{"id":7895,"date":"2026-01-15T19:07:26","date_gmt":"2026-01-15T19:07:26","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7895"},"modified":"2026-01-15T19:07:26","modified_gmt":"2026-01-15T19:07:26","slug":"ad-bida-eda-bera-ekki-sitt-bard-eda-bar-eda-barr","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/01\/15\/ad-bida-eda-bera-ekki-sitt-bard-eda-bar-eda-barr\/","title":{"rendered":"A\u00f0 b\u00ed\u00f0a e\u00f0a bera ekki sitt bar\u00f0 e\u00f0a bar e\u00f0a barr"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd \u201eM\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum\u201c var tilf\u00e6r\u00f0 setningin \u201eS\u00ed\u00f0ar stigu tv\u00e6r konur til vi\u00f0b\u00f3tar fram me\u00f0 \u00e1sakanir gegn leikaranum sem hefur ekki bori\u00f0 sitt bar\u00f0 s\u00ed\u00f0an\u201c \u00far <a href=\"https:\/\/www.dv.is\/fokus\/2026\/01\/14\/mr-big-segir-ad-fyrrum-motleikkonan-megi-fokka-ser\/\">fr\u00e9tt<\/a> \u00ed <em>DV <\/em>og spurt \u201eHva\u00f0a bar\u00f0?\u201c. \u00deetta er ekki \u00f3e\u00f0lileg spurning vegna \u00feess a\u00f0 \u00ed venjulegri ger\u00f0 or\u00f0asambandsins sem um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a er nota\u00f0 or\u00f0i\u00f0 <em>barr <\/em>en ekki <em>bar\u00f0 <\/em>\u2013 sambandi\u00f0 <em>bera ekki sitt barr <\/em>er sk\u00fdrt 'n\u00e1 s\u00e9r ekki aftur' \u00ed <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k<\/em>. \u00cd flj\u00f3tu brag\u00f0i m\u00e6tti \u00fev\u00ed \u00e6tla a\u00f0 \u00fearna hafi misskilningur e\u00f0a misheyrn valdi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 nota\u00f0 s\u00e9 rangt en hlj\u00f3\u00f0l\u00edkt or\u00f0, <em>bar\u00f0 <\/em>\u00ed sta\u00f0 <em>barr<\/em> \u2013 e\u00f0a einfaldlega s\u00e9 um prentvillu a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. En vi\u00f0 n\u00e1nari athugun kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 er ekki endilega svo einfalt \u2013umr\u00e6tt or\u00f0asamband \u00e1 s\u00e9r forvitnilega s\u00f6gu og er til \u00ed \u00fdmsum myndum allt fr\u00e1 sautj\u00e1ndu \u00f6ld.<\/p>\n<p>\u00cd kv\u00e6\u00f0um eftir s\u00e9ra J\u00f3n Magn\u00fasson fr\u00e1 mi\u00f0ri sautj\u00e1ndu \u00f6ld <a href=\"https:\/\/ritmalssafn.arnastofnun.is\/daemi\/36203\">segir<\/a>: \u201e\u00fea\u00f0an af aldrei bei\u00f0 sitt bar\u00f0\u201c og \u201eSvo \u00e1 holdinu aldrei bar\u00f0 sitt bei\u00f0\u201c. \u00cd kv\u00e6\u00f0i fr\u00e1 seinni hluta \u00e1tj\u00e1ndu aldar <a href=\"https:\/\/ritmalssafn.arnastofnun.is\/daemi\/36427\">segir<\/a>: \u201eAldrei meir sitt bi\u00f0u bar\u00f0.\u201c \u00cd kv\u00e6\u00f0i eftir Benedikt J\u00f3nsson Gr\u00f6ndal fr\u00e1 \u00fev\u00ed um 1800 segir: \u201eEn hv\u00f6rt minn f\u00edfill b\u00ed\u00f0ur bar\u00f0.\u201c \u00cd <em>Safni af \u00edslenzkum or\u00f0skvi\u00f0um <\/em>eftir Gu\u00f0mund J\u00f3nsson fr\u00e1 1830 segir: \u201e\u00c9g b\u00ed\u00f0 aldrei mitt bar.