{"id":7899,"date":"2026-01-17T14:24:28","date_gmt":"2026-01-17T14:24:28","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7899"},"modified":"2026-01-17T14:24:28","modified_gmt":"2026-01-17T14:24:28","slug":"ad-hringja-sig-inn-veikan","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/01\/17\/ad-hringja-sig-inn-veikan\/","title":{"rendered":"A\u00f0 hringja sig (inn) veikan"},"content":{"rendered":"<p>N\u00fdlega var spurt \u00ed \u201eM\u00e1lspjalli\u201c hven\u00e6r f\u00f3lk hef\u00f0i byrja\u00f0 a\u00f0 <em>hringja sig inn veikt<\/em> \u2013 hvort \u00feetta v\u00e6ru \u00e1hrif fr\u00e1 <em>call in sick <\/em>\u00ed ensku. \u00deetta or\u00f0alag finnst ekki \u00ed or\u00f0ab\u00f3kum og er v\u00e6ntanlega ekki \u00fdkja gamalt en eins og me\u00f0 a\u00f0rar n\u00fdjungar er tr\u00falegt a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi t\u00ed\u00f0kast \u00ed m\u00e1linu um hr\u00ed\u00f0 \u00e1\u00f0ur en \u00fea\u00f0 komst \u00e1 prent. Elsta ritm\u00e1lsd\u00e6mi sem \u00e9g finn er \u00ed <em>Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu <\/em>1988: \u201emargir \u00feor\u00f0u ekki fyrir sitt litla l\u00edf \u00ed vinnuna, hringdu sig inn veika.\u201c \u00cd <em>Helgarp\u00f3stinum <\/em>1996 segir: \u201e\u00e9g var eiginlega aldrei \u00ed \u00e1standi til a\u00f0 m\u00e6ta og hringdi mig inn veika trekk \u00ed trekk.\u201c Or\u00f0alagi\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 algengt \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum upp \u00far aldam\u00f3tum en d\u00e6mum um \u00fea\u00f0 \u00e1 prenti fer sm\u00e1tt og sm\u00e1tt fj\u00f6lgandi upp \u00far \u00fev\u00ed \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 ver\u00f0i ekki verulega algengt fyrr en \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu t\u00edu \u00e1rum e\u00f0a svo.<\/p>\n<p>D\u00e6min um \u00feetta or\u00f0alag \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni <\/em>eru um 900, \u00fear af um 700 af samf\u00e9lagsmi\u00f0lum. En einnig eru alls um 100 d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 \u00e1n <em>inn<\/em>, einkum \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum. \u00c1 <em>Bland.is <\/em>2004 segir: \u201e\u00c6tti \u00e9g a\u00f0 hringja mig veika?\u201c \u00c1 <em>Twitter <\/em>2016 segir: \u201eEr b\u00fainn a\u00f0 hringja mig veikan \u00ed vinnunni \u00e1 morgun.\u201c \u00d6rf\u00e1 d\u00e6mi eru \u00far \u00f6\u00f0rum textum. \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2012 segir: \u201egetur veri\u00f0 sn\u00fai\u00f0 a\u00f0 taka s\u00e9r leyfi e\u00f0a hringja sig veikan.\u201c \u00c1 <em>mbl.is <\/em>2023 segir: \u201e\u00dea\u00f0 er n\u00e1tt\u00farlega b\u00f6mmer a\u00f0 hringja sig veika \u00ed vinnunni.\u201c \u00c9g er reyndar viss um a\u00f0 s\u00f6gnin <em>hringja <\/em>er ekki alltaf notu\u00f0 \u00ed b\u00f3kstaflegri merkingu \u00ed <em>hringja sig <\/em>(<em>inn<\/em>) <em>veikan<\/em> \u2013 \u00fea\u00f0 er nokku\u00f0 \u00f6ruggt a\u00f0 \u00ed sumum tilvikum hefur f\u00f3lk sent tilkynningu \u00ed t\u00f6lvup\u00f3sti, \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum e\u00f0a \u00ed sm\u00e1skilabo\u00f0um.<\/p>\n<p>\u00c1\u00f0ur var oftast nota\u00f0 or\u00f0alagi\u00f0 <em>tilkynna sig veikan<\/em> \u2013 elsta d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 er \u00ed <em>\u00cd\u00fer\u00f3ttabla\u00f0inu <\/em>1974: \u201e\u00c9g man t.d. einu sinni [...] a\u00f0 \u00e9g m\u00e6tti ekki, og tilkynnti mig veikan.