{"id":7907,"date":"2026-01-21T11:25:07","date_gmt":"2026-01-21T11:25:07","guid":{"rendered":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/?p=7907"},"modified":"2026-01-21T11:25:07","modified_gmt":"2026-01-21T11:25:07","slug":"ad-standa-upp-fyrir-sjalfum-ser","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/2026\/01\/21\/ad-standa-upp-fyrir-sjalfum-ser\/","title":{"rendered":"A\u00f0 standa upp fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd fr\u00e9tt \u00ed <em>DV <\/em>\u00ed g\u00e6r <a href=\"https:\/\/www.dv.is\/433\/2026\/1\/20\/meint-hjakona-david-beckham-varpar-sprengju-kjolfar-thess-ad-sonur-hans-tok-foreldrana-af-lifi-yfirlysingu\/\">haft eftir<\/a> konu um nafngreindan erlendan mann: \u201eH\u00fan skrifa\u00f0i athugasemd \u00fear sem h\u00fan sag\u00f0ist \u00e1n\u00e6g\u00f0 me\u00f0 a\u00f0 hann standi loksins upp fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r.\u201c \u00c1 <em>F\u00f3tbolti.net <\/em>er <a href=\"https:\/\/fotbolti.net\/news\/20-01-2026\/beckham-bornin-min-gera-mistok\">haft eftir<\/a> \u00feeim sem v\u00edsa\u00f0 er til: \u201e\u00dea\u00f0 er enginn a\u00f0 stj\u00f3rna m\u00e9r heldur er \u00e9g a\u00f0 standa upp fyrir m\u00e9r \u00ed fyrsta sinn\u201c \u2013 \u00ed <a href=\"https:\/\/www.bbc.com\/news\/articles\/ce3ekq4z5dyo\">frumtextanum<\/a> segir \u201eI\u2018m standing up for myself for the first time in my life\u201c. \u00dearna er \u00ed b\u00e1\u00f0um tilvikum nota\u00f0 sambandi\u00f0 <em>standa upp fyrir einhverjum <\/em>sem er auglj\u00f3slega \u00fe\u00fd\u00f0ing \u00e1 <em>stand up for something<\/em>\/<em>someone <\/em>\u00ed ensku en \u00fea\u00f0 samband <a href=\"https:\/\/dictionary.cambridge.org\/dictionary\/english\/stand-up-for?q=stand+up+for+something%2Fsomeone\">merkir<\/a> 'to defend or support a particular idea or a person who is being criticized or attacked' e\u00f0a 'a\u00f0 verja e\u00f0a sty\u00f0ja tiltekna hugmynd e\u00f0a manneskju sem s\u00e6tir gagnr\u00fdni e\u00f0a \u00e1r\u00e1sum'.<\/p>\n<p>\u00deetta samband hefur t\u00f6luvert veri\u00f0 nota\u00f0 \u00ed \u00edslensku undanfarin tuttugu \u00e1r e\u00f0a svo. Elsta d\u00e6mi sem \u00e9g finn um \u00fea\u00f0 er \u00e1 <em>Hugi.is <\/em>2004: \u201esj\u00e1lfur stend \u00e9g upp fyrir sj\u00e1lfum m\u00e9r ef einhver byrjar me\u00f0 lei\u00f0indi.\u201c \u00c1 <em>Bland.is <\/em>2005 segir: \u201eD\u00e1ist a\u00f0 konum sem standa upp fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r og l\u00e1ta n\u00ed\u00f0inginn heyra \u00fea\u00f0!\u201c Elsta d\u00e6mi\u00f0 \u00e1 <em>t\u00edmarit.is <\/em>er \u00ed <em>B\u00e6jarins besta <\/em>2007: \u201e\u00dea\u00f0 er m\u00edn \u00f3sk a\u00f0 ge\u00f0fatla\u00f0ir standi upp fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r og ver\u00f0i s\u00fdnilegri.\u201c \u00cd <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu <\/em>2008 segir: \u201eHven\u00e6r munu \u00d3lafar landsins standa upp fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r?\u201c Sambandi\u00f0 vir\u00f0ist hafa brei\u00f0st miki\u00f0 \u00fat eftir a\u00f0 lagi\u00f0 \u201eStattu upp\u201c me\u00f0 hlj\u00f3msveitinni <em>Bl\u00e1r \u00f3pal<\/em> lenti \u00ed \u00f6\u00f0ru s\u00e6ti \u00ed S\u00f6ngvakeppni Sj\u00f3nvarpsins \u00e1ri\u00f0 2012, en \u00fear er l\u00ednan \u201eStattu upp fyrir sj\u00e1lfum \u00fe\u00e9r\u201c margendurtekin.<\/p>\n<p>\u00cd \u201eMolum um m\u00e1lfar og mi\u00f0la\u201c \u00e1ri\u00f0 2012 <a href=\"https:\/\/eidur.is\/2191\">segist<\/a> Ei\u00f0ur Gu\u00f0nason hafa fengi\u00f0 spurninguna \u201eMyndi molaskrifari \u00e1l\u00edta sem svo a\u00f0 ,,Stattu upp fyrir sj\u00e1lfum \u00fe\u00e9r\u201c teldist til g\u00f3\u00f0rar notkunar \u00e1 \u00edslensku? Svari\u00f0 er nei, \u2013 en Molaskrifari l\u00edtur n\u00fa eiginlega \u00e1 \u00feetta sem gr\u00ednbull.\u201c \u00cd <em>Morgunbla\u00f0inu <\/em>2016 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/6755701?iabr=on#page\/n15\/mode\/1up\/\">spyr<\/a> Svanhildur H\u00f3lm Valsd\u00f3ttir: \u201eHvernig fer ma\u00f0ur l\u00edka a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u201e<strong>standa upp fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r<\/strong>\u201c eins og var sungi\u00f0 \u00ed undankeppni Eurovision fyrir nokkrum \u00e1rum; \u201eStattu upp fyrir sj\u00e1lfum \u00fe\u00e9r.