\u201c \u00cd <em>Fr\u00f3\u00f0a <\/em>1882 segir: \u201ea\u00f0 hann m\u00e1ske b\u00ed\u00f0ur aldrei sitt bar\u00f0.\u201c \u00cd <em>L\u00f6gbergi <\/em>1906 segir: \u201eog hefir aldrei be\u00f0i\u00f0 sitt bar\u00f0 s\u00ed\u00f0an.\u201c \u00cd <em>\u00cdslenskum \u00fej\u00f3\u00f0s\u00f6gum og s\u00f6gnum <\/em>Sigf\u00fasar Sigf\u00fassonar fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed byrjun tuttugustu aldar segir: \u201eog bei\u00f0 Eir\u00edkur eigi sitt bar\u00f0 s\u00ed\u00f0an.\u201c Ekki ver\u00f0ur betur s\u00e9\u00f0 en merkingin \u00ed \u00feessum d\u00e6mum s\u00e9 svipu\u00f0 og \u00ed <em>bera ekki sitt barr<\/em>.<\/p>\n<p>Undir lok n\u00edtj\u00e1ndu aldar hverfa d\u00e6mi um <em>b\u00ed\u00f0a sitt bar\u00f0 <\/em>a\u00f0 mestu en s\u00f6gnin <em>bera <\/em>kemur \u00ed sta\u00f0 <em>b\u00ed\u00f0a<\/em>. \u00cd <em>Fjallkonunni <\/em>1893 segir: \u201eEkkjan ber aldrei bar\u00f0 sitt r\u00e9tt upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed.\u201c \u00cd <em>Landskj\u00e1lftum \u00e1 \u00cdslandi <\/em>eftir \u00deorvald Thoroddsen fr\u00e1 \u00fev\u00ed um 1900 segir: \u201efj\u00f6lda margir munu aldrei bera sitt bar\u00f0 e\u00f0a ver\u00f0a jafng\u00f3\u00f0ir.\u201c \u00cd <em>Fjallkonunni <\/em>1900 segir: \u201es\u00ed\u00f0an hefir Sp\u00e1nn aldrei bori\u00f0 sitt bar\u00f0.\u201c \u00cd <em>Heimskringlu <\/em>1922 segir: \u201eOg beri Al\u00fej\u00f3\u00f0af\u00e9lagi\u00f0 bar\u00f0 sitt eftir \u00feetta.\u201c \u00cd <em>Heimskringlu <\/em>1943 segir: \u201eBar Rosseau-n\u00fdlendan ekki bar\u00f0 sitt eftir \u00feetta.\u201c \u00cd <em>Heimskringlu <\/em>1946 segir: \u201e\u00de\u00f3 jafnvel \u00fej\u00f3\u00f0irnar [...] reisi \u00feeim n\u00fa \u00ed \u00feakkarskyni n\u00ed\u00f0st\u00f6ng, munu Bandar\u00edkin bar\u00f0 sitt bera.\u201c D\u00e6min \u00ferj\u00fa fr\u00e1 tuttugustu \u00f6ld eru \u00f6ll \u00far vestur\u00edslensku sem s\u00fdnir a\u00f0 \u00feetta hefur var\u00f0veist lengur \u00fear.<\/p>\n<p>N\u00fat\u00ed\u00f0armynd sambandsins, <em>bera ekki sitt barr<\/em>, kemur fyrst fyrir \u00ed or\u00f0ab\u00f3k Bj\u00f6rns Halld\u00f3rssonar, <em>Lexico Islandico-Latino-Danicum<\/em>, fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ari hluta \u00e1tj\u00e1ndu aldar a\u00f0 \u00fev\u00ed er J\u00f3n G. Fri\u00f0j\u00f3nsson segir \u00ed <em>Merg m\u00e1lsins<\/em>. En \u00fear er reyndar notu\u00f0 myndin <em>bar<\/em> \u2013 \u201eHann ber ekki sitt bar \u00far \u00feessu\u201c. Sama m\u00e1li gegnir um \u00f6ll n\u00edtj\u00e1ndu aldar d\u00e6mi \u00e1 <em>t\u00edmarit.is<\/em>, \u00fea\u00f0 elsta \u00ed <em>Sk\u00edrni <\/em>1861: \u201ebar ekki sitt bar hin n\u00e6stu 100 \u00e1r.