{"id":7756,"date":"2025-11-13T15:17:39","date_gmt":"2025-11-13T15:17:39","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7756"},"modified":"2025-11-30T13:22:37","modified_gmt":"2025-11-30T13:22:37","slug":"einhleypa","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/11\/13\/einhleypa\/","title":{"rendered":"Einhleypa"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd dag var sett inn \u00ed \u201eM\u00e1lspjall\u201c skj\u00e1skot af augl\u00fdsingu fr\u00e1 Icewear \u00fear sem stendur \u201eEinhleyputilbo\u00f0 22% Af \u00f6llum v\u00f6rum fyrir Vini Icewear\u201c. Myndinni fylgdi athugasemdin \u201eIcewear nota\u00f0i n\u00fdtt or\u00f0 \u00ed sinni augl\u00fdsingaherfer\u00f0. \u00c9g man ekki eftir a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 byssur \u00ed \u00feeirra verslunum.\u201c \u00deetta er m\u00e1lefnaleg athugasemd \u2013 fyrri hluti or\u00f0sins <em>einhleyputilbo\u00f0 <\/em>(sem raunar er skrifa\u00f0 \u00ed tvennu lagi \u00ed augl\u00fdsingunni) hl\u00fdtur a\u00f0 vera nafnor\u00f0i\u00f0 <em>einhleypa <\/em>sem er eing\u00f6ngu <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/9541\">sk\u00fdrt<\/a> 'byssa me\u00f0 eitt hlaup' \u00ed <em>\u00cdslenskri n\u00fat\u00edmam\u00e1lsor\u00f0ab\u00f3k<\/em> og 'einhleypt byssa' \u00ed <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k<\/em>. \u00dea\u00f0 er samt lj\u00f3st a\u00f0 s\u00fa er ekki merking or\u00f0sins \u00fearna \u2013 eins og segir r\u00e9ttilega \u00ed athugasemdinni selur Icewear ekki byssur. Enda liggur \u00f6nnur sk\u00fdring beint vi\u00f0.<\/p>\n<p>Or\u00f0i\u00f0 <em>einhleypa <\/em>er \u00fearna greinilega nota\u00f0 \u00ed s\u00f6mu <a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/9542\">merkingu<\/a> og <em>einhleypingur<\/em>, 's\u00e1 e\u00f0a s\u00fa sem er hvorki \u00ed samb\u00fa\u00f0 n\u00e9 hj\u00f3nabandi'. Or\u00f0myndunarlega og merkingarlega liggur \u00fea\u00f0 beint vi\u00f0 \u2013 l\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 <em>einhleypur <\/em><a href=\"https:\/\/islenskordabok.arnastofnun.is\/ord\/9543\">merkir<\/a> 'sem er hvorki \u00ed samb\u00fa\u00f0 n\u00e9 hj\u00f3nabandi' og veik kvenkynsor\u00f0 eiga s\u00e9r i\u00f0ulega samstofna l\u00fdsingaror\u00f0 \u2013 enda or\u00f0i\u00f0 <em>einhleypa <\/em>til fyrir \u00fe\u00f3tt \u00ed annarri merkingu s\u00e9. L\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 <em>einhleypur <\/em>er l\u00edka mj\u00f6g algengt \u00ed m\u00e1linu en nafnor\u00f0i\u00f0 <em>einhleypa <\/em>\u00ed upphaflegri merkingu mj\u00f6g sjaldg\u00e6ft og m\u00f6rgum sennilega \u00f3kunnugt me\u00f0 \u00f6llu. \u00deess vegna er ekkert undarlegt \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 teki\u00f0 til handargagns og \u00fev\u00ed gefin n\u00fd merking. Erfitt er a\u00f0 leita a\u00f0 d\u00e6mum vegna samfalls vi\u00f0 l\u00fdsingaror\u00f0i\u00f0 <em>einhleypur <\/em>en \u00fer\u00f3unin vir\u00f0ist hafa byrja\u00f0 kringum aldam\u00f3t.<\/p>\n<p>\u00cd <em>DV <\/em>2001 segir: \u201eTv\u00e6r fr\u00e6gustu einhleypurnar \u00ed Hollywood eru n\u00fa komnar \u00ed eina s\u00e6ng.