \u201eJ\u00e1, alveg mj\u00f6g miklar. \u00cd rauninni rosalegar. \u00c9g pers\u00f3nulega les aldrei b\u00e6kur.\u201c \u00derj\u00e1r a\u00f0rar \u201eeru samm\u00e1la sk\u00f3lasystrum s\u00ednum um a\u00f0 lestur \u00ed \u00feeirra aldursh\u00f3pi s\u00e9 \u00ed l\u00e1gmarki\u201c \u2013 ein \u00feeirra segir: \u201e\u00c9g get bara sagt \u00fea\u00f0 sj\u00e1lf a\u00f0 \u00e9g hef \u00e1hyggjur af m\u00e9r sj\u00e1lfri \u00fev\u00ed \u00e9g les svo l\u00edti\u00f0. \u00c9g \u00feekki mj\u00f6g f\u00e1a sem lesa s\u00e9r eitthva\u00f0 til gamans.\u201c<\/p>\n<p>H\u00e9r er loksins komi\u00f0 a\u00f0 kjarna m\u00e1lsins. Hann er nefnilega ekki s\u00e1 a\u00f0 dregi\u00f0 hafi \u00far lestri \u00e1 b\u00f3kum Halld\u00f3rs Laxness \u00ed sk\u00f3lum \u2013 sem er sj\u00e1lfsagt r\u00e9tt \u2013 heldur a\u00f0 unga f\u00f3lki\u00f0 les ekki b\u00e6kur yfirleitt. Au\u00f0vita\u00f0 er h\u00e9r ekki um v\u00edsindalega ranns\u00f3kn a\u00f0 r\u00e6\u00f0a, en \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur samt a\u00f0 vekja athygli \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta er vitnisbur\u00f0ur nemenda \u00ed <a href=\"https:\/\/island.is\/frett\/allir-nynemar-komnir-med-plass-i-framhaldsskola-innritun-lokid-fyrr-en-adur\">eftirs\u00f3ttasta<\/a> framhaldssk\u00f3la landsins \u2013 hlutfall \u00feeirra sem fengu sk\u00f3lavist af \u00feeim sem h\u00f6f\u00f0u sk\u00f3lann sem fyrsta val var hvergi l\u00e6gra en \u00fear n\u00fa \u00ed haust, og \u00fear sem fyrst og fremst er vali\u00f0 inn eftir einkunnum m\u00e1 \u00e6tla a\u00f0 nemendur Verslunarsk\u00f3lans s\u00e9u vel fyrir ofan me\u00f0altal \u00ed n\u00e1ms\u00e1rangri. Samt segjast \u00feau lesa l\u00edti\u00f0 sem ekkert utan sk\u00f3lans. \u00dea\u00f0 er hi\u00f0 raunverulega \u00e1hyggjuefni sem umr\u00e6\u00f0an \u00e6tti a\u00f0 sn\u00faast um.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er \u00fe\u00f3 fagna\u00f0arefni a\u00f0 nemendurnir vir\u00f0ast gera s\u00e9r grein fyrir st\u00f6\u00f0unni, telja \u201emikilv\u00e6gt a\u00f0 lesa klass\u00edsk \u00edslensk b\u00f3kmenntaverk \u00ed menntask\u00f3la\u201c og segja a\u00f0 \u201e\u00fea\u00f0 s\u00e9 gaman a\u00f0 tala g\u00f3\u00f0a \u00edslensku\u201c. \u00de\u00e6r telja l\u00edka \u201ea\u00f0 auka \u00feurfi lestur b\u00f3ka \u00ed grunnsk\u00f3lum\u201c og b\u00e6ta vi\u00f0: \u201eMa\u00f0ur \u00fearf a\u00f0 kunna a\u00f0 fallbeygja or\u00f0 og eitthva\u00f0. En \u00e9g held a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 mikilv\u00e6gt a\u00f0 lesa b\u00e6kur.\u201c \u00c9g er einmitt hr\u00e6ddur um a\u00f0 \u00ed grunnsk\u00f3lum s\u00e9 stundum l\u00f6g\u00f0 of mikil \u00e1hersla \u00e1 beygingar og or\u00f0flokkagreiningu \u00e1 kostna\u00f0 b\u00f3klestrar. M\u00e1lfr\u00e6\u00f0in skiptir vissulega m\u00e1li, en h\u00fan er gagnslaus, tilgangslaus og dreplei\u00f0inleg \u00ed t\u00f3mar\u00fami, \u00e1n tengsla vi\u00f0 m\u00e1li\u00f0 sj\u00e1lft. S\u00fa m\u00e1lfr\u00e6\u00f0i sem m\u00e1li skiptir fyrir framhaldssk\u00f3lanema l\u00e6rist langbest \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 nota m\u00e1li\u00f0 \u2013 \u00ed tali, lestri og riti.<\/p>\n<p>Stytting framhaldssk\u00f3lans hefur \u00e1n efa dregi\u00f0 \u00far sk\u00e1ldsagnalestri \u00ed sk\u00f3lum, en h\u00fan er ekki frumors\u00f6k vandans og sk\u00f3lakerfinu ver\u00f0ur ekki kennt um hann. (Reyndar m\u00e1 nefna a\u00f0 \u00feegar \u201emarx\u00edskum hugsunarh\u00e6tti\u201c er <a href=\"https:\/\/www.althingi.is\/altext\/raeda\/157\/rad20251009T134910.html\">kennt um<\/a> a\u00f0 <em>Sj\u00e1lfst\u00e6tt f\u00f3lk <\/em>s\u00e9 minna lesi\u00f0 \u00ed sk\u00f3lum en \u00e1\u00f0ur bendir \u00fea\u00f0 til \u00feess a\u00f0 alvarlegar gloppur s\u00e9u ekki s\u00ed\u00f0ur \u00ed s\u00f6gukennslunni.) Hins vegar kom styttingin \u00e1 versta t\u00edma \u2013 einmitt \u00e1 \u00feeim t\u00edma \u00feegar nemendur sem h\u00f6f\u00f0u alist upp vi\u00f0 samf\u00e9lagsmi\u00f0la og snjalls\u00edmanotkun f\u00f3ru a\u00f0 koma inn \u00ed framhaldssk\u00f3lana me\u00f0 minni lestar\u00fej\u00e1lfun en \u00feau sem \u00e1 undan komu. Til m\u00f3tv\u00e6gis vi\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i einmitt \u00feurft a\u00f0 b\u00e6ta \u00ed \u00e1 \u00feessum t\u00edma og auka lestur \u00ed framhaldssk\u00f3lum, en styttingin kom \u00ed veg fyrir a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri h\u00e6gt.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd umr\u00e6\u00f0u um meintan minnkandi lestur \u00e1 sk\u00e1lds\u00f6gum Halld\u00f3rs Laxness \u00ed sk\u00f3lum hefur stafsetningu Halld\u00f3rs, minnkandi lesskilningi, breyttum t\u00ed\u00f0aranda, styttingu framhaldssk\u00f3lans og jafnvel marx\u00edskum hugsunarh\u00e6tti veri\u00f0 kennt um.\u00a0 En \u00ed mbl.is \u00ed g\u00e6r voru nokkrir nemendur \u00ed Verslunarsk\u00f3la \u00cdslands teknir tali og spur\u00f0ir hvort \u00feeim fyndist \u00e1hyggjuefni a\u00f0 ungt f\u00f3lk lesi ekki b\u00e6kur. Ung kona [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7671","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7671","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7671"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7671\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7673,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7671\/revisions\/7673"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7671"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7671"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7671"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}