\u201c \u00deetta or\u00f0alag er enn algengt, en \u00e1 seinni \u00e1rum mun sjaldg\u00e6fara en <em>hringja sig <\/em>(<em>inn<\/em>)<em> veikan<\/em>. Einnig er stundum sagt <em>melda sig veikan<\/em> \u2013 \u201est\u00f3r hluti s\u00edmvirkjanna hefur \u00feegar melda\u00f0 sig veikan\u201c segir \u00ed <em>DV<\/em> 1984. Fleiri sagnir sem merkja 'tilkynna, l\u00e1ta vita' koma til greina, eins og <em>segja <\/em>\u2013 \u201eSamkv\u00e6mt uppl\u00fdsingum stj\u00f3rnarmanna KS\u00cd b\u00e1\u00f0u forr\u00e1\u00f0amenn Stuttgart \u00c1sgeir a\u00f0 segja\u00a0sig veikan\u201c segir \u00ed <em>T\u00edmanum <\/em>1983. En s\u00f6gnin <em>hringja <\/em>hefur \u00feessa merkingu a\u00f0eins \u00ed sambandinu <em>hringja sig <\/em>(<em>inn<\/em>) \u2013 vi\u00f0 getum sagt <em>\u00e9g tilkynnti \u00feetta<\/em>, <em>\u00e9g sag\u00f0i \u00feetta<\/em>, <em>\u00e9g melda\u00f0i \u00feetta<\/em>, en ekki *<em>\u00e9g hringdi \u00feetta<\/em>.<\/p>\n<p>Sagnir \u00feessarar merkingar er yfirleitt h\u00e6gt a\u00f0 nota \u00ed tveimur setningager\u00f0um \u2013 annars vegar me\u00f0 nafnh\u00e6tti og \u00feolfallsandlagi, eins og <em>\u00e9g tilkynnti mig veikan<\/em>, <em>\u00e9g sag\u00f0i mig veikan<\/em>, <em>\u00e9g melda\u00f0i mig veikan<\/em>, og hins vegar me\u00f0 <em>a\u00f0<\/em>-setningu, <em>\u00e9g tilkynnti a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri veikur<\/em>, <em>\u00e9g sag\u00f0i a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri veikur<\/em>, og jafnvel <em>\u00e9g melda\u00f0i a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri veikur<\/em>. \u00dea\u00f0 er hins vegar \u00fatiloka\u00f0 a\u00f0 hafa aukasetningu \u00e1 eftir <em>hringja <\/em>(<em>inn<\/em>) \u2013 vi\u00f0 getum ekki sagt *<em>\u00e9g hringdi <\/em>(<em>inn<\/em>) <em>a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri veikur<\/em>, enda hefur <em>hringja <\/em>ekki umr\u00e6dda merkingu nema \u00ed <em>hringja sig <\/em>(<em>inn<\/em>) eins og fyrr segir. \u00de\u00f3tt sambandi\u00f0 <em>hringja sig <\/em>(<em>inn<\/em>) s\u00e9 komi\u00f0 inn \u00ed m\u00e1li\u00f0, v\u00e6ntanlega \u00far ensku, hagar \u00fea\u00f0 s\u00e9r sem sj\u00e1lfst\u00e6tt fast samband og hefur ekki \u00e1hrif \u00e1 merkingu e\u00f0a setningarst\u00f6\u00f0u <em>hringja <\/em>a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00fdlega var spurt \u00ed \u201eM\u00e1lspjalli\u201c hven\u00e6r f\u00f3lk hef\u00f0i byrja\u00f0 a\u00f0 hringja sig inn veikt \u2013 hvort \u00feetta v\u00e6ru \u00e1hrif fr\u00e1 call in sick \u00ed ensku. \u00deetta or\u00f0alag finnst ekki \u00ed or\u00f0ab\u00f3kum og er v\u00e6ntanlega ekki \u00fdkja gamalt en eins og me\u00f0 a\u00f0rar n\u00fdjungar er tr\u00falegt a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi t\u00ed\u00f0kast \u00ed m\u00e1linu um hr\u00ed\u00f0 \u00e1\u00f0ur en [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7899","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7899","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7899"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7899\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7900,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7899\/revisions\/7900"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7899"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7899"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7899"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}