\u201c \u00c1 <em>M\u00e1lefnin.com <\/em>2004 segir: \u201e\u00fe\u00e1 er \u00e9g einhleypa en hamhleypa til allra verka.\u201c \u00c1 <em>Bland.is <\/em>2006 segir: \u201eKallinn minn er hvort e\u00f0a er aldrei heima, er n\u00e1nast einhleypa.\u201c En vori\u00f0 2019 birtist fyrirs\u00f6gnin \u201eEinhleypa vikunnar\u201c \u00ed \u00fe\u00e6ttinum \u201eMakam\u00e1l\u201c \u00e1 <em>V\u00edsi<\/em> og undir henni st\u00f3\u00f0: \u201eMakam\u00e1l kynna til leiks fyrstu Einhleypu vikunnar. [\u2026] \u00cd hverri viku munu Makam\u00e1l birta l\u00e9tt vi\u00f0tal vi\u00f0 einhleypan og spennandi einstakling.\u201c \u00c1 undanf\u00f6rnum sex \u00e1rum hafa um hundra\u00f0 <em>einhleypur <\/em>\u2013 b\u00e6\u00f0i karlar og konur \u2013 veri\u00f0 teknar fyrir \u00ed \u00feessum \u00fe\u00e1ttum og \u00fea\u00f0 m\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e6tla a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 <em>einhleypa <\/em>\u00ed \u00feessari merkingu s\u00e9 or\u00f0i\u00f0 s\u00e6milega \u00feekkt, a.m.k. \u00ed hluta m\u00e1lsamf\u00e9lagsins.<\/p>\n<p>En reyndar er h\u00e6gt a\u00f0 finna eldra d\u00e6mi um or\u00f0i\u00f0 <em>einhleypa <\/em>\u00ed \u00feessari merkingu \u2013 og \u00fe\u00f3. \u00cd r\u00e6\u00f0u \u00e1 Al\u00feingi 1918 sag\u00f0i Magn\u00fas Torfason: \u201eEf vi\u00f0 athugum hverjir verst ver\u00f0a \u00fati og mest \u00feurfa atvinnunnar, \u00fe\u00e1 eru \u00fea\u00f0 ekki einhleypingarnir e\u00f0a einhleypurnar, heldur barnamennirnir.\u201c \u00dearna merkir <em>einhleypa<\/em> greinilega 'einhleyp kona' en <em>einhleypingur '<\/em>einhleypur karlma\u00f0ur' \u2013 v\u00edsar sem s\u00e9 ekki til beggja kynja. \u00dea\u00f0 er vel \u00feekkt a\u00f0 m\u00e1lnotendur reyna oft a\u00f0 komast hj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 nota karlkynsor\u00f0 (<a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2025\/01\/08\/hvers-kyns-er-okumadur\/\">starfsheiti<\/a>, <a href=\"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2023\/07\/11\/karllaegni-islenskra-ibuaheita\/\">\u00edb\u00faaheiti<\/a> o.fl.) um konur. \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2018 segir: \u201eEinnig koma vi\u00f0 s\u00f6gu [\u2026] Hreinn Sveinn sem er einhleypingur og D\u00fadda sem er einhleyp kona.\u201c \u00dearna v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 segja <em>Hreinn Sveinn og D\u00fadda sem eru einhleypingar<\/em> \u2013 en \u00fea\u00f0 er ekki gert.<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 v\u00e6ri l\u00edka h\u00e6gt a\u00f0 hugsa s\u00e9r a\u00f0 nota or\u00f0i\u00f0 <em>einhleypa <\/em>um \u00e1stand, '\u00fea\u00f0 a\u00f0 vera einhleypur' \u2013 um \u00fea\u00f0 \u00e1stand er ekkert or\u00f0 til \u00ed m\u00e1linu og \u00fev\u00ed \u00ed raun n\u00e6rt\u00e6kara a\u00f0 nota <em>einhleypa <\/em>\u00ed \u00feeirri merkingu en spandera \u00fev\u00ed \u00e1 merkingu sem or\u00f0 er til fyrir. Einhver d\u00e6mi m\u00e1 reyndar finna um \u00feessa merkingu or\u00f0sins \u2013 \u00e1 <em>Bland.is <\/em>2010 segir t.d. \u201e\u00e9g er n\u00e1nast alltaf \u00feakkl\u00e1t fyrir einhleypuna m\u00edna \u00feegar \u00e9g er h\u00e9r inni\u201c. \u00c1 <em>Twitter <\/em>2021 segir: \u201eHefur einhver h\u00e9rna \u00ed einhleypunni sinni, veri\u00f0 me\u00f0 r\u00fami\u00f0 sitt EKKI uppvi\u00f0 vegg \u00e1 eina hli\u00f0ina?