{"id":7679,"date":"2025-10-14T15:40:12","date_gmt":"2025-10-14T15:40:12","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7679"},"modified":"2025-10-21T09:26:53","modified_gmt":"2025-10-21T09:26:53","slug":"ad-koma-i-veg-fyrir-ad-eitthvad-gerist-ekki","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/10\/14\/ad-koma-i-veg-fyrir-ad-eitthvad-gerist-ekki\/","title":{"rendered":"A\u00f0 koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 eitthva\u00f0 gerist ekki"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd \u201eM\u00e1lspjalli\u201c var \u00ed dag vakin athygli \u00e1 fyrirs\u00f6gninni \u201eSn\u00f6r vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 komu \u00ed veg fyrir a\u00f0 ekki f\u00f3r verr\u201c \u00e1 <em>mbl.is<\/em> \u2013 spurt \u201e\u00c6tli hafi \u00fe\u00e1 fari\u00f0 illa?\u201c og b\u00e6tt vi\u00f0: \u201e\u00deessar tv\u00f6f\u00f6ldu neitanir geta rugla\u00f0 mann \u00ed r\u00edminu.\u201c \u00dea\u00f0 er vissulega r\u00e9tt a\u00f0 <em>koma \u00ed veg fyrir <\/em>felur \u00ed s\u00e9r eins konar neitun, og <em>ekki <\/em>er vitanlega neitandi atviksor\u00f0. Ef sagt er <em>sn\u00f6r vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 komu \u00ed veg fyrir a\u00f0 h\u00fasi\u00f0 brynni<\/em> er lj\u00f3st a\u00f0 h\u00fasi\u00f0 brann ekki, en ef neituninni <em>ekki <\/em>er skoti\u00f0 inn og sagt <em>sn\u00f6r vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 komu \u00ed veg fyrir a\u00f0 <strong>ekki<\/strong> brynni <\/em>hl\u00fdtur \u00fea\u00f0 a\u00f0 sn\u00faa merkingunni vi\u00f0, og setningin \u00fe\u00e1 a\u00f0 merkja 'sn\u00f6r vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 komu \u00ed veg fyrir a\u00f0 h\u00fasinu v\u00e6ri for\u00f0a\u00f0 fr\u00e1 bruna' \u2013 e\u00f0a hva\u00f0? Hl\u00fdtur ekki tungum\u00e1li\u00f0 a\u00f0 vera r\u00f6kr\u00e9tt? Hlj\u00f3ta ekki neitanirnar a\u00f0 vega hvor a\u00f0ra upp?<\/p>\n<p>Ekki endilega. \u00dea\u00f0 m\u00e1 benda \u00e1 \u00fdmis d\u00e6mi um a\u00f0 merking setninga me\u00f0 tveimur (e\u00f0a fleiri) neitunum s\u00e9 \u201e\u00f3r\u00f6kr\u00e9tt\u201c, \u00fe.e. ekki s\u00fa sem b\u00faast m\u00e6tti vi\u00f0 ef neitanirnar eru taldar saman. Sambandi\u00f0 <em>ekki \u00f3sjaldan <\/em>er t.d. n\u00e6r alltaf nota\u00f0 \u00ed <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2020\/12\/17\/ekki-osjaldan\/\">merkingunni<\/a> '\u00f3sjaldan' en ekki \u00ed merkingunni 'alloft' eins og \u00fe\u00f3 m\u00e6tti b\u00faast vi\u00f0 \u00fear sem <em>\u00f3sjaldan <\/em>er neita\u00f0. Sambandi\u00f0 <em>ekki \u00f3vitlaust <\/em>er l\u00edka yfirleitt nota\u00f0 \u00ed merkingunni '\u00f3vitlaust'. Sambandi\u00f0 <em>\u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegt anna\u00f0 en <\/em>er n\u00e6r alltaf nota\u00f0 \u00ed <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2021\/01\/20\/ohjakvaemilegt-annad-en\/\">merkingunni<\/a> '\u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegt' enda \u00fe\u00f3tt <em>anna\u00f0 en <\/em>me\u00f0 l\u00fdsingaror\u00f0i hafi yfirleitt \u00fea\u00f0 hlutverk a\u00f0 f\u00e1 fram andst\u00e6\u00f0a merkingu vi\u00f0 or\u00f0i\u00f0 sem \u00fea\u00f0 fylgir. S\u00f6gnin <em>af\u00fe\u00ed\u00f0a <\/em>er alltaf notu\u00f0 \u00ed <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2021\/04\/02\/afthida\/\">merkingunni<\/a> 'affrysta, l\u00e1ta \u00fei\u00f0na' \u00fe\u00f3tt <em>af- <\/em>sn\u00fai venjulega vi\u00f0 merkingu eftirfarandi sagnar.<\/p>\n<p>\u00cd <em>Baldri <\/em>1903 er tala\u00f0 um \u201ehvernig h\u00e6gt sje a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 ekki \u00feurfi a\u00f0 ey\u00f0a jafn m\u00f6rgum dagsverkum, og gj\u00f6rt hefir veri\u00f0, til endurb\u00f3ta \u00e1 s\u00f6mu vegak\u00f6flum \u00e1r eftir \u00e1r\u201c. \u00cd <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0umanninum <\/em>1953 segir: \u201eVer r\u00edkisstj\u00f3rnin \u00e1 \u00feessu \u00e1ri allt a\u00f0 9 millj. kr. til a\u00f0 grei\u00f0a ni\u00f0ur smj\u00f6r og koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 ekki safnist frekari birg\u00f0ir.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>1975 segir: \u201eGy\u00f0a \u00dalfarsd\u00f3ttir \u00ed \u00edslenzka markinu \u00e1tti aftur st\u00f3rleik, og \u00fea\u00f0 var fyrst og fremst h\u00fan sem kom \u00ed veg fyrir a\u00f0 ekki f\u00f3r verr.