\u201c \u00c9g hef \u00e1tt \u00ed mestu vandr\u00e6\u00f0um me\u00f0 sj\u00e1lfa mig \u00feegar \u00e9g heyri \u00feetta \u00fev\u00ed \u00e9g get \u00f3m\u00f6gulega s\u00e9\u00f0 fyrir m\u00e9r hvernig h\u00e6gt er a\u00f0 koma \u00fev\u00ed \u00ed verk. Einhverjir myndu segja a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri p\u00ednu b\u00f3kstafleg en \u00e9g virka svona \u2013 hlutir \u00feurfa helst a\u00f0 vera r\u00f6kr\u00e9ttir.\u201c<\/p>\n<p>B\u00f3kstafleg og hef\u00f0bundin \u2013 og \u201er\u00f6kr\u00e9tt\u201c \u2013 merking sambandsins <em>standa upp fyrir einhverjum <\/em>er 'bj\u00f3\u00f0a einhverjum s\u00e6ti sitt', t.d. \u00ed str\u00e6t\u00f3 \u2013 og s\u00fa merking er au\u00f0vita\u00f0 enn \u00ed fullu gildi. En \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 sambandi\u00f0 <em>standa upp fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r <\/em>hafi veri\u00f0 tali\u00f0 \u201egr\u00ednbull\u201c og \u201e\u00f3r\u00f6kr\u00e9tt\u201c hefur notkun \u00feess haldi\u00f0 \u00e1fram a\u00f0 aukast og \u00ed <em>Risam\u00e1lheildinni <\/em>eru r\u00fam 150 d\u00e6mi um \u00fea\u00f0. \u00de\u00f3 fer \u00fev\u00ed fjarri a\u00f0 \u00f6llum hugnist sambandi\u00f0 og \u00ed allm\u00f6rgum \u00feessara d\u00e6ma er einmitt veri\u00f0 a\u00f0 gagnr\u00fdna \u00fea\u00f0. \u00c1 <em>Twitter <\/em>2016 segir t.d.: \u201e\u00d6murlegt \u00feegar f\u00f3lk stendur upp fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 standa me\u00f0 s\u00e9r.\u201c \u00dea\u00f0 getur \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r veri\u00f0 \u00ed lagi a\u00f0 gefa or\u00f0asamb\u00f6ndum n\u00fdja og yfirf\u00e6r\u00f0a merkingu, jafnvel \u00fe\u00f3tt h\u00fan s\u00e9 komin \u00far ensku. En \u00fearna byggist \u00feetta \u00e1 misskilningi.<\/p>\n<p>Enska atviksor\u00f0i\u00f0 <em>up <\/em>merkir nefnilega b\u00e6\u00f0i 'upp' og 'uppi' og \u00e1 ensku getur <em>stand up <\/em>\u00fev\u00ed v\u00edsa\u00f0 b\u00e6\u00f0i til hreyfingar ('r\u00edsa upp') og kyrrst\u00f6\u00f0u \u2013 og \u00fea\u00f0 er s\u00ed\u00f0arnefnda merkingin sem \u00e1 vi\u00f0 ef \u00e9g skil \u00feetta r\u00e9tt. \u00cd \u00edslensku hl\u00fdtur <em>standa upp <\/em>hins vegar a\u00f0 v\u00edsa til hreyfingar en <em>standa uppi <\/em>v\u00e6ri ekki e\u00f0lilegt \u00ed \u00feessu samhengi. Hins vegar eru til \u00fdmis samb\u00f6nd sem h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 nota \u00ed svipa\u00f0ri merkingu og um r\u00e6\u00f0ir, svo sem <em>standa me\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r<\/em>, <em>standa \u00e1 r\u00e9tti s\u00ednum<\/em>, <em>standa \u00ed lappirnar <\/em>o.fl. \u00de\u00f3tt ekki s\u00e9 \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 amast vi\u00f0 yfirf\u00e6rslu enskra or\u00f0asambanda sem falla a\u00f0 reglum m\u00e1lsins gegnir \u00f6\u00f0ru m\u00e1li \u00feegar yfirf\u00e6rslan br\u00fdtur gegn venjulegri m\u00e1lnotkun og byggist auk \u00feess \u00e1 van\u00feekkingu e\u00f0a misskilningi. H\u00e6ttum a\u00f0 tala um a\u00f0 <em>standa upp fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r<\/em>.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd fr\u00e9tt \u00ed DV \u00ed g\u00e6r haft eftir konu um nafngreindan erlendan mann: \u201eH\u00fan skrifa\u00f0i athugasemd \u00fear sem h\u00fan sag\u00f0ist \u00e1n\u00e6g\u00f0 me\u00f0 a\u00f0 hann standi loksins upp fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r.\u201c \u00c1 F\u00f3tbolti.net er haft eftir \u00feeim sem v\u00edsa\u00f0 er til: \u201e\u00dea\u00f0 er enginn a\u00f0 stj\u00f3rna m\u00e9r heldur er \u00e9g a\u00f0 standa upp fyrir m\u00e9r \u00ed [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":141,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[158635],"tags":[],"class_list":["post-7907","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-malfar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7907","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/users\/141"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7907"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7907\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7908,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7907\/revisions\/7908"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7907"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7907"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/uni.hi.is\/eirikur\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7907"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}