\u201c \u00deessi merking vir\u00f0ist \u00fe\u00f3 vera mj\u00f6g sjaldg\u00e6f, enn sem komi\u00f0 er a.m.k., en notkun hennar \u2013 og \u00fe\u00f6rf fyrir hana \u2013 g\u00e6ti aukist \u00e1 n\u00e6stu \u00e1rum vegna \u00feess a\u00f0 \u00fatbrei\u00f0sla umr\u00e6dds \u00e1stands fer \u00f6rt vaxandi sums sta\u00f0ar \u00ed heiminum.<\/p>\n<p>\u00cd augl\u00fdsingunni sem nefnd var \u00ed upphafi er greinilega veri\u00f0 a\u00f0 nota <em>einhleyputilbo\u00f0 <\/em>\u00ed sta\u00f0 <em>Singles Day tilbo\u00f0 <\/em>sem v\u00ed\u00f0a s\u00e9st \u00ed augl\u00fdsingum. \u00dea\u00f0 er lofsvert a\u00f0 leitast vi\u00f0 a\u00f0 nota \u00edslensku sem mest \u00ed augl\u00fdsingum en samt er mikilv\u00e6gt a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 gert \u00e1 r\u00e9ttan h\u00e1tt og \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 reglur m\u00e1lsins. \u00dearna er tvennt sem kemur til \u00e1lita: Er \u00ed lagi a\u00f0 nota or\u00f0i\u00f0 <em>einhleypa <\/em>\u00ed \u00feessari merkingu \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 fyrir \u00ed m\u00e1linu \u00ed annarri merkingu; og er \u00ed lagi a\u00f0 koma me\u00f0 n\u00fdtt or\u00f0 \u00feegar fyrir er \u00ed m\u00e1linu or\u00f0 s\u00f6mu merkingar og af sama stofni? B\u00e1\u00f0um spurningum m\u00e1 hiklaust svara j\u00e1tandi \u2013 or\u00f0i\u00f0 er mj\u00f6g sjaldg\u00e6ft \u00ed eldri merkingu og misskilningur \u00f3l\u00edklegur. \u00dea\u00f0 er ekki heldur neitt a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa tv\u00f6 or\u00f0 sitt \u00ed hvoru kyni, og <em>einhleypa <\/em>er styttra og liprara en <em>einhleypingur<\/em>.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd dag var sett inn \u00ed \u201eM\u00e1lspjall\u201c skj\u00e1skot af augl\u00fdsingu fr\u00e1 Icewear \u00fear sem stendur \u201eEinhleyputilbo\u00f0 22% Af \u00f6llum v\u00f6rum fyrir Vini Icewear\u201c. Myndinni fylgdi athugasemdin \u201eIcewear nota\u00f0i n\u00fdtt or\u00f0 \u00ed sinni augl\u00fdsingaherfer\u00f0. \u00c9g man ekki eftir a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 byssur \u00ed \u00feeirra verslunum.\u201c \u00deetta er m\u00e1lefnaleg athugasemd \u2013 fyrri hluti or\u00f0sins einhleyputilbo\u00f0 (sem raunar [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7756","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7756","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7756"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7756\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7780,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7756\/revisions\/7780"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7756"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7756"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7756"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}