\u201c Myndin <em>barr <\/em>kemur ekki fyrir \u00ed \u00feessu sambandi fyrr en \u00ed <em>Heimskringlu <\/em>1909: \u201eEn eftir \u00fea\u00f0 kva\u00f0st hann aldrei hafa bori\u00f0 sitt barr.\u201c Allm\u00f6rg d\u00e6mi eru \u00fe\u00f3 um myndina <em>barr <\/em>\u00ed \u00f6\u00f0ru samhengi \u00e1 <em>t\u00edmarit.is <\/em>fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ratugum n\u00edtj\u00e1ndu aldar, en fyrst h\u00fan kemur ekki fyrir \u00ed umr\u00e6ddu sambandi m\u00e1 spyrja hvort <em>barr <\/em>og <em>bar <\/em>s\u00e9 endilega sama or\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p>\u00cd <em>\u00cdslensk-danskri or\u00f0ab\u00f3k <\/em>fr\u00e1 1920-1924 er <em>bar <\/em>s\u00e9rstakt flettior\u00f0 sem er sk\u00fdrt 'fr\u00e6 f\u00edfunnar' og 'frj\u00f3angi' en einnig sem 'barr' \u2013 \u00feessar sk\u00fdringar er einnig a\u00f0 finna \u00ed <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k<\/em>. \u00dea\u00f0 er sem s\u00e9 vel hugsanlegt a\u00f0 merking or\u00f0sins <em>bar<\/em> \u00ed <em>bera ekki sitt bar<\/em> s\u00e9 ekki 'barr'. \u00cd <em>Merg m\u00e1lsins <\/em>segir J\u00f3n G. Fri\u00f0j\u00f3nsson: \u201eL\u00edkingin er dregin af barrtr\u00e9 sem fellir n\u00e1larnar.\u201c M\u00e9r finnst \u00feetta ekki endilega l\u00edkleg sk\u00fdring \u00ed lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 \u00feegar sambandi\u00f0 kom fram voru engin barrtr\u00e9 \u00e1 \u00cdslandi. Au\u00f0vita\u00f0 g\u00e6ti \u00feetta veri\u00f0 komi\u00f0 \u00far d\u00f6nsku e\u00f0a mynda\u00f0 \u00fat fr\u00e1 d\u00f6nskum a\u00f0st\u00e6\u00f0um, en \u00f6nnur sk\u00fdring liggur \u00fe\u00f3 beinna vi\u00f0 \u2013 a\u00f0 <em>bar <\/em>merki \u00fearna 'frj\u00f3angi' e\u00f0a 'brumhnappur' \u2013 sem raunar er ein sk\u00fdring myndarinnar <em>barr <\/em>\u00ed <em>\u00cdslenskri or\u00f0ab\u00f3k<\/em>, me\u00f0 d\u00e6minu <em>bera ekki sitt barr<\/em>.<\/p>\n<p>H\u00e9r eru komnar fj\u00f3rar myndir sambandsins: <em>b\u00ed\u00f0a sitt bar\u00f0<\/em>, <em>bera sitt bar\u00f0<\/em>, <em>bera sitt bar<\/em>, <em>bera sitt barr<\/em> \u2013 og s\u00fa fimmta, <em>b\u00ed\u00f0a sitt barr<\/em>, kemur fyrir \u00ed kv\u00e6\u00f0i eftir Stephan G. Stephansson: \u201eEr hitna\u00f0i skap hans \u00fe\u00e1 bei\u00f0 hann sitt barr.\u201c Reyndar eru samb\u00f6ndin langoftast h\u00f6f\u00f0 me\u00f0 neitun \u2013 <em>b\u00ed\u00f0a<\/em>\/<em>bera ekki sitt bar\u00f0<\/em>\/<em>bar<\/em>\/<em>barr<\/em>. Spurningin er hvernig h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 koma \u00feessu heim og saman. Byrjum \u00e1 s\u00f6gninni sem er upphaflega <em>b\u00ed\u00f0a <\/em>en ver\u00f0ur s\u00ed\u00f0ar <em>bera<\/em>. \u00deegar s\u00f6gnin <em>b\u00ed\u00f0a <\/em>tekur \u00feolfallsandlag merkir h\u00fan yfirleitt 'hlj\u00f3ta, f\u00e1, \u00f6\u00f0last'. \u00dea\u00f0 m\u00e1 \u00fev\u00ed hugsa s\u00e9r a\u00f0 <em>b\u00ed\u00f0a ekki sitt bar<\/em>(<em>r<\/em>) merki 'bruma ekki', 'f\u00e1 ekki frj\u00f3anga' e\u00f0a eitthva\u00f0 sl\u00edkt, og <em>bera ekki sitt bar<\/em>(<em>r<\/em>) hefur \u00fe\u00e1 s\u00f6mu merkingu \u2013 'bera ekki brum', 'bera ekki frj\u00f3anga' e\u00f0a eitthva\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1 \u00e1tt.