\u201c \u00cd <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu <\/em>1987 segir: \u201eVi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 einhenda okkur \u00ed \u00fea\u00f0 a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 ekki ver\u00f0i tv\u00e6r \u00fej\u00f3\u00f0ir \u00ed landinu.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2013 segir: \u201eHann telur lj\u00f3st a\u00f0 hl\u00edf\u00f0arb\u00fana\u00f0ur \u00feeirra og \u00fej\u00e1lfun hafi komi\u00f0 \u00ed veg fyrir a\u00f0 ekki f\u00f3r verr.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd \u00feessum d\u00e6mum, og \u00ed \u00f6\u00f0rum d\u00e6mum \u00e1 <em>t\u00edmarit.is <\/em>sem eru um \u00e1ttat\u00edu alveg fr\u00e1 byrjun tuttugustu aldar til samt\u00edmans, er merkingin \u00ed <em>koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 ekki<\/em> (gerist eitthva\u00f0) greinilega 'koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 eitthva\u00f0 gerist' \u2013 neitunin <em>ekki <\/em>n\u00fallast sem s\u00e9 \u00fat. En \u00feetta er ekki bundi\u00f0 vi\u00f0 bl\u00f6\u00f0 og t\u00edmarit \u2013 meira a\u00f0 segja Halld\u00f3r Laxness nota\u00f0i sambandi\u00f0 \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt. \u00cd <em>H\u00f6ll sumarlandsins <\/em>fr\u00e1 1938 segir: \u201eef \u00fea\u00f0 er gu\u00f0 sem kom \u00ed veg fyrir a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um ekki m\u00e1l\u00fangi matar heilu misserin.\u201c \u00deetta er reyndar eitt af fj\u00f6lm\u00f6rgu sem Sigurj\u00f3n J\u00f3nsson ger\u00f0i <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/3274053?iabr=on#page\/n11\/mode\/1up\">athugasemdir<\/a> vi\u00f0 \u00ed heilum greinaflokki um <em>Heimslj\u00f3s <\/em>\u00ed <em>Lesb\u00f3k Morgunbla\u00f0sins <\/em>1941 og setti innan sviga sk\u00fdringu \u00e1 setningunni: \u201e(\u00fe.e. ef gu\u00f0 kom \u00fev\u00ed til lei\u00f0ar a\u00f0 vi\u00f0 <strong>h\u00f6f\u00f0um <\/strong>m.m.).\u201c<\/p>\n<p>\u00deessi m\u00e1lnotkun er enn \u00ed fullu fj\u00f6ri \u2013 samb\u00e6rileg d\u00e6mi \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni <\/em>skipta hundru\u00f0um og \u00ed flj\u00f3tu brag\u00f0i s\u00e9 \u00e9g ekki anna\u00f0 en \u00ed langflestum tilvikum s\u00e9u \u00feau sama e\u00f0lis \u2013 \u00fe.e., <em>koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 \u2026 ekki <\/em>merki sama og <em>koma \u00ed veg fyrir<\/em>. Vissulega finnst sumum \u00fea\u00f0 \u00f3t\u00e6kt a\u00f0 nota \u00e1\u00f0urnefnd or\u00f0 og samb\u00f6nd \u00e1 \u201e\u00f3r\u00f6kr\u00e9ttan\u201c h\u00e1tt, en \u00ed \u00f6llum tilvikum er um sk\u00fdra m\u00e1lvenju a\u00f0 r\u00e6\u00f0a sem fr\u00e1leitt v\u00e6ri a\u00f0 hafna \u2013 \u00feessi notkun hl\u00fdtur a\u00f0 teljast r\u00e9tt. \u00c1\u00f0urnefndri fyrirs\u00f6gn hefur reyndar veri\u00f0 breytt og er <a href=\"https:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2025\/10\/14\/snor_vidbrogd_komu_i_veg_fyrir_ad_verr_for\/\">n\u00fa<\/a> \u201eSn\u00f6r vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 komu \u00ed veg fyrir a\u00f0 verr f\u00f3r\u201c. \u00dear hefur \u00fe\u00f3 tekist \u00f3h\u00f6nduglega til \u00fev\u00ed a\u00f0 samkv\u00e6mt m\u00e1lhef\u00f0 \u00e6tti \u00fearna a\u00f0 vera vi\u00f0tengingarh\u00e1ttur, <em>f\u00e6ri<\/em>. \u00dea\u00f0 bendir til \u00feess a\u00f0 notkun sambandsins \u00e1n <em>ekki <\/em>s\u00e9 m\u00e1lnotendum framandi.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd \u201eM\u00e1lspjalli\u201c var \u00ed dag vakin athygli \u00e1 fyrirs\u00f6gninni \u201eSn\u00f6r vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 komu \u00ed veg fyrir a\u00f0 ekki f\u00f3r verr\u201c \u00e1 mbl.is \u2013 spurt \u201e\u00c6tli hafi \u00fe\u00e1 fari\u00f0 illa?\u201c og b\u00e6tt vi\u00f0: \u201e\u00deessar tv\u00f6f\u00f6ldu neitanir geta rugla\u00f0 mann \u00ed r\u00edminu.\u201c \u00dea\u00f0 er vissulega r\u00e9tt a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir felur \u00ed s\u00e9r eins konar neitun, og [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7679","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7679","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7679"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7679\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7696,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7679\/revisions\/7696"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7679"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7679"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7679"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}