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 er eftir a\u00f0 sk\u00fdra <em>bar\u00f0<\/em>. \u00dea\u00f0 or\u00f0 getur haft \u00fdmsar merkingar en engin \u00feeirra sem er gefin upp \u00ed or\u00f0ab\u00f3kum vir\u00f0ist eiga vi\u00f0 \u00fearna. Eina sk\u00fdringin sem m\u00e9r kemur \u00ed hug er s\u00fa a\u00f0 <em>bar\u00f0 <\/em>hafi geta\u00f0 merkt \u00fea\u00f0 sama og <em>bar<\/em>(<em>r<\/em>). <a href=\"https:\/\/baekur.is\/bok\/90dd5f5a-9989-496d-b0c8-401272f9b173\/0\/231\/Kvaedi#page\/n230\/mode\/1up\">Kv\u00e6\u00f0i<\/a> Benedikts J\u00f3nssonar Gr\u00f6ndal sem \u00e1\u00f0ur var vitna\u00f0 til og heitir \u201eHeilsan\u201c finnst m\u00e9r geta bent til \u00feess: \u201e\u00c1 haustin allir f\u00edflar f\u00f6lna \/ en fur\u00f0uverk ei l\u00edti\u00f0 er: \/ \u00deeir hlj\u00f3ta fyrst a\u00f0 sortna og s\u00f6lna, \/ svo endurlifni \u00feeirra fjer [\u00fe.e. fj\u00f6r]; \u00a0\/ en hv\u00f6rt minn f\u00edfill b\u00ed\u00f0ur bar\u00f0 \/ blindu\u00f0 skynsemi tv\u00edla var\u00f0.\u201c \u00dearna vir\u00f0ist <em>bar\u00f0 <\/em>merkja b\u00f3kstaflega 'fr\u00e6' e\u00f0a 'frj\u00f3korn'. En hva\u00f0 sem um \u00feetta er, og hvernig sem tengslum mismunandi mynda or\u00f0asambandsins er h\u00e1tta\u00f0, vir\u00f0ist or\u00f0alag \u00e1\u00f0urnefndrar fr\u00e9ttar <em>DV <\/em>eiga fullan r\u00e9tt \u00e1 s\u00e9r.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd \u201eM\u00e1lv\u00f6ndunar\u00fe\u00e6ttinum\u201c var tilf\u00e6r\u00f0 setningin \u201eS\u00ed\u00f0ar stigu tv\u00e6r konur til vi\u00f0b\u00f3tar fram me\u00f0 \u00e1sakanir gegn leikaranum sem hefur ekki bori\u00f0 sitt bar\u00f0 s\u00ed\u00f0an\u201c \u00far fr\u00e9tt \u00ed DV og spurt \u201eHva\u00f0a bar\u00f0?\u201c. \u00deetta er ekki \u00f3e\u00f0lileg spurning vegna \u00feess a\u00f0 \u00ed venjulegri ger\u00f0 or\u00f0asambandsins sem um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a er nota\u00f0 or\u00f0i\u00f0 barr en ekki bar\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7895","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7895","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7895"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7895\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7896,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7895\/revisions\/7896"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7895"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7895"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7895"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}